Morgunblaðið - 29.12.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, VEDSEQPTI/AIVINNUIÍF FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988
B 3
Verslun
Jólaverslun svipuð
ogífyrra
Aukning í Kringlu — svipað eða minna
í miðbæ
JÓLAVERSLUNIN fyrir þessi jól mun hafa verið svipuð og undanfar-
in ár, ef á heildina er litið. Verslun hefur enn aukist í Kringlunni,
en talið er að Laugavegur standi í stað hvað þetta varðar. Þá er mál
manna að verlsun í Kvosinni hafi nokkuð dregist saman. Ýmsar skýr-
ingar eru á lofti um aukninguna i Kringlunni, en helst er talið, að
fólk utan af landsbyggðinni geri sér ferð til að versla í Kringlunni.
Þannig segja kaupmenn við Laugaveginn að póstkröfuverslun hafi
svo gott sem lagst af eftir tilkomu Kringlunnar.
Kjartan Ólafsson hjá Sævari Karli
Ólasyni klæðskera sagði, að jóla-
verslunin hefði minnkað nokkuð frá
undangengnum árum. Þó sagði hann
bera meira á að fólk keypti fyrir
hærri upphæðir í hvert skipti, ef það
verslaði á annað borð. Hann sagði
að verslun í miðbænum slagaði í að
vera sú sama og áður var, en svipað
magn hafi verið selt í Kringlunni og
fyrr.
Vogue er með verslanir í miðbæ,
í Kringlu, í Hafnarfirði og í Mjódd.
Eyjólfur Jónsson þar á bæ sagði að
verslun hafi í seinni tíð færst úr
miðbænum í úthverfin, og ljóst væri
að sú þróun væri kostnaðarsöm fyr-
ir verslunarmenn. Hann sagði að
jólaverslunin hafi komið svipað út
og í fyrra hjá Vogue.
Aðrir verslunareigendur höfðu
svipaða sögu að segja, jólaverslun í
ár hefði verið svipuð og undanfarin
ár.
JOLAVERSLUN — í
Kvosinni virðist hafa dregið úr
jólaverslun, en í Kringlunni virð-
ast viðskiptin hafa aukist frá í
fyrra. Hins vegar er útkomuan
svipuð á Laugaveginum frá ár-
inu áður.
Tekjuskattur
Búist við kipp
í sölu hlutabréfa
BÚIST er við að sala á hlutabréfum taki verulegan kipp í
þessari viku en frestur til að nýta sér heimild til skattfrá-
dráttar vegna hlutabréfaeignar rennur út um áramótin. I
lögum um tekjuskatt sem alþingi samþykkti nýlega er gert
ráð fyrir að heimilaður verði frádráttur frá tekjuskatti vegna
kaupa á hlutabréfiim í tilteknum félögum fyrir allt að 72
þúsund krónur á einstakling og 144 þúsund á hjón.
eftirá. Hafi einstaklingur ekki aðr-
ar tekjur en launatelqur, sem hann
staðgreiðir skatta af jafnóðum,
fær hann endurgreiðslu í samræmi
við skattfrádrátt sinn þegar álagn-
ingu lýkur.
Iðnaður
Jólaölið meira
en tvöfaldar
söluna á malti
ogappelsíni
EINHVERN tíma fyrir mörgum
áratugum hugkvæmdist ein-
hverjum að blanda saman malt-
öli og appelsíni frá Ölgerðinni
Agli Skallagrímssyni. Blandan
kallast í dag jólaöl og þykir
ómissandi þáttur í jólahaldinu á
flestum heimilum landsins, auk
þess að hafa afgerandi þýðingu
fyrir tyær gosdrykkjaverksmiðj-
ur — Ölgerðina og Sanitas.
„Við stöndum að sjálfsögðu í ævar-
andi þakkarskuld við þennan snill-
ing sem fann upp á þessari blöndu,
en það man enginn lengur ná-
kvæmlega hvenær þetta var. Þetta
hefur viðgengist svo lengi sem ég
man,“ sagði Jóhannes Tómasson,
framkvæmdastjóri hjá Ölgerðinni.
Jóhannes segir að í desember-
mánuði einum meira en tvöfaldist
salan á bæði maltöli og appelsíni,
og slagi í þessum eina mánuði hátt
upp í söluna á kóladrykkjunum á
markaðinum. Að auki sé gífurleg
sala í hvítöli.
„Það er hins vegar gaman að
segja frá því að það kemur jafnan
skrítinn svipur á útlendinga þegar
við segjum þeim að hér sé siður
að blanda saman öli og gosdiykk
vegna þess að einhvern veginn
geta þeir ekki gert sér í hugarlund
að slík blanda fari saman. En þeg-
ar við gefum þeim að smakka kem-
ur á þá undrunarsvipur og þeir
skilja óðar hvers vegna þessi drykk-
ur hefur náð þessum vinsældum
sem raun ber vitni,“ segir Jóhann-
es.
LESTUNflRflffílUN
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segir:
AARHUS:
Alla þriðjudaga.
SVENDBORG:
Annan hvern þriðjud.
KAUPMANNAHÖFN:
Alla miðvikudaga.
GAUTABORG:
Annan hvern föstud.
VARBERG
Alla fimmtudaga.
MOSS:
Alla laugardaga.
LARVIK:
Annan hvern laugard.
HULL:
Alla mánudaga.
ANTWERPEN:
Alla þriðjudaga.
ROTTERDAM:
Alla þriðjudaga.
HAMBORG:
Alia miðvikudaga.
HELSINKI:
Skip 15. jan.
GLOUCESTER:
Skip 16. jan.
Skip 6. feb.
NEW YORK:
Skip 16. jan.
Skip 6. feb.
PORTSMOUTH:
Skip 16. jan.
Skip 6. feb.
SKtfíADEiLD
w&Ksamrandsins
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVÍK
SlMI 698100
Á A X X ± ± J
TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA
Að sögn Þorsteins Haraldsson-
ar, hjá Hlutabréfasjóðnum hf.
stefnir í umtalsverða sölu á hluta-
bréfum fyrir þessi áramót. Nú eru
í boði hjá Hlutabréfamarkaðnum
hf. hlutabréf í Iðnaðarbanka ís-
lands hf. og Hlutabréfasjóðnum
hf.
Launþegar og aðrir munu í upp-
hafi næsta árs sem fyrra skila
skattframtali þrátt fyrir stað-
greiðslu skatta af launatekjum. I
framtali gera menn grein fyrir
eignabreytingum sínum þ.m.t.
kaupum á hlutabréfum. Á grund-
velli skattframtals fer fram endan-
legt uppgjör við gjaldheimtu. Kaup
á tilteknum hlutabréfum hafa í för
með sér lægri lokagreiðslu til
gjaldheimtunnar þegar um er að
ræða skattskyldar tekjur aðrar en
launatekjur sem verða skattlagðar
Fyrirtæki
GGShf.
gjaldþrota
FYRIRTÆKIÐ GGS hf. hefúr óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
Eignir þess nú eru 600 fermetra iðnaðarhúsnæði að Grensás-
vegi 12 og fasteign í Breiðholti ásamt meðfylgjandi rekstri
skyndibitastaðar. Samkvæmt frásögn Helga Gestssonar,
stjórnarformanns fyrirtækisins, er hins vegar ljóst, að skuld-
ir þess eru talsvert umfram eignir.
Fyrirtækið rak á sínum tíma
fimm skyndibitastaði. Einn var
seldur í júlí sl., þrír í ágúst og
einum var hreinlega lokað, vegna
þess að það reyndist ekki unnt að
selja hann á viðunandi verði.
— Við keyptum fyrirtækið 1983
af Tómasi A. Tómassyni, en hann
átti þó hlut í því fram til ársins
1985. Fyrirtækið réð aldrei við það
að greiða niður kaupverðið og með
aukinni samkeppni og breyttum
neyzluvenjum fór smám saman að
halla undan fæti, sagði Helgi
Gestsson í viðtali við Morgun-
blaðið. — Banabiti þessa fyrirtæk-
is eins og svo margra annarra í
þessari grein var svo álagning
söluskatts á matvörur.
— Það hafa verið erfiðleikar í
þessari grein og við fórum ekki
varhluta af þeim samtímis því, sem
við stóðum í miklum fjárfestingum
á versta tíma og því fór sem fór,
sagði Helgi Gestsson að lokum. —
Ég spái annars bjartri framtíð í
þessari grein. Það er að eiga sér
stað ákveðin hreinsun þar, því að
skyndibitastaðimir voru orðnir allt
of margir og þeim hlaut að fækka.
Þetta kemur misjafnt niður á fyrir-
tækjunum eftir því, hvar þau eru
stödd í fjárfestingum og hver eig-
inijárstaða þeirra er.
Kaupum og seljum
HLUTABREF
GENGIVIKUNNAR BREYTINGAR Á GENGI
51- 52
V/H ***lnnra Kaup Sala Fró siðustu 12mán.
STAÐGREIÐSLA margf. virði skrán.
Eimskip 7,54 3,44 3,61 3,80 1,33% 104,30%
Flugleiðir 92,87 2,51 2,73 2,85 1,06% 67,65%
Hampiðjan 10,22 1,90 1,46 1,55 1,97% 40,40%
Iðnaðarbanki 7,45 1,47 1,60 1,69 0,00% 35,75%
Verslunarbanki 12,02 1,32 1,46 1,52 0,00% 41,18%
UMBOÐSSALA* Almennar Tryggingar neg. 1,08 1,23 1,30 0,78% 0.00%
Alþýðubankinn hf. 4,14 1,21 1,03 1,14 0,00% 39,10%
ísl. útvarpsfélagið 18,96 1,44 1,95 2,05 0,00% 2,50%
Olíufélagið hf. 17,34 5,04 2,79 2,93 0,00% - 49,77%
Samvinnubanki hf. 7,25 1,33 0,92 1,02 0,00% 15,91%
Skagstrendingur hf. 3,11 4,85 1,85 1,95 0,00% 44,44%
Tollvörugeymslan 14,84 1,20 1,22 1,28 1,59% 53,85%
Útgerðarfélag Akureyringa 3,43 1,45 1,30 1,37 0,00% 18,10%
Hlutabréfasjóðurtnn hf. 0,00 0,00 0,00 1,57 0,89% 31,16
TILBOÐ** T ryggingamiðstöðin 3,38 1,29 1,32 1,35 0,00% 1,25%
íslenskur Markaður hf. 131,91 7,79 8,80 9,00 0,00% 0,00%
Skeljungur hf. 42,33 10,19 5,49 5,60 0,00% 0,00%
* Hlutabréf tekin I umboðssölu. Uppgefid gengi er siðasta sölugengi. Engar hindranir með viðskipti bréfanna skv. sam-
þykktum félaganna.
" Sfðasta skráða sölugengi hlutabréfa sem seld eru skv. tilboðsgerð. Takmörk eru sett með viðskipti bréfanna skv. sam-
þykktum félaganna.
*** Innra virði = Heildareigið fé pr 1 kr. i hlutafé sbr. ársreikning. Ekkl er tekið tillit til framtíðartekna.
V/H er núverandi virði skv. sölutilboði hlutabréfanna deilt með nettó hagnaði ársins.
TILBOÐ ÓSKAST
Höfum í umboðssölu
hlutabréf I eftirtöldum fyrirtækjum:
Fiskimjöl og lýsi hf.
Snartak hf.
Iceland Seafood Corporation Inc.
Áskilinn er réttur til
að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
FJARFESriNCARFElAGIÐ
UERÐBREFAMARKAÐUR
Hafnarstræli 7 101 Reykjavík s (91) 28566,
Kringlunni 103 Reykjavík S(91) 689700
Ráöhústorgi 3 600 Akureyri S (96) 25000