Morgunblaðið - 10.05.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 10.05.1988, Síða 4
4 B jHorgnnÞfaÍita /ÍÞRÓTTIR ÞRJDJUDAGUR 10. MAÍ 1988 Sitt- hvaö úr ýmsum áttum TALSVERT er nú rœtt um það veiðimanna á meðal um vænt- anlega „siðvæðingu" Arnar- vatnsheiðar á vegum Lands- sambands Stangaveiðifélaga og bænda þeirra sem teljast „eiga“ öræfin þarna. Síðustu árin hefur umferð ferðamanna sóraukist á Arnarvatnsheiði og skussum þar með fjölgað í réttu hlutfalli. Því hefur um- gengni hrakað stórum og sveitamenn rætt um það meira í alvöru en gamni að loka Heið- inni fyrir veiðimönnum. Það væri nú spursmál út af fyrir sig hver réttur þeirra væri til slíks ef út i það færi, en kjarni máls- ins er þó umgengnin sem um- ræddir bændur og flestir þeirra sem á Heiðina fara til að veiða og slaka á bera fyrir brjósti. Tapast gildl Heiðinnar sem veiðivin vegna vegarins? Eitt af því sem fellur inn í fólk- vangsmyndina hjá LS og bænd- um er að ljúka vegi úr Miðfírði sem mun tengjast gamla Heiðarvegin- lfEIIU um' ^’tthvað hefur Náttúruvemdarráð ■■■■■I verið ósátt við lagn- Guðmundur ingu þessa vegar og Guðjónsson einnig margir sem skrifar stunda Heiðina. Sjá þeir fyrir sér að gildi hennar sem veiðivin tapist fyrir fullt og allt ef þama yrði allt í einu fært flestum eða öllum bílum og allt yrði útsteypt í gönguslóðum og veiðihúsum og þjónustumiðstöðv- um. Myndi þá ekki umferðin marg- faldast frá því sem nú er og tala skussa fjölga enn í réttu hlutfalli? Hver segir að menn hætti að henda drasli á víðavangi þó einhverjir mslagámar standi við þjónustumið- stöð og LS dreifí plastpokum með grípandi slagorði? Skussar lesa ekki einu sinni slagorðið og henda pok- anum á víðavang með hinu drasl- inu. A hinn bóginn er hugsanlegt að þetta átak yrði til þess að bæta ástandið, en ljóst er að menn skipt- ast alfarið í tvo hópa hvort þeir hafa trú á því eða ekki. Þeir sem eru á móti samkrulli LS og sveita- manna telja að ekki sé fullreynt að bæta umgengnina með ýmsum leið- um og óttast um leið að þegar veiði- svæðinu yrði breytt í fólkvang með þllu tilheyrandi, myndi Amarvatns- heiði glata flestu af því sem hefur gert hana eftirsóknarverða í augum margra gamalla Heiðarrefa. A ís- landi eru silungsveiðivötnin og ám- ar mýmörg, en aðeins ein Amar- vatnsheiði. Styttist í laxveiöfna Snúum okkur að öðm. Nú styttist óðum í laxveiðina ogþað eru síðustu vikumar og dagamir sem biðin reynist mönnum erfíðust. 20. maí hefst lögboðinn netaveiðitími í Hvítá í Borgarfírði og eins og frá hefur verið greint, verður ekki úr því að sinni að netaveiðin leggist af. Það hefur farið lítið fyrir spám Það eina sem menn hafa viljað spá um varðandi veiðisumarið fram undan er, að líklega verður enn eitt stórstórlaxasumarið, þá það þriðja í röðinni. Byggja menn það á góðum göngum af tveggja ára físki úr sjóí fyrra en sumarið 1986 var aftur gott smálaxasumar. Hér hefur því verið um góðan árgang að ræða og hann ætti að renna sitt skeið á enda með þriggja ára físki úr sjó á kom- andi veiðitíma. Myndin er af rúmlega 30 punda hæng sem veiddist í Bergsnös í Stóru Laxá fyrir nokkrum árum og var geymdur í klakið. Þar reyndist hann hins vegar vægast sagt illa eins og títt er um hænga af þeirri staerð. uð til síns máls. En hvenær hættir að vera einhver glóra í þessu? Tök- um dæmi. Áhugasamur veiðimaður getur farið 10 til 11 daga í nýja laxveiðisvæðið í Norðlingafljóti fyr- ir andvirði einnar stangar í einn dag í Laxá. Þar dundar veiðimaður sér í sérstaklega fallegu umhverfí, í óvenjulega fallegri á sem auk þess er full af villtum laxi með háa með- alþyngd. Tökum annað dæmi. Álftá á Mýrum er vatnslítil en býsna gjöf- ul laxveiðiá á Mýrunum. Hefur hún hin síðari ár verið talin dýr miðað við hversu erfíð hún er í vatnsleys- isárum eins og verið hafa. Veiði- maður einn var þó að fá úthlutun sína í Álftá fyrir nokkrum dögum, tvær stangir í tvo daga. Annan daginn á besta tíma, hinn á mjög góðum tíma. Alls kostaði pakkinn rúmar 57.000 krónur. Vantartæpar 8.000 krónur til að ná þessari einu stöng í Laxá á Ásum. Þó er Álftá í fremstu röð sé miðað við meðal- veiði á stöng á dag. Sex prósant aflans í Blöndu veiddist á flugu Loks smáglefsa frá sportveiðiánni Blöndu. í fundargerð LS frá síðasta vetri er greint frá umræðum og skýrslum sem menn fluttu. Mátti meðal annars lesa pistil frá Sturlu Þórðarsyni frá Stangaveiðifélagi Austur Húnvetninga, sem hefur hluta af Blönduveiðinni á leigu. Greinir Sturla sérstaklega frá því, að á síðasta sumri hafí alls 56 lax- ar veiðst á flugu í Blöndu, eða 6 prósent heildaraflans. Þetta er for- vitnilegt og fróðlegt væri að heyra hvaða flugur gefa best í Blöndu og hvort að venjulegar aðferðir dugi. Eða hvort að vatnslitarins vegna verði að breyta eftir því. fískifræðinga að þessu sinni, vænt- anlega vegna þess að í fyrra brást spá þeirra að hluta eins og veiði- menn muna. Smálaxinn skilaði sér illa og var víða rýr að auki, en óljóst er þó hvort árgangurinn galt það afhroð í hafínu sem útlit var fyrir lengst af. Seint á veiðitíma fór nefnilega víða að bera á smálaxa- göngum og sums staðar af landinu þar sem menn fylgdust með ánum sínum, gat að líta smálaxagöngur eftir veiðitíma. Vatnsleysi í ánum stóran hluta veiðitímans gæti verið ein skýring. Önnur gæti verið að laxinn hafí vegna óárans í hafínu verið seinn að fíta sig og stækka og því verið að laumast upp seint og síðar meir. Heildarheimtur haf- beitarinnar virðast þó staðfesta, að þó eitthvað kunni að hafa ræst úr sums staðar, þá var þetta heldur slappt smálaxaár. Nú hefur kalt vor snögghlýnað. Hvemig verður sum- arið, þurrt eða blautt? Hvemig er ástand laxins í hafinu. Það bíða allir spenntir eftir svörum, en að þessu sinni er ekkert um spár kunn- áttumanna til að kjamsa á meðan beðið er. Verölag velðlleyfa Látum svo útrætt um spár í bili a.m.k. Mörgum er verðlag veiði- leyfa afar hugleikið og það ekki að ástæðulausu. Það hefur verið frá því greint í þessum veiðipistlum, að hvergi borga menn hærri krónu- tölu fyrir _veiðiskapinn heldur en í Laxá á Ásum. Dýrastu dagamir sem frést hefur um fyrir komandi sumar hafa selst á 65.000 krónur. Þeir sem r-eiða fram slíkar fjár- hæðir segja gjaman að hvergi veiði menn að jafnaði eins marga laxa á hvem stangardag. Hafa þeir nokk- HREYSTI íþróttaskór eru nánast tækruundur í efiii og hönnun Val þeirra þarf engu að síður að vanda vel Isíðasta pistli þann 3. maí var rætt um val á íþróttaskóm og sagt frá því hvemig fór fyrir Jóni frænda þegar hann fór að veija sér skokkskó. Jón þessi hefur lítinn áhuga á íþróttum og opnar venjulega ekki íþróttablað Morgunblaðsins né les hann íþróttasíður nokkurra annarra blaða. Hann slysað- ist þó til að gera það þann daginn og var ekki ánægður með frásögn mína. Jóni fannst hallað réttu máli í pistlinum, sérstaklega hvað varðaði viðskipti sín við stúlkuna fögra í iþróttavörabúðinni. Hann bað því um að frásögnin yrði færð til betri vegar og skal nú orðið við því. Þegar Jón gekk í búðina spurði stúlk- an strax glaðlega hvort hún gæti hjálpað honum við að velja sér skó og benti honum á að úrvalið væri mikið. Hún spurði hvort hann vantaði skó til að nota úti eða inni og síðan fyrir hvers konar íþróttaiðkun. Þegár Jón hafði sagt henni, að hann ætlaði að skokka úti við, þá útskýrði hún fyrir honum að útiskór væra allt öðravísi en skór til að nota inn- anhúss. Næst spurði hún, einnig afar kurteislega, hvort hann fhefði hugsað sér að nota skóna í skokkkeppni eða hvort hann væri trimmari, því að keppnis- skór væra gjaman léttir og ekki eins sterkir og skór fyrir ötula trimmara. Þeim sem þekkja Jón frænda og vaxtarlag hans þarf ekki að blandast hugur um að Jón verður seint keppnismaður, en ég sagði þó ekki orð og Jón hélt áfram með söguna. Þessu næst spurði stúlkan blátt áfram unin haldist meðan skórinn end- ist. Þungir menn þurfa þykkara lag og þéttara en léttir. Innsta lagið liggur upp að ilinni og er venjulega lagað eftir henni til að veita fætinum sem mestan stuðning." — Allt þetta rann upp úr Jóni eins og hann væri orðinn sérfræðingur í íþróttaskóm. Næst tók hann til við að lýsa því hvemig hægt væri að breyta eiginleikum skósólans með því að „hvert af þessum lögum væri samsett úr mismunandi hlutum, t.d. þannig, að í hælnum væri lögð áhersla á höggdeyfíngu og fjöðran, en undir táberginu væri lögð áhersla á sveigjanleika". — Þegar hingað var komið í lýsing- unni fór ég að hugsa um þessa stúlku í búðinni og um það hvort Jón væri búinn að lýsa skónum fyrir konunni sinni. — „Hæl- kappinn er mjög mikilvægur til Passa vei Ekki verður betur séð en skórnir paesi vel á fætur þessa knáa trimmara. hvort Jón væri búinn að gera sér grein fyrir því hversu miklu fé hann vildi eyða í fyrstu skokk- skóna sína. Jón sagðist hafa sagt að verðið væri ekki aðalat- riðið heldur gæðin. Með þessu taldi ég víst að Jón væri að hugsa um að skómir þyrftu að endast vel þó að hann hætti að skokka og færi að nota þá í kálgarðinum heima. Þá tók stúlkan eitt par af skokkskóm úr hillunni og lýsti því i stuttu máli hvemig þeir væra byggðir. Það veldur mér enn furðu hvem- ig Jón, þessi hægláti maður, gat munað þetta allt og lýst svo fyrir mér af eldmóði hvemig skokkskór ættu að vera gerðir. „Skósólinn er gerður úr a.m.k. þremur lögum. Botnlagið þarf að vera slitsterkt en sveigjanlegt og oftast er það með tökkum til að koma í veg fyrir að skóm- ir renni til í linum jarðvegi. Mið- lagið er mjúkt og fjaðrandi, lítur út eins og svampur. Þetta lag þarf að vera mjög sterkt og er gert úr vönduðu efni til að fjöðr- að styðja við hælinn og til að koma í veg fyrir hliðarsnúning í ökklalið. Þetta má prófa með því að taka þéttingsfast utan um hælkappann aftan frá, og þá á hann ekki að láta nema lítið undan átakinu." — Nú fór ég að skilja hvað gerðist. Ég sá fyrir mér Jón frænda og stúlk- una í búðinni þar sem þau tóku hvem skóinn á fætur öðram og skiptust á um að kreista hæl- kappann. Hvílíkt! — „Yfírleðrið í skónum er sniðið úr mörgum hlutum, sumir era raunveralega úr sterku leðri, t.d. kringum tæmar, hælinn og götin fyrir reiminguna, en aðrir hlutar þess eru úr nælonefnum til að gera skóna létta og lipra." — Þegar Jón nefndi mjúka, ávala og vel bólstraða dældina efst á hæl- kappanum, sem á að vemda hælsinina, var mér nóg boðið og minnti hann aftur á það að skómir yrðu að passa á fætuma. Jóhann Heiðar Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.