Morgunblaðið - 28.02.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Ég hef oft talað um það að
þekking á stjömuspeki og
stjömumerkjunum geti stuðlað
að auknu umburðarlyndi
manna á meðal. í gegnum það
að vita að Jón er Krabbi og
Gunna Hrútur fæst aukinn
skilningur á hegðun þeirra og
í gegnum það er auðveldara
að sætta sig við eitthvað sem
áður þótti kannski illþolanlegt.
Mannleg samskipti
Annað atriði sem getur hjálpað
í mannlegum samskiptum er
að takast á við sjálfan sig,
þ.e.a.s. sjálfsþekking stuðlar
að bættum samskiptum. Að
baki þvi að þola einhveija per-
sónu ekki geta legið margar
ástæður. Tvær þeirra hafa með
það að gera sem ég nefndi hér
að framan, eða það að skilja
ekki persónuleika annarra og
skorta sjálfsþekkingu.
Hreeðsla og imyndun
Það að þola ekki fólk á m.a.
rætur að rekja til hræðslu við
hið óþekkta. Hið óþekkta kem-
ur ímyndunarafli okkar af
stað. Við lesum í blöðum um
morðingja og kynferðisglæpa-
menn og hugsum: Hvemig
menn skyldu fremja svona
glæpi. Síðan lítum við útum
gluggann og sjáum mann sem
við áttum okkur ekki á og segj-
um: „Aha, skyldi þetta vera
giæpamaður?" Af þvi að við
þekkjum ekki Jón förum við
að búa til sögur um hann.
Eigin vandamál
í öðru lagi má rekja óþol í
garð annars fólks til eigin per-
sónuleika. Það er nefnilega svo
að við hötumst oft við það í
fari náungans sem við þolum
ekki hjá sjálfum okkur eða er
bælt í fari okkar. Ástæðan er
sú að viðkomandi minnir okkur
á bælinguna. Ég þoli ekki Jóa
poppara vegna þess að hann
náði á toppinn en ég sat eftir.
íeigin barm
Það er hægt að mislíka við
fólk af öðrum ástæðum en
framangreindum. T.d. kann ég
ekki við ákveðinn mann af sið-
ferðislegum ástæðum. Ég tel
að menn eigi að vera heiðarleg-
ir en hann er óheiðarlegur.
Þegar við fínnum hins vegar
fyrir tilfinningalegri reiði og
komumst á einhvem hátt úr
jafnvægi í návist einhvers þá
er rétt að líta í eigin barm.
Okkarábyrgö
Við vitum að nóg er til af deil-
um, stríði og vandamálum í
mannlegum samskiptum. Við
sjálf berum hins vegar ábyrgð
og getum gert ýmislegt til úr-
bóta. Við getum lagt okkur
fram um að skilja annað fólk
og hætta þar með að búa til
sögur. Við getum lagt okkur
fram um að skilja og leysa
eigin vandamál og hætt þannig
að hata-aðra fyrir að minna
okkur á eigin óuppgerða van-
kanta.
Að framkvcema
Það er hins vegar ekki nóg að
búa yfír þekkingu. Við verðum
að fara eftir þeirri þekkingu.
Gagnkvæmur skilningur þarf
einnig að ríkja þvi sambönd
ganga í tvær áttir. í sambandi
Hrúts og Krabba þarf t.d.
tvennt að koma til. Hrútur
þarf að gæta þess að særa
ekki Krabba með ógætilegri
hegðun og hann þarf einnig
að varast að láta tilfinninga-
semi hans fara i taugamar á
sér. Krabbi þarf að gæta þess
að láta Hrútinn ekki særa sig,
skilja að hann er opinn en
ætlar ekki að móðga neinn
persónulega þó ýmislegt sé
sagt. Hann getur einnig ekki
krafist þess að Hrúturinn
breyti sér bara vegna þess að
aðrir eru viðkvæmir. Það sem
kannski skiptir höfuðmáli er
að fólk taki hvort öðru án þess
að vera sífellt að móðgast eða
segja: „Þú ert svona og svona
en ættir að vera öðruvísi."
DÝRAGLENS
1 1 lÁCI/’A
iHrHHisHlHffí •**. UUoKA
FERDINAND
iSggSmSiliyiliSgMMMMflgliiaifSg-
SMAFOLK
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Hún-
vetningafélagsins
Nú er lokið 7 umferðum í
sveitakeppninni og er staða
efstu sveita þessi:
Cyrus Hjartarson 148
JónÓlafsson 143
Halla Ólafsdóttir 132
Valdimar Jóhannsson 129
Kári Sigurjónsson 122
Eggert Einarsson 122
Áttunda umferð verður
spiluð nk. miðvikudagskvöld
kl. 19.30 í Skeifunni 17.
Keppnisstjóri er Jóhann
Lúthersson.
Opna Laugarvatns-
mótið 5. mars
Fullbókað er í Opna stór-
mótið sem Bridsfélag
Menntaskólans á Laugar-
vatni gengst fyrir laugardag-
inn 5. mars. 34 pör taka
þátt í mótinu. Áríðandi er
að þeir sem eru bókaðir láti
vita um afföll, ef einhver
verða. Spilamennskan hefst
kl. 11 (stundvíslega) og spil-
að er í menntaskólanum.
Keppnisstjóri er Hermann
Lánisson.
Bridsfélag Reyðar-
fjarðar/Eskifjarðar
Sveit Trésíldar sigraði í
aðalsveitakeppni félagsins
(sjö umferðir). í . sveitinni
eru: Kristján Kristjánsson,
Ásgeir Metúsalemsson, Jó-
hann Þorsteinsson og Friðjón
Vigfússon.
Röð efstu sveita varð:
Trésfld 139
Aðalsteinn Jónsson 120
Bemhard Bogason 115
Ámi Guðmundsson 111
Sigurður Freysson 108
Haukur Björnsson 103
Jóhann Þórarinsson 70
Bjami Garðarsson 69
Næst á dagskrá er nýliða-
keppni, eitt kvöld, en að
henni lokinni er barometer-
keppni, tveggja kvölda
keppni um Bjömsbikarinn
(til heiðurs Birni Jónssyni).
Bridsfélag Akureyrar
Staðan í Hafspilsmótinu,
sem er Akureyrarmótið í
tvímenningi, eftir 20 um-
ferðir og að óloknu einu
kvöldi er þessi:
Haraldur Sveinbjömsson —
Jónas Karlesson 137
Friðfinnur Gíslason —
PállJónsson 115
Stefán Vilhjálmsson —
Guðmundur V. Gunn-
laugss. 105
Soffía Guðmundsdóttir —
Dísa Pétursdóttir 93
Pétur Jósefsson —
Haukur Jónsson 84
Sigurður Guðvarðarson —
Jón Aðalsteinn Her-
mannsson 75
Pétur Guðjónsson —
Frímann Frímannsson 73
Gunnar Berg —
Stefán Sveinbjörnsson 71
Bridsdeild Skagfirð-
inga
Staða efstu para í yfír-
standandi Butler er þegar
aðeins eitt kvöld er eftir af
keppninni:
Jón Þorvarðarson —
Guðni Sigurbjamason 205
Anton R. Gunnarsson —
Hjördís Eyþórsdóttir 193
Ragnar Hjálmarsson —
Haraldur Ragnarsson 180
Sveinn Þorvaldsson —
Steingrímur G. Pétursson
175
Sigmar Jónsson —
VilhjálmurEinarsson 164
Elísabet Jónsdóttir —
Leifur Jóhannesson 164
Spilað er í Drangey,
Síðumúlá 35.