Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1988
£2
Þriðjudaginn 1. mars
kl. 20 verður óperari
Turandot sýnd af
myndbandi frá Ver-
ona og fer sýningin
fram á hliðarsvölum í Gamla bíói.
Upptakan er frá 1983 og í hlut-
verkunum er Ghena Dimitrova
sem Turandot, Nicola Martinucci
sem Calaf, Cecilia Gasdia sem Liu
og Ivo Vinco sem Timur. Sýning-
in tekur um tvo tíma. Aðgangur
er heimill styrktarfélögum ís-
lensku óperunnar og öðrum á
kostnaðarverði.
Sagan
Á torginu fyrir framan keisara-
höllina í Peking. Mandaríni kunn-
gerir dauðadóm yfir ungum
persneskum prins. Fólkið er slegið
óhug. Enn einum biðlinum hefur
mistekist að svara gátum hinnar
grimmu prinsessu Turandot og
hlýtur að gjalda fyrir með lífi sínu.
Við borgarmúrana sitja afhöggvin
höfuð fyrri biðla á stöng. Turand-
ot hefur svarið að taka aðeins
ættgöfgum biðli, sem jafnframt
geti svarað gátum hennar. Ef
ekki, þá bíður dauðinn á högg-
stokknum. í mannþrönginni er
Timur, hinn blindi og landflótta
konungur tataranna, og ambáttin
trúa Liu. Liu ber leynda ást til
Calafs, en hann tekur ekki eftir
neinu. Timur gleðst að finna
óvænt son sinn, Calaf, sem hann
áleit dauðan, en brýnir fyrir hon-
um að fara leynt. Biðillinn ógæfu-
sami gengur til aftöku og fólks-
fjöldinn hrærist til meðaumkvun-
ar. Turandot birtist og gefur böðl-
inum merkið um að höggið skuli
falla. Calaf heillast af ægifegurð
prinsessunnar og er staðráðinn í
að vinna hönd hennar og skeytir
ekki um viðvaranir hirðmannanna
Ping, Pang og Pong, né heldur
föður síns og Liu (arían Non pian-
gere, Liu). Calaf slær bumbuna
miklu sem merki um að hann vilji
þreyta prófið.
I keisarahöllinni harma þeir
Ping, Pang og Pong aftökumar
og kenna þar um grimmd Turand-
ot. Þeir óska þess að Turandot fái
einn dag að kynnast hinni sönnu
ást. Frammi fyrir gervallri hirð-
inni segir Turandot frá því (In
questa reggia) hvemig formóðir
hennar hafí verið svívirt og drepin
af barbarakonungi endur fyrir
löngu. Turandot hatar því alla
karlmenn og vill í rauninni láta
afhausa þá alla. Óþekkta prinsin-
um er gefínn kostur á að draga
sig til baka, en hann er ósveigjan-
legur. Turandot leggur fyrir hann
þijár gátur en hann leysir þær
allar, svarið er vonin, blóðið og
Turandot. Prinsessan fyllist ör-
væntingu og biður föður sinn,
keisarann, að forða sér frá hneisu
en hann daufheyrist. Ungi prins-
inn býður henni að vera laus allra
mála, ef hún geti komist á snoðir
um nafn hans fyrir sólarupprás.
Tijágarður í keisarahöllinni.
Kallarar tilkynna, að samkvæmt
boði prinsessunnar megi enginn í
TURANDOT
f ÍSLENSKU ÓPERUNNI
eftir Þorstein Blöndal
Peking sofa þessa nótt fyrr en
búið sé að komast að nafni
óþekkta biðilsins. Prinsinn er sig-
urviss og syngur um hvemig hann
muni vekja ástir Turandot með
kossi sínum (arían Nessun
dorma). Hirðmenn reyna með hót-
unum og loforðum að fá hann til
að afhjúpa nafn sitt. Verðirnir
fínna Timur og Liu sem verið
höfðu í slagtogi með prinsinum
og færa þau fyrir Turandot. Liu
segir frá því að hún ein viti nafn-
ið. Þegar verðimir grípa til pynd-
inga stingur hún sig á hol til að
freistast ekki til að segja nafn
hans sem hún elskar (Dauði Liu,
Tu che di gel sei cinta). Þegar
ungi prinsinn er orðinn einn með
Birgit Niisson íhlutverki
Turandot í Macera ta á
Ítalíu 1970. Franco
Corelli er Calaf.
Birgit Nilsson íhlutverki
Turandot (Vínaróperan).
Turandot álasar hann henni fyrst
í stað fyrir tilfinningakulda og
grimmd en kyssir hana svo kossi
sem bræðir ísinn. Calaf segir nú
nafn sitt. Frammi fyrir allri hirð-
inni tilkynnir Turandot, að hún
viti nú nafnið. Það er ástin.
Um óperuna Turandot
Turandot er oft talið fremsta
verk Puccinis og sameinar hina
ljóðrænu og viðkvæmu æð sem
er svo einkennandi fyrir tónlist
hans (Liu), en einnig hið hetjulega
(Calaf, Turandot). Grímumar
(Ping, Pang, Pong) vísa bæði á
harm- og gleðileiki. Þetta og æv-
intýralegur blær og umgjörð ópe-
runnar höfða sterkt til barna ekki
síður en fullorðinna. Tónlistin er
framandi og spennandi, en þykir
erfið að syngja, sérstaklega hlut-
verk Turandot, þar sem tónhæðin
liggur löngum stundum kringum
háa c. Á þann hátt hefur Puccini
sennilega viljað skapa demants-
skarpa og kalda ímynd. Mjög fáar
söngkonur hafa treyst sér til að
syngja hlutverkið, enda hreinlega
hætta á að röddin bíði skaða af.
Um árabil var Birgit Nilson ein
af fáum sem sungu Turandot að
jafnaði, en eftir að hún dró sig í
hlé hefur Ghena Dimitrova tekið
við. Leikrænt séð gerir hlutverkið
hins vegar litlar kröfur því mestan
tímann er Turandot staðsett langt
frá áhorfandanum, efst í hárri
tröppu með gríðarmikla skikkju
og kórónu.
Hlutverk Calafs þykir líka mjög
erfítt. Hann syngur sumpart á
móti Turandot og sumpart á móti
Liu og þarf að sameina dramatísk
og ljóðræn tök. Margar upptökur
eru til á verkinu en ein sú eftir-
minnilegasta er frá 1960 með
þeim Birgit Nilson, Jussa Björling
og Renötu Tebaldi í aðalhlutverk-
unum (RCA SER564/5). Sú út-
gáfa er nú einnig til á geisladiski.
Puccini vann við Turandot í
þijú ár staðráðinn í að skapa
öðruvísi áferð og lit á tónlistinni
en í Madam Butterfly. Honum
entist ekki aldur til að ljúka verk-
inu og er aría Liu í þriðja þættin-
um það síðasta sem hann skrif-
aði. Franco Alfano lauk verkinu
og notaði við það brot sem til
voru frá hendi tónskáldsins. Dauði
Liu er dramatískur hápunktur en
setur verkið í vissa sjálfheldu, þar
sem það sem á eftir kemur verður
næstum óviðeigandi. Þetta hafði
Puccini gert sér ljóst en hafði
ekki náð að leysa það, þegar hann
féll frá árið 1924. Eins og óperan
er nú fá þau að eigast, sem sinna
engu nema sjálfu sér, en vesalings
Liu sem fórnar sér fyrir aðra
hverfur í skuggann. Þetta er þó
samt eitt af því, sem kannski
gerir Turandot að eftirminnile-
gustu óperu Puccinis.
Höfundur er áhugamaður um
óperu.
DAGVI8T BARIMA.
NÝTT DAGVISTARHEIMILI
Staða forstöðumanns á nýju dagvistar-
heimili í Seljahverfi er hér með auglýst
laus til umsóknar.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri á
skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277.
U-BIX
UÓSRITUNARVÉLAR
Flugmannatal
Útgáfa Flugmannatals er nú komin á lokastig og próf-
örk að bókinni liggur frammi á skrifstofu F.I.A., Háaleit-
isbraut 68 (Austurveri), alla virka daga kl. 9.00-12.00
frá 22. febrúar til 8. mars. Menn eru hvattir til að líta
á próförkina til að fyrirbyggja hugsanlegar villur.
Ritnefnd.
ÆTÆM