Morgunblaðið - 28.08.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.08.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1987 B 9 Slgrún Waage er nýkomln heim eftlr fjögurra ára lelkllstarnám f New York. Hún fer með eltt aðalhlut- verkið f Jólaverkl ÞJóðlelk- hússins, sönglelknum Vesallngunum eftlr sögu Vlctors Hugo, en sá söng- leikur hefur átt mlklum vlnsmldum aö fagna, bmöl á Broadway og í Lundúnum. Slgrún er ekkl að spreyta slg í fyrsta slnn á fjölum ÞJóð- lelkhússlns. Hún stundaðl þar ballett á yngri árum og kom fram f mörgum ballett- sýnlngum og lelkrltum s.s. Sögum í Vínarskógl, Ferðlnnl tll tunglslns og SJálfstmðu fólki. Hún er því ekkl með öllu ókunnug lelkhússtarflnu þó fyrrl hlutverk hafl verið mun velgamlnnl en það sem hún fer með í Vesallngunum. Ekkl amaleg byrjun á starfs- ferll ungrar leikkonu sem lítlð hefur verlð í svlðsljóslnu sfðustu ár. Vlð leituðum Slgr- únu Waage uppl skömmu eftlr að hún kom tll landslns og féllst hún fúslega á stutt spjall. Morgunblaöiö/RAX Slgrún með frumburðinn Sigurð Björn. Hef haft áhuga á leiklist frá því að ég man eftir mér „Ég held að ég hafi haft áhuga á leik- list, söng og dansi frá því að ég man eftir mér,“ segir Sigrún þegar hún er innt eftir því hvenær leiklistaráhuginn hafi vaknað. „Þegar ég var yngri var ég óþreytandi við að skemmta fjölskyldu minni og leikfélög- um með leikþáttum og söngatriðum og velti mikið vöngum yfir því hvort óg ætti nú að verða leikkona eða ballettdansmær þegar ég yrði stór." Blaðamaður getur ekki varist brosi þegar bernskuárin eru rifj- uð upp og talið berst að tilraunaleikhúsun- um sem starfrækt voru af brennandi áhuga vítt og breitt í Laugarásnum. „Ég var í ballett í átta ár í Þjóðleikhús- inu. Þar kom ég oft fram í sýningum ballettskólans og eins í leikritum Þjóðleik- hússins, aðallega barnaleikritum. Þarha urðu fyrstu kynni mín af leikhússtarfinu og ég fór að komast á þá skoðun að þar ætti ég heima. Ég hætti í ballettinum 17 ára gömul. Eftir það kom ég fram í Sögum í Vínarskógi og söngleiknum Jass-inn sem Jassballettskóli Báru setti upp. Upp úr því ákvað ég að leggja leiklistina fyrir mig og stefndi á Bandaríkin. Eftir að hafa kannað ýmsa möguleika varð Listahá- skólinn í New York (School of the arts) fyrir valinu. Vorið 1982 fór óg þangað í inntökupróf og komst inn mér til óvæntrar ánægju. Fluttist svo til New York um haus- tið og þar tók nýtt og framandi líf við. Ég bjó fyrst um sinn ein í óvistlegri íbúð og var hræðilega einmana, enda New York fráhrindandi fyrst. Ég var þó svo heppin að komast í íbúð með íslenskum kunningja og við þaö léttist á mór brúnin. Mikið var að gera í leiklistarskólanum. Námið var tvíþætt, annars vegar verklegt og hinsvegar bóklegt þar sem lögð var Spjallað við Sigrúnu Waage leikkonu sem fer með eitt aðahlutverkið íjóla verki Þjóðleik- hússins, söngleiknum Vesalingunum eftir sögu Victors Hugo stund á leikhúsfræði. Hægt var aö velja mikið úr hvað maður vildi leggja áherslu á og var ég mikið í söng- og danstímum síðasta árið mitt. Ég var í svokallaðri til- raunaleikhúsdeild. Settar voru upp margar nemendasýningar á ári og þurftu þeir nem- andur að fara f prufu sem vildu vera með. Færri komust að en vildu og gat fólk farið í gegnum allan skólann án þess að fá að taka þátt í einni einustu sýningu. Mér gekk vel og komst inn í allar sýningar sem ég reyndi við. Sfðasta árið var óg svo í söng- leikjabekk og settum við upp söngleik um vorið sem var mjög spennandi." — Var ekki lærdómsríkt að nema leiklist í New York, þar sem menning og listir eru í hávegum hafðar? „Þaö hefði veriö mjög lærdómsríkt að geta farið regluiega í leikhús í New York en því miður hafði ég ekki tök á því. Mjög dýrt er að fara í leikhús og námslánin voru af svo skornum skammti að ég gat ekki leyft mér slíkan munað. Ég var þó svo lán- söm að eiga góða vinkonu f New York City Ballet og útvegaði hún mér af og til frímiða á ballettsýningar. Svo ég gat a.m.k. fylgst með því sem var að gerast í þeirri listgrein." Eiginmaður Sigrúnar, Björn Jónsson, lýk- ur um jólin mastersgráðu í tölvufræðum frá Florida Institute of Technology, en hann lærði áður í New York. „Við Björn lukum bæði námi vorið 1986 og fórum þá til Flórída þar sem Björn ætlaði að taka mast- ersgráðuna. Ég hefði alveg verið til í að vera áfram í New York, kunni orðið mjög vel við mig þar, en Birni líkaði aldrei jafn- vel og vildi Ijúka náminu í Flórída þar sem hann hafði verið áður. Enda sáum við okk- ur ekki fært fjárhagslega að búa lengur í New York. Ég tók því rólega fyrst í Flórída og naut sólarinnar. Það hafði aldrei hvarfl- að að mér að fara að leita að vinnu þarna úti heldur vildi beita kröftum mínum í þágu leiklistar á islandi. Nú, svo átti ég frum- burðinn, Sigurð Björn, í janúarbyrjun á þessu ári og hef haft í nógu að snúast síðan við að sinna barnauppeldinu." — Hver voru tildrög þess að þér bauðst hlutverkið í jólaverki Þjóðleikhússins, Vesa- lingunum? „Benedikt Árnason, sem mun leikstýra verkinu, hafði samband við mig sl. vor og lýsti yfir áhuga á að fá mig til liðs við sig. Þetta kom mjög flatt upp á mig en ákvað samt sem áður að slá til og fara heim í prufu. Ég hafði aldrei lesið þetta fræga verk Victors Hugo og hentist út í bókabúð og keypti bókina. Hins vegar var svo stutt- ur tími til stefnu að ég náði ekki einu sinni að lesa bókina til enda áður en ég fór heiml Ég fór í söngprufu í Þjóðleikhúsinu og var tjáð samstundis að ég fengi hlutverkið og æfingar hæfust í septemberbyrjun. Við hjúin höfðum nú ekki ætiað að flytja hingað heim fyrr en um áramótin þegar Björn klár- ar. Ég vildi þó ekki sleppa þessu einstæða tækifæri og hugsaði mig ekki tvisvar um þegar ég tók boðinu." Aðspurð sagði Sigrún að sér fyndist ákaflega spennandi að fara að takast á við hlutverk Eponín í Vesalingunum. „Þetta fræga verk Hugo er að mínu mati ákaflega heiliandi og tónlistin, sem er eftir Claude- Michel Schönberg, er stórkostleg. Það er líka sérlega skemmtilegt að fá að spreyta sig í söngleik því einsog ég sagði hér áöan hef ég ákaflega gaman af að syngja. Þó vil ég alls ekki „festast" í söngleikjum, mér finnst ekki síður spennandi að fást við leik- rit. Ég tel æskilegt að leikarar geti sungið jafnt sem dansað og því lagði ég mikla áherslu á þetta tvennt á meðan á námi mínu stóð í New York." — Varstu aldrei hrædd við þá hugsun að koma hingað heim að loknu námi og þurfa að hefja atvinnuleit, svo til óþekkt meðal leikhússfólks? „Jú mikil ósköp. Ég kveið satt að segja mikið fyrir því að þurfa að fara að ganga á milli leikhúsa og leita mér aö vinnu. Mér finnst ég afskaplega lánsöm að hafa strax fengið hlutverk. Ég er spennt aö byrja að æfa og vona að mér fari hlutverkið vel úr hendi", sagði Sigrún Waage að endingu. BF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.