Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 9
8 B
3BorflnnMat>iÍ> /IÞROTTIR AflÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / BADMINTON
Gestur Páll Júliusson og Ein-
ar Hólmstelnsson.
„Öllum
farið
mik-
ið fram“
Þeir Gestur Páll Júlíusson
og Einar Hólmsteinsson eru
tveir kappsfullir piltar sem
stunda badminton hjá TBA af
PHm mikium krafti.
Andrés Þeir tóku vel í
Pétursson þá bón að svara
skrífar nokkrum spum-
ingum blaða-
mannsins um æfingamar hjá
félaginu.
Þeir sögðust fyrst hafa kynnst
badminton í leikfimitímum í skó-
lanum og það hafí vakið áhuga
þeirra að æfa íþróttina. Þeir
gerðu síðan alvöru úr því að
mæta á æfíngu og fengu þá
badmintonbakteríuna alræmdu.
Þetta var fyrir tveimur árum og
núna æfa þeir á hverjum degi
fyrir unglingameistaramót ís-
lands sem átti að vera fljótlega
eftir þessa heimsókn blaða-
mannsins.
Gestur sagði að allir hefðu sýnt
miklar framfarir síðan hollenski
þjálfarinn kom og væri hann
mjög snjall leiðbeinandi. Einar
tók undir þetta og sagði að
Gústaf væri maður sem kynni
ótrúlega mikið í sambandi við
badminton.
Svitinn bogaði af strákunum og
greinilegt að þeir vildu fara að
komast í sturtu þannig að við
kvöddum þá og óskuðum þeim
góðs gengis á Unglingameist-
aramótinu.
Hópurlnn hjá TBA, ásamt Qústafl Valberg og Elnar Jónl Elnarssynl þjálfurum.
„Hollenski þjáKarinn hefur
hleypt miklum krafti í starfið"
- segir Einar Jón Einarsson hjá TBA
ÞEGAR umsjónarmaður ungl-
ingasíðunnar var staddur á
Akureyri fyrir skömmu leit
hann inn á badmintonæfingu
hjá TBA í íþróttaskommunni.
Þar var góður hópur unglinga
að æfa undir öruggri leiðsögn
Einars Jóns Einarssonar þjálfara
og hins hollenska þjálfara Gústafs
^■■■■1 Valbergs. Að sögn
Andrés Einars hafði lengi
Pétursson verið í bígerð hjá
skrífar félaginu að ráða er-
lendan þjálfara til
að hleypa lífí í starfið. En það hefði.
ekki verið fyrr en í ár að gerð var
alvara úr því að ráða slíkan þjálf-
ara. Fyrir valinu varð Hollendingur-
inn Gústaf Valberg. Hann er af
indónesísku bergi brotinn en þar
er mikill áhugi á badminton. Gústaf
er ráðinn til 6 mánaða með hugsan-
lega framlengingu í huga.
Mikil ánægja hefur verið með starf
hans hingað til og hefur §ölgað
mikið á æfíngum eftir að hann kom
til félagsins. Nú æfa um 140 manns
reglulega á vegum TBA, og þar af
eru 70 böm og unglingar. Æfíngar
eru alla daga nema miðviku- og
sunnudaga og það sem helst háir
starfseminni er plássleysi í húsum.
Einar sagði að öllum stæði það
opið að mæta á æfíngu hjá félaginu
og alltaf væri not fyrir nýja félaga.
Gústaf sýnlr hvernlg bost er aö beita spaóanum.
„Badminton er
lang skemmtileg-
asta íþróttin“
- segja þær Þórunn Friðlaugsdóttir og
Elín Jónsdóttir
Einu stúlkurnar á æfingunni að
þessu sinni voru þær Þórunn
Friðlaugsdóttir og Elín Jónsdót.tir.
Elín er 14 ára en Þórunn er 11 ára.
Þær sögðu að það hefði verið hálf-
gerð tilviljun að þær fóru að æfa
badminton. Elín hefur æft í fjögur
ár og sagði að í bytjun hefði hún
eiginlega villst inn á æfíngu og líkað
svo vel að hún er enn að fjórum
árum síðar.
Þórunn hefur æft skemur, eða í tvö
ár. Hún safrði að fvrst. hefði hún
komið á æfingu með vinkonu sinni.
Sú væri nú hætt að æfa en Þór-
unni líkaði svo vel að hún æfir enn
ötullega. Elín spilar líka fótbolta
en badmintonið er skemmtilegra
segir hún.
Þær voru báðar sammála því að
erlendi þjálfarinn Gústaf Valberg,
hefði verið hvalreki á fjörur badmin-
tonleikara á Akureyri og sögðust
þær vera þess fullvissar að hann
myndi skila mjög góðum árangri
hiá félaeanu.
Þórunn oq Frlólaua á fullu í tvíliðaleik.