Morgunblaðið - 06.09.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.09.1988, Blaðsíða 12
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / LANDSKEPPNI Glæsilegur árangurí Lúxemborg Lúxemborgararsigraðir með 50 stiga mun. íslensku keppendurnir bættu sig í fjölda keppnisgreina. Stærsti sigur íslands í landskeppni GLÆSILEGASTI sigur íslend- inga á annarri þjóð í frjálsum íþróttum leit dagsins Ijós í Die- kirch í Lúxemborg á sunnudag. íslenska liðið hlaut 124 stig en Lúxemborgarar fengu 74 stig. Munurinn var því 50 stig þegar yfir lauk, en strax eftir fyrri dag keppninnar var Ijóst hvert stefndi, því þá þegar var mun- urinn orðinn verulegur. Þjóð- irnar kepptu einnig í fyrra, þá í Reykjavík, og sigruðu íslend- ingar þá með 17 stiga mun. Það er því óhœtt að segja að íslensku keppendurnir hafði staðið sig mjög vel, en margir þeirra bœttu árangur sinn verulega. enn voru komnir hingað til að bæta sig, og æfíngar und- anfarið skiluðu sér einfaldlega mjög vel,“ sagði Guðmundur Karlsson, landsliðsþjálfari í fijálsum íþróttum, eftir að keppninni lauk á sunnudag. Einnig vildi hann KristinnJens Sigurþórsson skrifarfrá Luxembourg þakka andrúmsloftinu í hópnum hversu vel hefði gengið að hvetja menn til dáða. Þátttakendur í landskeppninni voru víðar að, en frá íslandi og Lúxemborg, því einnig voru kepp- endur frá Lorraine í Frakklandi og Emilia Romagna á Ítalíu. í inn- byrðis viðureign liðanna fjögurra sigraði íslenska liðið einnig með yfirburðum. Lokastigin urðu þau að ísland fékk 223.5 stig, Lorraine 183.5, Lúxemborg 133 og Emilia Romagna 128 stig. Úrhelll og árangur Fyrri dag keppninnar rigndi lát- laust og þess vegna var fyrirfram búist við að árangur keppenda yrði frekar slakur. Sú varð hins vegar ekki raunin hjá íslensku strákunum, því fímm keppendur bættu árangur sinn þvert ofan í allar væntingar. Tvöfalt hjá Jónl Jón A. Magnússon jafnaði sinn besta árangur í 100 m hlaupi, og Forskotlð auklð Seinni daginn var komið prýði- legt keppnisveður og var því við- búið að íslensku keppendumir myndu halda áfram þar sem frá var horfíð daginn áður, við að bæta einstaklingsárangur í hinum ýmsu greinum. Þær væntingar brugðust heldur ekki. Þá bættu íslensku keppendumir sig í öllum greinum langhlaupa, og mátti sjá íslenskan keppanda á verðlaunapalli eftir 5.000 metra hlaup. Er það í fyrsta sinn í langan tíma, sem íslenskur keppandi kemst á pall í þeirri grein í keppni milli manna af ýmsu þjóð- emi. Vonandi á þessi árangur íslensku keppendanna eftir að hvetja þá til enn meiri dáða, og er nú að bíða og sjá til hvað næstu ár bera í skauti sér fyrir íslenskt frjálsí- þróttafólk. Það er hins vegar alveg ljóst að þær aðstæður, sem íslenskt frjálsíþróttafólk býr við í dag að þær em vart til þess að bæta árang- ur iens eða neins. Vonandi verður úr því bætt sem fyrst. Morgunblaðið/Einar Falur Jón Arnar Magnússon stökk 7.37 metra í langstökki og bætti þar með fyrri árangur sinn um 5 sentimetra. nokkrir aðrir voru ekki langt frá sínu besta. Jón Amar náði.einnig besta ár- angri sínum í langstökki, stökk 7.37 metra, en þess má geta að ólöglegt stökk hans mældist um 7.50 metr- ar. Yfirburðir íslenska liðsins yfir hina keppenduma vom því miklir, og eftir fyrri dag var forysta íslenska liðsins ótvíræð; 114 stig gegn 60 stigum Lúxemborgara, sem ráku lestina ásamt keppendun- um frá Emilia Romagna. í öðm sæti var hins vegar franska liðið frá Lorraine, með 82 stig. Morgunblaöið/Einar Falur Guðmundur Karlsson, landsliðsþjálfari, varð annar í sleggjukasti með tæpa 57 metra. Nánar á morgun. annan skóinn hjá Einari ■ SIGURÐUR Einarsson kom til keppninnar frá Svíþjóð, þar sem hann hefur verið við æfíngar. Hann fékk ekki allt dótið sitt með flug- inu, og þar á meðal vom skómir hans. Fyrir keppnina fékk hann lánaðan annan skóinn hjá Einari KristinnJens Sigþórsson skrifarfrá Luxemborg Vilhjálmssyni, en Einar er örv- hentur og Sigurður rétthentur, og stoppa þeir sig því ekki á sama hátt í atrennunni. Vakti það nokkra undmn annarra keppenda, og einn þeirra spurði Stefán Jóhannsson, þjálfara, hvort íslenska frjáls- íþróttasambandið væri virkilega svo fátækt, að það gæti ekki útvegað þeim báðum skó. ■ SIGURÐUR Einarsson kast- aði kúlunni í annað sinn á árinu og bætti árangur sinn um 48 cm., sem er stórgott. Hann kastaði 15.72 og sýnir það best í hversu góðri æfíngu hann er fyrir spjótkastið, því hann hefur ekki æft kúlukastið að neinu ráði i ár. í spjótkastinu var hann hins vegar langt frá sínu besta, enda var bleytan á vellinum það mikil, að ekki var hægt að taka almennilega atrennu á á vellinum. Ur spjótkastinu fór hann svo beint í kúluvarpið, og til að liðka sig fyr- ir það, tók hann eitt kast án at- rennu. Hefði það nægt honum til að ná öðm sæti. Með metkasti sínu tókst honum hins vegar að slá Ste- fáni Hallgrímssyni við, sem kast- aði lengst 15.70 m þegar hann var upp á sitt besta. Morgunblaðið/Einar Falur Siguröur Elnarsson varð að fá annan skóinn lánaðan hjá Einari Vil- hjálmssyni í spjótkastskeppninni. ■ EGILL Eiðsson bætti árangur sinn í 400 m grindarhlaupi og kom það engum eins mikið á óvart og honum sjálfum. Sagðist hann ekki hafa átt neina von á bætingu núna, og þá síst af öllu við þessi skilyrði sem þama vom, því úrhellisrigning- in, sem setti svip sinn á fyrri dag keppninnar gaf ekki fögur fyrirheit um góðan árangur í neinni grein. Egill lét sig samt ekki muna um að hlaupa á 52.80 sek, og það þrátt fyrir að hinir keppendumir hafí ekki veitt honum nokkra keppni. Eftir fyrstu 170 metrana var hann kominn með það mikla forystu að hann vissi ekki af hinum. I þriðja sæti var Guðmundur Skúlason, sem hljóp á 55.82 sek., en það er alveg við hans besta árangur í greininni. LOTTO: 10 20 23 29 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.