Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR Óbb í SEOUL ’88 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988 400GRIND „Egfann fyrir kraftleysi þegar hlaupið var hálfnað“ - sagði Helga Hall- dórssóttir, sem var langtfrá sínu besta í 400 m grindarhlaupi HELGA Halldórsdóttir, sem fékk hálsbólgu og hita, rétt eft- ir að hún kom hingað til Seo- ul, var langt frá sínu besta í 400 m grindarhlaupi — hljóp á 58.99 sek., en íslandsmetið sem hún setti í Kaliforníu rétt áður en hún hélt til Seoul, er 56.54 sek. ÆT Eg hljóp vel í byijun, en fann síðan til kraftleysis þegar ég var búinn að hlaupa 200 metra. Því miður gekk mér ekki vel — loksins þegar ég fékk tæki- færi til að keppa á Ólympíuleikum," sagði Helga Hall- dórsdóttir í viðtali við Morgvnblaðið eftir hlaupið. Eins og hefur komið fram þá veiktist Helga rétt eftir að hún kom til Seoul og gat ekki æft í nokkra daga. „Auðvitað dró það mikið úr þreki mínu að veikjast. Eg var heit og köld á víxl og sló niður tvisvar sinnum eftir að ég fór að æfa aftur.“ Tuggði hvrtlauk „Það var allt gert til að losa mig við kvefíð og slá á hitann. Ég fékk pensilíngjafir og hóstameðal og meira að segja tuggði ég hvítlauk og var ekki vinsælust hér í fijáls- íþróttahópnum - hélt hinum í hæfí- legri fí'arlægð frá mér,“ sagði Heiga Halldórsdóttir. Helga hljóp í stericasta riðlin- um Helga hljóp í sterkasta riðlinum. Sú stúlka sem kom fyrst í mark, Anita Protti frá A-Þýskalandi, setti nýtt Ólympíumet. Hún hljóp á 54.58 sek., en gamla metið átti E1 Mo- utawakil frá Marakkó, sem hún setti í Los Angeles 1984 - 54.61 sek. Fjórar fyrstu stúlkurnar í riðl- inum komust áfram, en Helga varð í fímmta sæti. íslandsmet hennar hefði ekki dugað henni til að kom- ast í undanúrslitin. SigmundurÓ. Steinarsson skrifarfrá Seoul SUND Getum verið ánægð miðaðvið persónuleg markmið - sagði Guðmundur Harðarson, sem hættir nú sem landsliðsþjálfari eftirtæplega 20 ára starf „SUNDFÓLKIÐ setti sér þau markmið að bæta persónu- legan árangur á Ólympíuleik- unum hér í Seoul. I flestum tilfellum gekk það eftir og við getum verið ánægð miðað við sett markmið," sagði Guð- mundur Harðarson við Morg- unblaðið eftir að sundkeppn- inni lauk á sunnudag. Guðmundur hefur þjálfað landsliðið meira eða minna síðan 1969, en er nú hættur. „Það lá alltaf ljóst fyrir að ég myndi hætta eftir leik- ana. Ég fer nú í frí frá sundinu og tek ekki að mér þjálfun eða nefnd- arstörf á næstunni, heidur sinni sjálfum mér og fjölskyldunni," sagði Guðmundur. Ávinningur Árangur krakkanna þolir ekki samanburð við það besta sem gerist, en framfarir einstakling- anna eru augljósar. „Helsti ávinningurinn með þátttöku á leikunum eru fram- farimar. Krakkamir hafa flest bætt sig mikið á árinu og ótrúlega mikið síðan lágmörkin vom sett. Það veitir þeim aukið sjálfstraust og viljinn til að halda áfram og gera enn betur margfaldast. Steinþór Guðbjartsson skrifar frá Seoul Guðmundur Harðarson. Þó keppninni hafí verið að ljúka eru krakkamir strax famir að tala um framhaldið og það er já- kvætt. Þau vilja ekki hvíla of lengi vegna hættu á að þyngjast og taka því fljótlega upp þráðinn að nýju,“ sagði Guðmundur. Óvissan of lengi Sundliðið var ekki valið fyrr en skömmu fyrir leikana og taldi Guðmundur að það hefði komið niður á árangrinum. „Þau vom allt árið að rembast við að ná lágmörkunum og því var undirbúningurinn ekki eins og best verður á kosið. Við höfum verið að taka þátt í mótum í Evr- ópu, þar sem auðvelt var að kom- ast áfram í úrslit, en betra hefði verið að keppa á sterkari mótum, þar sem baráttan er meiri. Það hefðum við reynt að gera ef liðið hefði verið valið í febrúar, en mótin vom valin með lágmörkin í huga.“ Fram kom hjá Guðmundi að krakkamir væm óvanir öðm en að vera á toppnum og því hefðu viðbrigðin verið mikil. Þeim hefði ekki gengið sem best í fyrsta sundi, en áttað sig og náð sér á strik aftur. Horfa til vesturs Guðmundur sagði að miklar framfarir væm almennt í sundinu og íslendingar mættu ekki sofna á verðinum. „Það er víða unnið gott starf í Evrópu og við höfum sótt mót þar, en breyting er æskileg. Næsti landsliðsþjálfari á að horfa meira í vestur og leggja þarf áherslu á að taka þátt í mótum í Banda- ríkjunum. Það er alls ekki dýrara og ömgglega árangursríkara auk þess sem það er ávallt þroskandi að koma á nýjar slóðir." Guðmundur sagði að þjálfarar fylgdust vel með öllum einstakl- ingum og samstarfíð væri gott.. „Við höfum fundið fyrir því að fylgst er með okkar krökkum, því í hvert skipti, þegar um bætingu hefur verið að ræða, hafa ófáir komið og óskað okkur til ham- ingju. Þetta hefur gengið samkvæmt áætlun og útlitið er bjart með sama áframhaldi,“sagði Guð- mundur. SIGLINGAR „Leifur heppni" er að dragast aftur úr Ssiglingamönnunum frá íslandi, Gunnlaugi Jónassyni og Ísleifí Friðrikssyni gekk ekki sem best í siglingakeppninni í Pusan á mánu- daginn. Þeir höfn- uðu í 21. sæti og eru í 24. sæti af 29 þeg- ar einn keppnis- dagur er eftir. SigmundurÓ. Steinarsson skrifar fráSeoul SUND Eðvarð og Bvyndís við sittbesta Eðvarð Þór Eðvarðsson og Bryndís Ólafsdóttir vom ekki langt frá sínu besta á sunnudaginn, en þá lauk sundkeppninni. Eðvarð fór 200 metra Ijór- sundið á 2:10.18, á best 2:09.25, og hafnaði í 27. sæti af 56 keppendum. Bryndís synti 50 metra skriðsund á 28.38 og varð í 37. sæti af 50 Steinþór Guðbjartsson skrifar frá Seoul keppendum. íslandsmet hennar er 27.41. Eðvarð synti ágætlega og stefndi lengi vel í met, en hann gaf eftir síðustu 50 metrana. Þar með lauk keppni sundfólks- ins. Ragnar Guðmundsson setti þijú íslandsmet á leikunum, Ragnheiður Runólfsdóttir tvö og Magnús Ólafs- son eitt. „Strákamir byijuðu ágætlega og vom í fjórtánda sæti. Þeir klúðmðu því sæti niður í straumi og misstu tíu báta fram úr sér,“ sagði Ari Bergmann Einarsson, flokkstjóri siglingamannanna. MATUR Siglingamenn frá Austurríki, Indlandi, Argentínu, Ungv'erjalandi og Danmörku skutust upp fyrir þá Gunnlaug og ísleif. Eðvarð Þór Eðvarðsson kemur fyrstur keppenda heim til Íslands. SPJÓTKAST íslenskir keppendur út að borða mr Íslensku keppendurnir em ekki yfir sig hrifnir af matnum í Ólympíuþorpinu og löng bið pirrar fólkið. Því hafa tvö sérsambönd bmgðið út af vananum og boðið keppendum út að borða. Handbolta- mennimir snæddu sinn kvöldverð eftir tapið gegn Svíum og sund- fólkið fór í bæinn á sunnudag. Það hefur lokið keppni en verður á staðnum út leikana nema Eðvarð Þór Eðvarðsson, sem heldur áleiðis heim á leið í dag, þriðjudag. íris Grönfeldt. 99 íi Um tíma varégað hugsa um aðhætta viðað keppa - sagði íris Grön- feldt, sem fann mikil til í öxl er hún kastaði „ÉG fann til mikilla þjáninga í öxlinni á æfingasvæðinu, þar sem við hituðum upp fyrir spjótkastskeppnina. Ég kast- aði spjótinu ekki lengra en fjörtíu metra. Þá fór ég að hugsa um það hvort ég ætti nokkuð erindi inn á Ólympíu- leikvanginn til að keppa og var að að hugsa um að hætta við að fara þangað. Ég ýtti þessum hugsunum frá mér, því að ég gerði mér grein fyrir því að það væri skammarlegt að renna af hólmi á síðustu stundu," sagði íris Grönfeldt, sem náði sér aldrei á strik í spjótkast- skeppninni — kastaði spjótinu lengst 54 m. Eg ákvað að bíta á jaxlinn, því að ég var í mjög góðu ástandi andlega og það var eins og ég efld- ist þegar inn á völlinn var komið. Mig verkjaði í öx- lina, sem var stokk- bólgin þegar ég bytjaði að kasta,“ sagði Iris. íris, sem hefur kastað lengst 62.04 m, meiddist á hægri öxl í maí og var hún frá keppni um tíma. „Meiðslin komu upp á varsta tíma fyrir mig, því að þegar ég meiddist var ég í stöðugri sókn og var búin að ná góðu valdi á 60 metra köst- um. Ég var í meðferð hjá læknum í þijá mánuði og var orðin góð þeg- ar ég hélt hingað til Seoul. Fljótlega eftir að ég kom hingað fóru bólgur að koma fram í öxlinni. Þetta er bölvanlegt, því að ég hef verið í mjög góðu formi til að bæta mig — aldrei verið eins sterk líkamlega og andlega. Það er því grátlegt að öxlin hafí gefið sig núna,“ sagði Iris. íris kastaði aðeins 54.28 m og varð í 27. sæti af 29 keppeendum í spjótkastskeppninni. Til að komast áfram urðu kastararnir að kasta yfír 60 m. „Ég er ákveðinn að taka mér nú frí frá æfingum og keppni fram að áramótum. Fá mig algjörlega góða í öxlinni - án þess að ganga á milli lækna til að halda sér góðri,“ sagði íris. Aðstædur upp á það besta íris sagði að allar aðstæður séu upp á það besta í Ólympíuþorpinu í Seoul. „Það er góð stemmning í hópi fijálsíþróttamanna og það hef- ur haft mikið að segja að hafa nudd- ara með í mót í fyrsta skipti," sagði hún, en Örn Jónsson kom með fijálsíþróttamönnunum hingað til Seoul. SigmundurÓ. Steinarsson skrifar frá Seoul

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.