Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988
MYIMDBÖIMD Á MARKAÐNUM
Sæbjöm Valdimarsson
og margir spá því að næsta mynd
hans, Broadcast News, leiki sama
leikinn í ár. í Terms of Endearment
er sneitt af lagni framhjá ofhleðslu
tilfínningasemi, en myndin fjallar
um afar viðkvæmt efni; stirt og
einstrengingslegt samband
mæðgna, aukinheldur á dóttirin í
höggi við banvænan sjúkdóm undir
lokin. Hálf-hryssingslegt samband
McLaine og Nicholsons hressir uppá
stemmninguna. Fyrsta flokks
skemmtun í alla staði, en alvaran
blundar í bakgrunni. 1983. Shirley
McLaine, Debra Winger, Jack Nic-
holson, John Lithgow, Jeff Daniels,
Danny De Vito. 130 mín.
THE STAR CHAMBER
★ ★ '/2
Leikstjóri Peter Hyams. Heldur
ótrúlegt réttarsalsdrama sem tekur
til harkalegrar meðferðar óánægju
bandarísks almennings og yfirvalda
með réttarkerfið. Douglas fer
skörulega með hlutverk dómara
sem tengist samtökum stéttar-
bræðra sinna sem taka til eigin
ráða ef þeim þykja dómar yfir ill-
mennum of vægir. Michael Dougl-
as, Hal Holbrook, Yaphet Kotto,
Sharon Glass. 1983. 109 mín.
SIXWEEKS
★
Leikstjóri Tony Bill. Höfundar
allt að því kæfa áhorfandann í þess-
um eymdar táradal. Moore kynnist
mæðgum, dóttirin með hvítblæði
og á sex vikur eftir ólifaðar. Ómiss-
andi ef maður vill kvelja sjálfan
sig. Dudley Moore, Mary Tyler
Moore, Katherine Healy. 1982. 105
mín.
RUNNING BRAVE
★ ★ V2
Leikstjóri D.S.Everett (Don
Shebib). Það á ekki illa við að riíja
upp þessa mynd núna á óiympíuár-
inu, því hún fjallar einmitt um
ævintýralegan árangur indíánakyn-
blendings á Ólympíuleikunum 1964.
Robby Benson leikur sioux-indíán-
ann Billy Mills, sem kom, sá og
sigraði — vann tíuþúsund metra
hlaupið, öllum á óvart. Þetta var
mikill, siðferðilegur sigur fyrir
frumbyggja álfunnar. Robby Ben-
son, Pat Hingle, Jeff McCracken.
1983. 105 mín.
THE RAZOR’S EDGE
★ V2
Leikstjóri John Byrum. Kemst
ekki í hálfkvisti við frummyndina
með Tyrone Power — sem er því
miður ekki á boðstólum mynd-
bandaleiganna. Bill Murray- (vildi
láta taka sig alvarlega) er kol-
ómögulegur í hlutverki manns sem
reynir að fínna tilgang í lífínu eftir
hörmungar fyrra heimsstríðs. Eftir
þessari mynd að dæma ætti leikar-
inn að halda sig við gamanleikinn
og forðast öll dramatísk tilþrif. Hér
fer afburða góð saga Maughams
mikið til forgörðum, en hin fagra
og hæfileikaríka eiginkona Nicolas
Roegs, Theresa Russel, stendur
uppúr. 1984. 128 mín.
RAGE
★ ★ V2
Leikstjóri George C. Scott. Nokk-
uð athyglisverð, þar sem hún kemur
inná hina sígildu gagnrýni á voða-
verk mannsins gagnvart náttúr-
unni. Og hér þarf hann einnig að
beijast gegn varasömum yfirvöld-
um, en Scott leikur bónda sem leitar
hefnda er hann missir einkasoninn
vegna mistaka „stóra bróður". Ge-
orge C. Scott, Martin Sheen,
Richard Basehart, Bamard Hughes.
1972. 104 mín.
en hvítblæði heltekur hann og fær
sér til aðstoðar á ferðalaginu ungan
frænda sinn (vel leikinn af syni
Eastwoods, Lyle). Notaleg mynd
þar sem Eastwood sýnir á sér nýja,
einkar mannlega hlið. Clint East-
wood, Lyle Eastwood, John Mclnt-
ire, Vema Bloom. 1982. 122 mín.
THE TRIP TO BOUNTIF-
UL
★ ★ ★
Leikstjóri Peter Masterson.
Meistaravel leikin kvikmyndagerð
leikrits um roskna konu sem strýk-
ur úr „varðhaldi" tengdadóttur
sinnar til að sjá æskustöðvamar í
síðasta sinn. Ógleymanleg túlkun
Page, sem hlaut Oskarsverðlaunin
fyrir vikið, trónar hæst í þessari
hljóðlátu en sterku mynd um lítil-
magnana í þjóðfélaginu. Geraldine
Page, John Heard, Rebecca DeMor-
ney, Carlin Glynn, Richard Brad-
ford. 1985. 106 mín.
TAPS
★ ★ V2
Leikstjóri Harold Becker. Allt fer
úr böndunum er herskólanemendur
vígbúast þegar ákveðið er að loka
skólanum. Fjarska ólíkleg en vel
gerð og spennandi. Leikaramir
ungu standa sig með ágætum, enda
hafa þeir komið síðan nánar við
kvikmyndasöguna. En enginn sér
við Scott á góðum degi. Timothy
Hutton, George C. Scott, Sean
Penn, Tom Cruise, Ronny Cox.
1981. 115 mín.
TERMS OF ENDEAR-
MENT
★ ★ ★ V2
Leikstjóri James L. Brooks. Þessi
fyrsta mynd leikstjórans hirti nokk-
ur helstu Óskarsverðlaunin 1983
THE MISSION
★ ★ V2
Leikstj. Roland Jaffe. Irons leikur
kaþólskan trúboða sem er sendur
til að kristna indíána í myrkviðum
Suður-Ameríku á 18. öld. De Niro
er frelsaður þrælasali sem kemur
honum til aðstoðar. Þessir ágætu
kirkjunnar menn snúast gegn páfa
þegar ákveðið er að leggja trúboðið
niður, samfara því að Portúgalar
kaupa nýlenduna af Spánveijum.
Ábúðarmikil mynd fyrir augað,
kvikmyndataka Chris Menges hlaut
Óskarsverðlaun og tökustaðimir
ægifagrir. En frumskógurinn er
villugjam og það tekur Joffe ærið
langan tíma að komast útúr honum
aftur. Handrit Bolts, leikur Irons,
De Niros, og- sérstaklega Rays
McAnallys er með miklum ágætum,
sömuleiðis tónlist Morricones. Um-
búðimar eru óaðfínnanlegar en
markvissari tilgang og dýpt skortir.
Myndin hlaut gullpálmann á Cann-
es-kvikmyndahátíðinni 1986.
Jeremy Irons, Robert De Niro, Ray
McAnally, Aidan Quinn. 1986. 125
mín.
MAN, WOMANANDA
CHILD
★ V2
Leikstjóri Dick Richards. Hjú-
skapur Danners og Sheens fer
langleiðina í hundana er hann
kemst að því að hann á son í Frakk-
landi (utan hjónabandsins), sem var
að missa móður sína. Heldur
vemmilegt drama, enda skrifað af
meistara táratrekkjaranna, Eric
Segal (Love Story). Aðalleikaramir
standa fyrir sínu, að venju. Martin
Sheen, Blythe Danner, Sebastian
Dungan. Craig T. Nelson, David
Hemmings. 1983. 99 mín.
LOVECHILD
★ ★
Leikstjóri Larry Pearce. Ósköp
fyrirferðarlítil mynd sem er minnis-
stæð sakir ágætisleiks Amy
Madigan, sem verður þunguð af
völdum fangavarðar í tugthúsi í
Florída. Hún ákveður, gegn öllum
hefðum og reglum, að eiga bamið.
Amy Madigan, Beau Bridges, Mac-
Kenzie Phillips, Albert Salmi.
THE LIONIN WINTER
★ ★ ★ V 2
Leikstjóri Anthony Harvey. Stór-
kostleg kvikmyndagerð Broadway-
leikrits James Goldmans um deilur
Hinriks II. Englandskonungs
(O’Toole) og Elanóru af Aquitaine.
Einkar minnisstæð mynd sakir
- kjammikils handrits og afburða-
leik j O’Tooles og Katharine
Hepbume (Óskarsverðlaun) í aðal-
hlutverkum, og Timothys Daltons
og Anthonys Hopkins í bakgrunni.
Ein besta mjmdin á markaðnum
sem byggð er á leikriti um drama-
tísk átök á miðöldum. 1968. 135
mín.
KINGDAVID
★ ★
Leikstjóri Bruce Beresford. Síst
verri samsetningur en flestar aðrar
Biblíumyndir. Glæsileg á að horfa
en hnignar er á líður. Brotalömin
er Richard Gere, „leikur" hans í
titilhlutverkinu minnir á útkeyrðan
langferðabílstjóra á grímuballi. Ric-
hard Gere, Edward Woodward,
Alice Krige, Denis Quilley. 1985.
115 mín.
JOE
★ ★ ★
Leikstjóri John G. Avildsen.
Mynd sem vakti mikla eftirtekt er
hún var frumsýnd, í lok hippaár-
anna. Boyle fer á kostum í hlutverki
ofstækisfulls almúgamanns sem vill
skera blómaböm niður við trog. Fær
fulltingi manns sem er á hinum
enda metorðastigans. Eftirminnileg
og ætíð nokkuð forvitnileg þjóð-
félagsádeila sem státar af ófáum,
gráthlægilegum kringumstæðum.
Ein fyrsta mynd Avildsens (Rocky).
Peter Boyle, Dennis Patrick, Susan
Sarandon. 1970. 107 mín.
HONKY TONK MAN
★ ★ '/2
Leikstjóri Clint Eastwood. Þessi
espaði taugakerfí aðdáenda stór-
stjömunnar, sem hér leikur dauð-
vona sveitasöngvara, hlutverk í
grimmilegri mótsögn við ímynd
hans á tjaldinu. Hann á sér þann
draum að komast til Nashville áður
DRAMAII