Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 13
BUrennMaÍlift /IÞROrm ÞRŒXJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
B 13
Er
hífandi
rok
besta
veiði-
veðrið?
VEIÐIMENN velta fyrir sór
hvað sé besta veiðiveðrið sem
vonlegt er enda getur verið
ágœtt eftir aflabrest að geta
sagt, „það var vestanátt", eða
„hann tekur aldrei f svona
heiðríkju" o.s.frv. Hvað sem
öllu líður, þá virðist sem flestir
séu á því að vestanátt só af-
leitt veiðiveður, sérstaklega ef
hún hefur verið þrálát um
nokkurt skeið. Einn af okkar
virtari veiðimönnum, Björn
heitinn Blöndal, ritaði þó í eina
af mörgum frábœrum bókum
sínum að eitt af eftirlætis veiði-
veðrum hans væri vestangola.
Svona er þetta breytilegt.
Flestir munu samþyklg'a að rign-
ing sé gott veiðiveður þótt
menn séu misjafnlega spenntir fyrir
því að standa úti í slíku veðri við
____ veiðar. Betra væri
VEIÐI að regn væri nýaf-
staðið þegar við-
komandi ætti veiði.
Guðjónsson Elnu slnnl hnngdi
skrítar grh. upp í veiðihús
Ingva Hrafns við
Langá til að afla frétta. Þar var
enginn við utan ráðskonan og hún
sagði veiðina bara býsna líflega.
Eitthvað fannst grh. það ólíklegt
og mjálmaði eitthvað um sólskin
sem ríkt hafði svo vikum skipti.
„Blessaður vertu, þeir veiða ekkert
síður þótt sólin skíni. Þeir tala um
að dálítið skýjafar geti haft mikil
áhrif á tökuna ekki síður en rign-
ing,“ sagði ráðskonan þá. Og þetta
er rétt. Það má fá prýðilega veiði
þótt sólin skíni. Þetta er að vísu
svolítið breytilegt frá einni á til
annarrar og sennilega hefur lang-
varandi bjartviðri minni áhrif eftir
því sem áin er stærri, því undir flest-
um kringumstæðum styggir maður
fiskinn síður í stærri ánum og
dumbungsveður og rigning hjálpar
veiðimanni að dyljast og kemur það
sannarlega til góða við smærri
vatnsföll.
En þegar staðviðri eru langvinn
eins og verið hefur oft á tíðum við
ámar á Vestur- og Suðurlandi
síðustu sumrin, getur hin minnsta
breyting orðið kveikja að töku. Mik-
il veðurbreyting getur verið kveikj-
an að rosatöku og skal greint frá
slíku atviki frá síðasta sumri málinu
til stuðnings.
Undir lok ágústs voru ámar orðn-
ar hrikalega vatnslitlar og erfítt að
fá laxinn til leiks. Svo kom veð-
urspá sem lofaði góðu. Spáð var
roki. Ekki rigningu, bara roki. Svo
helltist hvassviðrið yfír og var
þvílíkt, að hjólhýsi eitt lagðist sam-
an undir Hafnarfjalli þegar mest
gekk á. Það var erfitt að standa
við veiðar, varla stætt á bersvæði.
En hvað gerðist? Laxinn fór að taka
og var kveikjan þó ekki fólgin í
nýju vatni í ána og auknu súrefni
þar með.
í Haffjarðará tók ein stöngin 17
laxa á flugu. Veiðimenn með tvær
stangir skiptust á í einum hylnum
ofarlega í Langá og þegar tíminn
var úti lágu 10 stykki á bakkanum,
allir teknir á flugu. í Álftá, sem var
líkust ómerkilegum bæjarlæk og
var físklítii í þokkabót, tók ein
stöngin 5 laxa alla á flugu. Svipaða
sögu var að segja frá mörgum ám.
Þá rifjast upp fyrir grh. að í við-
22 punda hængur gefur sig. Laxinn æsist oft þegar vindurinn blæs:
Veiðivörur
EIÐISTORGI
tali við Rafn Hafnfjörð formann
Landssambands stangveiðifélaga
kom fram, að hann hefur oft í gegn-
um árin fengið sína mestu veiði í
svo miklu roki að hann hefur þurft
að snúa sér undan ott nota bakkast-
ið sem aðalkast. Rok er sem sagt
eitthvert besta veiðiveðrið. En það
er krefjandi veiðiveður, því það
gerir allar athafnir veiðimanns erf-
iðar. En þetta má heldur ekki vera
of auðvelt...
Persónuleg umönnun meó Lactacyd..!
Lactacyd léttsápan eflir náttúrulegar varnir húðarinnar og
kemur í veg fyrir kláða og óþægindi sem myndast oft
við kynfæri, endaþarm og undir brjóstum.
Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápan inniheldur m.a. mjólkursýru sem á þátt í
lágu pH-gildi sápunnar, sem er 3,5. Lágt pH-gildið við-
heldur súrum eiginleikum húðarinnar sem eru náttúruleg
vörn hennar gegn sýklum og sveppum. „Venjuleg sápa“ er
lútarkennd (basísk) og brýtur þessar náttúrulegu varnir niður.
0--------------1-------------7-----------------------------14
Lágt pH-gildi 3,5 Hlutlaust Hátt pH-gildi
Sýrueiginleikar Lútareiginleikar
Lútarleifar — Kláði
Það er mikilvægt að viðkvæmum stöðum líkamans sé haldið
hreinum. „Venjulegur sápuþvottur“ er varasamur því að leif-
ar af lút verða gjarnan eftir og valda kláða á viðkvæmum
stöðum s.s. við kynfæri og endaþarm. Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápunnar kemur í veg fyrir slíkan kláða.
MUNDU! Húðin heldur uppi sínum eigin vörnum
gegn sýklum og sveppum. Ef við notum ranga sápu
eyðum við þessum vörnum.
Lactacyd er fljótandi sápa með eða án ilmefna í 350 ml plast-
flöskum með spraututappa. Allar upplýsingar á íslensku.
Lactacyd léttsápan fæst i Fjarðarkaupum, Glæsibæ, Hag-
kaupum og Miklagarði. Og að sjálfsögðu í næsta apóteki.