Morgunblaðið - 08.10.1988, Page 8

Morgunblaðið - 08.10.1988, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988 ÞJÓÐL'EIKHUSIÐ í GAMLA BÍÓI „Hamarinn“ eríyrirböm, „ pabba, mommur, • a&ogömmur SEGIR BRYNJA BENEDIKTSDÓTTIR LEIKSTJÓRI ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ og íslenska óperan hófu I haust samstarf um nýtingu húsnæðis eins og menn eflaust muna. Og strax var haf- ist handa að æfa i báðtun húsun- um. í Þjóðleikhúsinu fóru af stað æfingar á óperunni Ævintýrí Hoffmanns, sem von bráðar verður frumsýnt. í Gamla bíói létu leikarar og tónlistarfólk hendur standa fram úr ennum við að koma barna- og unglinga- leikrítinu „Hvar er hamarinn?“ á fjalirnar og er frumsýning í dag, laugardag. Hvar er hamarinn? var fyrst frumsýnt á M-hátíð á Isafirði í júní 1987. Síðan var farið með verkið i ieikför nm Vestfirði og Vesturíand. Vegna þrengsla í Þjóðleikhúsinu tókst ekki að koma nHamrínum“ þar fyrir á síðasta leikárí, svo Reyk- víkingar fa núna fyrst tækifæri til að beija verkið augum. Höfúndur leikrítsins er Njörð- ur P. Njarðvík og sækir hann efniviðinn í Þrymskviðu. Hjálm- ar H. Ragnarsson hefúr samið tónlist við sýninguna, en í henni er fjöldi söngva, og undirleik annast leikarar og tónlistarfólk. Leikmynd og búninga teiknaði Sigurjón Jóhannsson og Björn Bergsteinn Guðmundsson sér um lýsingu. Leikstjórí „Hamarsins“ er Brynja Benediktsdótdr og aðstoðarmaður hennar Sólveig Pálsdóttir. Onnur sýning er á morgun, sunnudag, en eftir það fer hópur- inn í leikferð til Berlinar á „Berl- iner Festtager", sem er alþjóðleg leiklistar- og tónlistarhátíð og verður þvi sýningahlé til 22. október. „Okkur er boðið út af Þýska al- þýðulýðveldinu og þetta er glæsi- legt boð,“ segir leikstjórinn, Biynja Benediktsdóttir, „því Þjóðverjamir sjá alveg um okkur frá því við leggj- um af stað frá hlaði Þjóðleikhúss- ins, þar til við komum þangað aft- ur. Þeir senda meira að segja rútu eftir okkur til Hamborgar, en þang- að fljúgum við. Vegna anna allra þeirra sem eru í sýningunni dveljum við aðeins í Qóra daga í Berlín og verðum með tvær sýningar í Maxim Gorkf-leik- húsinu. Við hefðum helst viljað i dvelja þama lengur og fylgjast með | þessari hátíð, en um það var ekki að ræða.“ Hvers vegna er þessi sýning send á hátiðina? „Ég fór með ínúk á þessa hátíð árið 1978 og það sló svo rækilega í gegn að það var ótrúlegt. Síðan hafa mér borist bréf við og við með boð um að koma með aðra sýningu og þegar boð kom um að koma á hátíðina í ár ákvað leikhússtjóri Þjóðleikhússins að þiggja boðið. Það er dáh'tið skemmtileg tilvilj- un, að ég er núna að leika í Marm- ara, en ég hef ekki stigið á leiksvið í 10 ár, eða síðan ég var með ínúk á þessari hátfð. Þessi sýning var upphaflega hðnnuð sem ferðatöskuleikhús og er því mjög ólík öðrum sýningum. Hlutur leikara er svo stór, fyrir utan að leika og syngja annast þeir allan hljóðfæraleik, áhrifshljóð og sviðsskiptingar. Það er nú í raun- inni ómannleg krafa að ætlast til þess að fínir fingur til dæmis flautu- og fiðluleikara kasti frá sér hljóð- fæmm, grípi þunga kassa og svipti þeim um sviðið. Reyndar fáum við allan mann- skap til að sinna tæknimálum frá leikhúsinu f Berlín, nema ljósa- meistara, en hann tökum við með. Svo fer blaðafulltrúi Þjóðleikhúss- ins, Signý Pálsdóttir, með okkur. Þetta er því mjög lítill hópur sem fer þama út og þetta verður hörku vinna - ekkert annað.“ En svo við snúum okkur að uppsetningunni, þá virðist mér sýningin ha£a breyst nokkuð frá því hún var sýnd á M-hátíðinni. Já, það er nú oft svo, að þegar leikstjóri fer að vinna eftir handriti þá vakna ótal hugmyndir um þá möguleika sem leikhúsið hefur upp á að bjóða. Auðvitað var Þryms- kviða leikin hér til foma. Hún hvílir kannski á sömu undirstöðu og Commedia dell’Arte-leikhúsið sem má rekja til fomaldar í gegnum Róm og alla leið til Grikklands. „Hamarinn" okkar er ærslaleikur eins og ég imynda mér að Þryms- kviða hafi verið, skaup og gleðileik- ur. Leikhús er í eðli sínu „absúrd". Við eram ekki að líkja eftir veraleik- anum. Við eram að stækka og ýkja og f uppsetningunni miða ég við að áhorfendur þurfi ekkert að vera Eddufróðir, þó ég vísi oft í öll gömlu táknin úr goðafræðinni, heldur meðtaki þeir ævintýrið og njóti sýn- ingarinnar eins og þegar þeir hlusta t.l.l.U á tónleika. Þetta er ævintýrið um heimsku og ráðleysi hins hrökafulla — og mér er nóg að sýningin veki kátínu og gleði, en umfram allt forvitni.“ En er þetta efhi ekki fúllfræði- legt til þess? „Nei, alveg öfúgt. Þetta er söng- leikur, í lit og hreyfíngu með skemmtilegum texta, en þegar við föram til Beriínar munu Þjóðveijar meðtaka sýninguna á íslensku, án þess að þekkja annað en söguþráð- inn úr Þiymskviðu. Þetta á ekki að svara neinum spumingum. Böm- in fá sína fræðslu í skólum og kannski verður þessi sýning til þess að vekja áhuga þeirra á að opna Eddumar og kynna sér Þryms- kviðu. Þá yrðum við öll glöð sem að henni stöndum. Mér þætti ánægjulegt að sýning- in höfðaði til unglinganna, en það sem er svo ánægjulegt fyrir okkur sem vinnum í leikhúsi, er að þar era engin kynslóðaskipti. Á bama- sýningar koma mömmur, pabbar, ömmur og afar og þetta er virkilega eitt aí þeim verkum sem allir ald- urshópar geta notið. En þó ég vilji fyrst og fremst þjóna krökkunum, þá held ég að allir foreldrar skynji og skilji þá gleði sem fylgir því að fara með bömin í leikhús, eiga með þeim stund frá þessu vinnuæði sem hér ríkir og geta sfðan rætt saman á eftir. Ég held það sé alltaf þess virði að taka sér frí frá vinnuhörk- unni til að fara með bömin sín í leikhús,“ sagði Brynja að lokum. Með hlutverkin í sýningunni fara Öm Ámason, sem leikur Þór, Rand- ver Þorláksson, sem leikur Loka, Freyja er í höndum Lilju Þóris- dóttur og Erlingur Gfslason leikur sjálfan Þrym. í hlutverkum ása og jötna era leikarar og tónlistarfólk; leikaramir spila á hljóðfæri og hljóðfæraleikaramir flytja texta, Ólafúr Öm Thoroddsen leikur á gítar og slagverk, Valgeir Skag- fiörð á harmónikku og gítar, Eyþór Amalds á selló, Herdís Jónsdóttir á lágfiðlu, en eftir sýningamar í Berlín heldur hún til Stuttgart til framhaldsnáms og við hennar hlut- verki tekur Hlíf Siguijónsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir leikur á flautu og Vigdís Klara Aradóttir á klarínett og saxófón. Sýningamar í dag og á morgunn verða klukkan 15.00. 8SV

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.