Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ1988 KVIKMYNDIN „LEIDSÖGUMAÐURINN* Þetta er saga um manneskjur og baráttu þeirra fyrir íifi sínu — segja þeir Nils Gaup, leikstjóri og John M. Jacobsen framleiðandi Fyrir þúsund árum sneri sextán ára drengur heim úr veiðiferð á frosthörðum mörkum Lapplands, sem nú eru nyrsti hluti Noregs. Við heimkomuna blasti við honum óhugnanleg sjón; heimili hans hafði verið lagt í rúst og foreldrar hans og systir höfðu verið myrt af hinum grimmu tsjúdenum, villimannahóp, sem ruddist yfir merkurnar rænandi og drepandi friðsama sama sem lifðu í þessu harðbýla landi. Drengurinn, Aigin, leynist á bak við hæð, á meðan tsjúdenarnir afmá allar menjar um voðaverk sín. Um síðir verða tsjúdenarnir hans þó varir, Aigin leggur á flótta með allan flokkinn á eftir sér. Honum tekst að flýja til nærliggjandi samabyggðar, þó að hann sé illa særður. Þegar hann segir tíðindin grípur mikil hræðsla um sig meðal samanna og fólkið vill strax flýja í átt til strandar, þar sem er fleira fólk og betra til varnar. Aigin neitar að fara með — hann ætlar að berjast við illvirkjana. Það verður úr að nokkrir menn verða eftir hjá Aigin og ætla að berjast með honum, en hitt fólkið heldur af stað. Þeir Aigin mega sín þó lítils gegn tsjúdenunum og þótt þeir berjist hraustlega eru allir drepnir nema Aigin. Tsjúdenarnir neyða hann til að gerast leiðsögumaður þeirra og vísa þeim veginn til strandar ... Igrófum dráttum er þetta upp- hafið að „Leiðsögumannin- um,“ norsku kvikmyndinni, sem útnefnd var til Óskarsverð- launa í ár, en hún hefur nú verið tekin til sýninga hér, í Regnbogan- um. Eins og menn rekur eflaust minni til fer Helgi Skúlason með eitt af aðalhlutverkunum í þessari mynd. Helgi leikur foringja hinna grimmu tsjúdena. Myndin er byggð á aldagamalli samasögu, „Leið- sögumaðurinn og kyndillinn," sem hefur varðveist og verið sögð mann fram af manni í gegnum aldimar, til okkar tíma. Leikstjórinn, Nils Gaup, heyrði hana hjá afa sínum, sem hafði heyrt hana hjá sínum afa, sem hafði heyrt hana frá „sögumanni," því rétt eins og ís- lendingar til foma áttu samar sér menn og konur sem flökkuðu milli byggða og sögðu sögur; vom aufú- sugestir hvar sem þeir komu og þjónuðu svipuðu hlutverki og blaða- menn og rithöfundar gera í dag. Leikstjórinn og handritshöfund- urinn, Nils Gaup, fæddist árið 1955 í Kautokeino, lítilli samabyggð í Norður-Noregi. Eftir að skyldunámi lauk ákvað hann að gerast leikari, sem var á þeim tíma fremur sér- kennilegt starfsval hjá sama, en árið 1974 fékk hann inngöngu í norska leiklistarskólann, þar sem aðeins fáeinir nemendur fá inn- göngu ár hvert. Eftir útskriftina fékk Nils Gaup nokkur hlutverk hjá norskum leik- húsum og var, auk þess, einn af stofnendum samaleikhóps. Hann hefur leikið þtjú veigamikil hlutverk í norskum kvikmyndum, skrifað eitt leikrit, eina bamaþáttaröð fyrir sjónvarp og leikstýrt bamaleikriti, sem síðar var endurskrifað fyrir sjónvarp og leikstýrði hann þeirri uppfærslu einnig. Handritið að „Leiðsögumannin- um“ bytjaði hann síðan að skrifa árið 1985 og vann að því í tvö ár, eða þar til kvikmyndavélamar gerðu draum hans að veruleika. Framleiðandinn John M. Jacobs en er í dag talinn einn fremsti kvik- myndaframleiðandinn í Noregi. Fyrsta mynd hans kom á markaðinn árið 1983, dálítið geggjuð gaman- mynd, sem hefur þá sérstöðu meðal norskra mynda, að hafa hlotið verstu gagnrýni í sögu kvikmynda- gerðar þar í landi, um leið og hún ekta. Þess vegna varð ég að finna samíska leikara og það var mjög erfitt. í fyrsta lagi eru ekki til mjög margir samískir leikarar. I öðru lagi geta mjög fáir samískir leikar- ar leikið í filmu. En ég leitaði vel og lengi og fann fólk í hlutverkin í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Vandamálið var að þetta þurfti að vera alvöru fólk, sem talaði samísku og gat leikið.“ Hver var tilgangur þinn með myndinni? „Tilgangurinn var að segja góða sögu af sömum; sýna að þeir hafa sína eigin sögu og menningu, sýna kærleika þeirra. Fólki hefur al- mennt verið nákvæmlega sama um sögu þeirra menningu og arfleifð. Þeir hafa háð harða baráttu fyrir því að viðhalda tungumáli sínu, rétt eins og aðrar smáþjóðir og þjóðar- brot.“ „Myndin hefur vakið mikla at- hygli í Noregi,’skýtur framleiðand- inn John M Jacobsen inn í, „og um 75.000 manns hafa séð hana. Að- sókn að norskum myndum þykir góð ef um 50.000 manns koma að sjá hana. Leiðsögumaðurinn hefur var meðal þeirratíu bestu í aðsókn. Arið 1986 kynnti hann myndina „Hard Asphalt" og hlaut hún út- nefningu norskra til Óskarsverð- launa árið eftir. Hún hefur síðan verið sýnd á flestum kvikmyndahá- tíðum frá Los Angeles til Moskvu. Þriðja kvikmynd hans er „Leiðsögu- maðurinn“, en hún er eina norska myndin — og sennilega sú eina skandinavíska— sem bandarískt fyrirtæki, „Carolco Pictures," hefur keypt til dreifingar. Er það fyrir- tækið sem sér um dreifingu Rambó- myndanna í því sambandi má geta þess til gamans, að í greinum bandarískra blaða kemur fram þó nokkur undr- un yfir því að mynd um sama skuli höfða svo sterklega til þessa stóra dreifingarfyrirtækis, því hún hafi verið sex sinnum ódýrari í fram- leiðslu en venjulegar bandarískar myndir, þar á meðal Rambó, og í henni sé engin stjarna.nema íslenski leikarinn Helgi Skúla- son, eins og segir í Wall Street Journal frá 21. janúar á þessu ári. Þeir Nils Gaup og John M. Jacob- sen eru staddir hér á landi í tilefni af frumsýningu myndarinnar hér, en ísland er fyrsta landið utan Noregs sem fær myndina til sýn- inga. Við hittum þá að máli og spurðum hvort myndin væri samísk eða norsk. „í Noregi er hún samísk,“ svar- aði Nils, „vegna þess að hún er á samísku. Eg held að þetta sé alveg rétt mat, því þótt hún sé framleidd sem norsk mynd, þá ijallar hún um sama og það er ekkert norskt í henni, nema leikaramir sem leika tsjúdana. Þeir eru allir atvinnuleik- arar frá Osló, nema Helgi. Það hefði aldrei gengið upp að láta norska, sænska, eða finnska leikara leika samana; það hefði aldrei orðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.