Morgunblaðið - 10.01.1988, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.01.1988, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1988 HÁVAR SIGURJÓNSSON „HFT lOTT FTKl ÍRINN- BRESKT í SJÓNVARPINU Helgileikurinn í sjónvarpinu á rætur að rekja til viðamikilla hátíðahalda sem tíðkuðust árlega í borgum Bretlands um tveggja og hálfrar aldar skeið, frá upphafi 1. aldar ogframyfir miðja 16. öld. Helgileikirnir tengdu saman alþýðuleiklist og trúarlegan siðaboðskap ogeru mikilvægur lykill að skilningi á formgerð leikrita Shakespeares sem ogýmissa seinni tíma leikskáída. Ríkissjónvarpið sýndi nú um jólin sjónvarpsupptöku í þremur hlutum frá breska Þjóðleikhúsinu, er nefndist í þýðingu — Helgileikur — The Mysteri- es. Nokkurrar ónákvæmni gætti við kynningu á þessu efni, t.a.m. voru þættirnir kallaðir sjónvarpsleikrit en ekki sjónvarpsupptaka úr leikhúsi. Þá var upptökustjórinn, Derek Bailey, nefndur leikstjóri, en Ieikstjórans sjálfs, Bill Brydens í engu getið. Efni- stök sýningarinnar voru kölluð „nýst- árleg“, en þess ekki getið að allur textinn væri frá 15. öld, þó umgjörðin væri færð til nútímans. Nýstárleikinn fyrir þá er ekki þekkja til, er vafa- laust sá, að hér eru sögur Biblíunnar færðar í skemmtilegan og gamansam- an búning, en sú nýjung er jafngömul textanum og hvorki uppgötvun íslenska sjónvarpsins né breska Þjóð- leikhússins. essi sýning breska Þjóðleikhúss- ins er í raun hápunktur 30 ára sögu sem lýsir sér í því, að leik- hópar og leikhúsfóik vítt og breitt um Bretland hafa dustað rykið af þessum gömlu og hálfgleymdu text- um og sýnt fram á að þeir eru ekki síður vel fallnir til sýninga í dag en þeir voru fyrir 500 árum. Ekki eru nema rúm 40 ár síðan einn heisti sérfræðingur Breta í leik- list miðalda, E.K. Chambers, lýsti því yfir að þessir textar væru ekki aðeins óhæfir sem bókmenntir, heldur einnig með öllu óhæfír til flutnings. Þessari kenningu hefur verið hnekkt nær árlega allar götur síðan. Vel gæti ég ímyndað mér að einhverjum er horfðu á þættina í sjónvarpinu og eru ókunnugir sögu þessa merkilega efnis, hafí fundist sem hér væri farið heldur léttúðug- lega með efni hinnar helgu bókar. Þeim til hugarléttis og vonandi nokkurs fróðleiks skal nú lýst í stuttu máli hvað þessir helgi- leikir voru og hvaða hlutverki þeir gegndu í borgasamfélagi síðmiðalda. Við beinum augum okkar til borgarinnar York á norðaustanverðu Englandi, en skul- ' um jafnframt hafa í huga að lýsing sú er hér fer á eftir gæti allt eins átt við ýmsar fleiri borgir á Bretlandi Evrópu á þessum sama tíma. York árið 1476 Við veljum árið 1476 og dagurinn er fyrsti fímmtudagur eftir Trinitatis. Á þess- um degi fagna ailir í kaþólskum sið hinu heilaga sakramenti og minnast síðustu kvöldmáltíðar Jesú með lærisveinunum. Þegar hér er komið sögu hefur þessi hátíð verið árlegur viðburður í trúarlífi kaþólskra, allt frá því kirkjuþing í Vínarborg fyrirskip- aði svo árið 1312. Saga þessarar hátíðar á Englandi nær fram á seinni hluta 16. aldar er Elísabet I. stofnaði ensku biskupakirkj- una (1559) og batt loks pólitískan og táknrænan enda á ítök kaþólskra með af- töku Maríu Stúart árið 1589. Á því ári sem við höfum valið okkur eiga hátíðahöldin sér orðið 164ra ára langa sögu og íbúar York vita gjörla hvað er í vændum. Þó skammt sé liðið á morgun þennan fímmtudag hefur nokkur manníjöldi safnast saman á homi við aðalgötu borgarinnar, Micklegate (Miklagata); þar er rými gott fyrir það sjónarspil sem senn fer í hönd. Skyndilega fer kliður um hópinn og augu allra beinast í sömu átt. Hljóðfæraleikur heyrist álengdar og örstundu síðar birtist stór, fagurlega skreyttur vagn, eða öllur heldur leiksvið á hjólum. Fyrir vagninum fara hljóðfæraleikarar er taka sér stöðu við hlið vagnsins þegar staðnæmst er á götu- hominu. Vagninn er nokkuð stór, 5—8 metrar á lengd og allt að 3 metrar á breidd. Ekki veitir af, því á vagninum getur að líta Guð almáttugan sjálfan, erkienglana Gabrí- el, Mikjál og Lúsifer, ásamt guðdómlega útlítandi englahjörð (4—8) með fögur hljóð. Vagninn er skreyttur samkvæmt hugmynd- um þeirra tíma manna um innréttingar himnaríkis, hvítur, blár og gylltur, yfír vagn- inum er þak borið uppi af fjórum súlum. Á milli aftari súlnanna er fagurlega málaður dúkur er nær frá gólfí og upp undir þak vagnsins. Hæð vagngólfsins frá jörðu er nálægt einni mannhæð (150—170 cm) og er tjaldað með hliðunum niður að jörð. Þann- ig geta allir áhorfendur séð vel til, hvar í þyrpingunni sem þeir standa. Þá er líklegt að hleri sé á gólfí vagnsins, þar sem leikend- ur geta horfíð niður eða komið upp um, ef atburðarásin krefst slíks. Súlumar eru nægilega háar og traustar til að englar og ýmis sviösbúnaður geti svifíð í strengjum yfír sviðinu. Að þessari upptalningu lokinni er rétt að hafa í huga að minna þurfti til að vekja aðdáun þessa áhorfendahóps en nú á tímum. Skiptir nú engum togum að Guð almátt- ugur hefur upp raust sína og byrjar að skapa, fyrst himin og jörð, og síðan hvert af öðru þar til allt er komið nema Adam og Eva. I kjölfarið fylgir útskúfun Lúsifers úr himnaríki fýrir sakir drambsemi hans og oflátungsskapar. Hverfur hann með miklum hljóðum, ljótu orðbragði, reyk og lúðra- blæstri niður til vítis. Áhorfendur eru slegnir nokkrum óhug en skemmta sér þó hið besta. Þessi leikþáttur hefur tekið 10—20 mínútur í flutningi og nú hreyfíst vagninn úr stað. Hann heldur að næsta viðkomustað í borg- inni, þar sem bíður annar hópur áhorfenda engu minna spenntur en sá fyrsti. Ur okkar hópi hverfa fáir, því varla er fyrsti vagninn horfínn úr augsýn er annar kemur, engu minna skreyttur en sá fyrri. Á þessum vagni er nú leikin af sama kappi og tilþrifun sköp- un Adams og Evu og dvöl þeirra í Paradís. Þættinum lýkur með viðskiptum Evu við höggorminn og útskúfun þeirra Adams úr aldingarðinum. Þannig líður dagurinn, hver vagninn kem- ur af öðrum og áður en lýkur hafa verið leiknir á milli 20 og 30 þættir úr Gamla testamentinu og hinu nýja. Hápunktamir eru vafalaust fæðing og krossfesting Jesú, ásamt niðurstigningu hans til heljar og loka- þættinum um dómsdag. Þó er það einstakl- ingsbundið hvaða þáttur fellur mönnum best og samkeppni mikil meðal flytjenda að gera sinn hlut sem eftirminnilegastan. Þetta fýrirkomulag sem hér er lýst er byggt á tilgátum fræðimanna og þess sem ráða má af samtímaheimildum og textunum sjálfum. Önnur tilgáta er sú að vögpunum hafi verið ekið i mikilli skrúðgöngu lærðra og leikra um borgina við upphaf hátíðarinn- ar og síðan hafí vögnunum verið lagt í hálfhring einhvers staðar á nægilega stóru, opnu svæði. Þar hafí síðan hinn eiginlegi flutningur leikþáttanna farið fram og áhorf- endur gengið frá einum vagninum til annars. Fylgjendur þeirrar tilgátu hafa einnig dreg- ið í efa að vagnamir hafí verið jafn íburð- armiklir og hér var lýst. Notast hafi verið við svokölluð básasvið (Booth-stage) sem eru mun líkari útileiksviðum eins og við þekkjum þau í dag. Líklegast er þó að hvort tveggja hafí verið í notkun og eru ýmsar heimildir fyrir því að fyrirkomulagið hafí ekki verið hið sama frá einni borg til annarrar. Þá er t.d. vitað með fullri vissu að á sama tíma og þróunin á Englandi var fyrst og fremst í þá átt að fullkomna texta og form leik- þáttanna, var sífellt meiri áhersla lögð á skraut og glæsileika skrúðgangnanna sjálfra á meginlandinu. Sérstaklega á þetta við Spán og Frakkland. Ein heimild frá Barcelona á Spáni greinir t.d. frá 108 mis- munandi vögnum og skrautatriðum í einni og sömu skrúðgöngu árið 1424. En hverfum aftur til York. Í lok dagsins tínast borgarbúar til síns heima, þreyttir en ánægðir. Ekki aðeins hefur hinn kristi- legi boðskapur um tilgang sakramentisins og fyrirheit um eilíft líf með grandvöru líferni skilað sér í máli og myndum svo all- ir fái skilið, heldur hefur þetta farið fram á þann hátt að hafa hefur mátt mikla skemmtan af. Til að átta okkur enn betur skulum við nú hyggja að hveijir stóðu að baki þessum miklu sýningum ásamt kirkju- yfirvöldum og hvers vegna þær náðu slíkri fullkomnun áður en yfír lauk. Hlutverk gildanna Strax í byrjun 14. aldar, við upphaf þess- ara hátíðahalda, leituðu kirkjuyfírvöld á hverjum stað til gildanna, fagfélaga iðnað- ar- og handverksmanna í borgarsamfélögum miðalda. Gildin byggðu á grunni kristilegs siðferðis og því næsta eðlilegt að kirkjan leitaði til þeirra. í upphafí tóku gildin ein- ungis að sér að ganga undir merkjum og skreytingum í skrúðgöngunum er minntu á einstakar frásagnir biblíunnar. Smám sam- an verður þróunin á Englandi sú að eftir því sem hefðin festist betur í sessi og við- höfn og umbúnaður aukast, verður lýsing sú er hér fór á undan að árlegum viðburði í borgarlífí 15. og 16. aldar. Hlutur gild- anna eykst og þau verða sjálfráðari um útlit og framkvæmd þess hluta hátíðahald- anna sem er á þeirra ábyrgð. Messusöngur og altarisgöngur skipuðu að sjálfsögðu einn- ig veglegan sess. Hlutverki gildanna má lýsa þannig að þau hafi borið ábyrgð á undirbúningi og flutningi á einum leikþætti hvert og þróuðust mál þannig að oft voru gamansöm tengsl á milli innihalds leikþátt- arins og starfsemi viðkomandi gildis. í York voru það t.d. bátasmiðir sem sáu um flutn- ing þáttarins um smíði Arkarinnar hans Nóa, bakararnir sáu úm síðustu kvöldmáltí- ðina, kokkar og eldabuskur um niðurstign- ingu Jesú til vítis, og þannig mætti áfram telja. Leiða má líkur að því að vagnamir hafí verið í sameiginlegri eigu gildanna og borgaryfírvalda, en gildin hafi alfarið staðið straum af kostnaði við sýningu á sínum leikþætti. Frá York eru til heillegir textar 48 biblíu- leikþátta. Einu nafni nefnast þeir keðja eða hringur, á ensku Mystery eða Miracle cyc- les. Sýning breska Þjóðleikhússins í sjón- varpinu studdist við þessa texta frá York, þó þeir hafi verið aðlagaðir og samræmdir til heillegs flutnings í einni sýningu. Slíkar keðjur biblíuleikþátta eru til frá fleiri borg- um á Englandi, Chester og Wakefield t.d., en það segir engan veginn alla söguna um útbreiðslu og vinsældir þessara hátíðahalda. Þar kemur tvennt aðallega til, textar hafa ekki varðveist og einnig er líklegt að sömu textar hafí verið notaðir víðar en í einni borg. Eru ýmsar heimildir til um slíkar sýn- ingar í mörgum borgum, þó ekki sé vitað með neinni vissu hvaða textar voru notaðir. Fráleitt er að ætla að allir 48 þættimir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.