Morgunblaðið - 16.09.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1987
59
Söfnum birkifræi í tonnatali
Heil og sæl, þið íslensku náttúru-
börn.
Það líður að hausti undir lok sept-
ember. Gott sumar og víða ágætt
sumar, alls staðar langt er brátt á
enda. Allur tijágróður, þar á meðal
birkið ber þess menjar.
Ég held að reklamyndun og
væntanlega þroski sé með afbrigð-
um. Gætið nú þess að safna fræinu
áður en það fer að hristast úr. Ögn
er misjafnt hvenær þroskað er, en
reklamir tóku að vaxa óvenju
snemma, sem eðlileg afleiðing þess
að snemma voraði. Ég held því að
gæta þurfí þess vel að missa það
ekki niður í haust.
Við eigum að safna birkifræi í
tonnatali í haust. Hver einasta hönd
hvers hugar, sem ann gróðri, eins
og náttúruböm gera, þarf að verða
rétt að birkitijánum, með söfnunar-
poka eða fötu undir fræið og
reklana. Þurrka það vel án sérstaks
hita og varðveita til vors. Bjóða það
í vor til sáningar á þurrlendi og
berangra, sem bíða eftir athöfnum,
en ekki orðaflóði hneykslana eða
hrakmála. Ella að framkvæma
sjálfír sáningu birkifræsins að fyrir-
sögn bijóstvitsins í land gróðumnn-
andi nágranna, í samstarfí
sveitarstjóra eða skógræktarfélaga.
Aðalatriðið: Þið fjöldinn sem
gróðurhugsunin, þráin vakir í: Byij-
ið! Sparið orðaflóðið, alltof áberandi
svipmót daganna, þetta að ætla á
morgun. Gætið að reklunum strax
og sáið í vor! Sumt fer í grýtta jörð
og meðal þyma en alltaf grær eitt-
hvað sem næsta kynslóð þakkar,
vemdir og nýtir!
Jónas Pétursson
Þessir hringdu . . .
Fundargerðarbækur
FÍE
Geir P. Þormar, ökukennari -
hringdi:
„Vegna fertugsafmælis Félags
íslenskra einkaflugmanna í næsta
mánuði langar mig að koma þeirri
fyrirspum á framfæri hvort einhver
hafí fyrstu fundargerðarbækur fé-
lagsins undir höndum og bið ég þá
viðkomandi að hafa samband við
mig í síma 19896 eftir kl. 19. Félag
íslenskra einkaflugmanna var
stofnað 10. október 1947 en mér
hefur ekki tekist að komast yfír
fundargerðarbækur frá fyrstu ár-
unum sem það starfaði."
Byggja þyrfti kartöflu-
geymslu
Sólveig hringdi:
„Kartöflurækendendur í
Reykjavík eru nú margir í miklum
vandræðum með geymslur og virð-
ast borgaryfírvöld alveg ætla að
bregaðst okkur að þessu sinni. Þijár
kartöflugeymslur vora leigaðar
borgarbúum til skammst tíma en
nú hefur ein þeirra verið tekin til
annara nota. Fólk úr nágranna-
sveitarfélögunum hefur einnig
aðgang að þeim tveimur sem eftir
era þannig að fjölmargir Reyk-
víkingar standa frami fyrir því að
fá enga geymslu fyrir sínar kartöfl-
ur. Um tíma var talað um að við
fengjum aðgang að geymslu á
Korpúslfsstöðum en nú hefur verið
hætt við það. Nú standa um 400
manns frami fyrir því að fá enga
geymslu og verða annað hvort að
henda miklu af kartöflumuppskera
sinni eða láta kartöflumar skemm-
ast í lélegum geymslum. Ég hef
haft samband við borgarverkfræð-
ing, garðyrkjustjóra og fieiri aðila
en það virðist enga úrlausn að fá.
Þess vegna langar mig til að koma
þeirri tillögu á framfæri að byggð
verið kartöflugeymsla þar sem
Reykvíkingar og nágrannasveitar-
félögin geti fengið geymdar kartöfl-
ur gegn hæfilegu leigugjaldi."
Lyklakippa
Lyklakippa með 3 húslyklum tap-
aðist i Vesturbænum um síðustu
helgi. Kippan er merkt stöfunum
JCI á bláum fleti. Finnandi er beð-
inn að skila lyklakippunni til
lögreglunar.
Hringfur
Merktur steinhringur fannst í
miðbænum fyrir nokkra. Eigandi
hans getur hringt í síma 50978.
Ofkæling*
Ofkæling er eitt það hættulegasta við að falla í sjó. Því er nauðsyn-
legt að vita hvemig Iíkaminn bregst við kulda og þekkja ráð til
að tefja fyrir skaðvænlegum áhrifum hans.
Sjómenn: Á neyðarstund gefst ekki tími til að lesa leiðbeiningar.
Lærið um ofkælingu og vamir gegn henni.
BRADFORD homsófí,
230 cm x 295 cm. , -
PISA homsófí,
215 cm x 260 cm.
DALLAS homsófí,
225 cn x 280 cm.
RAPID homsófí,
225 cm x 285 cm.
Nýjarvörur
PLUS homsófí.
225 cm x 280 cm.
117380
húsgagna4iöllín
REVKJAVlK