Morgunblaðið - 18.01.1988, Blaðsíða 1
LEIKHORNIÐ
Penna-
vinir
Einar Snorrason,
Krossholti 1,
230 KEFLAVÍK
Einar vill eignast pennavini
á aldrinum átta til tólf ára.
Áhugamál: íþróttir.
íris Björk Marteinsdóttir,
Einholti 8E,
603 AKUREYRI
íris Björk vill eignast penna-
vini, bæði stelpur og stráka,
á aldrinum 10-12 ára.
Hver er
fyrstur?
*
I þennan leik þarf tómt
tvinnakefli fyrir hvern kepp-
anda. Auk keflis þarf hver
keppandi bandspotta. Böndin
eiga að vera jafnlöng fyrir
alla. Keppnin er í því fólgin
að vera fyrstur að vefj a band-
m' inuuppákeflið.
Hvaða hlutir eru þetta?
Einn þátttakandi velur nokkra hluti sem hinir
mega ekki sjá. Síðan eiga aðrir í hópnum að
reyna að finna út, með bundið fyrir augun, hvaða
hlutir þetta eru.
jeimlUsfan^.
S&'*
Morsynbiaðim,
Aðalstraetí 6
101 ^oykjavfk
Einar Snorrason, Krossholti 1,
Keflavík, sendi þessa mynd.
Mikil breyting
„Farðu, þú ert svo leiðinleg
að það er ekki hægt að leika
við þig.“ Lára hljóp í burtu
með grátstafinn í kverkunum.
„Allar þessar montnu stelpur
eru eins,“ kveinaði Lára. Lára
var 11 ára og enginn vildi
vera vinur hennar. Það var
eiginlega vegna þess að í 8
ára bekk komu 3 ráðríkar
stelpur í bekkinn. Þær hétu
Svanráður, Eva og Ragga.
Ragga var foringi í félagi
stelpnanna í bekknum, sem
allar fengu að vera í nema
Lára og Elsa því að þessum
þremur monthönum fannst
þær ljótar og leiðinlegar. Fé-
lagið hét Bleikar pæjur. Pabbi
sagði alltaf við Láru að hún
yrði að bíða þar til að einhver
vildi leika við hana. En Lára
hafði beðið nógu lengi og einn
dag kom ný stelpa í bekkinn
sem hét Marín. Hún settist hjá
Láru og spurði strax hvort hún
vildi verða vinkona hennar því
hún þekkti engan hér. Lára
vildi endilega vera vinkona
hennar og strax í fyrstu frímó
sagði hún henni allt um Bleiku
pæjurnar, Svanráði, Evu,
Röggu og um sig og Elsu.
Ekki leið á löngu þar til Ragga
kom og skipaði Láru að fara
því hún vildi fá að tala við
Marín undir fjögur augu.
Lára hljóp grátandi í burtu.
Eftir 5 mínútur kom Marín
hlaupandi og sagði: „Þú
raukst bara í burtu, hvað er
að?“
Lára leit upp og stamaði:
„Við sem vorum næstum orðn-
ar vinkonur." Lára komst ekki
lengra því gráturinn kæfði
hana.
„Hvað áttu við,“ svaraði
Marín eins og hún kæmi af
fjöllum.
„Nú fórstu ekki í félagið?“
svaraði Lára hissa.
„Nei, ekki vegna þess að
annars mátti ég ekki tala né
leika við þig. Og þessi Ragga
vagga getur bara átt sig og
sínar vinkonur.“
Lára undraðist að Marín væri
að segja satt og spurði því
hvað hún meinti.
„Nú, bara stofna nýtt félag,
bara svona,“ sagði Marín í
essinu sínu.
Láru fannst þetta sniðugt,
en svolítið galið. Hún enn óviss
og sagði að allar stelpumar
væm í Bleiku pæjunum.
Marín hló og sagði að hún
sjálf, Lára og Elsa væm ekki
í neinu félagi og félagið ætti
að heita LAMAEL.
Lára spurði hvers vegna
Lamael.
„Nú, Lára, Marín og Elsa,
fyrstu tveir stafimir í nöfnun-
um vom teknir og þá kemur
út Lamael.
Stelpumar töluðu um þetta
fram og aftur þar til það var
hringt inn. Þær ákváðu að láta
Elsu vita um þetta í næstu
frímó.
Lára gat lítið fest hugann
við reikninginn vegna þess að
hún hlakkaði svo til og þó
kveið hún fyrir viðbrögðum
Röggu, Svanráðar og Evu.
Eftir rúman hálfan mánuð
vom allar stelpumar komnar
yfir í Lamael nema Svanráð,
Eva og Ragga. Þessar þijár
vom öskuvondar.
Þegar Lára gekk ein heim
kom Svanráð til hennar og
spurði: „Má ég vera með?“
Lára sá að hún var ekki
lengur í Bleiku pæjunum og
sagði því já. Næsta dag gerð-
ist nokkuð mjög óvænt því Eva
vildi líka vera með og var
Ragga ein alveg þar til í 9.
bekk.
Endir
Ása Marín Hafsteinsdóttir,
11 ára, Fjóluhvammi 13,
Hafuarfirði, samdi þessa
sögu.