Morgunblaðið - 04.12.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
B 3
Sjónvarpið:
Háskaleikur
Háskaleikur, (The Stunt Man) er bíómynd kvöldsins. Hún segir frá
kvikmyndaleikstjóra sem missir áhættuleikara við tökur á mynd og
ræður í staðin mann á flótta undan lögreglunni. Áhættuatriðin sem
maðurinn þarf að gera verða sífellt háskalegri og brátt fer hanri að
ímynda sér að leikstjórinn hafí eitthvað misjafnt í hyggju. Peter
O’Toole er í hlutverki leikstjórams, en Steve Railsback leikur áhættu-
leikaran. Leikstjóri myndarinnar er Richard Rush. Kvikmyndahand-
bók Scheuers gefur myndinni ★ ★ ★ V2.
Stöð2:
Réttarhöldin
Wt Kvikmyndin
45 sem Fjala-
kötturinn
sýnir í dag heitir Réttar-
höldin, (The Trial) og
er hún gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu Franz
Kafka. Myndin, líkt 0g
bókin, fjallar um nafn-
lausan mann senl
ákærður er fyrir glæp
án þess að hann fái að
vita nákvæmlega hvaða
glæp. Aðalleikarar eru
Anthony Perkins, Je-
anne Moreau, Romy
Schneider og Orson Wel-
les, sem jafnframt er
leikstjóri. Kvikmynda- (jr Réttarhöldunum
handbók Scheuers gefur
myndinni ★ ★ ★ V2.
Stöð2:
Blóðug
sólarupprás
■■■■ Bíómyndin Lady Jane, er sýnd að loknum þættinum um
Q"| 55 leynilögreglumanninn Spenser. Myndin gerist árið 1553
^ A 0g fjallar um enska aðalmenn þeirra tíma. Þeir ræna kirkj-
ur, sölsa undir sig bestu lendumar og í raun allt það besta sem
landið hefur upp á að bjóða. Ung stúlka, lady Jane Grey er ekki
hrifin af framferði þeirra, en getur lítið að gert enda aðeins sextán
ára gömul. En þá grípa örlögin í taumana og Jane Grey er krýnd
drottning Englands. Með helstu hlutverk fara Helena Bonham Cart-
er, Cary Elwes og John Wood. Leikstjóri er Trevór Nunn.
■ Önnur mynd
15 kvöldsins heitir
Blóðug sólar-
upprás, (Red Dawn). Hún
er um ímyndaða innrás Kú-
bana í Bandaríkin og eru
kúbönsku hersveitimar undir
stjórn sovétmanna. Innrásin
er gerð í Colorado fylki og
eftir að einn bærinn þar hefur
verið hemuminn af kommún-
istunum flýja nokkrir ungl-
ingar til fjalla þar sem þeir koma á fót andspymuhreyfingu. Aðal-
hlutverk leika Patrick Swayze, C. Thomas Howell og Lea Thompson.
Leikstjfoi er John Milius. Myndin fær ★ ★ í kvikmyndahandbók
Scheuers.
Patrick Swayze leikur i Blóðugri
sólarupprás
Rás 1:
Hvaðgatég
annað gert?
Hvað gat ég annað gert? er heitið á sex eintals- og
■j /» 30 samtalsþáttum eftir fínnska rithöfundinn Maríu Jotuni sem
AD fluttir verða á Rás 1 í dag kl. 16.30. Þýðinguna gerði
Guðrún Sigurðardóttir, en leikstjóri er María Kristjánsdóttir. Form-
ála flytur Edda Heiðrún Backman.
í kynningu segir: María Jotuni (1880—1943) er einn af þekktustu
rithöfundum Finna. Eftir hana liggja fjölmörg verk, einkum smásög-
ur og leikrit. Þættimir sem fluttir verða fjalla um konur, samskipti
þeirra við karlkynið og stöðu þeirra í samfélagi þar sém ekki er
margra kosta völ. Undir grátbroslegu yfirboðir er brugðið upp mynd
af umkomuleysi sem m.a. birtist í togstreitu milli tilfínninga og skyn-
semi.
Leikendur eru Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Edda Bjöms-
dóttir, Kristbjörg Kjeld, Guðrún Ásmundsdóttir, Edda Heiðrún
Backman, Bríet Héðinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Edda
Björgvinsdóttir. Tæknimenn eru Friðrik Stefánsson og Pálína Hauks-
dóttir.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST:
Söfn
Arbæjarsafn
í vetur verður safnið opið eftir samkomu-
lagi.
Ámagarður
1 vetur geta hópar fengið að skoða hand-
ritasýninguna í Árnagarði ef haft er
samband við safniö með fyrirvara. Þar
má meöal annars sjá Eddukvæði, Flateyj-
arbók og eitt af elstu handritum Njálu.
Ásgrímssafn
Ásgrímssafn við Bergstaðastræti er opið
þri. fim. og sun. frá klukkan 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Um þessar mundir stendur yfir í Ásmund-
arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þar gefur að líta 26 högg-
myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning-
ar. Sýningin spannar 30 ára tímabil af
ferli Ásmundar, þann tima sem listamað-
urinn vann að óhlutlægri myndgerð. I
Ásmundarsafni erennfremurtil sýnis
myndband sem fjallar um konuna í list
Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og
afsteypurafverkum listamannsins. Safn-
ið er opið daglega frá kl. 10 til 16.
Skólafólk og aðrir hópar geta fengiö aö
skoða safnið eftir umtali.
Listasafn Einars
Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er lokað í*
desember og janúar. Höggmyndagaröur-
inn eropinn daglega frákl. 11.00—17.00.
Myntsafnið
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns er
í Einholti 4. Þar er kynnt saga íslenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlar og brauö-
peningar frá síðustu öld eru sýndir þar
svo og oröur og heíðurspeningar. Líka
erþarýmisforn mynt, bæði grískog
rómversk. Safnið er opiö á sunnudögum
millikl. 14og 16.
Náttúrugripasafnið
Náttúrugripasafnið ertil húsa að Hverfis-
götu 116,3. hæð. Þarmásjá uppstopp-
uð dýr til dæmis alla íslenska fugla,
þ.á.m. geirfuglinn, en líka tófurog sæ-
skjaldböku.
Safnið er opiö laugardaga, sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13.30-16.
Póst-og
símaminjasafnið
(gömlu símstöðinni í Hafnarfirði er núna
póst- og símaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst- og
símstöðvum og gömul simtæki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safniö er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safniö á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð i síma 54321
Sjóminjasafnið
[ sjóminjasafninu stendur yfir sýning um
árabátaöldina. Hún byggirá bókum
Lúðvíks Kristjánssonar „(slenskum sjáv-
arháttum". Sýnd eru kort og myndirúr
bókinni, veiðarfæri, líkön og fleira. Sjó-
minjasafniö er að Vesturgötu 6 i Hafnar-
firði. Það er opið í vetur um helgar
klukkan 14-18 og eftir samkomulagi.
Síminner 52502.
Þjóðminjasafnið
Ljósmyndasýning í tilefni af útgafu bókar
um Daniel Bruun hjá bókaforlaginu Erni
og Örlygi stendur nú yfir í Þjóöminjasafn-
inu. Sýningin stendurtil 31. desember.
Þjóðminjasafnið er opiö þriðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga
frá 13.30-16. Þareru meðal annarssýnd-
ir munir frá fyrstu árum íslandsbyggðar
og íslensk alþýöulist frá miðöldum. Einn-
ig er sérstök sjóminjadeild og land-
búnaðardeild, til dæmis er þar uppsett
baðstofa.
Leiklist
Leikfélag Reykjavíkur
Sýningar hjá Leikfélagi Reykjavíkur um
helgina erusem hér segir: „Dagurvon-
ar“ eftir Birgi Sigurðsson, föstudagskvöld
kl. 20.00 i Iðnó, 70. sýning. „Hremm-
ing", eftir Barrie Keeffe, 12. sýning
laugardagskvöld kl. 20.30 í Iðnó. Þetta
eru næstsíöustu sýningar á þessum
tveim verkum fyrir jól. „Djöflaeyjan" eftir
Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson,
föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.00
i Leikskemmu LRv/Meistaravelli. Síðustu
sýningarfyrirjól.
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnir tvo einþáttunga
eftir Harold Pinter, Einskonar Alaska og
Kveðjuskál, i Hlaðvarpanum, Vesturgötu
3 sunnudaginn 6. desember kl. 20.00.
Uppselt er á sýninguna, en ósóttar pant-
anirverðaseldarsýningardaginn.
Með hlutverk fara Árnar Jónsson, Margr-
étÁkadóttir, María Sigurðardóttir, Þór
Tuliniusog ÞrösturGuðbjartsson. Leik-
stjóri er Inga Bjarnason.
Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið „Eru tígris-
dýr i Kongó?" laugardag og sunnudag
kl. 13. Innifalið í miöaveröi er léttur há-
degisverður og kaffi. Sýnt er i veitinga-
húsinu [ Kvosinni. Miðar eru seldir á
skrifstofu Alþýðuleikhússins, Vesturgötu
3,2. hæð. Tekið er á móti pöntunum
allan sólarhringinn í síma 15185.
Þjóðleikhúsið
Fjórar sýningar eru á leikriti Ólafs
Hauks Sfmonarsonar, „Bílaverkstæði
Badda" um helgina og eru það síöustu
sýningarfyrirjól. Sýningarnar verða á
laugardag og sunnudag kl. 17.00 og
20.30. Uppselterá þessarsýningar, en
þegar er hafin sala á miðum á sýningar
í janúar og febrúar. Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson, en leikmynd og búningar
eftir Grétar Reynisson. Leikendur: Bessi
Bjarnason, Arnar Jónsson, Jóhann Sig-
urðarson, SiguröurSigurjónsson, Guð-
laug Maria Bjamadóttirog Árni
Tryggvason.
Miðasala er hafin á jólafrumsýningu Þjóð-
leikshússins. Uppselt er millijóla og
nýárs.en þegar er farið að selja miða á
sýningar í janúar og febrúar.
Revíuleikhúsið
Síðasta sýning Revíuleikhússins á ævin-
týrasöngleiknum „Sætabrauðskarlinn"
eftir David Wood er sunnudaginn 6. des-
emberkl. 15.00 ÍGamla bíói.
Hægt er að panta miða állan sólarhring-
inn í síma 656500 auk þess sem miöar
verða til sölu i Gamla bíói frá kl. 13 sýn-
ingardagana.
SJÁ NÆSTU OPNU
SKEMMTISTAÐIR
UTOPIA
Suðurlandsbraut 26
Skemmtistaðurinn Utopia er til húsa
viö Suðurlandsbrautina. Þar er 20 ára
aldurstakmark.
ÁRTÚN
Vagnhöfði 11
[ Ártúni leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt þeim Grétari og Örnu Þorsteins
á föstudagskvöldum, þegar gömlu
dansarnir eru og á laugardagskvöldum,
þegar bæöi er um aö ræða gömlu oð
nýju dansana. Siminn er 685090.
BROADWAY
Álfabakki 8
Rokksýningin „Allt vitlaust" verður í
Broadway á og laugardagskvöld, auk
þess sem hljómsveitin Sveitin milli
sanda, leikur fyrir gesti. Síminn í Broad-
way er 77500.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
skemmtir í Súlnasal Hótels Sögu á
föstudags- og laugardagskvöldum frá
kl. 22.00 til kl. 03.00.
Á Mímisbar syngur Þuríður Sigurðar-
dóttir ásamt tríó Árna Scheving.
Siminn er 20221.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er í Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00 til
kl. 03.00. Á fimmtudagskvöldum eru
oft rokktónleikar.
mwmmA
EVRÓPA
Borgartún 32
Hljómsveit hússins, Saga-Class, leikur
í Evrópu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Síminn f Evrópu er 35355.
GLÆSIBÆR
Álfheimar 74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
föstudags-og laugardagskvöldum frá
kl. 23.00 til kl. 03.00. Síminn er 686220.
HOLLYWOOD
Ármúli 5
Leitinni að týndu kynslóðinni er hreint
ekki lokið i Hollywood, þar sem bæði
hljómsveit af þeirri kynslóð sem og
diskótek týndu kynslóðarinnar er í
gangi á föstudags- og laugardags-
kvöld. Borðapantanir eru í síma
641441.
SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2
Á skemmtistaðnum Skálafelli á Hótel
Esju er leikin lifandi tónlist öll kvöld
vikunnar, nema á þriðjudagskvöldum.
Hljómsveitir leika um helgar. Skálafell
er opiö alla daga vikunnar frá kl. 19.00
til kl.01.00. Síminn er 82200.
ABRACADABRA
Laugavegur 116
Skemmtistaðurinn Abracadabra er op-
inn daglega frá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenákur matur er framreiddur í
veitingasal á jarðhæðinni til kl. 22.30.
[ kjallaranum er opiö frá kl. 18.00 til
kl. 03.00 um helgar og er diskótek frá
kl. 22.00. Enginn aðgangseyrir er á
fimmtudögum og sunnudögum. Síminn
er 10312.
HÓTEL BORG
Pósthússtrœti 10
Rokktónleikar eru iðulega á fimmtu-
dagskvöldum á Borginni og þá frá kl.
21.00. Á föstudags- og laugardags-
kvöldum er diskótek frá kl. 21.00 til kl.
03.00 og á sunnudagskvöldum eru
gömlu dansarnir á sfnum stað, frá kl.
21.00 til kl. 01.00. Síminn er 11440.
LENNON
Austurvöllur
Diskótek er i skemmtistaðnum Lennon
á föstudags- og laugardagskvöldum frá
kl. 20.00 til kl. 03.00 og er þá enginn
aögangseyrir til kl. 23.00. Aðra daga
er diskótek frá kl. 20.00 til 01.00.
Síminn er 11322.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholt 20
í Þórscafé er skemmtidagskrá m.a.
með Lúdósextettnum og Stefáni fram
til miðnættis, en þá leikur hljómsveit
Stefáns P. fyrir dansi. Að auki eru
stundum gestahljómsveitir og diskótek
. er i gangi á neðri hæðinni frá kl. 22.00
til kl. 03.00. Síminn er 23333.