Morgunblaðið - 04.12.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987
B 7
HVAÐ
ER AÐO
GERAST(
Hreyfing
Keila
I Keilusalnum í Öskjuhlið eru 18 brautir
undir keilu. Á sama stað er hægt að
spila billjarð og pinu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Golf
Á Grafarholtsvelli er Golfklúbbur
Reykjavíkur með aðstöðu. Kennari er á
staðnum og æfingasvæði fyrir byrjendur.
í Hafnarfirði er Hvaleyrarvöllur og Nes-
klúbburinn er með völl á Seltjamarnesinu.
Hlíðarvöllur er svo í Mosfellsveit. Auk
þess eru fallegir vellir í Grindavík og í
Grimsnesinu.
Sund
I' Reykjavik eru útisundlaugar í Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnamesi, á Varmá og við
Borgarholtsbraut i Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu eru við
Barónsstig og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartima þeirra má sjá í
dagbókinni.
Útivist
Tvær styttri ferðir eru á dagskrá Útivistar
um helgina. Á laugardagskvöldið 5. des-
ember kl. 20.00 ertunglskinsganga.
Gangan hefst við kapellu heilagarar Bar-
böru hjá Straumsvík, en 5. desember er
Barbörumessa. Gengið verður niður á
ströndina í áttina að Hvaleyri og kveikt
fjörubál, en gangan endarvið Hvaleyri
þar sem skoðaður verður forn rúnasteinn
er nefndur hefur verið eftir Hrafna—Róka
og kallaður Rókasteinn.
Sunnudaginn 6. desember er haldiö að-
eins vestar og þá gegniö frá eyðibýlinu
Lónakoti að Ottarsstööum og
Straumsvík. Brottför í ferðirnar er frá
BSÍ, benssínsölu. Næsta helgarferð er
áramótaferð Útivistar í Þórsmörk 30.
desember.
Upplýsingarniðstöð ferðamála er með
aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar almennar upplýsingar um
ferðaþjónustu á íslandi. Mánudaga til
föstudaga er opið frá klukkan 10.00-16.
00, laugardaga kl. 10-14. Lokaöá
sunnudögum. Siminn er 623045.
landi, fyrir nokkrum árum undir stjórn
Aloiz Brentsj og fjaliar um smyglmál sem
tveir sovéksir þátttakendur í aksturs-
keppni mitli Moskvuog Berlinar um
Varsjá flækjast í af tilviljun.
Sunnudaginn 13. desember kl. 16 verður
„Síberíuhraðlestin “sýnd í biósal MIR og
er það siðasta kvikmyndasýningin fyrir
jól.
Aðgangur að sýningum MfR, bæði kvik-
myndasýningum og list- og bókasýningu
sem nú er uppi í húsakynnum félagsins
að Vatnsstíg 10, erókeypis og öllum'
heimill.
Templarahöllin
Félag harmonikuunnenda heldur
skemmtifund i Templarahöllinni við
Eiriksgötu sunnudaginn 6. desemberfrá
kl. 15.00-18.00
Hljómsveitirog kórarkoma fram ásamt
fleiru. Boðið verður upp á veitingar. Allir
eru velkomnir.
Laugarneskirkja
Áhugahópur um kyrrðardaga stendur fyr-
ir messu i Laugarneskirkju föstudaginn
4. desember kl. 18.00.
Halgl Bjðmsson ( hlutverkl sfnu ( „Hrommlngu*
Félagslíf
Barnagaman
Sovésk bókasýning í
MÍR, Vatnsstíg 10
Sýningu á myndlistarverkum og listmun-
um frá Hvítarússlandi og sovéskum
bókum, hljómplötum og frimerkjum, sem
staðið hefur yfir í hússkynnum MÍR,
Menningargengsla íslands og Ráðstjórn-
arrikjanna, Vatnsstíg 10, lýkursunnu-
dagskvöldið 6. desember. Á sýningu
þessari eru rúmlega-70 svartlistarmyndir
eftirýmsa af kunnustu myndlistarrriönn-
um sovétlýðveldisins Hvitarússlands, á
annað hundrað listmunir úr tré og tágum,
ásamt vefnaöi frá sama landi, barnateíkn-
ingar, á fjóðra hundrað bækur af ýmsum
toga, hljómplötur og frimerki. Meðal
svartlistarmyndanna eru nokkrar teikn-
ingar, sem gerðarvoru við skáldsögu
Halldórs Laxness „Atómstööina" þegar
hún kom út á hvitrússnesku fyrir allmörg-
um árum, en af bókum má m.a. nefna
fjölbreytilegt úrval barnabóka og stórar
listaverkabækur.
Sýningin að Vatnsstíg 10 er opin virka
daga kl. 17.—18.30 ogum helgina kl.
14.-18.30.
Sovéska kvikmyndin „Rall" veröur sýnd
í bíósal MÍR, sunnudaginn 6. desember
kl. 16. Þetta er mynö gerð i Riga, Lett-
Tivoli i Hveragerði
í Tivoli er alltaf eitthvað nýtt að gerast.
Þar er opið virka daga frá 13-22 og um
helgarfrá 10-22.
Ýmislegt
Bergvík
Signjn Einarsdóttirog Sören Larsen
halda áriegan jólabasará útlitsgölluðu
gleri á glerverkstæði sinu i Bergvik á Kjal-
arnesi um helgina. Basarinn veröur opin
laugardag og sunnudag frá kl. 10.00—
18.00. Boðiö verður upp á kaffi og
piparkökur. Bergvík er við Vesturlands-
veg.
Sfðasta aýnlng Ravfulaikhússlns á „S»tabrauðs-
karllnum" ar á sunnudag.
B»in í borginni
BÍÓBORGIN
Gullstrætið ★ ★ 1/2
Gullstrætið hefði þótt meiri matur
fyrir röskum áratug, fyrir tíma
Rocky. Stendur þó bærilega á eig-
in fótum, fyrst og fremst fyrir
sterkan en áreynslulausan leik
Brandauers.-sv.
Laganeminn ★ ★
Réttardrama, blanda unglingaleiks
og morðsögu. Mynd í algjöru með-
allagi. -ai.
í kröppum leik ★ ★ ★
Dennis Quaid og Ellen Bartcin
bæta hvort annað upp í þessari
kvöldmynd Jim McBride frá New
Orleans (The Big Easy). Góðar
stemmningar, góður leikur en
glæpamáliö tyrfið.-ai.
Nornirnar í Eastwick ★ ★ ★
Nicholson fær gullið tækifæri til
að skarta sínum innbyggða fítons-
krafti en Miller lætur augsýnilega
verr að stýra mönnum en maskín-
um.-sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Hinir vammlausu ★ ★ ★ ★
Gangstermynd níunda áratugarins
með úrvalsliði leikara og kvik-
myndagerðarmanna. Reynið að
missa ekki af þessari.-ai.
STJÖRNUBÍÓ
La Bamba ★ ★ ★
Heiðarleg, vel gerð, leikin og upp-
tekin mynd um þann merkistónlist-
armann Richie Valens. Hann vann
það kraftaverk með einungis örf-
áum lögum á örskömmum ferli að
hefja latínskt rokk til vegs og virð-
ingar.-sv.
„84 Charing Cross Road“
★ ★ 1/a
Hugljúf mynd um samband forn-
bókasala og bandarísks rithöfund-
ar sem aldrei hittust en skrifuðust
á i fjölda ára.-sv.
BÍÓHÖLUN
í kapp við tímann ★ ★
John Cusack og Robert Loggia eru
góðir i fjörugri unglingamynd.-ai.
Týndir drengir ★ ★
Gaman-, rokk-, unglingahrollvekja
með ágætum leikarahópi og brell-
um en innihaldið heldur klént.-ai.
Glaumgosinn ★ 1/2
Sumt er nokkuð fyndið í þessari
hálfgildings unglingamynd en flest
er miklu sætara en góðu hófi gegn-
ir og Molly er í fýlu allan tímann.-ai.
Skothylkið ★ ★ ★ V2
Þó svo að Skothylkið sé ekki sú
stórkostlega upplifun sem maður
átti von á frá hendi meistara
Kubricks er i henni að finna glæsi-
leg myndskeið sem örugglega
veröa með því besta sem viö sjáum
á tjaldinu í ár.-sv.
Seinheppnir sölumenn
★ ★ ★ V2
Aldeilis frábær gamanmynd um
biræfna sölumenn í Baltimore árið
1963. Barry Levinson aftur á
heimaslóðum með DeVito og
Dreyfuss í fínu formi.-ai.
Leynilöggumúsin Basil
★ ★ ★ ★
Einhver alskemmtilegasta og
vandaðasta teiknimynd sem hér
hefur verið sýnd lengi. (Sýnd um
helgar).-ai.
Mjailhvít og dvergarnir sjö
★ ★ ★ ★
Fyrsta teiknimyndin í fullri lengd;
tímamótaverk, klassik, gimsteinn.
(Sýnd um helgar)-ai.
Blátt flauel ★ ★ ★
Það er rétt sem stendur í auglýs-
ingunni. Blátt flauel er mynd sem
allir unnendur kvikmynda verða að
sjá. -sv.
REGNBOGINN
í djörfum dansi ★ ★ ★
Hressiieg og drífandi mynd, keyrð
áfram af líflegri tónlist sjöunda
áratugarins en þó enn frekar af
dansi sem ætti jafnvel að kveikja
líf með dauðyflum!-sv.
All of Me ★ ★
Lily Tomlin tekur sér bólstað í
Steve Martin og veldur honum
ómældum áhyggjum.
Skytturnar ★ ★ V2
Næturgölt tveggja hvalfangara
endar meö ósköpum i þessari
ágætu mynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar.
Riddari götunnar ★ ★ ★ V2
í Detroit framtíðarinnar eru menn
skotnir og skotnir aðeins meira og
svo skotnir í tætlur í þessari fyrstu
Hollywoodmynd Hollendingsins
Paul Verhoevens. RoboCop er vél-
menni meö göfuga sál og tekst á
við óþokkana en þrátt fyrir skefja-
lausa grimmd og ofbeldi gleymist
aldrei hinn mannlegi þáttur.-ai.
Á öldum Ijósvakans ★ ★ ★
Lítil mynd frá Woody Allen en frá-
munalega hugguleg og fjallar á
rómantískan hátt um útvarpið á
striðsárunum í Ameríku.-ai.
Löggan í Beverly Hills II ★ ★ V2
Murphy er i slíkum súperstjörnu-
klassa að það hlæja allir þó að
hann sé að endurtaka brandar-
ann.-sv.
LAUGARÁSBÍÓ
Furðusöur ★ ★ V2
Þrjár léttar, aðeins öðruvísi sögur,
misjafnar að gæðum en léttmeltar
og þægilegar sem afþreying.-sv.
Hefnandinn 1/2Léleg B-mynd um
hryðjuverkakvendi, fjarstýrt af CIA.
Robert Ginty, fremstur í flokki B-
leikara er hryllilegur í aðalhlutverk-
inu.-ai.
Undir fargi laganna ★ ★ ★
Þessi svart-hvíta kómedia Jim Jar-
mush um utangarðsmennina Jack,
Zack og Bob var ein af bestu
myndum Kvikmyndahátiðar i
haust. Bob var sannarlega fyndn-
asti gestur hátiðarinnar.-ai.
Fjör á framabraut ★ ★ V2
Gamanmynd með Michael J. Fox
í aðalhlutverki um strák sem kem-
ur sér áfram í viðskiptaheiminum.
Barnaútvarp:
Smásagnasamkeppni og Jólaalmanak
Þriðjudaginn 1. desember
hófust beinar útsendingar á
„Jólaalmanaki Útvarpsins
1987“. Fhitningurinn fer fram
á Rás 1 alla virka daga kl.
9.03 og lýkur á aðfangadag
24. desember.
Á hveijum degi er opnaður nýr
gluggi almanaksins, en eins og
með önnur jólaalmanök þá má
heldur ekki kíkja fram í tíman
í þessu og þess vegna er ekki
hægt að segja frá því hvað da-
gamir bera með sér.
Oll böm geta skrifað þættinum,
beðið um desemberlögin sín,
sent jólasveinunum kveðjur og
óskir og teiknað myndir við efni
þáttanna. Utanáskrift þáttairins
er Jólaalmanak Útvarpsins
1987, Efstaleiti 1, 108
Reykjavík. Pósthólf 150.
Jólastúlkan sem flettir dagatal-
inu er Guðrún Pálína Ólafsdóttir.
Hún verður í hveijum þætti
ásamt Hrafnhildi Valgarðsdótt-
ur rithöfundi sem hefur skrifað
framhaldssögu þáttarins, einnig
kemur amman Guðríður Lállý
Guðbjömsdóttir mjög við sögu.
Stjómandi þáttanna er Gunnvör
Braga.
Um þessar mundir stendur yfír
á vegum Bamaútvarpsins smá-
sagnasamkeppni sem böm- og
unglingar á aldrinum 9 — 14
ára geta tekið þátt í. Sögumar
eiga að fjalla um jólin eins og
nafnið bendir til og til viðmiðun-
ar eiga þær að vera 3—4
handskrifaðar síður eða 2—3
vélritaðar. Skilaffestur er 15.
desember og verða veitt þrenn
verðlaun. Utanáskrifítin er
Bamaútvarpið Efstaleiti 1, 150
Reykjavík. Þær sögur sem bera
sigur úr býtum verða lesna í
Bamaútvarpinu 18. desember.