Morgunblaðið - 18.02.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.02.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/MVINNULÍr FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988 B 3 Fólk í atvinnulífinu Starfsmannabreyt- ingar hjá Eimskip BREYTINGAR hafa orðið á starfsmanna- haldi Eimskipa- félags íslands. Gunnar Rafn Birgissonar hef- ur verið ráðinn forstöðumaður markaðsdeildar. Gunnar Rafn Hann tekur við af Hirti Hjartar sem verður nú forstöðumaður Norðurlandadeildar. Óli Rúnar Ástþórssn fulltrúi í hagdeild tek- ur við starfi forstöðumanns fjár- reiðudeildar. Gunnar hefur starfað sem fulltrúi í Ameríkudeild undanfarið. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskó- lanum við Sund 1981og viðskipta- fræði frá Háskóla íslands vorið 1985. Hann stundaði framhalds- nám við háskólann í Minnesotaa og lauk þaðan MBA prófi 1987. Gunn- ar starfaði í hagdeild Iðnaðarbank- ans með Háskólanum 1984-5 og var sölustjóri hjá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson sumarið 1986. Sambýliskona Gunnars er Þóra Björk Schram og eiga þau eitt bam. Hjörtur Hjartar er símvirki og útskrifaðist frá Póst og símaskó- lanum 1969. Hann stundaði nám í kerfisfræði við Aalborg Handels- skole og lauk því 1971 en viðskipta- fræðiprófi lauk hann 1977 og cand. merc. prófi í rekstrarhagfræði 1979 frá Aalborg Universitetcenter. Hjörtur starfaði í tölvudeild Loft- leiða á árunum 1970-73 og siðan sem fulltrúi rekstraráætlunardeild- ar Aalborg Universitetcenter 1979-80. Hann stundaði rekstrar- ráðgjöf hjá Hagvangi 1980-81 og var forstöðumaður rekstrar-hag- deildar Olíuverslunar íslands 1982-84. Síðast starfaði hann sem hagfræðingur Félags íslenskra iðn- rekenda í þijú ár, til ársins 1987. Kona Hjartar er Jakobína Sig- tryggsdóttir og eiga þau tvö böm: Óli Rúnar Ást- þórsson varð stúd- ent frá Mennta- skólanum við Laugarvatn 1977 og viðskiptafræð- ingur frá Háskóla íslands 1985. Hann lauk MAE- prófi frá háskólan- _ __________ um í _ Michigan Óli Rúnar 1986. Óli starfaði sem forritari við Háskóla íslands frá nóvember 1984 fram í ágúst 1985. Kona Óla heitir Anna María Snorradóttir og þau eiga eitt bam. ENSKU SKJALASKAPARNIR Hagstætt verð — Margir möguleikar Reykjavík: Penninn, Hallarmúla E. TH. MATHI BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SIMI 651000. Fiskeldi Vatnsdreifislöngur gegn sjávarkulda ENTEK á íslandi hf. hefur nú hafið framleiðslu á sérstakri gerð af vatnsdreifislöngu, sem ætlað er að vinna gegn sjávar- kulda í fiskeldiskvíum. .Slangan er framleidd úr gúmmi og plasti og kemur úr vélunum í alleku formi eins og kallað er, það er líkust svampi, sem rennur úr alls staðar. Dreifing á heitu vatni með þessari slöngu verður þann- ig miklu áhrifaríkari en þegar heitt vatn er látið renna i einni bunu út i kvíar. Skýrði Árni Sva- varsson, tæknistjóri hjá Entek, frá þessu í viðtali við Viðskipta- blaðið í gær. Slanga þessi, sem ber fram- leiðsluheitið LP-32VHA, var upp- haflega hönnuð fyrir vatnshreinis- stöðvar. Til þess að nota þessa vatnsdreifislöngu þarf fyrst að setja hitagrindur (hitagreiður) i kerið eða kvína, og er slangan fest á hana. Þannig fæst góð hitadreifing. Ekki er talið, að þetta verði mjög kostn- aðarsamt. Síðan er tengt inn á þetta heitt vatn eða gufa, sé hún til stað- ar. Einnig er hugsanlegt, að tengja þetta við rafmagnshitara, en senni- lega er það dýrara í rekstri. Nú er unnið að því með verk- fræðingi að hanna þennan búnað enn frekar. Þegar liggur fyrir frum- hönnun að sérstakri hitabauju. Þetta er flotbauja og inni í henni er dæla, sem dregur vatn úr kvínni sjálfri, sem síðan má blanda með heitu vatni eða gufu, ef hún er fyr- ir hendi. Eðlisþyngd sjávar er þyngst við Qórar gráður. Hærra eða lægra hitastig hefur áhrif á streymi sjáv- arins og þar með á myndun heitra og kaldra sjávarlaga. Hitalög í sjó eru þannig, að flögurra gráðu heitt vatn liggur dýpra af því að það er þyngra. Með því einfaldlega að setja loftunarslöngur niður i heitari lög sjávarins, þá má lyfta þeim upp í kaldari lögin, þannig að hlýrri sjór- inn blandast þeim kaldari, sem ofar er. Þetta er þekkt aðferð í fiskeldis- fræðinni. Athygli vekur hins vegar, að þessara hitalaga gætir ekki í Hval- firðinum og stafar það m. a. af miklum straumum, sem liggja þar. í skýrslu frá Eldisráðgjöf sf., sem gerð var fyrir Entek f október 1985, kemur fram, að í Svíþjóð hafi það gefizt vel að blása lofti undir eld- iskví, þegar vatn tók að fijósa. Á þann hátt varð komizt hjá því, að vatnið í kvínni frysi og fiskurinn lifði af. Liprari HIOIA LYFTARAR hraðvirkari - hljóðlátari O Þar sem breidd lyftaranna er aðeins frá 99 cm og snúningsradíusinn er 135 cm eru þeir sérlega liprir og hagkvœmir í þröngum vöruhúsum. O Tveir keyrslumótorar fyrir hvort framhjól gera akstur á ósléttri undirstöðu mun auðveldari en áður hefur þekkst. O Aflstýri, opið mastur og öll stjórntœki á besta stað auðvelda alla notkun, auk þess að bœta útsýni og öryggi ökumanns. O Burðargeta er frá 1.000 kg til 1.750 kg - og lyftihœð er allt að 6 metrum. O Nýir 24 eða 48 volta rafgeymar tryggja langan vinnslutíma. O Hliðarfœrsla á göfflum fáanleg. TOYOTA LYFTARAR FJARHAGSBÚKHALD SKULDUNAUTAKERFI LANAOROTTNAKERFI BIRGÐAKERFI FRAMLEGÐARKERFI VERKBÚKHALD SÖLUNÚTUKERFI LAUNAKERFI TILBOÐSKERFI GAGNAGRUNNSKERFI SAMHÆFOUR HUGBÚNADUR MS-D0S. ZENIX. UNIX HUGBÚNAÐUR-TOLVUR-HONNUN KENNSLA-ÞJDNUSTA-RAODJOF kerfisþroun hf. Araiúll 38. 108 Riyk|a«lk Slmir: 688055 ■ 6874BG ÖFLUGUR - EINFALDUR 1 NOTKUN - ÖOÝR - ST/EKKAR MEÐ FYRIRT/EKINU TOYOTA Nybyiavegi 8 200Kopavogi S 91-44144

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.