Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 2
2 B
pforaiwftlafrifr /ÍÞRÓTTIR MIÐVTKUDAGUR 6. APRÍL 1988
KÖRFUKNATTLEIKUR
Koma erlendir
leikmenn aftur?
Stjórn KKÍ ætlar að leggja fram tillögu þess
efnis á ársþinginu í maí
„TILLAGA um að erlendum
leikmönnum verði leyft að
leika með íslenskum félags-
liðum verður lögð fram af
stjórn Körfuknattleikssam-
bands íslands á ársþinginu í
maí n.k.,“ sagði Kristinn Ai-
bertsson gjaldkeri KKÍ á
blaðamannaf undi í gœr.
samhliða æfíngum virtust ekki
vera eins hrifnir. Fram kom hjá
fyrirliðum og þjálfurum UMFN,
IBK, Val og Haukum sem nú leika
um íslandsmeistaratitilinn að
mikill áhugi væri fyrir að þessi
tillaga yrði samþykkt.
Breyting á deildarkeppninni
Kristinn sagði að stjóm KKÍ
hefði kannað viðhorf hinna
ýmsu félaga til þessa máls. í ljós
hefði komið að skoðanir væru
skiptar og því væri
Björn ekki hægt að spá
Blöndai um á þessu stigi
skrifarfrá hvort tillagan
næði fram að
Kefíavik
ganga.
Kristinn sagði að í könnun þeirra
KKÍ manna hefði komið í ljós að
þeir leikmenn sem ekki þyrftu að
standa í fjáröflun væru yfírleitt
hlyntir að fá erlenda leikmenn,
en hinir sem stæðu í fjáröflun
Kristinn Albertsson sagði enn-
fremur að ekki væm allir sam-
mála um ágæti úrslitakeppninnar
eins og hún væri í dag og yrðu
þijár tillögur þar af lútandi lagðar
fram á ársþinginu. í fyrsta lagi
að fyrirkomulagið yrði óbreytt, í
öðm iagi að leikin yrði fjórföld
umferð með 8 liðum án auka-
keppni og í þriðja lagi að tekin
yrði upp riðlakeppni, 4 lið í 2 riðl-
um og síðan færi fram sérstök
úrslitakeppni og yrði fyrirkomu-
lag hennar með þeim hætti að
allir leikir í riðlakeppninni gætu
skipt máli.
fa&m
FOLK
■ OLAF Thon leikmaður
Schalke f v-ýsku úrvalsdeildinni í
knattspymu hefur sagt að hann
muni skrifa undir samning við
ítalskt lið innan tíu daga. Hann vildi
ekki segja hvaða lið væri um að
ræða. Mörg lið hafa reynt að fá
hann í sínar raðir, m.a. Atletico
Madrid og Tottenham. Þá reyndu
v-þýsku stórliðin Bayern Miinchen
og Hamburger SV að fá hann til
að skrifa undir samning. Schalke
fer fram á 6.5 milljónir marka (160
milljónir ísl. kr.) fyrir Thon sem
er aðeins 21 árs.
■ CELTIC tryggði sér sigur,
2:0, yfir St. Mirren í skosku úrvals-
deildinni í gærkvöldi. Félagið þarf
aðeins eitt stig til að tryggja sér
meistaratitilinn. Andy Walker,
skoraði fyrra markið, hans 29.
mark í vetur og Paul McStay skor-
aði annað markið. 45.465 áhorfend-
ur sáu leikinn.
■ SIGURÐUR Jónsson og fé-
lagar hans hjá Sheffield Wed.
gerðu jafntefli, 2:2, gegn Luton í
Hattaborginni í gærkvöldi. Mel
Sterland skoraði jöfnunarmarkið á
87 mín. Wimbledon mátti þola tap.
Olaf Thon
1:2, fyrir Coventry á heimavelli.
John Fashanu, miðheiji Wimble-
don, varð að fara af leikvelli
eftir fimm mín., meiddur á læri.
Brian Kilcline, vítaspyrna, og
Keith Houchen skoruðu mörk
Coventry, en Eric Young setti
mark Wimbledon.
■ LEIGHTON James hefur sótt
um að gerast landsliðsþjálfari
Wales. James er 35 ára og á að
baki 54 landsleiki fyrir Wales.
Hann leikur nú með Burnley og
var rekinn af velli um helgina í
leiknum gegn Bournemouth.
■ JÚGOSLAVAR gerðu jafn-
tefli við ítali, 1:1, í æfingaleik í
knattspyrnu í Split í Júgóslavíu á
laugardaginn. Vialli skoraði fyrir
ítali á 10. mínútu en Jakovljevic
jafnaði rétt fyrir leikhlé.
FRJALSAR IÞROTTIR
Morgunblaöiö/Sverrir
Atll Hllmarsson sést hér sækja að marki Japana og er ekki tekin neinum
vettlingatökum. Atli skoraði fíögur mörk í gærkvöldi.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Japanir engin
fyrirstaða
„VIÐ höfum oftast átt í erfið-
leikum með svona handknatt-
leik eins og Japanir spila. Ég
er þokkalega ánœgður með
leikinn en hann bar þess merki
ísland—Japan
29 : 25
Laugardalshöll, landsleikur í hand-
knattleik, þriöjudaginn 5. apríl 1988.
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 4:4, 6:4,
6:8, 8:9, 10:10, 13:10, 13:12, 14:13.
17:15, 17:17, 20:20, 23:21, 24:23,
27:24, 28:25, 29:25.
Mörk íslands: Þorgils óttar Mathiesen
7, Júlíus Jonasson 6/1, Atli Hilmarsson
4, Jakob Sigurðsson 3, Sigurður Gunn-
arsson 3, Guðmundur Guðmundsson
3, Stefán Kristjánsson 2 og Karl Þrá-
insson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 13.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Japans: Tamamura 7/1, Tachiki
3, Miyashita 3, Fujii 3, Yamamura 3,
Okuda 3 og Takamura 2.
Varin skot: Ito 9 og Hashimoto 4.
Utan vallar: 6 mínútur.
Áhorfendur: 610.
Dómarar: Szajna og Wroblewski frá
Póllandi og stóðu sig vel.
að við höfðum ekki leikið sam-
an í nokkra mánuði," sagði fyr-
irliði íslenska liðsins Þorgils
Óttar Mathiesen eftir leikinn.
Leikurinn var ekki í háum gæða-
flokki og gerðu leikmenn sig
seka um mörg mistök bæði í vörn
og sókn. Einbeitingu vantaði og
■■■^■i skal engan undra
Valur því mótstaðan var
Jónatansson ekki mikil. Japanska
skri,ar Hðið virtist vera
frekar þreytt eftir
erfítt keppnisferðalag í Evrópu
síðustu vikumar og lék ekki af
fullri getu.
Þorgils Óttar, Jakob Sigurðsson,
Júlíus Jónasson og Einar Þorvarð-
arson voru þeir sem stóðu upp úr
í fslenska liðinu, aðrir léku undir
getu.
Tamamura var besti leikmaður Jap-
ans. Hann átti auðvellt með að
skora fyrir utan þótt hann sé ekki
hár í loftinu. Hann stökk upp og
skoraði með lumskum skotum í
gegnum vömina. Ito, markvörður,
varði einnig vel í fyrri hálfleik.
ÍÞRjMR
FOLK
■ KARL Allgöver, leikmaður
Stuttgart, hefur ákveðið að fara í
skaðabótarmál við Bodo Illgner,
markvörð Köln. Allgöver fer fram
á 575 þús. kr. vegna atviks sem
átti sér stað í leik Stuttgart og
Köln, 5:1. Illgner hljóp þá út á
móti Allgöver og braut gróflega á
honum. Video-myndband sannar
brotið. „Þetta brot var fyrir ofan
þau mörk, sem íþróttamenn eiga
að þola,“ sagði lögfræðingur
Allgöver. Málið verður tekið fyrir
11. apríl og bíða menn spenntir
eftir hvemig það fer, enda í fyrsta
skipti sem þannig mál er tekið fyrir
í V-Þýskalandi.
■ NORSKA knattspyrnufélagið
Valerengen tilkynnti um helgina
að það hafi hug á að reyna að fá
danska landsliðsmanninn Preber
Elkjær Larsen til sín. Áður hafa
félög eins og Real Madrid og Ju-
ventus sýnt kappanum áhuga.
Larsen leikur með Veróna.
■ CESAR Luis Menotti, fyrrum
landsliðsþjálfari Argentínu, sem
var rekinn frá Atletico Madrid á
dögunum, skrifaði undir samning
við argentínska félagið River Plate
í gær. Félagið mjög öflugt. Með því
leika sex landsliðsmenn Argentínu
og þrír landsliðsmenn frá Uruguay.
Þetta er áfall fyrir keppinautana
Boca Juniors, því að Menotti hafn-
aði boði frá félaginu sl. ágúst og
tók boði Atletico Madrid.
■ VERONA keypti í gær arg-
entínska landsliðsmanninn Claudio
Caniggia frá River Plate á 78
millj. kr. Caniggia skrifaði undir
fjögurra ára samning við ítalska
félagið. Hjá því eru tveir aðrir er-
lendir leikmenn. Daninn Preber
Elkjær Larsen og V-Þjóðveijinn
Thomas Berthold. Eins og hefur
komið fram þá fá þrír erlendir leik-
menn að leika með félagsliðum á
Ítalíu á næsta keppnistímabili.
■ DORTMUND og NUmberg
gerðu jafntefli, 1:1, í gærkvöldi í
Bundesligunni í knattspyrnu, að
viðstöddum 24. þús. áhorfendum.
Heimamenn byijuðu betur, en
Niimberg sótti í sig veðrið og
komst yfir á 57. mín. eftir varn-
armistök. Norðmaðurinn Ander-
son skoraði. Hupe jafnaði fyrir
Dortmund með skalla
í kvöld
íslendingar spila landsleik í
handknattleik við Japan í
Laugardalshöll í kvöld kl.
20.30. Þetta varður síðasti
leikur Japana í heimsókn
þeirra hingað til lands að
þessu sinni.
Fyrsti leikurinn í úrslita-
keppni KKÍ verður í Njarðvík
í kvöld kl. 20.00. Þar mætast
UMFN og Valur.
KORFUKNATTLEIKUR
FRI sækir um HM í 15
km götuhlaupi kvenna
Fijálsíþróttasamband ís-
lands hefur sótt um að að
halda Heimsmeistaramót í 15
kílómetra götuhlaupi kvenna í
íjeykjavík næsta vor.
„Ef okkur verður falin fram-
kvæmd hlaupsins verður það háð
í miðborg Reykjavíkur, á 2,5 krp
hring með rásmarki og endamarki
í Lækjargötu. Við höfum lagt til
að hlaupið fari fram sunnudaginn
14. maí 1989,“ sagði Ágúst Ás-
geirsson, formaður FRÍ, f samtali
við Morgunblaðið f gær.
Að sögn Ágústs verður ákvörðun
um hvar hlaupið verður haldíð
tekin á fundi stjómar Alþjóða-
fijálsíþróttasambandsins (IAAF)
í London í næstu viku. Nokkrar
umsóknir munu liggja fyrir og til
þess að vinna að því að fá hlaup-
ið hingað til lands fer Ágúst til
fundarins.
„Það hafa um eitthundrað hlaupa-
konur frá 25-30 ríkjum keppt í
hlaupinu undanfarin ár. Sigurveg-
arinn hlýtur heimsmeistaratign
og einnig er um að ræða sveita-
keppni, sem mikið er lagt upp úr
að vinna. Því taka margar frábær-
ar hlaupakonur þátt í hlaupinu.
Norska hlaupadrottningin Ingrid
Kristiansen hefur unnið tvö
sfðustu hlaupin," sagði Ágúst.
KKI hefur augastað á
ungverskum þjálfara
Eg tel yfírgnæfandi líkur á að
erlendur þjálfari taki við lands-
liðinu í haust og við erum þegar
með augastað á þekktum þjálfara
frá Ungveijalandi
og við höfum góðar
vonir um að fá hann
til starfa," sagði
Kristinn Albertsson
gjaldkeri Körfuknattleikssambands
Islands í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Eins og hefur komið fram í Morgun-
blaðinu er hér um að ræða prófess-
or, dr. Laszlo Nemeth, 37 ára.
Hann lék með ungverska landslið-
inu á árunum 1969-1976. Þá gerð-
ist hann þjálfari í Ungveijalandi og
síðan lá leið hans til Kuwait, þar
sem hann gerðist landsliðsþjálfari
1986.
Kristinn sagði að engin verkefni
væru fyrir landsliðið í körfubolta í
vetur. Hinsvegar væri Ijóst að verk-
efni á næsta keppnistfmabili yrðu
næg, þar mætti nefna Polar Cup,
leikar smáþjóða, auk nokkurra
landsleikja sem búið væri að semja
um.
Bjöm
Blöndal
skrifar