Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 4
4 B__________________MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988_ HJÁL M A R H. R A G N ARSON, TÓNSKÁLD, HJÁLMAR H. Ragnarsson, tón skáld, hefur nýlega verið útnefndur borgarlistamaður til næstu þriggja ára. „Jú, auðvitað er ég himinlifandi,“ svaraði hann þegar ég spurði hvort það kæmi sér ekki vel fyrir hann og hvort hann væri ekki yfir sig ánægður. Svarið lá svosem í augum uppi. Veit ekki afhverju ég spurði. Allri umræðu um borgarlistamann var lokið og þá var hægt að snúa sér að erindinu, sem var menningarferð Hjálmars til Kína, en þaðan kom hann rétt áður en fjölmiðlar birtu fréttina af vali Menningar- nefndar Reykjavíkurborgar. Til Kína fór Hjálmar ásamt átta öðrum tónlistarmönnum í boði Kínverka tónlistarmannasambands- ins, þeim Stefáni Edelstein, skólastjóra, Jóhönnu Laufdal, tónmenntakennara, Jónasi Tómassyni, tónskáldi, Sigríöi Ragnarsdóttur, skólastjóra, ísafirði, Herði Áskelssyni, kórstjóra, Ingu Rós Ingólfsdóttur, sellóleikara, Jóni Hlöðver Áskelssyni, skólastjóra, Akureyri, og Sæbjörgu Jónsdóttur, ritara Tónlistarskólans á Akureyri. Samband þetta sá um alla heimsóknina og skipulagði dagskrána sem hópurinn hafði í Kína. Ljósmyndir/Jónas Tómasson Barnakór í XI’AN. Urvaisnemancn i skóla tengdum Sjanghæ-tónlistarháskólanum leikur á kínverska hljóðfærið Ch’in. Yið vorum í þrjár vikur í Kína,“ sagði Hjálmar, „og megintilgang- urinn var að kynna okkur menntun, að- allega listmenntun, og þá upp- byggingu sem hefur átt sér stað eftir Menningarbyltinguna. Þar að auki kynntum við það sem er að gerast í íslenskum menningarmál- um, og ekki síst íslenska tónlist. Það gerðum við bæði með fyrirlestr- um og fundum með öðrum tónlistar- mönnum. Auk þess spiluðum við fyrir þá og sungum, lékum plötur og sýndum þeim nótur — og hlust- uðum á þeirra tónlist. Ferð okkar lá til fjögurra stórborga; Peking, XI’AN, Sjanghæ og Kanton. Við höfðum leiðsögumann með okkur í ferðinni, sem var fyrrver- andi stjómarerindreki Kína í Evr- ópu, en auk þess var móttökunefnd í hverri borg, sem undirbjó dagskrá okkar á hvetjum stað. Allur undir- búningur kínverskra var vel skipu- lagður og móttökumar voru alls staðar hlýlegar, en í raun vorum við í vinnu frá því snemma á morgn- ana, þar til seint á kvöldin. Fyrir utan að kynna fyrir okkur upp- byggingu í menntunar- og menn-. ingarmálum, gættu gestgjafar okk- ar þess að við sæjum sögustaði og mannlífið í þessum borgum." Framtíðin býr íbörnunum „Kínveijar leyna því ekki að Menningarbyltingin á sjöunda ára- tugnum oli straumhvörfum á öllum sviðum mannlífsins, og fólk sem við hittum var ekkert að skafa utan af því að Menningarbyltingin var ógnaröld og að þá hafi allt mennta- kerfi þjóðarinnar, og uppbygging á því, verið lagt í rúst. Þeir líta á þennan tíma síðan, sem tíma endur- reisnar. Það er augljóst af öllu að þeir binda mjög miklar vonir við þessa endurreisn og líta á hana sem kjamann í sókn þjóðarinnar til betra lífs og meiri lífsgæða. Þeir hafa samt ekki gleymt því, eins og marg- ir aðrir, að það er í börnunum sem besta fjárfestingin er. Þetta sjónar- mið minnir dálítið á aldamótakyn- slóðina hér. sem lagði grunninn að því velferðarþjóðfélagi sem við ís- lendingar búum nú við. Um leið og Kína er að opnast fyrir vestrænum áhrifum, þá virðist Kínveijum, a.m.k. þeim sem sinna menningar- og uppeldismálum, vera umhugað að ekki skapist rótleysi hjá uppvaxandi kynslóðum. Þeir velta því þessvegna fyrir sér, hvern- ig hægt sé að varðveita jafnvægið í samfélaginu og tryggja það að flölskylduböndin slitni ekki um leið og þjóðin tileinkar sér nýtt hag- kerfi og vestrænar hugmyndir. Þetta kom hvað eftir annað fram í samræðum okkar við gestgjafa okkar og þeir virðast fullir bjartsýni á að þetta takist. Það sem ég hreifst hvað mest af í Kína voru börnin. Þar eru börn alls staðar og maður sér þau með foreldrum sínum á götum úti, í verslunum og nánast hvar sem er. Heimur bamanna virðist ekki eins einangraður frá heimi fullorðna fólksins og á Vesturlöndum. Og þessi litlu böm hreinlega bræða i manni hjartað þegar þau horfa á mann með litlu brúnu augunum sínum, brosa og setja síðan upp þennan ómótstæðilega spurnarsvip. Við heimsóttum fjöldann allan af skólum og hittum fjölda barna við störf og leiki. Börnin í Kína hegða sér allt öðruvísi en ég á að venjast með böm og þau bera sig líka allt öðmvísi. Þau em feikilega öguð, en um leið fijálsleg í öllu fasi og það skín af þeim kæti og gleði. Þau hegða sér vel í kennslu- stundum og hegðun barna virðist ekki vera vandamál þama. Þau em óhrædd við að snerta hvert annað og taka utan um hvert annað og þau virðast gjörsamlega ófeimin við að tjá sig hvort sem það er í tónlist eða dansi — strákarnir líka. Þótt bekkimir séu miklu íjölmennari en hér heima, þá ber ekki á neinni stríðni eða óróa á milli barnanna og þau hlýða öllum fyrirskipunum kennaranna umsvifalaust — og án múðurs. Ég hef auðvitað velt því fyrir mér hversu raunsönn dæmi það em af kínverskum skólum, sem okkur vom sýnd, en þar sem við fengum að sjá skóla af öllum tegundum og stigum, bæði vel búna og illa búna, þá held ég að ekki hafí verið reynt að blekkja okkur á nokkurn hátt. Það kom líka fram í samtölum okk- ar við kennara, skólastjóra og fræðslustjóra að gagnrýni og ábendingar eru vel þegnar. Þar fyr- ir utan talar þetta fólk hispurslaust um það sem amar að og á skortir í þeirra menntakerfi. Það er alveg ljóst að Kínveijar leggja óhemju mikla áherslu á uppbyggingu menntakerfisins og hafa, a.m.k. í borgunum, náð stórkostlegum ár- angri á mörgum sviðum. Þeir hafa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.