Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 08.10.1988, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 GUÐRUN GUNNARSDOTTIR VEFLISTARKONA Ég held ég á kubbast í HÉÐfNSHÚSINU vid Seljaveg, hátt yfir skarkala borgarlífsins, situr kona ein við vefnað. Hvort hún spinnur ntönnum örlagavef skal látið ósagt hér, en teppin hennar, svört og rauð og blá, verða t.ii sýnis á Kjarvalsstöðum næst u vikurnar. I»að er sýning veflistarkonunnar Guðrúnar Gunn- arsdóttur, sem hér um ræðir og verður hún opnuð í dag. I>aó var ekki auðvelt að finna vinnustofu Guðrúnar, því Héðinshúsið hefur nokkrar dyr og óskaplega rnargar ha»ðir og ótal glugga. l>egar vinnustofa íhiðrúnar fannst loksins var hún stór, björf og vistleg, en afþví fyrirhöfnin varæði inik- il var Gnðrún fyi-st spurð hvernig hún hefði rainb- að á þessa aðstöðu í upphafi. seenn iginu Þannig var að ég hafði lengi verið með vinnu- stofu heima, í pínulitlu herbergi og það hafði mikil áhrif á það sem ég var að gera. Myndimar voru stöðugt að minnka hjá mér, voru orðnar pínu- litlar. Ég var hætt að geta hugsað út fyrir þennan þrönga ramma. Svo frétti ég af því að hér væri laust húsnæði og rauk af stað til að sækja um það. Hér hafði verið smíðaverk- stæði, herbergið var troðfullt af spýt- um, nöglum og dóti. Ég fékk það með því skilyrði að ég hreinsaði út og veistu, draslið var svo mikið að ég var í heilan mánuð að því. Smiður- inn sem hafði verið héma var dálítið sérstakur. Fólk var stundum að koma til hans og biðja hann að lána sér nagla, eða smáspýtu, sem það vant- aði. En hann gat aldrei lánað neitt, því hann þurfti einmitt alltaf að nota það sem beðið var um. Svo mokaði ég öliu draslinu út og fór með það 1 á haugana. Þetta var fyrir tveimur ámm. Svo kom ég mér fyrir með mína vefstóla, hillur og dót og tók að undirbúa þessa sýningu." Það er athygllsvert hvað marg- ir textfllistamenn eru að halda einkasýningar núna. Af hveiju heldurðu að það sé? „Ætli það sé ekki bara af því við eram allar komnar á þennan aldur. Við eram flestar komnar um og yfir fertugt, bömin orðin stór, við orðnar miklu ftjálsari og getum farið að gera það sem okkur hefur alltaf lang- að til. Við eram allar, textíllistakon- umar, búnar að vinna við þetta lengi, en kannski núna fyrst sem aðstæður leyfa okkur að snúa okkur nærri al- farið að listinni," svarar Guðrún, en hún hefun eins og flestar textfllista- konur á Islandi, unnið við hönnun. Guðrún hefur í mörg ár unnið sem hönnuður hjá Álafossi, þar sem hún var í hálfu starfi fram til ársins 1986. Síðan hefur hún verið í lausa- mennsku þar og er um þessar mund- ir að hanna værðarvoðir. í spjalli okkar kemur fram að hún hefur búið víða og hefur sterkar taugar til dreifbýlisins. „Ég er fædd í Borgamesi," segir Guðrún, „og var þar til fjórtán ára aidurs. Þá flutti ég til Reykjavíkur og fannst það mjög leiðinlegt. Þetta var á þeim aldri sem maður er svo óöraggur. Ég fer alltaf einu sinni á ári í Borgames. Geng í flöranni þar sem ég lék mér f sem bam, skoða húsið sem ég bjó í. Það er svo pínulítið og mér fannst það svo stórt og fjaran, hún er ekki neitt neitt. En ég þekki orðið mjög fáa þar.“ Af hverju ferðu þangað? „Já. Það er svo sktýtið að í þeirri vinnu sem ég er að vinna í dag era einhver tengsl við þessar slóðir. Ég fer aftur á bak í eitthvað sem ég hélt að væri gleymt. Þegar ég hef lokið við verk og horfi á það sé ég Tónleikar nauðsynleg- ir til að komast lengra Jónas Ingimundarson píanóleikari er nýkominn úr tónleikaferð til ísafiarðar þar sem hann lék á minningartónleikum um Ragnar H. Ragn- ars. Jónas gerði víðreistara en á ísafiörð; hann hélt einnig tónleika í Bolungarvík, Flateyri og í Stykkishólmi. Jónas heldur tónleika á Selfossi í dag og annað kvöld í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Það er tæplega á nokkum hallað þó sagt sé að Jónas Ingimundarson hafi ver- ið einna ötulastur á síðustu tveimur áratugum við tónleikahald vítt og breitt um landið; hann hefiir kynnt íslenska samtimatónlist og einnig hefur hann haldið hróðri hinna gömlu meistara vel á lofti. En Jónas hefur frá fleim að segja en tónleikahaldi utan borgar og innan; fyrir dymm standa ljóðasöngstónleikar í Gerðubergi sem hann hefur haft veg og vanda af að skipuleggja. Yið ræddum fyrst um tónleikahald Jónasar víðs vegar um landið í gegnum árin. „Ég hef gert töluvert af því að fara út um land. Hef farið á hveiju ári frá því 1970 og er búinn að spila margsinnis á velflestum stöðum á landinu. Sem meðleikari með söngv- uram hef ég einnig farið oft um landið. Það er mikil vinna að und- irbúa eina tónleika og þar sem ég er ákaflega eðlislatur maður og fæddur þreyttur, þá finnst mér sjálf- sagt að flytja efnið á fleiri en einum tónleikum eftir allt sem búið er að leggja á sig. En auðvitað vill maður einnig veita fólki hlutdeild í því sem maður er að fást við.“ Þegar talið berst að aðstæðum til tónleikahalds á landsbyggðinni og viðtökumáheyrendasegirJónas. . . „Ég er iðulega beðinn um að koma aftur til tónleikahalds og sé ekki ástæðu til að kvarta undan aðsókn á tónleika mína. Það er erfitt að segja hvers vegna fólk kemur og hvers vegna ekki. Ef mikil vinna er í gangi á staðnum þá er eðlilegt að fólkið hafí ekki tíma til að koma og hlusta á einhvem mann spila á píanó. Eins getur verið fátt á tónleikum ef eitthvert stórmennið á staðnum á afmæli einmitt á sama tíma. En það getur einnig staðið svo vel á að áhorf- endur verði á milli eitt og tvö hundr- uð. Það skiptir mig reyndar afskap- lega litlu máli hvort ég spila fyrir 20 manns eða 200 manns. Maður reynir að leggja sig fram. Ég hef það fyrir reglu núorðið að kynna sérstaklega það efni sem ég flyt hveiju sinni. Ég byijaði á þessu fyrir löngu og nú er svo komið að ég er oft beðinn sérstaklega um að kynna efnið. Þó er auðvitað ljóst að ekki er hægt að fjalla um tónlist í töluðu máli nema að takmörkuðu leyti, en ég reyni að veita áheyrend- um upplýsingar um tilurð verkanna og kannski helstu atriði er varða höfundinn. Yfirleitt er tónleikahald sem þetta skipulagt í gegnum tónlist- arfélögin á stöðunum eða tónlistar- skólana en mér er til efs að fólk geri sér almennt grein fyrir því að í landinu eru starfandi um 70 tónlist- arskólar og nemendur í þessum skól- um era um tíu þúsund. Víða um land hafa heimamenn af miklum metnaði skapað góða að- stöðu til tónleikahalds; byggt vönduð félagsheimili og keypt góð hljóðfæri. Það er sjálfsagt að koma til móts við þennan metnað og leggja sitt af mörkum. Þessi tónleikaferð sem ég er nýkominn úr um Vesturland var upphaflega miðuð við ísafjörð ein- göngu en auðvitað var sjálfsagt að fara í leiðinni til Bolungarvíkur og á Flateyri. Á heimleiðinni vildi ég koma við í Stykkishólmi og spila á hljóð- færið þeirra sem er afbragðsgott en einnig era úrvals hljóðfæri víðar á landinu. Satt að segja vora hljóðfærin á þessum stöðum til skamms tíma betri en þau sem buðust til tónleikahalds hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Nú hefur þetta breyst, Norræna húsið keypti flygil fyrir hálfu öðru ári, þá er komið úrvals hljóðfæri hér í Gerðu- berg og nýbúið er að festa kaup á flygli fyrir Óperana sem vígður verð- ur 22. október næstkomandi. Við Halldór Haraldsson píanóleikari fór- um út í byijun september til að velja hljóðfærið hjá Steinway & Sons. Það era Styrktarfélag íslensku óperann- ar og Tónlistarfélag Reykjavíkur sem standa að þessum kaupum." Hér má skjóta því inn að í bytjun nóvember ætlar Sólrún Bragadóttir, sem nú syngur í óperanni í Kaisers- lautem í Þýskalandi, að koma heim og þau Jónas ætla að flytja söngdag- skrá í Óperanni. Ég spyr Jónas hvers vegna hann hafi lagt svo mikla áherslu á tón- leikahald á landsbyggðinni. „Það hljómar kannski oflátungslega að kalla þetta trúboð. En þegar búið er að eyða ævi sinni í tónlistina vill maður að aðrir njóti hennar með manni. Málarinn þarf að halda sýn- ingar af og til og skáld þurfa að gefa út sögur sínar og ljóð. Þetta er ekki endilega gert til að vekja athygli á persónu sinni heldur til þess að komast lengra í leit sinni og listsköpun. Sökkva sér enn dýpra.“ En hvað ræður valinu þegar sett er saman efnisskrá fyrir tónleika? „Þegar ég set saman efnisskrá reyni ég að hafa nokkra breidd í verkefna- valinu. Aðalatriðið er að fljitjandinn finni sig í því sem hann er að gera. Á efnisskránni sem ég er með núna er t.d. mikið af íslenskum verkum. í gegnum árin hef ég reynt að gera nokkuð af því að kynna verk íslenskra samtímahöfunda. Mér finnst þjóðin eiga heimtingu á því að fá að vita hvað tónskáldin era að fást við. Hvað efnisskrá varðar segir sig sjálft að um leið og maður hefur valið eitt verk þá takmarkast valið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.