Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
B 3
Sjónvarpið:
Fjarkinn og Lækn-
ir á refilstigum
■■ Sjónvarpið sýnir í kvöld tvær myndir sem kalla mætti
01 35 glæpamyndir. Fyrri myndin segir frá Sherlock Holmes og
“ A leyndardómnum um Fjarkann (Sign of Four). í myndinni
segir frá konu nokkurri sem hefur fengið að gjöf perlu á sama degi
ársins í sex ár, en henni er ókunnugt um hver gefandinn er. Þegar
hún fær boð um að koma til fundar við góðgerðarmann sinn leitar
hún ráða hjá Sherlock Holmes. Aðalhlutverk leika Jeremy Brett,
Edward Hardwicke og Jenny Seagrove.
^■■■1 Síðari mynd kvöldsins er Læknir á refílstigum (The Amaz-
00 20 ing Dr. Clitterhouse), bandarísk bíómynd frá 1938. í
“O-* myndinni segir frá lækni sem hefur sérhæft sig í að rann-
saka hegðan afbrotamanna. Svo fer að hann heillast af ævintýralegu
lífi þeirra og neytir allra bragða til að fylgja þeim eftir. Aðalhlutverk
í myndinni leika þeir Edward G. Robinson, Claire Trevor og Hump-
hrey Bogart. Þær kvikmyndahandbækur sem flett var í gefa
myndinni hin bestu meðmæli og segja hana fyrirtaks skemmtun og
í handbók Scheuer fær hún þijár og hálfa stjörnu.
Lög og létt hjal
■■■■■ Þátturinn Rökkur-
1 700 tónar sem Svavar
I Gests stýrði í þrjú ár
og tveimur mánuðum betur á
Rás 2 rann sitt skeið á enda í
janúarlok. Svavar hefur þó ekki
sagt skilið við-Rás 2, því frá og
með deginum í dag mun hann
annast vikulegan þátt sem ber
heitið Lög og létt hjal.
Þátturinn hefst kl. 17.00. og
stendur fram að kvöldfréttum
kl. 19.00 og ætlar Svavar að
velja margskonar tónlist af létt-
ara taginu til flutnings en
jafnframt taka á móti gestum
og ræða við þá um það sem er
efst á baugi um hveija helgi,
s.s. listviðburði af ýmsu tagi,
málverkasýningar, hljómleika, leiksýningar o.s.frv. og þá allt eins
það sem helst er að gerast í skemmtanalífinu.
Svavar Gests
Rót:
Verkfall BSRB
■■HI í þættinum Á vettvangi baráttunnar, sem er á dagskrá
1 A 00 útvarps Rótar í dag er fjallað um verkfall BSRB 1984 og
A “ nefnist þátturinn Hvað getum við lært af BSRB-verkfall-
inu. Á þriðja tug virkra þátttakenda í verkfallinu segja frá reynslu
í þeim átökum sem þá áttu sér stað. Stjómandi þáttarins er Ragnar
Stefánsson; jarðskjálftafræðingur, en fram koma í þættinum m.a.
Þorsteinn Oskarsson, Sigurður Skúlason, Guðlaug Teitsdóttir, Gunn-
ar Gunnarsson, Guðrún Ámadóttir, Ævar Kjartansson, Ögmundur
Jónasson, Kristjana Guðmundsdóttir, Júlíus Sigurbjömsson, Einar
Bjamason og Helgi Már Arthúrsson.
Þáttur þessi var áður á dagskrá 31. janúar og þá í beinni útsendingu.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST!
Söfn
Arbæjarsafn
í vetur verður safnið opið eftir samkomu-
lagi.
Ámagarður
í vetur geta hópar fengið að skoða hand-
ritasýninguna í Árnagarði ef haft er
samband við safniö meö fyrirvara. Þar
má meðal annars sjá Eddukvæði, Flateyj-
arbók og eitt af elstu handritum Njálu.
Ásgrímssafn
Ásgrímssafn við Bergstaðastræti er opið
þri. fim. og sun. frá klukkan 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Um þessar mundir stendur yfir í Ásmund-
arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þar gefur að lita 26 högg-
myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning-
ar. Sýningin spannar 30 ára tímabil af
ferli Ásmundar, þann tíma sem listamaö-
urinn vann að óhlutlægri myndgerð. í
Ásmundarsafni er ennfremur til sýnis
myndband sem fjallar um konuna í list
Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og
afsteypurafverkum listamannsins. Safn-
ið er opið daglega frá kl. 10 til 16.
Skólafólk og aörir hópar geta fengið að
skoða safniö eftir umtali.
Hafrannsóknarstofnun
Sjóker með algengustu fjörulífverunum
og veggspjöld með upplýsingum um lífið
í sjónum hefur verið komið fyrir í and-
dyri Hafrannsóknarstofnunar, Skúlagötu
4. Hægt er að fá að skoða keriö á virkum
dögumfrákl. 9.00—17.00. Barnaheimil-
um og skólum sem hafa áhuga skal
bent á að láta vita með dags fyrirvara í
síma 20240.
Listasafn Einars
Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13.30
til 16.00. Höggmyndagaröurinneropinn
daglega ffá kl. 11.00—17.00.
Listasafn ísiands
Sunnudaginn 7. febrúar býður Listasafn
(slands upp á leiðsögn um sýninguna
Aldarspegill sem opnuð hefur veriö í til-
efni af vígslu hinnar nýju safnbyggingar
á Fríkirkjuvegi 7.
Sýningin er kynning á íslenskri myndlist
1900—1987 og eru öll verkin í eigu safns-
ins. Leiðsögnin ferfram í fylgd sérfræð-
ings, alla sunnudaga kl. 13.30—14.00
og verður safnast saman í anddyri safns-
ins. Aðgangur að sýningunni er ókeypis
og stefnt er að þvl að búið verði að opna
kaffistofu safnsihs þá. Vegna mikillar
aðsóknar að safninu verður það opið frá
kl. 11.30 til 19.00 laugardaga og sunnu-
daga, en aðra daga er safniö opið frá
kl 11.30—16.30, nema mánudaga.
Listasafnið hefur einnig tekið upp þá
nýbreytni að kynnt veröur vikulega mynd
mánaðarins. Mynd febrúarmánaöar er
Fantasía eftir Jóhannes S. Kjarval, sem
máluðvar 1940.
Fantasía er ein gjafa sem borist hafa
listasafninu, en það voru bræðurnir Guð-
mundur og Friðrik Björnssynir sem gáfu
safninu myndina árið 1962 í minningu
móður þeirra Margrétar Magnúsdóttur.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins'' fer fram
alla föstudaga kl. 13.30—13.45 í fylgd
sérfæðings og verður safnast saman í
anddyri safnsins.
Norræna húsið
Laugardaginn 6. febrúar kl. 15.00 veröur
opnuð sýning í anddyri Norræna hússins
á grafíkverkum eftirsænska listamanninn
Lennart Iverus. Sendiherra Svíþjóðar, Per
Olof Forshell flytur ávarp við opnunina.
Listamaöurinn kom hingað til lands
ásamt konu sinni og dvelur á Islandi
nokkradaga.
Lennart Iverus fæddist 1930. Hann
stundaði myndlistarnám við Konsthög-
skolan i Stokkhólmi 1957—62 og siðan
í París og London. Hann hefur dvalið
lengi á ítaliu við myndlistarstörf og hefur
sótt þangaö hugmyndir að myndum
sínum.
Lennart Iverus hefur haldið margaréinka-
sýningar og hefur tekið þátt í samsýning-
um, m.a. alþjóðlegum grafíksýningum.
Á sýningunni í Norræna húsinu eru teikn-
ingarog grafik, mestmegnis koparstung-
ur.
Sýningin verður opin daglega fram til 28.
febrúar.
Myntsafnið
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns er
i Einholti 4. Þar er kynnt saga islenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlar og brauö-
peningar frá síðustu öld eru sýndir þar
svo og oröur og heiöurspeningar. Líka
er þar ýmis forn mynt, bæði grísk og
rómversk. Safnið eropið á sunnudögum
milli kl. 14og 16.
Póst-og
símaminjasafnið
I gömlu símstööinni í Hafnarfirði er núna .
póst- og símaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst- og
símstöövum og gömul símtæki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriöjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safnið á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð í síma 54321
' SJÁ NÆSTU OPNU.
SKEMNmSTAÐiR
ABRACADABRA
Laugavegur116
Skemmtistaðurinn Abracadabra er op-
inn daglega frá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenskur matur er framreiddur í
veitingasal á jaröhæöinni til kl. 22.30.
( kjallaranum er opið frá kl. 18.00 til
kl. 03.00 um helgar og er diskótek frá
kl. 22.00. Enginn aðgangseyrir er á
fimmtudögum og sunnudögum. Síminn
er 10312.
ÁRTÚN
Vagnhöfði 11
i Ártúni leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt þeim Grótari og Örnu Þorsteins
á föstudagskvöldum, þegar gömlu
dansarnir eru og á laugardagskvöldum,
þegar bæði er um að ræða gömlu og
nýju dansana. Síminn er 685090.
BROADWAY
Álfabakki 8
Rokksýning „Allt vitlaust" verður í Bro-
adway á og laugardagskvöld, auk þess
sem hljómsveitin Sveitin milli sanda,
leikur fyrir gesti.
Bandaríski söngsveitin Mamas and the
Papas heldur tónleika i Broadway í
kvöld, föstudagskvöld. Söngsveitin
náðu allverulegri frægð um heim allan
á sjöunda áratugnum með lögum á við
California Dreaming, Monday Monday
ofl. Síminn í Broadway er 77500.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er í Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00 til
kl. 03.00. Á fimmtudagskvöldum eru
oft rokktónleikar.
wwmmr>▲
EVRÓPA
Borgartún 32
Hljómsveit hússins, Saga-Class, leikur
í Evrópu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Síminn í Evrópu er 35355.
GLÆSIBÆR
Álfheimar 74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
föstudags-og laugardagskvöldum frá
kl. 23.00 til kl. 03.00. Síminn er 686220.
HOLLYWOOD
Ármúli 5
Leitinni að týndu kynslóðinni er hreint
ekki lokið í Hollywood, þar sem bæði
hljómsveit af þeirri kynsióð sem og
diskótek týndu kynslóöarinnar er í
gangi á föstudags- og laugardags-
kvöld. Borðapantanir eru í síma
641441.
Á laugardag, 6. febrúar, verður frum-
sýnd I Súlnasal söngleikurinn Næturg-
alinn - ekki dauður enn. Hann er
byggður á tónlist Magnúsar Eiríksson-
ar i gegn um tíðina og segir söguna
af íslenskri dægurstjörnu, frægðarleit
og drauma. Og um raunvaruleikann
sem tekur við af draumnum.
Aðalhlutverk Pálmi Gunnarsson, Jó-
hanna Linnet, Eyjólfur Kristjánsson og
Ellen Kristjánsdóttir.
Síminn er 20221.
HÓTEL BORG
Pósthússtræti 10
Diskótek er á Hótel Borg á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 21.00 til
kl. 03.00 og á sunnudagskvöldum eru
gömlu dansarnir á sínum stað, frá kl.
21.00 til kl. 01.00. Síminn er 11440.
HÓTEL ÍSLAND
Ármúia
Söngleikurinn „Gullárin" er sýndur
laugardagskvöld á Hótel fslandi. Dans-
leikur föstudags- og laugardagskvöld
tii kl. 03.00.
Fimmtudaginn 11. febrúar heldur
breska hljómsveitin Current 93 tón-
leika í Hótel fslandi og fram kemur
einnig söngkonan Annie Anxiety og
íslenska hljómsveitin S.h. draumur.
LÆKJARTUNGL
Lækjargötu 2
( Lækjartungli, sem áður var Nýja bíó,
verður diskótek fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld sem þeir
Daddi og Hlynur sjá um. Anna Þorláks
verður gestaplötusnúður á laugardags-
kvöld, en enginn aðgangseyrir er á
sunnudagskvöld.
LENNON
Austurvöllur
Diskótek er í skemmtistaðnum Lennon
á föstudags- og laugardagskvöldum frá
kl. 20.00 til kl. 03.00 og er þá enginn
aðgangseyrir til kl. 23.00. Aðra daga
er diskótek frá kl. 20.00 til 01.00.
Síminn er 11322.
SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2
Á skemmtistaðnum Skálafelli á Hótel
Esju er leikin lifandi tónlist öll kvöld
vikunnar, nema á þriðjudagskvöldum.
Hljómsveitir leika um helgar. Skálafell
er opið alla daga vikunnar frá kl. 19.00
til kl.01.00. Síminn er 82200.
UTOPIA
Suðurlandsbraut 26
Skemmtistaðurinn Utopia er til húsa
við Suðurlandsbrautina. Þar er 20 ára
aldurstakmark.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholt 20
í Þórscafé er Þórskabarett og
skemmtidagskráin Svart og hvítt á tjá
' og tundri. Staðurinn opinn fyriri matar-
gesti frá 19.00 og hljómsveitin Burgeis-
ar leika fyrir dansi. Diskótek er í gangi
á neðri hæðinni frá kl. 22.00 til kl.
03.00. Síminn er 23333.