Morgunblaðið - 16.12.1987, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1987
JOLAFONDUR
* y' Z' ^ /
//* /*
Jólasveinn
Nú ætlum við að búa til jólasvein
úr pípuhreinsurum. Það sem til þarf
er
pípuhreinsarar
þunnt gam, hvítt, rautt og blátt
smá bómull
skæri
stoppinál ,
Þannig förum við að:
Beygðu pípuhreinsarann í miðju
• þannig að það myndist smá bogi.
> Leggðu annan endann yfir hinn
iþannig að höfuðið verði rúnnað.
3 4 Snúðu endana fast saman
“"^xijórum sinnum. Þannighöfum
við fengið búkinn á jólasveininn.
5Klipptu annan pípuhreinsara í
tvennt. Annan helminginn notar
þú í hendur á jólasveininn. Hinn helm-
inginn geymirðu, eða notar á annan
jólasvein. Leggðu handleggina bak við
sveininn og gættu vel að að handlegg-
imir verði álíka langir.
6
Vefðu örmunum einn hring fast
um hálsinn.
'Fáðu þér hvítt garn og bytjaðu
að vefja um höfuðið.
8Nú skaltu vefja um handleggina.
Þú leggur þráðinn frá höfðinu al-
veg á enda handarinnar og vefur upp
handlegginn. Þú getur notað sama
þráðinn alla leið. Vefðu hinn hand-
legginn á sama hátt og einnig
fætuma.
1 O ^e£ar Þa er búinn að vefja fest-
-I- vl ir þú gamið með því að stinga
þræðinum undir snúninginn með hjálp
nálarinnar. Klippið frá.
nTaktu rauða gamið og vefðu
yfir hVíta gamið en skildu eftir
fæturna, hendumar og höfuðið.
-| C\ Húfuna vefur þú á sama hátt,
A La en þú verður að þræða niður í
höfuðið til þess að fá húfuna til að
sitja.
-j QDúskinn býrðu til með því að
JL O sauma lykkjur á topp húfunnar.
Vefðu vel utan um dúskinn og festu
endann. Klipptu uppúr lykkjunum.
-j 4 Saumaðu augun með bláu
1 bandi. Saumaðu bómullar-
hnoðra á sem skegg um leið og þú
saumar munninn.
9
Það er best að vefja bijóstkassann
í kross.
C£o»
Jólatré
Idag ætlum við einnig að búa til
einfalt jólatré. Þið klippið það út
úr kartoni. Kartonið má gjarna vera
grænt, en ef það er ekki til þá litið
þið bara tréð. Þið klippið út tvö eins
stykki. Eins og myndin sýnir þá klipp-
ið þið uppí annað stykkið en niðurí
hitt. Tréð er fest saman með því að
setja annan hlutan ofan á hinn.
Það má auðveldlega líma gHmmer,
eða smáskraut sem þið búið til á
tréð. Svona tré má láta standa á
borði, til dæmis sem borðskraut á jóla-
borðinu, eða hengja á jólatréð, eða
búa tíl óróa og hengja í loftið.
í j ólapakkann
Ef þú vilt gefá vini eða ættingja litla
skemmtiiegajólagjöf þá er hérna hugmynd.
Þú býrð til piparmyntusæigæti.
Héma er uppskriftin:
1 eggjahvíta
1 tsk. vatn
2-3 dropar piparmyntuoiía
flórsykur
matariitur
Hálfþeyttu eggjahvítuna. Blandaðu vatni,
piparmyntuolíu og flórsykri í þar tii deigið
er passlegt. Þú getur skipt deiginu og bland-
að matarlit í hluta þess, einn eða fleiri liti.
Síðan býrðu til alls konar skemmtilega hluti
úr deiginu.
Þegar sælgætið er tilbúíð getur þú sett
það í fallega glerkrukku og gefið það í jóla-
gjöf.