Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.08.1988, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 1988 VEGABRÉF Vegabréf er eins konar lítil bók sem við notum þegar við ferðumst til framandi landa. Við skulum aðeins kanna nánar til hvers við notum vegabréf, en einmitt núna eru margir á ferð og flugi í sumarleyfinu. Vegabréfíð er nokkurs kon- ar alþjóðlegt nafnskírteini sem við þurfum oft að nota á ferða- lögum erlendis. í því stendur hvað við heitum, hvaðan við erum, hvað við gerum, hvemig hár okkar og augu em á litinn og hvað við emm há. í því er einnig mynd og þetta allt á að sýna og sanna hver við er- um. Lögregluyfírvöld gefa út vegabréf hérlendis en þau er líka hægt að fá í íslenskum sendiráðum erlendis. Oftast nær em nöfn bama skráð í vegabréf foreldranna og böm þurfa því ekki endilega sitt eigið vegabréf en þau geta fengið það. Sem fyrr segir em vegabréfín helst notuð þegar við ferðumst milli landa. Yfír- völd í sumum löndum vilja vita nákvæmlega hveijir em að heimsækja landið og skrá það niður. Þá verðum við að sýna vegabréfíð, oftast á flugvöllum eða við sérstök hlið á þjóðveg- um ef við emm akandi. Þá er stimplað í það hvar og hvenær við komum inn í landið og á sama hátt þegar við fömm. Stundum nægir ekki að sýna vegabréfíð þegar við komum ixm í landið sem við emm að heimsækja. Sum lönd vilja að við sækjum um dvalar- leyfí fyrirfram. Það heitir að fá áritun í vegabréfíð. Ef við hyggjumst til dæmis ferðast til Bandaríkjanna eða Frakk- lands verðum við að fara með vegabréfíð í viðkomandi sendi- ráð hér og fá í það sérstakan stimpil. Þessi stimpill eða árit- un gefur okkur leyfí til dvalar í landinu í ákveðinn tíma. íslendingar sem ferðast til Norðurlanda þurfa ekki að sýna vegabréf. Okkur er fijálst að ferðast innan þeirra án þess. Hins vegar þurfum við kannski að skipta peningum í banka á Norðurlöndunum og þá er oft beðið um skilríki. Þess vegna er það góð venja að hafa vegabréfíð alltaf með þegar við ferðumst til útlanda. Þá notum við vegabréfíð sem skilríki eða nafnskírteini því það er ekki víst að útlending- amir viðurkenni íslenskt nafnskírteini. Sumir safna líka stimplum í vegabréfíð, biðja um stimpil í það hvenær sem þeir fara milli landa og það getur verið gaman og fróðlegt að skoða það seinna hvar og hvenær við vorum á ferðinni. Pakkið bókinni inn Þessi skemmtilegi leikur krefst góðrar samvinnu. Setjist hlið við hlið eins og sést á myndinni og pakkið bókinni inn aðeins með hjálp handanna sem eru utar. Bókin á að vera vel innpökkuð og í lokin setjið þið tvær teygjur utanum hana. Morgunblaðið 12. júní Héma sjáið þið hvað varð um Moggann frá í júní. í stað þess að vera hent bjó hún Anna til hluta af fjölskyldu úr honum. Héma sjáum við móður með tvö böm annað leiðir hún en hitt ber hún í burðarrúmi. Drátthagi blýanturinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.