Morgunblaðið - 01.07.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988
fclk í
fréttum
ENGLAND
Konunglegt
foreldra-
vandamál
Því miður er það satt. Hjónaband mitt er búið að
vera.“ segir Frances, móðir Díönu prinsessu. Hún
og Peter Shand Kydd hafa verið gift í 19 ár og nú hafa
þau hjónin fengið nóg.
Þetta er í annað sinn sem Frances stendur í skilnaðar-
máli því að hún skildi áður við foður Díönu árið 1969
og tók saman við Peter. Peter er sagður halda við unga
konu, Janet að nafni, en Frances þvertekur fyrir þann
orðróm.
Díana prinsessa er auðvitað niðurbrotin manneskja
yfir þessu öllu. Hún hefur dregið úr vinnu til að geta
verið hjá móður sinni og styður hana í einu og öllu.
Díana hefur alltaf dáð móður sína og þegar hún gift-
ist sjálf, sagðist hún vona að hjónaband hennar og Karls
bretaprins yrði jafn farsælt og og hjónaband móður henn-
ar og stjúpa. Auðvitað fékk Díana áfall þegar Frances
skildi við föður hennar en hún var samt sem áður ánægð
fyrir hönd móður sinnar þegar hún giftist Peter því að
móðir hennar var svo hamingjusöm.
Það virðist sjaldan vera logn í kringum bresku konungs-
fjölskylduna. Þegar þetta skilnaðarmál hófst var hneyks-
lið út af kvennamálum Ronalds Ferguson, föður Fergie,
rétt að hjaðna. Hann hafði tekið þátt í kynsvalli og í til-
efni af því birtust safaríkar frásagnir vændiskvenna í
breskum blöðum, þar sem þær sögðu frá kynnum sínum
af honum. Þetta leit afar illa út þar sem hann er harð-
giftur og á 3 ltil böm með núverandi eiginkonu sinni.
Breska þjóðin hafði búist við að konungsfjölskyldan
mundi snúa baki við syndaselnum en svo fór ekki. Ný-
lega hitti Elísabet drottning Ronald Ferguson opinberlega
og reyndu þau að láta sem ekkert væri. Þó herma sjónar-
vottar að Elísabet drotting hafí stokkroðnað þegar hún
hitti þennan synduga mann.
Fergie og Díana láta slúðrið ekki hafa áhrif á sig og
standa með foreldrum sínum hvað sem á dynur.
Díana var vonsvikin þegar móðir hennar og
stjúpi ákváðu að skilja en hún er mikil vinkona
móður sinnar og styður hana á meðan skilnaður-
inn stendur yfir.
Ronald Ferguson
glottir við tönn
og lætur sem
ekkert sé. Elísa-
bet drottning gat
þó ekki annað en
roðnað þegar
hún hitti hann
opinberlega í
fyrsta skipti eftir
hneykslið.
Fergie lætur slúðrið ekki á sig fá og stendur
með föður sínum.
BANDARÍKIN
Alf er þekktari
en Dukakis
Inýlegri könnun sem gerð
var í Bandaríkjunum var
talað við fólk í fimm mismun-
andi borgum og þvi annars
vegar sýndar myndir af gei-
málfinum Alf sem er vinsæl
sjónvarpsfígúra og hins veg-
ar af Michael Dukakis for-
setaefni Demókrata í næstu
kosningum.
Þótt ótrúlegt megi virðast
urðu niðurstöðurnar þær, að
u.þ.b. 86% af þeim sem voru
spurðir þekktu Alf með nafni
en aðeins 65% könnuðust við
Michael Dukakis sem hefur
þótt líklegur til að verða
næsti forseti Bandarílq'anna.
í borgunum Chicágo,
Pittsburgh, Phoenix og West
Palm Beach, þekktu fleiri
Alf en Dukakis en aðeins í
Los Angeles snerist dæmið
við.
Einn Chichagobúi
sagði,„Ég held að ég þekki
Alf betur vegna þess að hann
er fyndinn. Ég veit að hinn
náunginn er forsetafram-
Michael Dukakis er forsetaframbjóð-
andi Demókrata í næstu forsetakosn-
ingum og mun hann keppa um embæt-
tið við George Bush forsetaframbjóð-
anda Repúblikana. Geimálfurinn Alf
virðist þó vera Bandaríkjamönnum
hjartfólgnari um þessar mundir.
bjóðandi en ég man ekki hvað hann heitir. Það er ef til vill vegna þess að
Alf er hæfileikaríkari."
Annar viðmælandi í Phoenix leit á myndimar og sagði „Þetta er Alf
en hinn náunginn er pabbi hans.“ Maður nokkur í Pittsburgh þekkti
Alf undir eins en þegar honum var sýnd mynd af Michael Dukakis, sagði
hann, „Þetta er einhver stjómmálamaður. Hvemig læt ég, þetta er auðvit-
að Gary Hart!“
Gleraugnasmiður í Los
Angeles þekkti aftur á móti
Michael Dukakis en ekki Alf.
Þegar hann fór að skoða
myndina af geimálfinum bet-
ur sagði hann, „Þeir eru
a.m.k. með alveg eins
augnabrýr." Fleiri þátt-
akendur í könnuninni bentu
á að í rauninni væru þeir
nokkuð líkir. Kona nokkur
sagði, „Auðvitað þekki ég
þá báða. Þeir eru báðir mál-
glaðir, báðir vinsælir og þeir
hafa alveg sama nefið."
Margir Bandaríkjamenn
virðast ekki hafa mikinn
áhuga fyrir því hveijir koma
til með að stjóma landinu
þeirra. Vonandi hafa þeir
kynnt sér málin þegar þeir
fara inn í kjörklefann. Alf
ætti kannski að bjóða sig
fram!
Geimálfurinn Alf hefur unnið hug og
hjörtu manna um allan heim og nú
hafa Hollendingar samið lag um hann
sem hefur hlotið geysilegar vinsældir.
MANNAMÓT
30 ára Reykhyltingar hittast
ára Reykhyltingar hittust í Reykholti laugardag-
inn 18. júní sl. og áttu þar dýrlega helgi.
Komið var í Reykholt upp úr kl. 16.00 á laugardag
og þar hittust sumir í fyrsta skipti síðan 3. júní 1958
þegar skólaferðalagi lauk eftir útskrift. Mættir voru 23
af 32 sem í III. bekk voru skólaárið 1957-1958, en með
mökum taldi hópurinn 37.
Starfsfólk Hótels Eddu útbjó hina ágætustu matar-
veislu en veislustjóri var sr. Halldór Gunnarsson í Holti.
í því starfi stóð hann sig með slíkum ágætum að öllum
sem viðstaddir voru er ógleymanlegt. Til minningar um
dvölina í Reykholti færðu gestimir skólanum bókagjöf
sem skólastjórinn, Jónas Jónsson, tók á móti.
Að loknu borðhaldi var slegið upp balli og dansað til
klukkan að ganga 5 um morguninn.
Eftir hádegisverð þann 19. júní fóru gestimir síðan
frá Reykholti, staðráðnir í að endurtaka slíkan fagnað
síðar. _ D p
Morgunblaðið/Davíð Pétureson
Sr. Halldór Gunnarsson í Holti afhendir Jónasi Jónssyni skólastjóra bóka-
gjöf fyrir hönd 30 ára Reykhyltinga. Heiðursgestirnir eru Jón Þórsson
fyrrverandi kennari, kona hans Halldóra Þorvaldsdóttir, Laufey Þórmunds-
dóttir ekkja Þórs Steinþórssonar skólastjóra, núverandi skólastjórafrú og
Sara Svanlaugsdóttir.
Reykhyltingar og makar þeirra i 30 ára afmælishófinu.
Morgunblaðið/Davíð Pétureson