Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 7

Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 7
BUrgttnbfaMh /ÍÞRÓTTIR ÞKŒXJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 B 7 FIMLEIKAR KARLA / HEIMSMEISTARAMOTIÐ I HOLLANDI Bilozerchev heims- meistari í annað sinn DIMITRI Bilozerchev frá Sov- étríkjunum verð heimsmeistari í fjölþraut í annað sinn þegar hann vann úrslitakeppnina sem lauk á laugardaginn í Rott- erdam, Hollandi. Dimitri tók forystuna strax í upphafi keppninnar, þegar keppni í skylduœf ingum fór fram á þriðjudag, og bœtti enn á for- skotið í frjálsu œfingunum á fimmtudaginn. Það forskot nœgði honum til sigurs í úrsli- takeppninni, þó svo að landi hans, heimsmeistarinn frá 1985 Júri Korolev, saxaði stöð- ugt á forskotið. Þegar upp var staðið skildu aðeins 0.075 stig þáað. Saga Dimitri Bilozerchev er mjög athyggliverð. Hann byrj- aði að æfa fímleika mjög ungur hjá þjálfaranum Alexander Alexandrov ■■■■■[ sem þá var ný út- Jónas skrifaður úr íþrótta- Tryggvason háskólanum í skrífar Moskvu. Fyrsta árið þótti hann ekkert sérstakur, frekar þybbinn og hæg- ur, en þegar fram liðu stundir fóru hæfíleikar hans að koma betur í ljós. Hann komst snemma í ungl- ingalandslið Sovétríkjanna, og fór þá að sjást á alþjóðlegum mótum. Árið 1983 varð hann yngsti heims- meistari sögunnar aðeins 16 ára gamall. Menn verða að hafa náð 16 ára aldri til að fá að taka þátt í keppni karla á HM. Ári seinna vann hann heimsbikarinn í Búda- pest , en það er keppni þar sem aðeins 16 færustu fímleikamenn heimsins hafa þátttökurétt. Árið 1985 vann hann Evrópumótið sem haldið var í Osló. Stuttu fyrir HM 1985 lenti Bilozerchev í bflslysi þar sem hann fótbrotnaði illilega (fótur- inn fór í meira en 40 hluta fyrir neðan hné) og segja illar tungur að þar hafí bakkus verið við stýrið. Um þetta segir hann sjálfur: „Ég brotnaði það illa á vinstra fæti að um tíma töldu læknamir að taka þyrfti fótinn af.“ Þetta voru á þeim tíma slæmar fréttir fyrir fímleika- heiminn, því að allir töldu lífdaga Dimitri sem fímleikamanns talda. En Dimitri var ekki á þeim buxun- um að hætta og með hjálp eins færasta læknis í Sovétríkjunum, dr. Elízarov, tókst honum á um einu ári að græða fótinn í upphaflegt horf. Tók hann þá til við strangar æfíngar en tók ekki þátt í keppni, nema innan landsliðsins. Svo kemur hann núna til Rotterdam og sigrar með miklum glæsibrag. Eini titillinn sem hann vantar til að fullkomna safnið er Ólympíumeistaratitillinn og það er aldrei að vita hvað gerist í Seoul á næsta ári. Annars er það um úrslitakeppnina á laugardaginn að segja að sovéska tríóið Bilozerchev, Korolev og Art- emov voru aldrei í neinni hættu um að missa af verðlaunasætunum, eina spurningin var hvemig þeir myndu skipta þeim á milli sín. Val- ery Ljúkin var í öðra sæti fyrir keppnina eins og við sögðum frá í laugardagsblaðinu, en hann gat ekki keppt sökum meiðsla og tók þá Korolev hans sæti. Tveir menn hlutu 10.00 í einkunn í úrslita- keppninni, Korolev og Kroll, báðir fyrir stökk. Silvio Kroll (A-Þýska- landi) varð síðan í fjórða sæti eftir Hér er Bilozerehev I afstökki af tvísla. Router Reuter Gull! Dimitri Bilozerehev, sigurvegari í flölþraut á HM í Rotterdam, sést hér í æfíngu á bogahesti, sem færði honum gullverðlaun í þeirri grein. að hafa sýnt mörg góð tilþrif. Land- ar hans Holger Behrendt og Sven Tippelt urðu í 6. og 8. sæti. Zsolt Borkai, bogahestsnillingurinn frá Ungveijalandi, lenti í 5. sæti og hefur hann sjaldan eða aldrei verið í eins góðu formi. Lou Yun (Kína) stóð sig vel í úrslitakeppninni og hækkaði sig úr 10. sæti í það 7. félaga hans Xu Zhiquiang sem var í 4. sæti fyrir keppnina tókst ekki eins vel upp og endaði i 12. sæti. Úrsllt á áhöldum Keppni á einstökum áhöldum fór fram á sunnudag og kom þar fátt á óvart. Keppni var eðlilegu fram- haldi af gangi mótsins í heild. QóHsaflngar Lou Yun hélt uppi heiðri Kínveija sem mikilla gólfmeistara, og sigraði í úrslitunum með einkunnina 10.00. Artemov varð annar og Ljúbomir Geraskov (Búlgaríu) hlaut þriðja sætið. Bogahestur Bilozerchev deildi gullinu með Ung- veijanum Zsolt Borkai sem við- heldur hinni ungversku hefð að sigra í æfingum á bogahesti en það hefur gerst allt síðan Miroslv Cerar vann 1952. Geraskov hlaut aftur brons. Hrlnglr Júri Korolev hirti hér einn gullverð- launin sem hann deildi fyrir tveimur áram með Li Ning (Kína). Ning deildi nú silfrinu með Bilozerchev. Li Ning hefur náð sér af meiðslum sem hann hlaut í fjölþrautinni og tók þátt í úrslitum á hringjum og bogahesti. Stökk Ixm Yun og Silvio Kroll vora alger- lega jafnir í fyrsta sætinu og höfðu báðir hlotið 10.00 í einkunn í keppn- inni. Dian Kolev hirti enn ein bronzverðlaun fyrir Búlgaríu. Tvfslá Vladimir Artemov sýndi mikið ör- yggi þegar hann vann úrslitakeppn- ina á tvíslá, Bilozerchev varð annar og A-Þjóðveijinn efnilegi Sven Tippelt varð þriðji. Silvio Kroll, heimsmeistari á tvíslá 1985, varð að sætta sig við fjórða sætið. Svtfrá Bilozerchev hlaut enn ein gullverð- laun þegar hann sigraði í æfingum á svifrá. Óvæntustu úrslitin í karla- keppninni vora þegar Kanadamað- urinn Curtis Hibbert hlaut siifur á svifránni. Behrendt og Borkai deildu svo bronzinu. ■ Úrsllt/B15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.