Morgunblaðið - 20.12.1988, Page 2
KNATTSPYRNA
Fyrrum þjálfarí ÍBA
í ævilangt bann
Jack Johnson, fyrrum þjálfari
ÍBA-liðsins í knattspymu, var
um helgina dæmdur í ævilangt
bann frá knattspymu í Kenýa.
Johnson, sem þjálfaði ÍBA í 1.
deildarkeppninni 1974, var
dæmdur f bannið fyrir að ganga
f skrokk á dómara. Sá atburður
átti sér stað eftir að besta lið
Kenýa, Gor Mahia, hafði tapað
leik, 0:2.
Þá vom tveir leikmenn Gor
Mahia, sem réðust einnig að dóm-
aranum, dæmdir í eins árs bann.
Johnson var vel kunnur hér á
ámm áður. Hann ferðaðist með
Jóhannes Eðvaldsson til Frakk-
lands, þar sem Jóhannes æfði hjá
nokkmm félögum. Johnson kom
Jóhannesi síðan til Holbæk í Dan-
mörku, þar sem Jóhannes lék áður
en hann gerðist leikmaður Celtic
í Skotlandi.
MORGUNBLAÐIÐ
\ 111 q j cj, r i rc (ii /
20. DESEMBER 1988
Varamenn í
sviðsljósinu
LIÐi Boston Celtics hefur
gengið illa í vetur, einkum eftir
að stórstjarnan Larry Bird
meiddist. Á föstudag gátu þó
leikmenn liðsins fagnað eftir
að hafa lagt sjálfa meistarana
frá Los Angeles að velli í hinu
60 ára stálgrindahúsi, Boston
Garden. Boston vann örugg-
lega 110:96 og lögðu varamenn
Celtics grunninn að þessum
sigri liðsins, skoruðu 38 stig
gegn 21 stigi varamanna Lak-
ers.
Þjálfari Boston, Jimmy Rodgers,
lýsti því yfir þegar hann tók
við liðinu í haust að hann myndi
láta varamenn liðsins spila meira
en K.C. Jones gerði
Gunnar þegar hann var með
Valgeirsson liðið. Því hafa yngri
skrífar leikmenn liðsins
fengið að spreyta
sig meira en áður og á föstudag
gekk dæmið upp hjá Rodgers. Bost-
on réði gangi leiksins frá upphafí
og Lakers náði aðeins að minnka
muninn í sex stig í síðari hálfleik,
en þá juku leikmenn Boston aftur
muninn og sigruðu örugglega
110:96 eins og fyrr segir. Danny
Ainge var stigahæstur hjá Boston
með 25 stig, en næstur kom Reggie
Lewis, ungur bakvörðUr, með 22
stig. Hjá Los Angeles var „Magic“
Johnson allt í öllu og langstigahæst-
ur með 31 stig.
í leiknum var Kareem Abdul-
Jabbar kvaddur með virktum, en
þetta er síðasti leikur hans í Boston
Garden, nema að liðin hittist í úrslt-
um í vor. Áhorfendur stóðu upp og
hylltu kappan stanslaust í fjórar
mínútur. Var hávaðinn slíkur að
þulur Celtics varð að bíða með frek-
Óvæntur sigur
V Þjóðveija
Unnu Svía í úrslitaleik Davis-bikarsins
VESTUR—ÞJÓÐVERJAR komu
mjög á óvart er þeir sigruðu
Svía í úrslitaleik Davis-bikars-
ins ítennis á leirvellinum í
Gautaborg um helgina. Svíar
höfðu verið taldir með mun
sterkara lið, með Stefan Ed-
berg og Mats Wilander í broddi
fylkingar, en Þjóðverjar sýndi
mikið keppnisskap og sigruðu
örugglega, 4:1.
Það sem kom mest á óvart var
fyrsti leikurinn. Þar áttust við
Svíinn Mats Wilander og Þjóðveij-
inn Carl-Uwe Steeb og bjuggust
flestir við öruggum sigri Svíans.
Hann er talinn besti tennisleikari
heims um þessar mundir og trónir
á toppi heimslistans. Steeb hefur
hinsvegar mátt dúsa í 74. sæti á
þessum sama lista.
Wilander náði frumkvæðinu og
sigraði í fyrstu lotunni sem var
mjög spennandi, 10:8. Önnur lotan
var auðveldari og Wilander sigraði
örugglega, 6:1.
Wilander þurfti því aðeins eina
lotu í viðbót til að tryggja Svíum
fyrsta vinninginn og áttu fæstir von
á því að það yrði erfitt. En Steeb
var á öðru máli. Hann sigraði í
þriðju lotunni, 6:2 og 6:4 í þeirri
næstu.
Staðan var því jöfn, 2:2, fyrir
síðustu lotuna. Wilander byrjaði vel
og náði forystnunni. Hann virtist
vera með sigurinn vísan er hann
var yfír, 6:5, en Steeb lék mjög vel
og sigraði 8:6.
Eftir leikinn fagnaði Steeb inni-
lega og faðmaði þjálfara liðsins,
Niki Pilic. Sá hafði tekið Steeb fram
yfír Eric Jelen sem flestir álitu
sterkari. „Mig hafði dreymt þetta
í nokkra mánuði en ég trúi þessu
ekki enn,“ sagði Steeb eftir leikinn.
„Hann kom mér á óvart með því
að leika mjög vel og ná fleiri boltum
en ég átti von á, sérstaklega með
bakhöndinni. Annars var ég orðinn
mjög þreyttur í lokin og fannst mér
ekki verða neitt ágengt," sagði
Wilander.
Öruggt hjá Becker
Boris Becker sigraði svo Stefan
Edberg örugglega, 6:3, 6:1 og 6:4.
Edberg átt aldrei möguleika gegn
Becker sem lék af krafti. „Mér
fannst ég alltaf vera skrefí á eftir
honum," sagði Edberg.
Næsta viðureign var tvíliðaleik-
ur. Stefan Edberg oa Anders Jarryd
mættu Boris Becker og Eric Jelen.
Svíamir byrjuðu vel og náðu yfir-
höndinni með sigri í tveimur fyrstu
lotunum, 6:3 og 6:2. Svíar virtust
vera komnir með nokkuð öruggan
vinning en annað kom á daginn.
Becker og Jelen sneru töpuðum leik
sér í vil og unnu næstu lotu 7:5.
Það var mikið áfall fyrir Edberg
og Jarryd og eftir það náðu þeir
sér ekki á strik. Þjóðveijamir léku
hinsvega á alls oddi og sigmðu í
tveimur síðustu lotunum, 6:3 og 6:2.
Fyrsti slgur Þjóöverja
Þar með höfðu V-Þjóðvetjar látið
allar hrakspár sem vind um eyru
þjóta og tryggt sér sigur í Davis-
bikamum í fyrsta sinn. Mjög óvænt-
ur sigur. Svíamir voru taldir með
mun sterkara lið, vom á heimavelli
og léku á leirvelli, en þar hefur
þeim alltaf gengið betur.
Tveir leikir vom þó eftir. Stefan
Edberg náði að laga stöðuna með
sigri á Carl-Uwe Steeb 3:0. Svíar
ari kynningu í þessar mínútur. Var
sýnilegt að áhangendur Boston
kunnu vel að meta framlag Jabbar
í gegnum tíðina þótt hann hafi oft
reynst heimaliðinu erfíður.
Boston vann annan góðan sigur
á sunnudag þegar liðið fékk New
York í heimsókn, en fyrir leikinn
hafði Knicks unnið sex leiki í röð.
Boston vann 117:104 og var Ro-
bert Parrish í miklu stuði með 34
stig. Á sama tíma tapaði L.A. La-
kers sínum þriðja leik í röð, nú
115:110 í Washington. Lakers hef-
ur verið á erfíðu ferðalagi gegn lið-
um f Austurdeildinni og þrátt fyrir
að liðið næði 20 stiga forystu í fyrri
hálfleik, dugði það ekki til sigi’.rs.
Spurs gengur illa
San Antonio Spurs hefur gengið
illa undanfarið. Liðið hefur tapað
sjö leikjum í röð eftir tap fyrir
Houston á sunnudag, 120:109. Ekki
hefur endukoma Péturs Guðmunds-
sonar hjálpað mikið til, en hann hóf
aftur keppni fyrir rúmri viku. Pétur
hefur reyndar ekki spilað mikið
síðan hann kom aftur.
AHord til Golden State
Steve Alford, bakvörður hjá Dall-
as, var seldur til Golden State fyrir
helgi. Alford var stórstjama í há-
skólakörfuknattleiknum hjá Indi-
ana en hefur ekki náð sér á strik
í NBA-deildinni, mörgum körfusér-
fræðingum til óblandinnar ánægju.
Margir þeirra sögðu að hann ætti
aldrei möguleika í harðri keppni
atvinnumanna vegna smæðar
sinnar og hefur hann lítið fengið
að spila með Dallas.
■ Úrslit/B7
■ Staðan/B7
UMANNY KALTZ skoraði sigur-
mark HSV í úrslitaleik Merdeka-
knattspyrnumótsins árlega um
helgina. Mótheiji HSV var Swarov-
ski Tirol frá Áusturríki og urðu
lyktir leiksins 1:0 fyrir HSV.
UÞAÐ kom fáum á óvart, að þau
Florence Griffith Joyner og Carl
Lewis voru útnefnd íþróttamaður
og kona ársins í árlegu kjöri 400
íþróttaforkólfa og fréttamanna í
Monte Carlo, en kjörið að þessu
sinni fór fram um helgina. Voru
yfirburðir þeirra umtalsverðir.
UÁKVEÐIÐ var um helgina að
Evrópukeppni Landsliða árið
1992 muni fara fram í Svíþjóð, en
ekki á Spáni, eins og alveg eins
var reiknað með. Frá því var greint
í aðalstöðvum UEFA, að Svíþjóð
hefði orðið fyrir valinu vegna þess
að Ólympíuleikamir 1992 fara fram
í Barcelona.
UBOBBY ROBSON landsliðsein-
valdur Englands átti glaðan dag á
sunnudaginn er enska knattspymu-
sambandið samþykkti að fresta öll-
um leikjum 1. deildar Qórum dögum
fyrir mikilvægan HM-leik gegn
Álbaníu í mars næst komandi.
Einnig fylgdu vilyrði að hafa svip-
aðan hátt á fyrir mikilvæga lands-
leiki á næsta ári.
■EFRKÍ/ðflandsliðsþjálfari Aust-
ur Þýskalands, Jörg Berger, hef-
ur verið skipaður þjálfari Eintrakt
Frankfurt, í stað Pals Csemai,
sem ekki hefur náð árangri á þessu
keppnistímabili. Berger hefúr
þjálfað Freiburg að undanfömu.
USJÖ íþróttamenn hafa verið
dæmdir í keppnisbann í óákveðinn
tíma, eftir að hafa tekið þátt í
mótum í Suður Afríku. Þeir þekkt-
ustu á listanum em Tom Petran-
off spjótkastari og kúluvarparinn
Dave Laut.
Reggle Lewls sést hér fyrir miðju fagna á bekknum hjá Boston Celtics. Hann átti stórleik gegn Los Angeles.
Boris Beckers, tenniskappinn
snjalli.
gáfu svo síðasta leikinn vegna
meiðsla.
„Þetta var stærsti sigur minn og
skiptir mig meira máli en sigrar
mínir á Wimbledon. Við unnum
Svía í Svíþjóð á leirvelli og það
gerir sigurinn enn sætari," sagði
Becker. „Davis-bikarinn stendur
yfír allt árið og er mun meiri keppni
en til dæmis Wimbledon," sagði
Becker. Þetta tap var Svíum
gífúrleg vonbrigði. Þeir léku til úr-
slita 5. árið 5 röð og hafa fjórum
sinnum sigraði í keppninni, síðast
í fyrri er þeir sigruðu Indveija í
úrslitum, 5:0. Rúmlega 11.000
áhorfendur voru mættir til að hvetja
liðið á vellinum í Gautaborga og
urðu þeir fyrir miklum vonbrigðum.
FOLK
UÞAU undur og stórmerki hafa
gerst, að sovéskt knattspymufélag
hefur fest kaup á erlendum leik-
manni og er þar með brotið blað í
knattspymusögu Sovétríkjanna.
Félagið sem steig þetta djarfa skref
í fijálslyndisátt var Vængimir frá
Kuibyshev, en það leikur í 2. deild.
Leikmaðurinn merki heitir aftur á
móti Tenyo Minchev og er 34 ára
gamall Búlgari. Það var tekið fram
að hann verður með um 37.000
krónur í mánaðarlaun og svo fær
hann e.t.v. einhvem glaðning þegar
sigur vinnst.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
TENNIS