Morgunblaðið - 29.12.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.12.1988, Qupperneq 1
/ Sítrónudrykkir 7,2% Markaður huiflutningnr eykst „á áramótapúðri“ Sama verð og í fyrra INNFLUTNINGUR á flugeldum, blysum o.þ.h. er talinn með mesta móti á þessu ári og meiri en á síðasta árí samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Talið er að landsmenn hafi þá slegið met í kaupum á áramótasprengiefhi. Einn helsti áhrifavaldur á sölu flugelda fyrir hver áramót hefiir að jafnaði verið veðrið dagana fyrir gamlárskvöld svo og veðurhorfur á gamfárskvöld. Stærstu söluaðilar á þessum mark- aði eru hjálparsveitir skáta víða um land sem hafa um 70% markaðs- hlutdeild í heildsölu að sögn Björns Hermannssonar, formanns Lands- sambands þjálparsveitanna. Landssambandið annast innfiutning fyrir sveitimar. Þá er innlend framleiðsla hjá fyrirtækinu Flugeldaiðjunni í Garðabæ um 10% af heildarsölu hér á landi. lækkun á aðflutningsgjöldum flug- elda og blysa. Tollur var áður 15%, vörugjald 30% og jöfnunargjald 3%. Hér eftir verður tollur 10% og jöfn- unargjald 3% en tollurinn fellur nið- ur ef flutt er inn frá löndum Evrópu- bandalagsins. Niðurfelling þessara gjalda mun því hafa þau áhrif að vega upp á móti hækkunaráhrifum gengislækkunar krónunnar á árinu 1988. Að meðtöldum söluskatti og ríflegri álagningu söluaðila má gera ráð fyrir að sprengt verði fyrir á annað hundrað milljónir i ár. Þórarinn Símonarson, hjá Flug- eldaiðjunni í Garðabæ, sem hefur verið starfrækt frá árinu 1958, sagð- ist telja að markaðshlutdeild fyrir- tækisins væri um 10%. Sagði Þórar- inn að þrír menn störfuðu' allt árið við framleiðsluna sem væri öll hand- unnin. Ragnar Engilbertsson hjá Verslun Ellingsen sagði aukingu í heildsölu flugelda vera á bilinu 20-25% og að byijunin lofaði góðu í smásölunni. Tölur fyrir innflutning flugelda og blysa á þessu ári liggja ekki fyr- ir en á síðasta ári voru flutt inn samtals 93 tonn af vörum í þessum flokki. Þar af voru 43 tonn frá Kína, 20 tonn frá Hong Kong og 11 tonn frá Vestur- Þýskalandi að verðmæti samtals 23 miHjónir króna. Hér eru hins vegar meðtalin neyðarblys fyrir skip og báta. Bjöm Hermannsson, formaður Landssambands hjálpar- sveitar skáta, sagðist telja að inn- flutningur sveitanna væri heldur meiri en í fyrra. Landssambandið kaupir inn fyrir sveitimar og selur þeim á kostnaðarverði. Aðrir helstu söluaðilar á flugeldamarkaðnum eru slysavamarsveitimar, Knattspymu- félag Reykjavíkur og verslun Ell- ingsen hf. Að sögn Lúðvíks Georgs- sonar, hjá Flugeldasölu KR hefur KR með höndum 15-20% af heildar- innflutningnum og sagðist hann telja að slysavamarsveitimar hefðu svip- aðan hluta af markaðnum. Um síðustu áramót varð vemleg Fasteignir JL Völundur að kaupa Naustið JL Völundur hefur gert kauptilboð í Naustið við Vesturgötu og húseign- ir og lóðir sem þvi tengjast. Svavar Egilsson, nú verandi eigandi Nausts- ins, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær og kvað kaupsamn- ing þegar liggja fyrir — með fyrirvara um að vissum skilyrðum yrði fullnægt, en taldi þó allt benda til að af þessum kaupum yrði. Um er að ræða Naustið sjálft, Geirsbúðina sem því tengist og hús fyrir ofan Naustið við Vesturgötuna, svo og byggingarlóð norðan við veit- ingahúsið. Svavar sagði um ástæð- umar fyrir því að hann vildi nú selja að þær væm einfaldlega að hann teldi hlutverki sínu á þessum stað lokið. Þegar hann hafi keypt Naustið þá hafí legið fyrir að ákveðinn bygg- ingaraðili hefði haft augastað á þessu svæði með það fyrir augum að rífa gömlu húsin og reisa þama nýbygg- ingu í þeirra stað. Fyrir honum hefði ekki síst vakað að bjarga þessum gömlu húsum. Ráðist hefði verið í viðgerðir og endurbyggingu húsanna og hefja_veitingarekstur á nýjan leik í Naustinu, sem nú gengi með ágæt- um í höndum nýrra rekstraraðila. Svavar kvaðst því telja einsýnt að Naustinu og þeim gömlu byggingum sem því tengdust, væri borgið og eftir sem áður væri möguleiki á ný- byggingu norðan við veitingahúsið, en Svavar kvaðst telja að sínu verk- efni á þessum stað væri nú lokið og nýrra aðila að annast framhaldið. Má bjóða þér gos? Gosdrykkjaframleiðsla 1977-88 22,9 Milljónir lltra 176 175 1»j° ^ 17,2 16,7 16,6 1977 78 79 *80 '81 '82 '83 '84 '85 ’86 '87 '88 Gosneysla í ýmsum löndum 1987 (Lítrar/mann á ári) Bandaríkln (SLAND Noregur V-Þýskal. || Bretland Danmörk Ítalía Svlþjóö Flnnland Frakkland 165 112 Hlutdeild gosdrykkja J á íslandi 1988 71 Koladrykkir 69,7% tf Appelsínu- drykklr 11,8% Ýmlslegt 2,7% \ Grapedrykkir 4,8% Ananasdrykkir 3,8% Tvöföldun í neyslu gosdrykkja frá 1984 „FRAMLEIÐSLA á gosdrykkjum hefur enn eftirbátar Bandaríkjamanna í þessum næstum tvöfaldast hér á landi frá árinu 1984, efnum má telja líklegt aö við sláum þeim viö aöallega vegna breyttra Umbúða," sagöi Ragnar innan fárra ára ef svo fer ffam sem horfír. Frá Birgisson, forstjóri Sanitas, á fundi löntækni- árinu 1986 hcfur neyslan aukist hröðum skref- stofiiunar um Þemadaga í iönaöi. A línuritun- um eftir að áldósir og plastflöskur tóku aö ryöja um sést hvemig gosdrykkjaneysla hefur þróast sér til rúms hér á landi. Eins og fram hefur á undanfömum árum og sést m.a. aö hvcr komiö í blaöinu em tegundir gosdrykkja á íslendingur drakk 112 lítra af gosdrykkjum að boðstólnum nú 119 talsins þegar nánar meðaltali á síöasta ári. Þrátt fyrir að við séum umbuöastærðir era taldar með. $ þjs g Hvert stefhir dollarinn? Bandaríkjadalur og verðgildi hans á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum skiptir enn miklu fyrir íslenskt efnahagslíf, enda þótt þjóðarbúskapur okkar sé ekki eins háður dalnum og áður var. Erlendir hagfræðingar velta mjög fyrir sér hvemig gengi dollars muni þróast á næsta ári, og Morgunblaðið fékk Ólaf Isleifsson, hag- fræðing, til að gera grein fyrir helstu sjónarmiðum sem þar eru uppi og setja í íslenskt samhengi. Hins vegar kemur þar fram að á vissan hátt hafi markaðurinn þegar kveð- ið upp sinn úrskurð um að Bandaríkjadalir urinn eigi eftir að lækka um m 5% a næsta ári. "W Bankar 2 Iðnaður 2 Hlutabréf 3 Gosdrykkir 3 Þemadagar 6 Á markaði 6 Jólatréssala 8 Aukin umsvif Lýsis hf. Á síðastliðnum þremur árum hefur orðið veruleg aukning á umsvifum Lýsis hf. Velta fyrirtækisins var 139 milljónir 1985 en verður nálægt 440 milljónum á þessu ári. Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Lýsis hf., hefur gagnrýnt sjómenn fyrir að henda lifur og í viðtali við hann í blaðinu í dag kemur m.a. fram að Lýsi hefur í vaxandi mæli keypt lifur frá stöðum utan hinna hefðbundnu vertíðarsvæða t.d. á Austur- og Norðurlandi. Jafnframt greinir hann frá áform- um fyrirtækisins um byggingu nýrrar lýsisverksmiðju sem væn- 8talega verður reist inn við Sundahöfn. VIDSKIPn AIVINNULIF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988 BLAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.