Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 5
4 B
B 5
MORGUNBLAЌ)
ÍÞRÓTTIR
ÞRHXJUDAGUR 24. JANUAR 1989
if
MORGUNBIAÐIÐ IÞROTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1989
AMERISKI FOTBOLTINN / “SUPERBOWL"
Reuter
Jerry Rice skorar snertimark eftir sendingu frá Joe Montana. Rice greip knöttinn tólf sinnum, sem gáfu um 200 metra
og er það met í úrslitaleik.
Joe Montana bjarg-
vættur 49ers
San Fransico vann Cincinnati 23:16 í spennandi leik
JOE MONTANA, leikstjórnandi
San Fransico 49ers, sannaði
enn snilli sína í úrslitaleiknum
f NFL-deildinni. Hann kom
knettinum í endamark til John
Taylor sem skoraði sigurmark-
ið þegar 34 sekúndur voru til
leiksloka í Superbowl-leiknum
í Miami á sunnudag. Cincinnati
Bengals hafði þriggja stiga for-
ystu, 16:13, þegar skammt var
til leiksloka og Montana þurfti
að byrja 92 metra frá marki
Cincinnati. Hann var ekkert að
tvínóna við hlutina, hver send-
ingin af annarri rataði til sam-
herja og áður en vörn Bengals
vissi af hafði Montana komið
liði sínu 82 metra áfram. Þá
kom lokasendingin og snerti-
mark, 23:16 — sigur San
Fransico var staðreynd.
| yrirfram var búist við mun
hærra skori í leiknum, enda tvö
Gunnar
Valgeirsson
skrífar
bestu sóknarliðin í deildinni að
keppa, en vamir beggja liða spiluðu
vel; í hálfleik var
staðan 3:3. í síðari
hálfleik skoraði Cin-
cinnati tvö vallar-
mörk og snertimark
gegn vallarmarki og snertimarki
hjá San Fransico. Staðan var því
16:13 þar til Montana tók til sinna
ráða rétt fyrir leikslok eins og get-
ið var í upphafí.
Þetta var þriðji meistaratitill San
Fransico á þessum áratug og hefur
Montana stjómað liðinu í öll skipt-
in. Hann vildi sem minnst gera úr
afreki sínu eftir leikinn og þakkaði
leikmönnunum í sóknarlínunni (en
þeir veija leikstjómandann gegn
áhlaupi vamarmanna) frábæran
leik. „Strákamir börðust eins og
ljón allan tímann og gáfust aldrei
upp. Þegar á þurfti að halda gáfu
þeir mér tíma til að gera það sem
gera þurfti. Það var stórkostlegt
að vinna leikinn á þennan hátt,"
sagði Montana eftir leikinn.
Þjálfari 49ers, Bill Walsh, sagði
eftir leikinn: „Leikmenn mínir
sýndu af sér góða sjálfsstjóm í lok-
in og Montana sýndi þá að hann
er einn besti leikstjómandi allra
tíma.“
Lið Cincinnati lék þennan leik
mjög vel þrátt fyrir tapið. Þjálfari
liðsins, Sam Wyche, sagði: „49ers
vann þennan leik á ótrúlegan hátt
í lokin. Ég sagði leikmönnum
mínum strax að leikslokum að eng-
inn þeirra hefði gert mistök í lokin
sem kostuðu okkur sigurinn. Ég er
mjög hreykinn af mínum mönnum
og þeir gerðu allt sem ég lagði fyr-
ir þá.“
Þetta var besti úrslitaleikurinn í
háa herrans tíð og sá jafnasti í tíu
ár. Hann var geysispennandi allan
tímann, þó svo ekki hafi verið mik-
ið skorað. Bengals-liðið spilaði vel
og einungis frábær leikur 49ers í
lokin tryggði þeim sigurinn.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Jordan med 53 stig!
Átti stórleik þráttfyrirtap. Góður sigur Boston á Detroit
MICAHEL Jordan átti enn einh
snilldarleikinn með Chicago er
liðið mætti Phoenix á laugar-
daginn. Jordan gerði hvorki
meira né minna en 53 stig sem
er met í deildinni í vetur. Þrátt
fyrir snilldarleik Jordan tapaði
Chicago, 107:116.
Jordan gerði tæplega helming
stiga Chicago en aðrir leikmenn
létu sér nægja að fylgjast með.
Bandarískir sjónvarpsmenn voru
sammála um að
þetta hafi verið besti
leikur Jordans og
hann lét sig ekki
muna um að troða
yfír 3-4 vamarmenn Phoenix.
Aðal leikur helgarinnar var þó
viðureign Boston og Detroit í Bost-
on Garden. Leikurinn var jafn og
spennandi framan af en Boston
náði svo 17 stiga forystu, 83:66.
Eftir það var allur vindur úr liði
Detroit og sigur Boston öruggur.
Þetta var einn besti leikur Boston
í vetur. Kevin McHale gerði 27 stig
og Robert Parrish 22 stig. Danny
Ainge átti einnig mjög góðan leik
Gunnar
Valgeirsson
skrífar
og athygli vekur hve vel Reggie
Lewis hefur fallið inn í lið Boston.
Boston vann í báðum leikjum
sínum um helgina því á föstudaginn
sigraði liðið Philadelphia, 109:107.
Þar gerði McHale 23 stig fyrir
Boston en Charles Barkley var
stigahæstur með 30 stig fyrir
Philadelphia.
Los Angeles Lakers sigraði Dall-
as 115:99. Þetta var 17. heimaleik-
ur Lakers og liðið hefur sigrað í
þeim öllum. Það var Magic Johnson
sem var stigahæstur í Iiði Lakers
með 30 stig.
Það hefur ekki gengið vel hjá
hinu liðinu í Los Angeles, Clippers.
Um helgina var þjálfarinn, Gene
Shue, rekinn. Ekki hefur verið
ákveðið hver tekur við.
Sacramento hefur hinsvegar
aldrei gengið jafn vel og síðustu
daga. Liðið sigraði Golden State,
136:11 á útivelli. Það var 8. sigur
Sacramento í röð og er það met
hjá félaginu.
Úrsllt/ B 6
Staðan/ B 6
Kevin McHale lék mjög vel með
Boston um helgina og var stigahæstur
í báðum leikjum liðsins.
GUÐNI BERGSSON
„Þeir ráku upp
stór augu...
...þegar ég mætti til leiks í gallabuxum"
GUÐNI Bergsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu úr Val,
er nú að hreiðra um sig í
Norður-London, þar sem
hann mun búa næstu árin.
Guðni hefur gerst atvinnu-
maður með hinu fræga Tott-
enham-liði - og hefur strax
náð að vinna sér fast sæti í
liðinu. Hann átti t.d. ágætan
leik þegar Tottenham gerði
jafntefli 2:2, gegn Middles-
brough á Ayresom Park á
laugardaginn var.
Það vakti mikla athygli hjá
stuðningsmönnum Totten-
ham, þegar fréttist að félagið
ætlaði að kaupa óþekktan íslend-
^^■1 ing til að leika við
SigmundurÓ. hliðina á
Steinarsson milljónarstjömum
skrifar liðsins. Það eru
ekki margar vikur
síðan Guðni Bergsson sat við sjón-
varpið í Reykjavík og horfði á
beinar útsendingar frá Englandi,
sem Bjami Felixsson lýsti, án
þess að hugsa svo langt að hann
ætti eftir að leika hlutverk í bein-
um útsendingum frá föðurlandi
knattspymunnar. „Þetta tækifæri
kom svo óvænt og snöggt upp,
að ég áttaði mig ekki á hlutunum
fyrr en ég var kominn upp I flug-
vél og var á leið til London til
viðræðna við Terry Venables og
forráðamenn Tottenham," sagði
Guðni.
HótollfflA er þreytandi
Guðni er nú búsettur á Swallov
Hotel í Waltham Abbey, sem er
við M25 hringveginn í London.
Hótelið er nýtt og í því em 165
herbergi. Þeir sem til þekkja vita
að það er ekki það skemmtileg-
asta að búa lengi á hóteli. Það
er ekki beint heimilislegt. Menn
geta ekki skroppið fram í eldhús
- opnað ísskápinn til að fá sér
mjólkurglas. „Hótelið er góðan
spöl frá miðborg London. Það er
mikil umferð hér um hótelið og
viðskiptafundir em haldnir hér
reglulega. Mikið er um það að
ýmsir sölumenn gisti á hótelinu
og komi hingað til að ræða málin.
Hér em menn lausir við umferða-
þungann sem er í miðborginni og
hér em næg bílastæði.
Á hótelinu em tveir veitinga-
staðir. Þeir em ágætir, en það
verður að hafa það í huga að
Bretar em ekki snillingar í matar-
gerð. Þá er hér sundlaug, gufu-
bað, líkamsræktarherbergi og sól-
baðsstofa," sagði Guðni.
„Starfsfólkið er mjög vingjam-
legt og þar sem ég hef búið á
hótelinu í nær sjö vikur er ég far-
inn að þekkja allt starfsfólkið. Það
er orðið eins heimilslegt hér og
getur orðið á hóteli.“
GuAni er búlnn aA kaupa sór
IftlA elnbýlishús
Guðni sagði að hann myndi
ekki búa mikið lengur á hótelinu.
„Ég er búinn að festa kaup á húsi
í Broxboum-hverfínu. Það er lítið
og huggulegt einbýlishús á tveim-
ur hæðum. í húsinu em Ijögur
herbergi, stofa, borðstofa og eld-
hús. Umhverfíð er gott og flestir •
leikmenn Tottenham-liðsins búa í
hverfínu, sem er rétt við gamla
æfíngarsvæði félagsins. Það tekur
okkur um þrjátíu mínútur að kom-
ast á White Hart Lane eða þá til
æfíngasvæðis Tottenham við Mill
Hill. Þrír aðrir leikmenn sem hafa
búið með mér hér á hótelinu, hafa
einnig fundið sér hús þar. Það em
þeir Paul Gascoigne, Paul Stewart
og Norðmaðurinn Erik
Thorstvedt.
Ekki miklA um skemmtilegar
uppákomur
Guðni sagði að hann væri enn
ekki búinn að átta sig á London.
„Ég er ekki búinn að koma mér
fyrir hér og það verður ekki fyrr
en ég fæ húsið, eftir þijár vikur.
Þá er ég ekki kominn á bíl og
dagamir hér í London em ekki
fullir af skemmtilegum uppákom-
um.
Ég rís úr rekkju klukkan átta
þijátíu til níu á morgnana og þá
er farið í morgunmat. Síðan er
æfingafötunum pakkað niður í
tösku og haldið er á æfíngu klukk-
an fimmtán mínutur í tíu. Það
tekur alltaf dágóðan tíma að kom-
ast til æfingasvæðisins á Mill Hill,
en æfíngar heflast þar klukkan
hálf ellefu og standa í einn og
hálfan tíma. Eftir það er farið í
sturtu. Flestir leikmenn Totten-
ham snæða í mötuneyti sem er á
æfingasvæðinu. Ég borða ekki
þar, enda ekki boðið upp á neinn
veislumat. Ég borða yfirleitt þeg-
ar ég kem aftur á hótelið um eitt
eftir hádegi. Þá fer ég í sundlaug-
ina og dóla mér það, ásamt því
að fara í gufu- og sólbað,“ sagði
Guðni, sem hefur fengið viður-
nefnið „Sólardrengurinn" hjá leik-
mönnum Tottenham, vegna þess
hvað oft hann skreppur inn á sól-
baðsstofuna.
Guðni sagði að hann færi síðan
upp á herbergi sitt klukkan fjög-
ur, tæki sér bók í hönd eða þá
horfði á sjónvarp. „Ég fer yfirleitt
að borða klukkan hálf átta og gef
mér þá góðan tíma við matarborð-
ið - þetta tvo tíma. Ég fer yfír-
leitt aftur upp í herbergi og tek
þá aftur við að lesa eða horfa á
sjónvarp. Það er því ekki hægt
að segja að dagurinn hjá mér sér
tilbreytingaríkur. “
UmferAln geysllega þung
„Nei, ég geri ekki mikið af því
að fara í gönguferðir um Ox-
fordstræti. Hér í London er það
ekki eins og vera búsettur á Njáls-
götunni - og geta skotist niður á
Laugarveg þegar manni dettur í
hug. Það tekur mig 45 mín. að
komast frá hótelinu og niður í
miðbæ. Ég hef nokkrum sinnum
fengið lánaða bifreið hjá félögum
mínum og skotist niður í miðborg.
Maður fer þá mjög varlega í
vinstri umferðinni og þá sérstak-
lega við gatnamót. Umferðin hér
í London er hrikaleg og ef maður
er gangandi á maður það alltaf á
hættu að ganga fyrir strætisvagn
eða leigubifreiðar. Ef maður lítur
ekki í rétta átt þegar gengið er
yfír götu, er alltaf hætta á að
maður gangi fyrir bifreiðar.
Ég hef nú kynnst London frá
allt öðru sjónarhorni en áður. Ég
kom oft hér við þegar ég var á
ferð með Valsliðinu eða landslið-
inu. Þá Ieit ég á London sem eina
línu - Heathrow-flugvöllinn, Ox-
fordstræti og Hyde Park. Ut af
þessari línu var ekki farið, enda
fannst manni nóg um að halda
sig á henni. Nú hefur maður séð
og kynnst að þessi lína er aðeins
ein æð í margbrotnu æðarkerfí
London,“ sagði Guðni.
„Ég þarf ekkl aA kvarta“
Margir erlendir knattspymu-
menn, sem hafa gerst leikmenn
með enskum liðum, hafa kvartað
yfír því að þeir hafí ekki náð að
aðlaga sig fólkinu og umhverfinu
í Englandi. Belgíski landsliðsmað-
urinn Nico Claesen, sem lék með
Tottenham hrökklaðist frá félag-
inu, þar sem hann náði aldrei að
festa rætur í London.
Hvemig hefur Guðna verið tek-
ið í hinum harða heimi knatt-
spymumannsins? „Ég þarf ekki
að kvarta. Það tekur alltaf sin.n
tíma að kynnast nýrri þjóðarsál.
Ég hef átt auðvelt með að um-
gangast Englendinga, sem em
viðkunnalegir, þægilegir og léttir
í skapi. Ég hef fengið jákvæð við-
brögð hjá forráðamönnum og leik-
mönnum Tottenham. Englending-
ar em góðar hópsálir og með
góðan húmor. Það er mikils virði
að lenda í góðum félagshópi, en
auðvitað tekur það tíma að venj-
ast nýjum aðstæðum, eftir að
hafa umgengist hinn góða og
skemmtilega hóp Valsmanna.
Ekki skemmir það að stuðn-
ingsmenn Tottenham hafa tekið
mér vel - gerðu það strax í fyrsta
leiknum. Eg fann það strax, því
að þeir klöppuðu þegar ég tók
innkast. Það hefur mikla þýðingu
að hafa stuðningsmenn með sér
strax frá byijun. Belgíumaðurinn
Nico Claesen náði til dæmis ekki
að vinna sér fastan sess hjá stuðn-
ingsmönnum Tottenham og það
átti stóran þátt í að hann fór frá
félaginu. Það tekur mikið á taug-
amar að fínna að manni er ekki
tekið hjá stuðningsmönnunum,"
sagði Guðni.
„Ekkl vel sóA þegar 6g msatti
í gallabuxum"
Þegar Guðni var spurður um
hvort að hann þyrfti að fara eftir
mörgum og ströngum reglum,
sem leikmaður Tottenham, sagði
hann að það væri ekki mikið um
strangar reglur. „Það er þó eitt
sem við verðum að fara eftir -
að mæta í jakkafötum í leiki.
Þegar ég lék fyrst með varaliðinu
mætti ég í borgaralegum íslensk-
um klæðnaði. Forráðamenn Tott-
enham voru ekki yfir sig ánægðir
með klæðaburð minn og mér var
bent á að koma í leiki í skyrtu
með bindi og í jakka. Ég gerði
það, en var í gallabuxum. Þegar
ég mætti þannig klæddur, ráku
menn upp stór augu. Eftir þessa
uppákomu var það tekið sérstak-
lega fram hvemig ég ætti að
GuAnl Bergsson sést hér i baráttu um knöttinn við Brian Marwood,
útheijann snjalla hjá Arsenal.
Guðni Bergsson
Fæðingardagur: 21.07. 1965.
Fj&lskylduhagir: í sambúð með
Elinu Konráðsdóttur.
Félagslið: Valur, 1860 Miinchen,
Tottenham. Fyrsti meistara-
flokksleikurinn með Val
1983 gegn ÍBK.
Titlar: íslandsmeistari 1985, 1987.
Bikarmeistari: 1988.
Landsleikir: 24 a-landaleikir (fyrsti
1984 gegn Saudi-Arabiu),
6 U-21, 5 U-18, 1 U-16.
Viðurkenningar: Efnilegasti leik-
maður 1. deildar 1984,
leikmaður Morgunblaðsins 1987,
leikmaður DV 1988.
mæta í leiki - ég var látinn fara
yfír klæðaburð, frá skóm og upp
úr. Já, hér í Englandi ganga menn
um eins og þeir séu klipptir út
úr PÓ-auglýsingu, eða eins og
sagt er; allt frá hatti niður í skó!
Það er oft furðulegt að sjá menn
standa stífa í neðanjarðarlestun-
um - í jakkafötum, stífpressuðum
skyrtum með bindi.
Þá er mikið lagt upp úr því að
við mætum tímalega og að menn
standi sig í sínu starfi sem knatt-
spymumenn. Forráðamenn Tott-
enham skipta sér ekki af einkalífi
leikmanna.“
LítlA hftaA upp fyrlr lelki
Hvemig haga leikmenn Totten-
ham sér fyrir leiki á White Hart
Lane? „Við mætum þetta tvo tíma
fyrir leik í okkar fínasta pússi.
Menn setjast þá niður og ræða
saman og síðan er haldinn fund-
ur, þar sem farið er yfír ýmis
atriði fyrir leikinn. Klukkutíma
fyrir leik förum við til búnings-
klefa. Þá fá menn smá nudd og
þegar þijátíu mínútur em í leik,
hita menn upp í þetta fimmtán
mínútur. Upphitunaræfingarnar
em stuttar og snarpar. Leikmenn
hugsa lítið um að teygja á vöðvum
og hita liðamót. Élestir sparka
knetti á milli sín eða virða fyrir
sér áhorfendur. Ég reyni að halda
mig við ýmsar teygjuæfingar sem
ég hef lært, þó að persónulega
sé ég ekki mikið hrifínn af því
að vera teygja mig of mikið.“
Guðni, þú minntist á stundvísi.
Nú hefur það lengu verið sagt um
þig að stundvísi sé ekki þín sterk-
asta hlið?
Jú, ekki get ég neitað því að
óstundvísi hefur verið borið upp
á mig. Ég skal segja þér að þegar
ég var í Munchen síðasta vetur
hjá 1860 Miinchen, þótti ég
stundvísasti leikmaður liðsins. Þar
rak ég af mér sliðmorðið. Það
hefur tekið mig tuttugu og þijú
ár að komast á þetta stig. Því vil
ég ekki kannast við það nú að ég
sé óstundvís."
„Er orAinn elnn af hópnum“
Margir hafa velt því fyrir sér
hvemig það sé fyrir _ óþekktan
knattspymumann frá íslandi að
koma snöggt inn í milljónapunda-
mannahóp Tottenham - svona
utan af götunni, ef svo má að
orði komast. „Það er draumur
allra knattspymumanna að fá
tækifæri til að spreyta sig með
þekktum félagsliðum. Fýrst var
þetta mjög framandi, en ég komst
ótrúlega fljótt inn í liðsheildina
hjá Tottenham. Þetta er allt ann-
að líf heldur en á íslandi. Það er
geysilega mikið umstang í kring-
um Tottenhamliðið. Þess vegna
finnst manni það oft ótrúlegt,
hvað það tók mig stuttan tíma til
að ná að vinna mér sæti í liðinu.
Maður getur stundum ekki annað
en brosað þegar maður hugsar
um þetta. Það er eins og þetta
hafí alltaf staðið til, þó að hlutim-
ir hafi gerst óvænt. Ég hafði
heppnina með mér og er orðinn
einn af hópnum - og það er eins
og ég hafí verið hér á White Hart
Lane í mörg ár.
Það tekur alltaf sinn tíma að
Morgunblaöið/Tony Eyles
aðlagast nýjum aðstæðum. Ég
styrkist mikið með hvetjum leik.
Það er allt annað að leika hérna
í hinum hraða leik heldur en vera
að dútla sem aftasti vamarleik-
maður heima á íslandi," sagði
Guðni.
Miklar kröfur gerAar
til Tottonham
Tottenham er eitt af ríkustu
félögum Englands og félag sem
mikið hefur verið í sviðsljósinu
undanfarin ár. Mikil pressa hefur
verið á leikmönnum liðsins og
Terry Venables, framkvæmda-
stjóra, sem kom til Tottenham frá
Barcelona. Tottenham er í N-
London eins og Arsenal, sem
tijónir nú á toppi 1. deildarkeppn-
innar. Rígurinn er geysilegur á
milli þessara félaga og sá rígur
jaðrar við hatur hjá stuðnings-
mönnum Tottenham. „Ég veit um
þennan ríg, en hef ekki orðið svo
mikið var við hann sjálfur, þar
sem ég er svo ný kominn til Tott-
enham,“ sagði Guðni.
„Maður kemst ekki hjá því að
verða var við það að pressan er
milcil á okkur hjá Tottenham. Það
er krafíst þess að við séum í einu
af toppsætunum. Hér í Englandi
er knattspyma ekki aðeins leikin
vegna ánægjunnar. Knattspyman
er viðskipti og sá rekstur verður
að borga sig. Ég hef trú að við
eigum eftir að klífa upp stigatöfl-
una. Það gekk vel hjá okkur í
nóvember og desember, en síðan
kom bakslag þegar við töpuðum
fyrir Arsenal hér á White Hart
Lane. Sigur Arsenal var ósann-
gjam - jafntefli hefðu verið sann-
gjöm úrslit. Eftir þann leik kom
tap í bikarkeppninni fyrir Brad-
ford og síðan í deildinni gegn
Nottingham Forest," sagði Guðni.
Guðni lék með Tottenham gegn
Middlesbrough sl. laugardag og
fékk hann góða dóma í ensku
blöðunum, sem voru á einu máli
um að Tottenham-liðið hafi leikið
vel.
■ KENNY Dalglish hinn litrfki stjóri
Liverpool, er þekktur fyrir annað en
að fara silkihönskum um leikmenn sína.
Hefur oft soðið upp úr og á laugardag-
HgHi inn gerðist það aftur. Þá
FráBob tilkynnti hann Steve
Hennessy McMahon með tveggja
' Snglandi stunda fyrirvara, að hann
færi á varamannabekk-
inn. Sömu meðferð fékk markvörðurinn
Mick Hooper sem staðið hefur í marki
meistaranna í 25 síðustu leikjunum og
þótt standa sig vel utan gegn Sheffield
Wedensday fyrir rúmri viku. Bruce
Grobbelaar náði aftur stöðu sinni og
Hooper stormaði heim ævareiður og
talaði ekki við kóng eða prest. McMahon
varð einnig öskuillur og tilkynnti að
hann sætti sig ekki við svona lagað.
Ætlaði hann að ræða undir fjórum við
stjóra sinn hið fyrsta og ekki biðja um,
heldur heimta skýringar. Steve McMa-
hon er 27 ára gamall, en hann var fyrsti
leikmaðurinn sem Dalgiish reiddi fram
umtalsverða upphæð fyrir, er hann
keypti leikmanninn frá Aston Villa árið
1985 fyrir 375.000 pund. Allar götur
síðan hefur McMahon verið lykilmaður
í liði Liverpool.
■ BRÁÐEFNILEGUR framheiji,
John Durnan, 23 ára gamall hjá Li-
verpool er nú einn eftirsóttasti knatt-
spymumaður Englands. Hann þykir
geysilegt efni, en kemst ekki í lið meðan
menn eins og Ian Rush og John
Aldridge þykja sjálfsagðir í liðið. Bæði
WBA og Newcastle hafa boðið í piltinn
og fleiri hafa sýnt áhuga.
■ DA VE Smith hætti skyndilega sem
stjóri hjá Dundee um helgina. Er reikn-
að með því að forráðamenn félagsins
reyni að lokka Gordon Strachan til
starfans og þá bæði sem sljóra og leik-
mann. Strachan kemst í lið hjá Manc-
hester United um þessar mundir og þvf
ekki vfst að hann fysi að breyta til alveg
I bráð.
■ KEVIN Driukell fyrrum framheiji
hjá Norwich stendur í ströngu hjá nýja
félagi sínu Glasgow Rangers, en í stuttu
máli gengur honum bölvanlega þar um
slóðir. Hann kemst ekki í lið lengur og
forráðmenn Manchester City eru að
undirbúa tilboð upp á allt að 500.000
pund.
MEF við dokum aðeins við hjá Glasgow
Rangers þá er markvarðarhörgull á
þeim bæ allar götur síðan að aðalmark-
vörðurinn Chris Woods fékk slæma
vírussýkingu, bókstaflega vaknaði einn
góðan veðurdag með skerta sjón og svo
slæmt jafnvægisskyn að getur vart
gengið óstuddur. Varamarkvörðurinn
Nicki Walker er uppi á kant við stjóra
liðsins sem ætlar nú að bjóða S Brian
Gunn, hinn 24 ára gamla markvörð
Norwich. Það er skrýtin tilviljun, að
Gunn tók við hjá Norwich er Woods
fór þaðan til Rangers.
■ HINN víðförli sóknarmaður Simon
Stainrod sem síðast lék með Stoke
hefur æft alla síðustu viku hjá Strass
bourg í Frakklandi. Þykir líkiegt að
samningar takist, enda hefur stjóri
Stoke, Mick Mills sagt að hann sam-
þykki hvaða tilboð sem er.
■ ÍTALSKA ríkisstjórnin hefur sam
þykkt að reidd verði fram upphæð sem
nemur 2,6 milljörðum dollara til undir-
búnings lokakeppni HM í knattspymu
sem fram fer á Italíu árið 1990. Verður
upphæðinni dreift til borgarstjóma
þeirra 12 borga þar sem leikir fara fram.
Áður hafði ætlunin verið að snara út
helmingi hærri upphæð, en sú tillaga
náði ekki fram að ganga og var þá gerð
mikil niðurskurðaráætlun. Samt er
reiknað með því að keppnin verði hin
glæsilegasta.
B BRETLAND sigraði Vestur
Þýskaland í öldungaflokki á móti í Sao
Paulo í Brasilíu. Er um knattspymu
að ræða. Duncan McKenzie og Frank
Worthington skomðu mörk sigurliðsins,
en Klaus Toppmuller svaraði fyrir
Þjóðveija.