Morgunblaðið - 20.12.1988, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.12.1988, Qupperneq 5
4 B MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR ÞREDJUDAGUR 20. DESEMBER 1988 B 5 ÍHémR FOLK MAJAX hélt áfram sigurgöngu sinni í hollensku deildarkeppninni um helgina, sigraði Willem 2. 5:2 á útivelli. Þeir sem skoruðu mörkin voru Witscge, Bergkamp, Winter, Roy og Pettersen. Ajax er aðeins einu stigi á eftir PSV sem vann Utrecht 3:1. Brasilíumaðurinn Romario skoraði tvö mörk fyrir PSV á síðustu mínútum leiksins. B BENFICA náði að sigra Sport- ing Lissabon 2:0 í portúgölsku deildarkeppninni í knattspyrnu. Mats Magnusson og Pacheco skoruðu mörkin. Benfica hefur nú 30 stig eftir 18 umferðir , en Porto hefur 26 stig og er raunverulega eina liðið sem getur sótt að Benfica. MFYRRUM meðlimur í útlend- ingaherdeildinni, Steve Tunstall, sigraði glæsilega í víðavangshlaupi sem fram fór í Wales um helgina og keppti þó meðal annarra ekki ómerkilegri hlaupari heldur en John Ngugi frá Kenía, sem unnið hefur heimsbikarinn í víðavangshlaupi eigi sjaldnar en þrisvar sinnum. Tunstall er Breti, en var í útlend- ingaherdeildinni á Korsíku í fimm ár og öðlaðist þar mikinn líkams- styrk. Landi hans, Dave Lewis varð annar og ætlaði sér sigurinn. En lokaspretturinn var allur upp í móti og þá kom betra úthald Tun- stalls berlega í ljós. ■ FORRÁÐARMENN knatt- spyrnufélagsins Galatasarai frá Tyrklandi naga nú á sér neglumar af ótta við aðgerðir allra mögulegra’ aganefnda eftir að lögreglan í Inst- anbúl flaugst á við hjörð af áhang- endum félagsins um helgina. Voru 60 manns handteknir og flestir reyndust hafa vopn innan klæða. Voru t.d. teknir margir „kebab- hnífar" sem eru engir smákutar og ólíklegt a ð nokkur maður gangi með slíkt á sér til að snyrta neglurn- ar. Það eru aðeins fáar vikur síðan að félagið komst í hann krappann í Evrópukeppni vegna hinna óstæ- yrilátu áhangenda sinna. Munaði minnstu að félagaið yrði dæmt úr keppni eftir að hafa gersigrað sviss- neska félagið Neuchatel Xaxmas. ■ LOGI Kristjánsson hefur ver- ið valinn sundmaður ársins í Vest- mannaeyjum. Hann fékk að laun- um Guðlaugsbikarinn svonefnda sem gefinn er af ÍSÍ til minningar um hið frækna sundafrek Guðlaugs Friðþórssonar. ■ ALDO Serenasem leikur með Inter Mílan hefur verið valinn í ítalska landsliðið sem leikur vin- áttulandsleik gegn Skotum á morg- un. Serena, semer 28 ára, hefur ekki leikið með ítalska landsliðinu síðan í júní 1987. Landsleikur ítala er liður í undirbúningi þeirra fyrir HM 1990. ■ SAMSTAÐA hefur náðst milli evrópskra sjónvarpsstöðva um að reyna eftir fremsta megni að kaupa útsendingarrétt af stærstu íþrótta- viðburðum Evrópu. Hingað til hafa Bandaríkjamenn keypt útsending- arrétt af lestum stærstu íþróttavið- burðum en evrópsku sjónvarps- stöðvamar munu standa saman og beijast fyrir að fá vetrarólympíu- leikana í Albertville, Ólympíuleik- ana í Barcelona, vetrarólympíu- leikana í Lillehammer og Wimble- don-mótið í tennis. Ef evrópskum sjónvarpsstöðvum tekst ekki að keppa við þær bandarísku kemur jafnvel til greina að sniðganga með öllu þá íþróttaviðburði sem lenda í höndum annarra stöðva. ■ NORÐMENN hafa hannað tákn vetrarólympíuleikanna í Lille- hammer. Það er víkingur sem ber nafnið Hákon. Upphaflega hug- myndin var að láta víkinginn bera rauðan hjálm með hvítum krossi, en hætt var við það þar sem það þótti of danskt. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1988 A toppnum Svissneska stúlkan Vreni Schneider hefur nú góða forystu í heimsbikarkeppninni. Hún hefur unnið öll þijú stórsvigsmót- in sem farið hafa fram í vetur. Vreni Schneider með afgerandi forystu - sigraði í þriðja stórsvigsmótinu í röð á sunnudag Vreni Schneider frá Sviss sigraði í þriðja stórsvigsmótinu í röð í Val Zoldana á Ítalíu á sunnudag- inn. Hún hefur nú tekið afgerandi forystu í stigakeppninni í kvenna- flokki. Hún hefur 107 stig, en Ul- rike Maier frá Auturríki er önnur með 63 stig. Schneider, sem er 25 ára, sigraði í fyrsta stórsvigsmótinu í Les Menu- ires í Frakklandi í síðasta mánuði og síðan sigraði hún í Altenmarkt í Austurríki á föstudag og loks setti hún punktinn yfir i-ið með sigri í Val Zoldana á Italíu á sunnudag. Sclmeider, sem varð tvöfaldur ólympíumeistari í Calgary í febrú- ar, fékk samanlagðan tíma, 2:28.40 mín. Onnur varð júgóslavneska stúlkan, Mateja Svet, á 2:29.40 mínútur og I Anita Wachter varð þriðja á 2:30.03 mínútum. Michela Figini, heimsbikarhafi frá því í fyrra, varð aðeins í 24. sæti og Maria Walliser, heimsbikar- hafi frá 1986 og 1987, varð í fimmta sæti. „Ég er mjög ánægð með gang mála hjá mér það sem af er og allt gengur eins og í sögu. Ég hef það markmið að sigra, ekki aðeins að ná stigum," sagði Schneider. Urslit/B7 Morgunblaðiö/Einar Falur Valdimar Grímsson átti góðan leik með Valsmönnum. Hér sést hann skora eitt af mörkum sínum gegn Amicitia Valsmenn stóðust álagið Sigruðu svissneska liðið Amicitia með 25:22 og eru komnir í 8-liða úrslit VALSMENN tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik með sigri á svissneska liðinu Amicitia, 25:22. Valsmenn sigr- uðu samtals 40:38, því fyrri leiknum lauk með sigri Amicit- ia, 16:15. Reyndar mátti ekki miklu muna því lengi vel var munurinn aðeins eitt mark en Valsmenn stóðust álagið á síðustu mínútum leiksins og tryggðu sér sigur með skyn- samlegum leik. leiksloka kom slæmur kafli. Sviss- lendingar minnkuðu muninn í eitt mark, 22:21, sem hefði nægt þeim til að komast áfram. Sigurður Sveinsson jók muninn í tvö mörk þegar rúmar tvær mínútur voru til og Valdimar tryggði Valsmönnum sæti í 3. umferð með glæsilegu marki úr vítakasti — sneri boltanum undir markvörðinn og í netið. Gest- unum tókst að minnka muninn að nýju en Jakob Sigurðsson átti síðasta orðið, rétt fyrir leikslok. Naumt Tvö llö í 8-llða úrslitum Valsmenn byijuðu vel og gerðu tvö fyrstu mörk leiksiiis. Virt- ist sem þeir ætluðu að gera út um leikinn strax í byijun. En kraftur Valsmanna var LogiB. smám saman svæfð- Eiðsson ur með rólegum og skrifar yfirveguðum sókn- arleik Amicitia. Sóknir liðsins voru langar og þegar Valsmenn misstu einbeitinguna í vörninni þá var þeim refsað með marki. Með þessum hætti tókst gestunum að halda í við Valsmenn. Undir lok fyrri hálfleiks var mun- urinn orðinn þijú mörk en Sviss- lendingarnir náðu að rétta hlut sinn pg í leikhléi var staðan 13:12. Valsmenn voru lengst af með 2-3 marka forskot í síðari hálfleik en þegar rúmar tíu mínútur voru til Þrátt fyrir að munurinn hafi ver- ið þijú mörk í lokin var sigur Vals iangt frá því að vera öruggur. Um tíma var staðan mjög slæm en Valsmenn léku af skynsemi í lokin á svipaðan hátt og Svisslendingarn- ir höfðu gert allan leikinn. Sigurður Sveinsson átti frábæran leik og bar af í sókn Valsmanna. Hann gerði glæsileg mörk og átti fjórar línusendingar sem gáfu mörk. Valdimar Grímsson og Jakob Sigurðsson léku vel í hornunum og voru vel vakandi á línunni ef svo bar undir. Geir Sveinsson átti einn- ig ágætan leik og var iðinn við að opna vöm Svisslendinga sem þó var mjög sterk. Leikur Valsmanna var þó með slakasta móti. Vömin var slæm og gaf Svisslendingum of mikinn frið í sókninni. Markvarslan var einnig slök, enda erfitt að halda einbeiting- unni í löngum og leiðinlegum sókn- um Svisslendinganna. Einar Þor- varðarson átti þó sinn skerf í sigri Valsmanna með því að veija þijú vítaköst á mikilvægum stundum. íslendingar eiga nú þijú lið í 8- liða úrslitum. FH-ingar sigruðu rúmenska liðið Baia Mare í Evrópu- keppni félagsliða og nú hafa Vals- menn náð sama árangri í Evrópu- keppni meistaraliða. Þá eru Fram- stúlkur komnarí Evrópukeppni meistaraliða í kvennaflokki eftir stórsigur á Wakefield frá Englandi. Mörg stórlið em eftir í Evrópu- keppninni og búast má við að róður- inn fari að þyngjast. Valur—Amicrtia 25:22 (40:38) Laugardalshöllin, Evrópukeppni meist- araliða, 2. umferð, sunnudaginn 18. desember 1988. Gangur leiksins: 2:0, 4:2, 4:4, 5:5, 9:5, 10:6, 10:8, 13:10, 13:12, 15:14, 17:14, 17:16, 18:17, 21:17, 22:18, 22:21, 24:21, 24:22, 25:22. Valur: Sigurður Sveinsson 11/6, Valdi- mar Grímsson 6/2, Jakob Sigurðsson 4, Júlíus Jónasson 2, Geir Sveinsson 1 og Jón Kristjánsson 1. Þorbjöm Jens- son, • Theodór Guðfínnsson, Sigurður Sævarsson og Gísli Óskarsson. Varin skot: Einar Þorvarðarson 6/3, Páll Guðnason 4. Utan vallar: 10 mínútur. Amicitia: Rene Barth 7, Roger Keller 5, Stefan Schárer 4, Marc Bár 3, Stef- ano Balmelli 1, Roger Keller 1 og Ro- land Besek 1/1. Martin Glaser, Rolf Ziiger, Martin Hotz. Varin akot: Remo Kessler 9/1. Jurg Steger. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Krister Broman og Erik Eliasson. Dær.idu mjög vel. Áhorfendur: 1800. Morgunblaðið/Einar Falur Jakob Slgurðsson skorar mark eftir að hafa leikið á varnarmenn svissneska liðsins. Hvað sögðu þeir? „Okkur vantar samkeppni" - segir Stanislav Modrowski, þjálfari Vals Stanislav Modrowskl „Þetta var ekki góður leikur enda erfitt að leika gegn liðum frá Sviss. Vöm þeirra var sterk og sóknimar langar. Við lékum ekki nógu vel og það hefur mikið að segja að við höfum ekki fengið nægilega samkeppni í deildinni. Okkur vantar fleiri erfiða leiki. Þrátt fyrir að ég sé með mjög reynt lið, hvað varðar landsleiki, þá skortir Val reynslu sem lið. Valsmenn hafa ekki náð langt í Evrópukeppni í mörg ár og vantar reynslu á þeim vettvangi. Dómarar leiksins voru að mfnu mati fullkomnir. Valdimar Grímsson: „Það er alltaf erfitt að spila Evrópuleiki undir pressu. Þrátt fyrir að vera komnir með, fjögurra marka forskot vissum við aldrei hvort við værum öruggir eður ei. Ég neita því ekki að ég var orðinn svolítið hræddur þegar staðan var 22:21. Vítakastið í lokin var öruggt. Mér fannst markmaðurinn tauga- strekktur og átti ekki von á því að hann gæti haldið sig á jörð- inni. Þvl skaut ég S gólfið með snúningi." Geir Svelnsson: „Eg þakka nú bara fyrir að þessu skuli vera lokið og það er mjög ánægjulegt að vera kominn í 8-liða úrslit ásamt FH-ingum. Við vorum langt frá okkar besta og taugaspenna setti svip sinn á leik okkar. Vöm og markvarsla brást gjör- samlega og þáð er of mikið að fá á sig 22 mörk gegn þessu liði. Ég vona bara að við fáum góða móthetja í 8-liða úrslitum sem fylla Höllina.“ SigurAur Svelnsson: „Það var kominn smá slq'álfti í okkur ( lokin en ég var aldrei hræddur um að við kæmumt ekki áfram. Ég hafði það svona á til- finningunni að við hefðum þetta. Við spiluðum ekki nógu skyn- samlega, enda erfítt að vera í sókn í 3-4 mínútur og fá þá á sig eitt ódýrt mark. Annars fannst mér við ekki ná upp nógu góðri stemmningu í þessum leik.“ Marc Bár, AmlcRla: „Við töldum okkur eiga góða möguleika með sterkri vöm. Við náðum að halda Valsmönnum í 15 mörkum á heimavelli og vorum ánægðir með það. Nú voru mörk-. in hinsvegar 25 og það er ekki nógu gott. Það hefði líklega verið betra fyrir okkur að fá fyrri leik- inn á útivelli. Dómaramir voru ágætir. Þeir voru eins og dómarar era alltaf í Evrópukeppni, svolítið hliðhollir heimaliðinu. Að vísu var það ekki svo í fyrri leiknum. En á heildina litið fannst mér þeir dæma vel.“ HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA Fimmtándi sigur Girardelli í svigi Marc Girardelli vann einvígið við Alberto Tomba MARC Girardelli frá Luxem- borg náði forystu í heimsbik- arnum eftir sigur í svigi í Kranj- ska Gora f Júgóslavíu á laugar- daginn. Vestur-Þjóðverjinn Armin Bittner varð annar og ítalinn Alberto Tomba þriðji. Girardelli, sem er austurrískur en keppir fyrir Luxemborg þar sem hann komst ekki í austurríska landsliðið á sínum tíma, vann annað svigmót sitt í vetur á laugardaginn og leiðir nú keppnina með 80 stig. Girardelli náði besta tímanum í fyrri ferð og var þá 0,15 sek á undan Tomba. ítalanum urðu á mistök í síðari umfeðrinni og Girardelli, sem fór á eftir honum niður, keyrði af Marc Glrardelli er nú efstur ! heimsbikamum. öryggi og sigraði. Bittner varð ann- ar og Tomba þriðji. Girardelli, sem varð sigurvegari í heimsbikarnum 1985 og 1986, vann 15. sigur sinn í svigi á heims- bikarmótum og er aðeins Ingemar Stenmark sem hefur gert betur, hann hefur sigraði fjörtíu sinnum. Áður óþekktur Norðmaður, Ole Christian Furaseth, kom mjög á óvart með því að hafna í 4. sæti eftir að hafa náð besta brautartí- manum í síðari umferð. Pirmin Zúrbriggen náði sér ekki á strik í sviginu. Hann var með sjö- unda besta tímann eftir fyrri ferð, en féll úr í síðari umferð. Það vora aðeins 22 keppendur sem komust klakklaust í gegnum báðar um- ferðir. SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM KVENNA SKÍÐI / HEIMSBIKARINN /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.