Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 29.12.1988, Síða 2
2 B MORGKNBJJVÐip, VIDSKtFTI/AIVnfNWljF> fl9. PKSKMBKR 1988 Bankar Raunkostnaður 60 daga viðskiptavíxla 15—21% RAUNKOSTNAÐUR á 100 þús- und króna viðskiptavíxli sem velt er í heilt ár miðað við útgefið kaupgengi þann 1. desember sl. var á bilinu 15,4— 21,3%. Á 45 daga víxlum var kostnaðurinn 16,6—21,9%. Við mat á raun- kostnaði var miðað við 5% verð- bólgu á ársgrundvelli samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar um verð- bólgu á síðasta ársQórðungi þessa árs. Tekið er tillit til alls kostnaðar svo sem afgreiðslu- gjalds og fasts kostnaðar að frá- töldu stimpilgjaldi. Á meðfylgjandi súluriti sem birt- ist í fréttabréfi Félags íslenskra LAUN Launaforritið frá Rafreikni LAUN hentar fyrir alla almenna Rúmlega 20.000 íslendingar fá launaútreikninga. greidd laun, sem unnin eru í for- Það þarf aðeins að slá inn lág- ritinu LAUN, enda er það mest marksupplýsingar, notaða launaforritið á Islandi. LAUN sér um allt annað. Athugið að LAUN sér algjörlega um allt sem snýr að staðgreiðslu skatta. LAUN fæst í næstu tölvuverslun. Rafreikirhf. S Sími 91-641011 MATÁ RAUNKOSTNAÐI AF VIÐSKIPTAVÍXLUM MIÐAÐ VIÐ 5% VERÐBÓLGU OG KAUPGENGI 1. DESEMBER 1988 SPSJ BAÍSKAR OC SrARISJÖl>IR iðnrekenda, Á döfinni, sést saman- burður á raunkostnaði viðskipta- víxla hjá einstökum bönkum og sparisjóðum. Þar segir að bankar og sparisjóðir hafi lækkað almenna vexti þann 1. desember þ.á.m. kaupgengi viðskiptavíxla. Frá síðustu vaxtalækkun hafi nafnvirði kostnaðar á ári lækkað að meðal- tali miðað við 45 og 60 daga við- skiptavíxla um 4,7% hjá Búnaðar- bankanum, Verslunarbankanum, Útvegsbankanum, Samvinnubank- anum og Alþýðubankanum. Að meðaltali sé þessi lækkun 7,3% hjá Iðnaðarbankanum og sparisjóðum en mest hjá Landsbankanum eða að meðaltali 11,8%. Á afgreiðslugjaldi er lágmark og vegur það ásamt föstum kostnaði hærra á lægri víxlum en þessi gjöld eru mismundandi milli banka. Af- greiðslugjaldið er á bilinu 0,5—0,7% af höfuðstóli, lágmarkið á bilinu 500—605 krónur og fastur kostnað- ur 65—580. Iðnaður Eiginfjárhlut- fall iðnfyrirtækja fer lækkandi Vanskil viðskiptamanna og greiðslu- hæfni þeirra víðast vandamál IÐNAÐARBANKINN gerði nýverið könnun á aikomu og fjárhags- stöðu tíu iðnfyririrtækja í nokkrum mismunandi greinum, þ.e. brauð- og kökugerð, í byggingariðnaði, í vélsmiði, umbúðaiðnaði og útgáfú- starfsemi. í könnunni kom meðal annars í ljós að veltuQárhlutfall þessara fyrirtælqa hefúr hækkað úr 0,98% frá áramótum 1987 í 1,02% hinn 30. september í ár, en á hinn bóginn hefiir vegið meðaltal eiginQ- árhlutfalls lækkað á sama tíma úr 27,6% i 18,8%, að því er greint er frá í fréttabréfi Félags ísl. iðnrekenda, Á döfinni. í fréttabréfinu er einnig sagt frá rekstrarkönnun sem Félag ísl. iðn- rekenda lét gera í september og október sl. til að kanna innra um- hverfi iðnfyrirtækja samfara versn- andi efnahagsástandi og óhagstæð- um ytri skilyrðum fyrirtækja í landinu. Kom í ljós í könnuninni að vandskil og skert greiðsluhæfni við- skiptamanna hefur leikið fyrirtækin hvað verst ásamt fjármagnskostn- aði, svo og reyndist fyrirtækjunum erfitt að ástunda nokkra langtímaá- ætlunargerð í ríkjandi rekstrarum- hverfi. Svörun fyrirtækjanna var um 14% ef miðað er við heildarfjölda árs- verka í iðnaði en 31% ef miðað er við starfsmannafjölda aðildarfyrir- tækja FÍI. Spurt var hvernig stjórn- endur mætu stöðu fyrirtækjanna varðandi 55 mismunandi rkestrar- þætti og staða hvers þáttar mældur á þann hátt að menn voru beðnir um að gefa henni einkunn á borð við „slæm“, „sæmilegt", „í lagi“, „nokkuð góð“ og „mjög góð“. Niður- staða könnunarinnar sýnir að 53% fyrirtækjanna meta stöðu sína vera lakari en „í lagi“ hvað varðar van- skil viðskiptamanna og 48% hvað varðar greiðsluhæfni þeirra. Að sama skapi er staðan slæm varðandi íjármagnskostnað í 41% iðnfyrir- tækja og 40% álíta stöðu sína slæma varðandi langtímaáætluynargerð. í fréttabréfinu er haft eftir Guð- laugi Arnari Þorsteinssyni hjá FÍI, að þegar niðurstöðurnar séu skoðað- ar innan þrengri hóps, t.d. meðal iðnfyrirtækja á neytendamarkaði, komi í ljós að vanskil viðskipta- manna þar séu mun stærra vanda- mál. Þar er 83% samstaða um að staða fyrirtækjanna sé bágborinn varðandi vanskil viðskiptamanna í samanburði við 53% fyrir iðnaðinn í heild. Guðlaugur segir þessa niður- stöðu gefa tilefni til viðræðna við stórmarkaði og aðrar verslanir um fyrirkomulag á greiðslufresti, afs- lætti og fleira. Eins og áður segir töldu þátttak- endur einnig stöðu sína slæma gag- vart langtímaáætlunargerð en á öðr- um sviðum svo sem í stjórnun og varðandi aðgang framkvæmdastjóra að upplýsingum um stöðu fyrirtækj- anna töldu flestir þátttakendur sig vel setta. Bankar Ný aðstoðarbanka- stjórastaða hjá Landsbanka NÝ aðstoðarbankastjórastaða hefúr verið auglýst laus til umsóknar hjá Landsbanka íslands og rennur umsóknarfrestur út þann 15. janúar n.k. Efftir er hins vegar að ráða í aðra stöðu sem auglýst var fyrir nokkru og mun ákvörðunar að vænta um ráðningar beggja aðstoðarbankastjór- anna eftir 15. janúar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins náðist ekki samkomulag í bankaráði Landsbankans um ráðn- ingu í þá stöðu sem fyrr var auglýst laus til umsóknar. Valið stóð milli Bjöms Líndal, lögfræðings og að- stoðarmanns bankastjórnar og Stef- áns Péturssonar, aðallögfræðings Landsbankans. Varð því að sam- komulagi að bæta við annarri stöðu aðstoðarbankastjóra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.