Morgunblaðið - 28.05.1988, Side 4

Morgunblaðið - 28.05.1988, Side 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 Vatnslistamynd frá Vatnajökli, ein þeirra sem nú er sýnd & Kjarvalsstöðum. VILDI FINNA NÝJAN RAUN VERULEIKA < — segir þýski myndlistarmaðurinn Gunther Uecker Um þessar mundir eru til sýnis á Kjar- valsstöðum vatnslitamyndir eftir þýska listamanninn Gunther Uecker sem hann málaði fyrir nokkrum árum þegar hann kom til íslands og fór í ferð á Vatnajökul. Þetta eru allt litlar vatnslitamyndir — ekki útlistun á jökl- inum heldur tilraun listamannsins til að túlka og koma til skila þeim áhrifum sem hann varð fyrir í þessari ferð. Sjálfur kom hann hingað á dögun- um til þess að vera við opnun sýning- arinnar þ. 14. maí síðastliðinn, ásamt eiginkonu sinni, Ijósmyndaranum sem var með honum í Vatnajökulsferðinni og safnstjóra gallerís í Munchen þar sem þessar litlu vatnslitamyndir hafa einnig verið til sýnis. Gilnther Uecker Istuttu spjalli við listamanninn segir hann, að það hafí fyrst og fremst verið fyrir áeggjan vinar síns Dieter Rot, sem búsettur var hér um árabil, að hann fór þessa íslandsferð, en þeir Dieter Rot hafa unnið mikið saman á árum áður. Hann segir jafnframt að þessi ferð á Vatnajökul hafi haft djúp áhrif á sig — þangað hafi verið haldið upp frá Egilsstöðum, ekið inn á hálendið, yfir svarta auðn með jökulinn fram- undan — yfir miklar torfærur, yfir óbrúaðar ár — og þarna hafi ríkt mikill kuldi. En yfir öllu þessi sér- kennilega íslenska birta sem eigi sér enga hliðstæðu. Þessu umhverfi hljóti menn blátt áfram að verða ofurseldir. „Mér fannst ég vera við dyr undir- heima — hér hlytu að ríkja margir guðir og þeir urðu mér raunveruleg- ir“, segir hann. „Skilningarvitin fóru úr skorðum og ljósbrigðin gerðu það að verkum að fjarlægðarskyn ruglaðist — mér fannst þetta á einhvem hátt sambæri- legt við ferðir Ódysseifs og lýsingar hans á þeim". Þessar myndir sem nú eru á Kjar- valsstöðum og ljóð sem fylgja hverri mynd, eru tilraun hans til að tjá f mynd og máli áhrifin af þessari eftir- minnilegu ferð. Myndimar ætlar hann að nota síðar til nánari útfærslu, að hans sögn. Hann sagðist líka ætla að hvetja myndlistarmenn hvaðanæva að til að koma til fslands og upplifa þessa sér- kennilegu náttúru. Landið væri líka vel staðsett — miðja vegu milli Banda- ríkjanna og Evrópu. Hér væri því til- valið að koma upp nokkurs konar list- miðstöð fyrir báða þessa menningar- heima — bjóða listamönnum að dvelja hér og glima við umhverfið og áhrifin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.