Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 MYIMDBÖIMD Á MARKAÐNUM Sæbjöm Valdimarsson Tímabilin þrjú (1923), hér sést í hellisbúann (Buster Keaton) halda á örvæntingarfullri eiginkonu sinni. GAMAIMMYIMDIRI George C. Scott og Peter Sellers kómedíu Kubricks, sem fjallar um í Dr Strangelove (1963), svörtu hættuna af kjarnorkuvopnum. FANDANGO ★ ★ Leikstjóri Kevin Reynolds. Jafnvægislaus gamanmynd sem rokkar milli fjörlegra farsaatriða og hreinna leiðinda. Segir frá nokkrum skólabræðrum sem taka úr sér hrollinn niður í Mexíkó til að vera betur búnir undir hrollvekj- una Víetnam. Nær aldrei flugi og var fyrstu mistök kvikmyndafram- leiðandans Spielbergs. Costner og Robards standa nokkumveginn fyr- ir sínu. Kevin Costner, Judd Nel- son, Sam Robards, Chuck Bush. 1984. 91 mín. ROMANTIC COMEDY ★ ★ Leikstjóri Arthur Hiller. Ein í fjaðurvigt, byggð á Broad- way-uppsetningu. Moore og Steen- burgen fara þokkalega með hlut- verk leikritaskálda sen vinna saman en Iíta hvort annað hýru auga und- ir niðri. Alltsaman heldur klént. 1983. 100 mín. THE MAIN EVENT ★ Leikstjóri Howard Zieff. Dellumynd þar sem enginn stendur undir nafni. Streisand erfir aflóga hnefaleikara (O’Neal) og reynir að hagnast á góssinu. Víðs fjarri What’s Up Dock? og lang- versta mynd Zieffs sem á margar, góðar gamanmyndir að baki. 1979. 110 mín. HEAVEN CAN WAIT ★ ★ ★ Leikstjóri Warren Beatty, Buck Henry. Fótboltagarpurinn Beatty heldur því óhikað fram að hans tími hafi ekki verið kominn er hann stendur frammi fyrir almættinu eft- ir umferðarslys. Hann fær annað tækifæri. Virkilega fáguð og fyndin gamanmynd, vel skrifuð og leik- hópurinn er fyrsta flokks. Warren Beatty, James Mason, Charles Grodin, Julie Christie, Jack Warden, Dyan Cannon, Vincent Gardenia. 1978. 100 mín. ARMED AND DANGEROUS ★ Leikstjóri Mark E. Lester. Yfirgengilegur farsi um tvo hrak- fallabálka sem gerast óburðugir einkaspæjarar. Ófyndinn fíflagang- ur sem á sjaldnast nokkuð skylt við farsa. Allt að þvi' tímasóun. 1986. 89 mín. LOSTIN AMERICA ★ ★ ★ Leikstjóri Albert Brooks. Háðfuglinn Brooks, sem löngum hefur verið fundvís á skoplegri hlið- ar þjóðfélagsins, gerir hér púragrín að „uppunum". Leiðin til að koma þeim á kaldan klaka er einföld, gerir söguhetjumar einfaldlega staurblankar á einni, líflegri Las Vegas nóttu! Þar með er grátstafur- inn kominn í kverkarnar og sjálfs- vorkunnin löngum sterkari en sjálfsbjörgarviðleitnin. Meinfyndin. Albert Brooks, Julie Hagerty, Garry Marshall. 1985. 90 mín. MR. MOM ★ ★ ★ Leikstjóri Stan Dragoti. Michael Keaton í sínu besta hlut- verki til þessa dags; sem atvinnu- laus eiginmaður sem má taka við húsverkunum á meðan eiginkonan flýgur upp metorðastigann á sínum vinnustað. Fyndin og ádeilin. Mic- hael Keaton, Teri Garr, Martin Mull, Ann Jilian. 1983. 91 mín. WEIRD SCIENCE ★ ★ Leikstjóri John Hughes. „Skrattinn fór að skapa mann/skinnlaus köttur varð úr því“, stendur þar. Hughes, sem hér fer útaf hefðbundinni unglingamynda- formúlu sinni, verður lítið betur ágengt en kölska í þessari miðl- ungsgamanmynd um tvo hallæris- peyja sem með hjálp tölvu skapa kyntröllið Kelly LeBrock. Anthony Michael Hall, Ilan Mitchell-Smith. 1985. 93 mín. WILDCATS ★ ★ ★ Leikstjóri Michael Ritchie. Gamalkunn kímnigáfa Hawn bjargar fyrir hom þessari fáránlegu mynd um kven-fótboltaþjálfara við skóla í fátækrahverfi, Goldie Hawn, Swoosie Kurtz, James Keach, M. Emmet Walsh. 1986. 103 mín. DOWNAND OUTIN BEVERLY HILLS ★ ★ ★ Leikstjóri Paul Mazursky. Vel leikin, oft fyndin satíra um hamingjusnauða lífdaga hinna nýríku í Beverly hæðum og messías- legan róna (Nolte) sem breytir ævi þeirra og ástum til hins betra. Midl- er og hundstíkin standa uppúr. Byggð á frönsku myndinni Boudu bjargað frá drukknun (’32) e. Jean Renoir. 1986. 102 mín. TINMEN ★ ★ ★ Leikstjóri Barry Levinson. Rituð af ríku skopskyni og leik- stýrt af skarpskyggnum hæfileika- manni sem lætur smáatriðin sig miklu skipta í þessari bráðhressu mynd um tvo, seinheppna álsölu- menn í Baltimore f. ca. aldarfjórð- ungi. DeVito, Dreyfuss og Hershey fara öll á kostum. Sannkallað hress- ingarmeðal. Richard Dreyfuss, Danny DeVito, Barbara Hershey, John Mahoney. 1987. 112 mín. YELLOWBEARD ★ ★ Leikstjóri Mel Damski. Þrátt fyrir mýgrút valinkunnra furðufugla úr leikarastétt rís þessi skopstæling af gömlu, góðu sjóræn- ingjamyndunum ekki upp úr meðal- mennskunni. Cleese fer á kostum, að vanda! Graham Chapman, John Cleese, Peter Boyle, Richard „Che- ech“ Marin, Tommy Chong, Peter Cook, Marty Feldman. 1983. 100 mín. THE PRODUCERS ★ ★ ★ ★ Leikstjóri Mel Brooks. Marglofuð, fyrsta og ein lang- besta mynd háðfuglsins éBrooks, gerð á meðan hann enn fékk frum- legar hugmyndir og var ekki byijað- ur að leita fanga í kunnum Holly- wood-þemum. Fjallar um refslegar áætlanir Broadwayframleiðanda sem ætlar að setja upp versta söng- leik sögunnar — Springtime For Hitler(!) og hirða framlög íjárstuðn- ingsmannanna. Öllum á óvart slær verkið í gegn. Sígild skopmynd sem enn má finna á stærstu leigunum í þolanlegu standi. Zero Mostel, Gene Wilder, Kenneth Mars, Dick Shawn. 1968. 88 mín. PRIVATES ON PARADE ★ ★ Leikstjóri Michael Blakemor. Bresk gamanmynd um homma- gengi í hemum sem heldur uppi fjörinu. Leynir á sér. John Cleese, Denis Quilley, Nicola Pagett, Patrick Pearson. 1982. 100 mín. RECRUITS ★ Leikstjóri Rafal Zielinski. Ein flölda óburðugra eftirapana Police Academy myndanna vinsælu. Glæpamenn, götustrákar og gleði- konur ráðnar í lögreglustörfin. Gangið framhjá þessari. Alan Deve- au, Annie McAuley, Lolita David.1986. 85 mín. RHINESTONE ★ Leikstjóri Bob Clark. Dolly Parton heldur því fram að hún geti gert alla að kántrísöngvur- um, en Sylvester Stallone verður því miður fyrir valinu. Afleit gam- anmynd sem opinberar afdráttar- laust litla sem enga leikhæfileika ítalska stóðhestsins. Dolly Parton, Sylvester Stallone, Richard Farns- worth. Fugladansinn dunar hjá Woody Allen í Sleeper (1973).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.