Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 16
ÍÞRSmiR
KNATTSPYRNA / BIKARÚRSLITALEIKUR KVENNA
Meistarar
Blkarmelstarar Vals 1987. Aftari
röð frá vinstri: Bryndís Valsdóttir, Logi
Ólafsson þjálfari, Margrét Óskarsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Guðrún Sæmunds-
dóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Amey
Magnúsdóttir, Cora Barker, Margrét
Bragadóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir
°g Eggert Magnússon formaður knatt-
spymudeildar Vals. Fremri röð frá
vinstri: Védís Armannsdóttir, Þóra
Úlfarsdóttir, Ragnhildur Skúladóttir,
Ema Lúðvíksdóttir, Ragnheiður
Víkingsdóttir, Biynja Guðjónsdóttir,
Sólrún Ástvaldsdóttir, Anna Gísladóttir
og Sirrý Haraldsdóttir.
Valsstúlkunum tókst að
hakJa bikarmeistaratitlinum
Alltaf jafn gaman! MorgunbM^GA
Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði Vals, tekur hér við bikamum fyrir sigur í Bikarkeppni KSÍ. Af svip Ragnheiðar má
ráða að það hljóti alltaf að vera jafti gaman að sigra í leikjum, svo ekki sé nú talað um stórmótum eins og Bikarkeppn-
inni. Valur vann Akranes í úrslitaleik 2:1 á laugardaginn.
VALSTÚLKURNAR urðu á
laugardaginn bikarmeist-
arar í meistaraflokki
kvenna þegar þær sigruðu
íþróttabandalag Akranes í
úrslitaleik sem fram fór á
Valbjarnarvelli. Lokatölur
leiksins urðu tvö mörk
gegn einu og voru öll
mörkin skoruð í fyrri hálf-
leik. Valsstúlkurnar náðu
því að verja bikarinn en á
dögunum lóku liðin til úrls-
ita í 1. deildinni og þar
höfðu Skagastúlkur betur.
Valur náði þvf að verja bik-
arinn en urðu að sjá af
Íslandsmeistaratítlinum
upp á Skaga en í fyrra vann
Valur bæði mótin.
Mikil taugaspenna leikmanna
setti mark sitt á upphafsmín-
útur leiksins og var mikið um
kýlingar og hlaup. Valur lék undan
snörpum vindi í fyrri
Vilmar hálfleik og sóttu ívið
Pétursson meira en andstæð-
skrifar ingamir.
Eftir um það bil tíu
mínútur fóru leikmennimir að finna
sig og marktækifæri sáu dagsins
ljós. Það fyrsta átti Valsstúlkan
Sigrún Cora Barker þegar hún fékk
boltann eftir aukaspymu en vamar-
maður ÍA náði að komast fyrir skot
hennar og bjarga í hom.
Quörún skoreði, en ekkl
úraukaspyrnul
Skömmu seinna var dæmd auka-
spyma á ÍA nálægt 10 metrum
utan vítateigs þeirra. Guðrún Sæ-
mundsdóttir tók spymuna, þmmaði
knettinum í átt að Skagamarkinu
og virtist hann ætla að hafna neðst
í markhominu. Vala Úlfljótsdóttir
markvörður ÍA var þó ekki á sama
máli og varði skotið glæsilega.
Á 22. mínútu leiksins var dæmd
hendi á markvörð ÍA rétt fyrir utan
teig og að sjálfsögðu mætti Guðrún
Sæmundsdóttir á vettvang til að
framkvæma spymuna. Guðrún
sparkaði boltanum í vamarvegg
Skagastúlknanna en boltinn barst
síðan aftur til hennar og sendi hún
hann viðstöðulaust efst í mark-
homið fjær. Glæsilegt mark sem
sennilega hefur komið í veg fyrir
að áhorfendur fengju kvef.
Fleirimörk
Þremur mínútum fyrir leikslok juku
Valsstúlkumar forystu sína þegar
Ingibjörg Jónsdóttir skoraði gott
mark. Hún fékk knöttinn við
miðlínu vallarins, óð upp allan vall-
arhelming andstæðinganna og
renndi boltanum af öryggi framhjá
markverði Akumesinga.
Markaskorun fyrri hálkfleiks var
þó ekki lokið þó skammt væri til
leikhlés því að á iokamínútu hans
skoraði Laufey Sigurðardóttir fal-
legt mark fyrir IA. Aðdragandi
marksins var sá að dómarinn
dæmdióbeina aukaspymu á Vals-
menn innan þeirra eigin vítateigs
vegna þess að Ema Lúðvíksdóttir
markvörður þeirra hafði tekið of
mörg skref með knöttinn. Laufey
fékk knöttinn úr aukaspymunni og
afgreiddi hann með þmmuskoti
uppí markhomið ijær. Þetta mark
du j$i til að halda hita á áhorfendum
í leikhléinu og kom það sér vel þar
sem engin greiðasala var opin á
vellinum þegar sjálfur bikarúrslita-
leikurinn fór fram og því ekki hægt
að fá heitt kafft.
Ekkert skorað í
síöari háHMk
Margir bjuggust við að ÍA tæki leik-
inn í sínar hendur í síðari hálfleik
því að þá höfðu þær vindinn í bak-
ið. Skagastúlkuraar sóttu vissulega
mun meira í hálfleiknum og oft á
tíðum var sókn þeirra mjög þung.
Þrátt fyrir það náðu þær ekki að
skapa sér nein umtalsverð mark-
tækifæri. Flestar sóknir Skagans
brotnuðu á Guðrúnu Sæmunds-
dóttur miðverði Vals sem átti
stjömuleik.
Á lokaminútum leiksins gerðu
Skagastúlkumar örvæntingafullar
tilraunir til að jafna sem varð til
þess að þær gættu ekki að vamar-
leiknum. Litlu mátti því muna að
Valsstúlkumar bættu marki við á
lokamínútum leiksins þegar Ingi-
björg Jónsdóttir komst ein innfyrir
vöm ÍA en Vala Úlfljótsdóttir mark-
vörður ÍA varði skot hennar mjög
vel.
Valsstúlkumar vom vel að þessum
sigri komnar því þær léku þennan
leik skynsamlega og var barátta
þeirra til mikillar fyrirmyndar. Guð-
rún Sæmundsdóttir átti stórleik í
liði Vals og var besti leikmaður
þessa úrslitaleiks. Sigrún Cora
Barker átti einnig góðan leik í Vals-
liðinu og barðist vel eins og reyndar
allir leikmenn Vals.
Lið ÍA lék oft á tíðum vel saman út
á velli en þeim tókst ekki að skapa
mikla hættu við mark andstæðing-
anna. Ragna Lóa Stefánsdóttir átti
mjög góðan leik fyrir Skagamenn
og einnig er Laufey Sigurðardóttir
alltaf hættuleg þó að hún hafi oft
leikið betur.
ÍGETRAUNIR: X 1 X 1X1 122 X 2 X
LOTTO 34711 19