Morgunblaðið - 15.05.1987, Side 10

Morgunblaðið - 15.05.1987, Side 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1987 Reynir Axelsson: SUNDURLAU SIR ÞANKAR UM ORÐASMÍÐ Við ættum ekki að gleyma því að hinn mikli fjöldi fólks sem situr um allt land við að smíða fræðiorð um sem flest á himni og jörðu er ekki að því fyrst og fremst ánægjunnar vegna, heldur vegna þess að það þarf sjálft á þessum orðum að halda í daglegu lífí. Þeir sem starfa á sama sviði þurfa að ræða um það sín á milli, og kennar- ar verða að geta miðlað nemendum þekkingu sinni á máli sem báðir skilja. Að vísu má öft um stundar- sakir komast af með að sletta erlendum fræðiheitum, þegar menn eru í vandræðum, en það verður óneitanlega leiðinlegt til lengdar. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er það staðreynd að hrein- tungustefnan svokallaða hefur nú farið með algjöran sigur af hólmi, og beinlínis er til þess ætlazt af íslenzkum fræðimönnum að þeir geti talað um starf sitt á ómeng- aðri íslenzku. .r Hveijum manni er líka hollt að orða hugsanir sínar á eigin máli. Við hugsum ekki til að tala, heldur tölum við til þess að hugsa. Að búa til nýtt orð er ekki ýkja frábrugðið því að búa til nýja setningu. Hvort tveggja er liður í að móta hugsanir okkar. Því má ekki einangra orða- smíð frá öðru fræðastarfí. Ég tel að nýyrði verði affarasælust ef þau verða til sem eðlilegur hluti af sam- felldu máli, og ég held um sjálfan mig að mér takist betur upp við nýyrðasmíð þegar ég er að skrifa um efni sem ég hef verið að velta gaumgæfílega fyrir mér en þegar mér er fenginn í hendur sundurlaus orðalisti og ég beðinn um að snara honum á íslenzku. Við fyrstu sýn kann að virðast að orðasmíð ætti að vera auðveld- ari fyrir stærðfræðinga en marga aðra vegna þess að þeir eru aldir upp við að nota aldrei nýtt orð nema skilgreina það fyrst alveg nákvæm- lega. Því má með nokkrum rétti segja að það skipti ekki höfuðmáli hvaða orð er valið, meðan hugtakið er ljóst. Oft er vitnað til stærð- fræðingsins Davids Hilbert, en hann sagði að í stað orðanna punktur, lína og slétta ættu stærðfræðingar að geta notað hvaða önnur orð sem er, svo sem stóll, borð og bjórkrús. Ég held að þesi orð Hilberts séu oft misskilin. Hann var hvorki að halda því fram, eins og sumir virð- ast álíta, að stærðfræðiheiti séu merkingarlaus, né var hann að segja að stærðfræðingar mættu kasta höndunum til orðavals, heldur var hann að gera þá kröfu að þeir skilgreini hugtök sín þannig að merking þeirra verði fullkomlega ljós af skilgreiningunum einum saman; m.ö.o. að þeir megi ekki láta orð bera með sér inn í stærð- fræðina nokkra aukamerkingu sem þau kunna að hafa í daglegu tali. Því má neftiilega öfugt halda fram að stærðfræðingar þurfí ein- mitt að leggja ennþá meiri alúð en margir aðrir við að fínna heppileg fræðiheiti, því að á fáum öðrum fræðasviðum tengjast hugtök (jafn óijúfanlega heild og í stærðfræði. Það þarf því ekki aðeins að huga að skilgreiningunni einni þegar hugtaki er valið heiti, heldur að margskonar ólíku samhengi sem það er notað í. Það nægir heldur ekki að líta á eitt orð í einu, heldur verð’ir að huga að öilum orðum sem .. af því eru dregin og auk þess að mörgum öðrum orðum og hugtök- um sem eru því tengd. Fýrsta skilyrði sem þarf að gera til orða- smiðs er því að har.n h?ft staðgóða þekkingu á efninu sem um er fjall- að. Ofan á það bætist að samhengi hugtaka og jafnvel hugtökin sjálf hafa tilhneigingu til að breytast með árunum. Þótt hugtak fái hár- nákvæma skilgreiningu strax við fæðingu koma nýir menn og sjá að kannski hefði verið heppilegra að skilgreina það dálítið öðruvísi. Því geta hugtök gjörbreytzt í aldanna rás, og stærðfræði hefur verið stun- duð í meira en tvö þúsund ár, svo að sum hugtök hennar eru komin vel til ára sinna. Nú getum við að vísu ekki valið heiti með tilliti til þess sem gerast kann í framtíð- inni. En vert er að hafa í huga, þegar gömul erlend heiti eru þýdd, að merking þeirra er oft komin langt frá því sem hún var í upp- hafi. Annað skilyrði sem orðasmiður verður að fullnægja er því að hann hafí dálitla þekkingu á sögu orð- anna. Mig langar til frekari skýringar að nefna dæmi um þýðingarvanda í stærðfræði sem enn hefur ekki tekizt að leysa á fullnægjandi hátt. Hugum að nöfnum keilusniðanna, ellipsu, parabólu og hýperbólu. Keilusnið voru rannsökuð þegar í fomöld, og nöfnin eru grísk, komin frá Apollóníusi frá Perga, sem samdi mikið rit í átta bókum um keilusnið á seinni hluta þriðju aldar f.Kr. Þau fengu aukna þýðingu á seinni öldum, þegar menn upp- götvuðu að brautir hnatta í sólkerf- inu eru keilusnið, eða svona hér um bil. Nú eru til ágæt íslenzk heiti á keilusniðunum eftir ekki ómerkari orðasmið en Jónas Hallgrímsson. í þýðingu sinni á Stjömufræði Ursins 1 kallaði hann ellipsu sporbaug, parabólu fleygboga og hýperbólu breiðboga. Jónas segir ekki hvemig orðið sporbaugur er til komið, en ekki er ósennilegt að það sé mynd- að með hliðsjón af orðinu sporaskja, eins og Bjami Vilhjálmsson getur sér til í ritgerð sinni um nýrði Jónas- ar2. Um fleygboga segir Jónas: „Þessa boglínu (Parabole heitir hún) mætti kalla fleígboga, eptir edli sínu, því, endar hans fírrast hvur annan meír og meír, eptir því sem þeím er haldid leingra áfram, og mind hennar er því ekki ólík fleíg, á hlid ad sjá.“ Um nafngiftina breiðboga hefur hann aftur á móti engin sérstök orð, en segir á einum stað að breiðboginn sé gleiðari en fleygboginn. Um ósamræmið í seinni hluta orðanna, baugur ann- ars vegar og bogi hins vegar, mætti geta þess til að Jónasi hafí fundizt að baugur hljóti að vera lokaður eins og fíngurbaugur, en fleygbogi og breiðbogi eru opnir ferlar. Orð Jónasar eru ennþá notuð. Einkum er orðið sporbaugur orðið fast í sessi, en sumir höfundar hafa notað orðið gleiðbogi í stáð breiðbogi.3. En þá kemur að vandanum. Af öll- um erlendu orðunum hafa verið mynduð lýsingarorð: elliptískur, parabólískur og hýperbólískur. Og það sem verra er: Þau eru öll notuð í mörgum ólíkum merkingum. I nýlegri stærðfræðiorðabók4 eru tal- in upp 40 not orðanna elliptical og elliptic, 46 not orðsins hyperbolic, og 45 not orðsins parabolic. Stund- um eru þessi lýsingarorð notuð til að gefa til kynna að hugtökin sem um er að ræða séu í einhveijum tengslum við keilusniðin þijú, oft mjög lauslegum, stundum eru þau hugsuð út frá upphaflegri grískri merkingu orðanna, og stundum er mér alls ekki fullkomlega ljóst hvemig á notkun þeirra stendur. Auk þessara lýsingarorða hafa svo önnur orð verið mynduð af nöfnum keilusniðanna, svo sem ellip- sograph, ellipsoid, ellipsoidal, elliptoid, hyperbolograph, hyper- boloid, parabolism, parabolograph, paraboloid, paraboloidal. Gallinn við orð Jónasar er að nær ógemingur virðist að mynda af þeim lýsingarorð sem eru nothæf í öllum samböndum sem á þarf að halda. Þar er auðvitað ekki beinlín- is við Jónas að sakast; í fyrsta lagi var hann ekki stærðfræðingur og hefur eflaust ekki þekkt notkun lýsingarorðanna eins og hún var þá, auk þess sem ég held að mörg ef ekki flest orðasambönd þar sem þau eru notuð séu til komin eftir hans dag. Hér er raunar við þann vanda að glíma, sem oft veldur einna mestum erfíðleikum við orð- asmíð bæði í stærðfræði og víðar: hve fátæklegar þær aðferðir eru sem íslenzka býr yfír til að mynda lýsingarorð og atviksorð af nafnorð- um. En hvað er nú til ráða? Eigum við að reyna að fínna algjörlega ný heiti á keilusniðunum sem eru þjálli í samsetningum en hin gömlu, eig- um við að nota gömlu heitin en búa til lýsingarorð út frá einhveijum öðrum stofnum eða eigum við að mynda lýsingarorð af gömlu stofn- unum þótt svo að þau kunni að hljóma eins og út í hött? Hið síðasta hefur verið reynt, og menn hafa búið til orð eins og sporlaga, fleyg- Iaga og breiðlaga eða gleiðlaga. Magnús Grímsson notar orðið fleyg- bjúgur í þýðingu sinni á Eðlisfræði Fischers6. Þar er hann að tala um holspegla, og verður ekki annað sagt en að orðið eigi vel við í því samhengi. Hann segir: „Af hinum bjúgu skuggsjám eru hinar fleig- bjúgu (parabolisk) fullkomnastar, en þær eru lagaðar eptir fleigboga (Parabola), sem er bjúglína ein í hinni þýngri stærðfræði." Liggur þá beint við að mynda einnig orðin sporbjúgur og breiðbjúgur eða gleiðbjúgur. En þau eiga því miður sjaldnast vel við. Svo að dæmi sé tekið, þá er leiðin frá sporbaug til þess sem er kallað elliptískt fall svo löng og flókin að ekkert varðandi elliptísk föll minnir á sporbauga nema uppruni þeirra, og sízt af öllu eru þau í laginu eins og sporbaug- ur. Ennþá vandasamara er orða- sambandið elliptískur ferill, því að sporbaugur er að sjálfsögðu ferill og orðalag eins og sporbjúgur eða sporlaga ferill ætti einna bezt við sporbauginn sjálfan. En elliptískur ferill er hins vegar allsendis ólíkt fyrirbæri, líkist ekkert sporbaug í útliti, og það gæti jafnvel virzt al- varlega villandi að kalla hann sporbjúgan, sporlaga, sporbaugs- legan eða hvað annað sem mönnum gæti í fljótu bragði dottið í hug að mynda útfrá orðinu sporbaugur. Að vísu virðist erlenda orðasam- bandið (á ensku er það elliptic curve) við fyrstu sýn vera villandi með sama hætti, en þegar betur er að gáð er ekkert í orðinu elliptic sem segir að verið sé að lýsa lögun hlutar, en sú merking virðist vera alveg ótvírætt til staðar í orðunum sporbjúgur og sporlaga. Það sem má læra af dæmum eins og þessu er að það getur verið vara- samt að einblína á eitt eða tvö orð í einu. Miklu oftar stöndum við frammi fyrir þeim vanda að finna orð yfír heilt hugtakakerfí, og þá er mikill kostur að samræmis sé gætt. En það er oft erfitt, og hefur enda ekki alltaf tekizt sem skyldi. Hér má nefna annað dæmi og kannski einfaldara. Tölur eru að sjálfsögðu undirstöðuviðfangsefni í stærðfræði. Stærðfræðingar fjalla um margskonar tölur, en nefnum aðeins hinar „venjulegu". Þær eru í fímm flokkum: náttúrlegar tölur, heilar tölur, ræðar tölur, rauntölur og tvinntölur. Tökum eftir að fyrstu þrír flokkarnir eru auðkenndir með lýsingarorðum, náttúrlegur, heill, ræður, en hinir tveir með forskeyt- um, raun- og tvinn-. Hér hefði óneitanlega veríð hetra að hafa meira samræmi. Forskeytin eru raunar þýðingar á erlendum lýsing- arorðum. A ensku er t.d. talað um real and complex numbers. Eldra heiti fyrir complex number var imaginary number, og sennilega er heitið real number eða raunveruleg tala upphaflega orðið til sem eins- konar andheiti við imaginary number eða ímynduð tala. Nú á dögum þykja rauntölur hins vegar engu raunverulegri en tvinntölur, teljast raunar vera undirflokkur þeirra, og tvinntölur ekkert ímynd- aðri en aðrar tölur, enda hafa menn að mestu horfíð frá að kalla þær ímyndaðar, þótt orðasambandið imaginary number lifí að vísu enn í tæknilegri merkingu um þá tegund af tvinntölum sem hafa verið nefnd- ar þvertölur á íslenzku. Orðið real hefíir fengið að halda sér. Á íslenzku hafa menn ekki treyst sér til að taka upp orðið raunveruleg- ur, sem auk þess að geyma úrelta hugsun er langt og óþjált, og fyrir complex hafa menn ekki fundið nothæft lýsingarorð. En svo vill til að hér hefðu lýsingarorð komið miklu betur, því að orðin real og complex hafa miklu víðtækari notk- un en t.d. natural og rational. Með því að taka upp forskeyti í stað lýsingarorða neyðumst við í fram- haldi oft til að mynda löng samsett orð, svo sem raunfallagreining, tvinnfallagreining o.s.frv. Það má nefna ennþá óþægilegri klípur sem við lendum í vegna þeirr- ar tilhneigingar að þýða lýsingarorð og atviksorð með forskeýtum. Sem dæmi má tilgreina merka niður- stöðu úr grannfræði, sem á ensku er orðuð þannig: „Every connected, Iocally pathwise connected and semi-locally simply connected topo- Iogical space has a universal covering space. “ Með viðteknum forskeytaþýðingum yrði setningin þannig á íslenzku: Sérhvert saman- hangandi, staðvegsamanhangandi og hálfstaðeinfaldlega samanhang- andi grannrúm hefur allsherjar- þekjurúm. “ Þessi setning stríðir óneitanlega nokkuð gegn þeirri al- mennu skoðun að nýyrði skuli vera sem stytzt. En úr því að ég er að minnast á þá skoðun á annað borð langar mig til að nota tækifærið og andæfa henni lítillega, því að ég held að hún sé ekki alltaf hollt leiðarljós. Oft er okkur sagt að þau nýyrði sem mestrar velgengni njóta séu að jafnaði hin stytztu, og er þá bent á orð eins og sími, þyrla, tölva, en þó einkum á orðið þota, en það útrýmdi orðinu þrýstiloftsflugvél, sem þótti of langt. En mönnum yfírsést kannski að hér er stuttra orða þörf einmitt af því að um er að ræða algenga og hversdagslega hluti. Ef þotur væru sjaldgæf og framandi tækniundur, sem aðeins þýrfti að geta um í blöðunum einu sinni á ári eða svo í einhverri af þeim greinum sem sérfræðingar skrifa handa almenningi, er ég ekki viss um nema þrýstiloftsflugvél væri miklu betra orð, því að það er gegnsætt og auðskilið. Vilmund- ur Jónsson hendir á einum stað6 gaman að þeim sem smíða samsett orð og segir: „Ég leik mér stundum að því að hugsa mér, að orðið þind væri ekki til í íslenzku máli, en þá hefðu höfundar kennslubóka í líkamsfræði ugglaust kallað þetta líffæri milligóll'." Hann bætir við aö þá gætum við líka „státað með heitin milligólfstaug og milli- gólfstaugarskurður". En hér verður að hafa í huga að oft takast tvö sjónarmið á: annað er það að orðin séu gegnsæ, hitt að þau séu stutt. Því verður auðvitað að velta vandlega fyrir sér í hveiju tilfelli hvort sjónarmiðið á að fá yfír- höndina, og bá þarf bæði að taka tillit til þess hve þjált orðið er í samsetningum og hins vegar hve oft þarf á því að halda. Það er ein- att ástæðulaust að leggja mikla vinnu í að fínna stutt og laggott orð fyrir hugtak sem einungis örfá- ir sérfræðingar þurfa nokkumtíma að nota. Mig grunar raunar að vegna þeirrar hylli sem reglan um stutt nýyrði nýtur syndgi orðasmið- ir jafnvel oftar á þann veginn að hafa nýyrði of stutt. Þau vilja þá gjaman fá á sig einhvem sérstakan nýyrðablæ sem margir fella sig illa við og forðast því að nota þau. Leiðin út úr þessum vanda er oft einfaldlega sú að hafa orðin tvö, annað stutt og hitt langt. Ég get nefnt tvö dæmi. Hið fyrra er þýðing á orðinu variable, sem hefur verið þýtt bæði sem breyta og breyti- stærð. Mér þykir sjálfum mjög þægilegt að geta notað bæði orðin. Orðið breytistærð nota ég gjaman í almennu samhengi, þegar ég vil að skiljist nokkum veginn hvað ég er að tala um án þess að ég sé beinlínis að nota orðið í tæknilegri merkingu. En þegar ég er að kenna rökfræði, þar sem variable er lykil- hugtak og kemur jafnvel fyrir oft í hverri setningu, þá nota ég orðið breyta. í rökfræði hefur orðið raun- ar tæknilega merkingu sem er dálítið frábrugðin því sem tíðkast í daglegu tali um stærðfræði. í sam- bandinu „fallið f(x) = ax + b“ hugsa stærðfræðingar yfírleitt aðeins um bókstafínn „x“ sem breytistærð, en frá sjónarhóli rökfræðinnar em allir bókstafímir „f', „x“, „a“ og „b“ breytur, og í ákveðnu samhengi getur samlagningarmerkið „+“ ver- ið það líka. Hitt dæmið sem ég ætla að nefna er einnig úr rök- fræði, orðið assertion (eða propos- itiori). Þetta hefur verið þýtt með orðinu fullyrðing, en einhveijum þótti það víst vera of langt og stytti það í yrðing. Það hefur auðvitað þann kost að vera þjálla í samsetn- ingum: propositional logic má þýða sem yrðingarökfræði, sem er að vísu langt, en styttra en fullyrðinga- rökfræði. En að vísu vill svo illa til að þeir sem tóku upp orðið yrðing vom greinilega ekki alveg sammála um hvað það ætti að merkja, því að sumir nota það sem algjört sam- heiti fyrir fullyrðing, en aðrir nota það í tæknilegri merkingu yfír það sem kallast opin fullyrðing og þá gjaman orðið fullyrðing yfír það sem líka mætti kalla lokuð fullyrð- ing. Þar af leiðir að ég hika við að nota orðið yrðing óskilgreint í al- mennu samhengi, þótt ég kunni að nota það í fyrirlestrum um rökfræði þegar ég ræð sjálfur skilgreiningu þess. En niðurstaðan hlýtur að vera sú að bæði orðin em nothæf og gagnleg hvort á sinn hátt. Dæmið sýnir hins vegar líka að varasamt getur verið að breyta al- gengu orði Iítillega til að gefa því tæknilega merkingu, svo ekki sé talað um að gefa því tæknilega merkingu óbreyttu. Éinkum ber að gæta sín ef merkingin er mjög skyld hversdagslegu merkingunni, en þó frábmgðin. Ástæðan til að ég neyð- ist svo oft til að tala um fullyrðingar eða yrðingar en ekki einfaldlega setningar er sú að stærðfræðingar hafa tekið upp á að nota orðið setn- ing sem þýðingu á theorem (semer raunar líka kallað sætningá dönsku og Satz á þýzku). Theorem er full- yrðing sem er sönn eða nánar tiltekið hefur verið sönnuð, en setn- ing getur hins vegar samkvæmt daglegu máli verið hvort sem er sönn eða ósönn, eða þá hvomgt. Með því að taka upp þessa sérmerk- ingu geta stærðfræðingar ekki með góðri samvizku notað orðið setning í hversdagslegri merkingu þegar þeir skrifa um rökfræði, því að þá er auðvitað alveg nauðsynlegt að gera skýran greinarmun á sönnuð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.