Morgunblaðið - 20.12.1988, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.12.1988, Blaðsíða 8
ipRsm Mrn FOLK Clough í jólaskapi Brian Clough, framkvæmdastjóri Nott- ingham Forest, er heldur neÓarlega á vinsældalista forráðamanna ITV sjón- varpsstöðvarinnar. Sem kunnugt er keypti stöðin einkarétt á ensku deildinni og bikarkeppninni í knattspymu fyrir 44 millj- ónir punda. Þegar samið var um kaupin var rætt um að leikmenn og framkvæmdastjórar væru tilbúnir í viðtal að loknum leikjum. Clough fór hinsvegar illa með sjónvarpsmennina fyrir skömmu og kallaði það Jólabrand- ara.“ Nottingham Forest sigraði Leicester í FráBob Hennessy íEnglandi bikarkeppninni og Francis Carr, leikmaður Forest, fór á kostum. Eftir leildnn ætluðu sjónvarpsmenn að ræða við Carr og báðu Brian Clough að senda hann út. í stað þess að senda Carr bað hann ungan ný- liða, Shawn Brown, sem er mjög svipaður í vexti og útliti, að fara til sjónvarpsmann- anna. Þeir fóru með hann út á völl og tóku við hann viðtal. Þegar átti svo að senda það út áttuðu sjónvarpsmennimir sig á því að þetta var alls ekki Carr. Þá var haft samband við Clough sem játaði skellihlæjandi að hafa sett á svið þennan jölabrandara." KNATTSPYRNA / ENGLAND Phelan var sem gett- ungur í vöm IMorwich Liverpool náði ekki að stöðva Norwich á Anfield Road LEIKMENN Norwich gerðu góða ferð til Anfield Road, þar sem þeir unnu sigur, 1:0. Fyrir- liðinn Mike Phelan stjómaði vöm þeirra eins og herforingi - hann var á f erð og flugi eins og geitungur og stakk hvað eftir annað á sóknarleik Liverpool-liðsins. Þá áttu þeir Andy Linighan, Andy Tow- nsend og lan Crook stórleik á miðjunni, en leikmenn Norwich léku mjög vel og létu þeir knöttinn ganga hratt á milli sín. Það var Andy T ownsend sem skoraði mark Norwich á 60. mín., eftir undirbúning Roberts Fleck og Roberts Rosario. íuém FOLK I VIV Anderson hefur lítið get- • að leikið með Manchester United vegna meiðsla. Hann hefur verið að ná sér af meiðslum í fæti og vonaðist til að geta verið með um jólin. En nú hefur komið í ljós að hann þarf að fara í uppskurð í baki og missir af enn fleiri leikjum. En góðu fréttimar frá Old Trafford eru að Paul McGrath, sem hefur verið meiddur, er farinn að æfa að nýju og leikur líklega með United um áramótin. ■ KERRY Dixon hefur ákveðið að enda feril sinn hjá Chelsea. Því til staðfestingar skrifaði hann undir ’ nýjan ijögurra ára samning við lið- ið í gær. Dixon hefur gengið vel í vetur og gert 9 mörk í síðustu 14 leikjum Chelsea. Þess má geta að hann hefur gert 128 mörk fyrir Chelsea í 256 leikjum, síðan hann kom frá Reading, eða hálft mark í leik að meðaltali. Liverpool reyndi allt sem var til að jafna, en þrátt fyrir góðan leik Ian Rush náðu leikmenn Liverpool ekki að jafna metin. John ••■■■■I Bames lék oft Frá Bob skemmtilega og Hennessyi Peter Beardsley átti Englandi góð skot að marki Norwich, en ekkert dugði. Leikmenn Norwich átti einn- ig tækifæri og varði Hooper, mark- vörður Liverpool, glæsilega skalla frá Andy Linighan, sem var maður leiksins. Leikmenn Norrwich fögnuðu geysilega þegar leiknum lauk. Þeir sýndu það á Anfield Road að það er engin tilviljun að þeir eru á toppnum. Arsenal átti ekki í erfiðleikum með Manchester United á High- bury, 2:1. Leikmenn Arsenal voru mun klókari heldur en leikmenn United. Michael Thomas og Paul Merson skoruðu mörk Arsenal á fyrstu sextán mín. leiksins. Mark Hughes náði að minnka muninn fyrir United á 81. mínútu. Millwall skaust upp í þriðja sætið með því að vinna Sheffield Wednes- day. Teddy Sheringham skoraði sig- urmarkið, 1:0, þremur mín. fyrir leikslok. Coventry með þrjú stangar- skot Heppnin var ekki með leikmönn- um Coventry á Highfíeld Road, þar sem flóðljósin biluðu í upphafi seinni hálfleiksins. Myrkur var á vellinum um tíma. Dórqpri leiksins John Martin dæmdi vítaspymu á Coventry í fyrri hálfleik, þegar einn vamarleikmaður liðsins handlék knöttinn. Steve Orgizovic, mark- vörður Coventry, sem átti stórleik, varði vítaspymu Nigel Callaghan. Martin var aftur í sviðsljósinu í upphafi seinni hálfleiksins, þegar Dean Saunders, sóknarleikmaður Derby, handlék knöttinn. Leikmenn Coventry stö'ðvuðu og áttu von á að Martin myndu flauta og dæma á Saunders. Það gerði hann ekki - Saunders bmnaði fram og skoraði. Ted McMinn bætti síðan öðru marki við fyrir Derby, sem vann 2:0. Leik- menn Coventry áttu þrjú stangar- skot í leiknum. Southall varði vel Nevill Southall, markvörður Everton, bjargaði félagi sínu frá tapi gegn QPR, sem lék fyrsta leik- inn undir stjóm Trevor Francis sem framkvæmdastjóra. Southall varði glæsilega skalla frá Deen Coney og síðan skot frá Trevor Francis. Paul Bracewell lék með Everton eftir tveggja ára þrálát meiðsli og sýndi gamla takta. Jafntafli varð, 0:0. Bakverðir Tottenham skoruðu mörk liðsins, 2:0, gegn West Ham á Upton Park. Gary Mabbutt, sem var besti leikmaður Tottenham ásamt Paul Gascoigne - í fyrri hálfleik, skoraði fyrst og síðan Mitchell Thomas, eftir samspil við Gascoigne. Þeir leikmenn sem hafa mest verið undir pressu að undanf- ömu hjá Tottenham, Bobby Mimms, markvörður og Thomas, sem er á Ieið til Luton, léku mjög vel. Sex mörk í Newcastle Mikið fjör var á St. James Park í Newcastle, þar sem heimamenn gerðu jafntefli, 3:3, við Southamp- ton. Kevin Brock, sem var keyptur á 300 þús. pund frá QPR, skoraði mark eftir átta mín. fyrir New- castle. Dýrlingarnir frá Southamp- ton gáfust ekki upp. Matthew Le Tissier skoraði tvö mörk fyrir þá og Rodney Wallace eitt. Undir lok leiksins náði Michael O’Neill að jafna metin, með mörkum á 65. og 89. mínútu. Roy Wegerle skoraði mark fyrir Luton - hans sjötta mark í sex leikj- um síðan hann var keyptur frá Chelsea. Markið dugði ekki Luton til sigurs, því að Marvin Johnson skoraði sjálfsmark og jafnaði, 1:1, fyrir Aston Villa. Johnson sendi knöttinn yfír Les Sealey, markvörð, af 20 m færi. Wimbledon vann Nottingham For- est óvænt á City Ground í Notting- Paul Gascoígne: „Ég er alls ekki feitur. Þið getið séð það!“ ham á sunnudaginn, Laurie Sanchez skoraði eina mark leiksins á 79. minútu og er það fyrsta mark hans síðan að hann skoraði sigur- markið fyrir Wimbledon gegn Li- verpool í bikarúrslitunum á Wem- bley síðastliðið vor. Forest sótti mjög framan af, en er á leikinn leið náði Wimbledon smám saman æ betri tökum á leiknum. Sá leikmaður sem hefur vakið hvað mesta athygli að undanfömu, er Steve Bull hjá Wolves. Hann skoraði sína aðra þrennu á fímm dögum, þegar Wolves vann Mans- fíeld. Bull, sem hefur skorað 25 mörk í vetur, hefur skorað ellefu mörk í siðustu þremur heimaleikjum Úlfanna. MLIVERPOOL átti í stökustu vandræðum með sprækt spútniklið Norwich á laugardaginn og varð síðan að sjá af öllum stigunum. Meiri og minni meiðsl hafa hijáð marga af lykilmönnum Liverpool á þessu keppnistímabili og á laugar-' daginn bættist enn á listann, er bakvörðurinn Barry Vennison varð fyrir slæmum meiðslum og var borinn af leikvelli. Steve Nicol meiddist einnig, en hélt þó út leik- inn á enda. Hann var nógu slæmur til að neyðast til að boða forföll með skoska landsliðinu sem mætir Ítalíu í Perúgíu í vikunni. Við þetta má bæta, að Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri Liverpool, var illa fjarri góðu gamni þar sem hann lá heima í bæli með flensu. MTREVOR FRANCIS lék sinn fyrsta leik með QPR sem fram- kvæmdastjóri félagsins er liðið mætti Everton í Lundúnum á laugardaginn. Hann fékk gott tæki- færi til að gera út um leikinn í seinni hálfleik, en brenndi af í dauðafæri. Mark Dennis, bakvörð- urinn geðstirði, fór af leikvelli á undan lokaflautunni eins og svo oft áður á ferli sínum, en að þessu sinni á sjúkrabörum. Hann nældi sér þó áður í gult spjald, 68. gula spjaldið sem honum hefur verið sýnt á ferli sínum. UPAUL GASCOIGNE miðvallar- leikmaður Tottenham lagði grunn- inn að öðrum sigri liðsins í röð, að þessu sinni á útivelli gegn West Ham. Gassi átti stórkostlega spretti, en í lok fyrri hálfleiks varð hann fyrir meiðslum og kom ekki aftur inn á. Þá vakti athyli, að Bobby Mimms í markinu hjá Tott- enham, átti frábæran leik, en hann á nú í hatrammri baráttu um stöðu sína eftir að Tottenham gekk frá kaupunum á Norðmanninum Erik Thorstvedt. UBRASILÍUMAÐURINN hjá Newcastle, Mirandinha, er nú allt annað en ánægður hjá félagi sínu. Nýlega sagði hann í blaðaviðtölum að meðheijar sínir skyldu bara senda knöttinn til sín, hann myndi afgreiða hann í netið og skora eigi færri en 20 mörk í vetur. Þetta er haft eftir þeim leikmanni 1. deildar sem þykir frekastur á knöttinn og sendir helst aldrei á samheija. A laugardaginn gegn Southamp- ton.var kappanum skipt út af er staðan var 3:1 fyrir Southampton. Hann hafði bókstaflega ekkert gert af viti. Inn á í hans stað kom 19 ára Norður Iri, Michael O’Neil, sem gerði sér lítið fyrir og skoraði tvívegis og jafnaði leikinn. Nú er talað um að Mirandinha verði lánaður til spænska liðsins Real Zaragozza, en við stjómvölin þar er Júgóslavi að nafni Raddy Antic, sem lék með Luton fyrir nokkrum árum. I JIM Smith, stjóri hjá New- castle, sagði eftir leikinn við Sout- hampton, að hann væri í þann mund að reiða fram 350.000 sterl- ingspund fyrir hægri bakvörð Charlton, John Humphrey, sem hann sagði einn besta vamarmann Bretlandseyja. UGAMLI snillingurinn Steve Coppel, sem lék á kantinum hjá Manchester United hér á árum áður, en stýrir nú með góðum ár- angri Crystal Palace, sagði í sam- tali við ensk blöð um helgina, að ósatt væri að West Ham hefði boð- ið eina milljón punda í Ian Wright, gríðarefnilegan miðheija liðsins. „það eins sem við höfum fengið frá West Ham síðustu daga er jóla- kort,“ sagði Coppel. GETRAUNIR: 122 XXI X X 2 11X LOTTO: 6 10 26 31 33 + 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.