Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989 KNATTSPYRNA / HM Spánverjar unnu á Möltu Spánvetjar héldu áfram sigurgöngu sinni í heimsmeistarakeppninni á sunnudaginn. Þeir lögðu Möltubúa að velli, 2:0, í Valleta á Möltu. 20 þús. áhorfendur sáu leikinn og léku Spán- veijar aðeins tíu undir lokin. Manolo Sanchez var rekinn af leikvelli á 73. mín. fyrir háska- leik. Hann mun því ekki leika með Spánveijum gegn N-írum í Belfast 8. febrúar. Michel Gonzalez skoraði fyrra mark Spán- veija úr vítaspymu á 16. mín., eftir að Sanc- hez var felldur. Aitor Beguiristain seinna mark- ið. TENNIS Becker úr leik Boris Becker tapaði mjög óvænt fyrir Svíanum Jonas Svens- son í 3. umferð opna ástralska tennismótsins. Tapið kom mjög á óvart því Becker hefur leikið vel í vetur og var búist við að hann næði langt að þessu sinni. Það voru uppgjafímar sem urðu Becker að falli. Rúmlega helmingur þeirra var utan vallar. Becker hefur reyndar alltaf gengið illa á þessu móti og yfírleitt fallið snemma úr keppni. Becker var annar af efstu mönnum á mótinu til að falla úr keppni. Áður hafði Mats Wilander, sem talinn var besti maður mótsins, tapað fyrir óþekktum Indveija. Að öðru leyti gekk allt sinn vanagang. Ivan Lendl og Stefan Edberg áttu greiða leið í 4. umferð og John McEnroe fékk aðvömn fyrir að rífast við dómara, rétt eins og venjulega. Hann var sektaður og einnig Pat Cash, en hann hefur átt í mestu vandræðum í fyrstu umferðunum. Hann komst þó áfram og ætlar sér stóra hluti á mótinu, enda á heimavelli. í kvennaflokki hafa Steffí Graf, Gabriela Sabatini og Martina Navratilova leikið mjög vel. Flestir spá því að Graf og Navrat- ilova mætist í úrslitum en Graf mætir Sabatini í undanúrslitum. Borls Bocker er úr leik á opna ástralska meistaramótinu. KARFA Haukar gegn IMjarðvík Haukar drógust gegn Njarðvíkingum í 8-liða úr- slitum bikarkeppninnar í körfu- knattleik. Fyrri leikur liðanna verður leikinn í Hafnarfirði. KR-ingar leika gegn Tinda- stól, Breiðablik mætir ÍR og B-lið Njarðvíkinga leika gegn B-liði ÍS. Fastlega má reikna með að gömlu landsliðsmennim- ir frá Njarðvík, komist í undan- úrslit. Með liðinu leika Þorsteinn Bjamason, Gunnar Þorvarðar- son, Stefán Bjarkason og Brynj- ar Sigmundsson. ÍHémR FOLK ■ ALÞJÓÐAKNATT- SPYRNUSAMBANDID hefur af- létt leikbanni af knattspymuvöllum í íran eftir að heimamenn lögðu fram nægileg gögn til að sannfæra það um öryggi gestkomandi knatt- spymumanna. Meðan Persa- flóastríðið stóð yfír voru bæði íran og írak í alþjóðlegu leikbanni. íran- ir héldu upp á atburðinn með því að taka á móti Japanska landslið- inu. Var leikið í Teheran og skildu liðin jöfn, 2:2. ■ PAUL WEKESA fyrsti og eini atvinnumaður Kenya í tennis, hefur verið dæmdur í leikbann um óákveðinn tíma heima fyrir eftir að hafa í annað sinn á níu mánuðum orðið uppvís að því að keppa við tennisfólk frá Suður Afríku. ■ BRESKA skíðasambandið hefur sett Eddie „the Eagle“ Ed- wards út í kuldann vegna þess að árangur hans hefur ekki verið sem skyldi í seinni tíð. Hefur honum verið gert að stökkva sem nemur fjórðungi lengdar sigurstökks hvers móts, en því fer fjarri að hann hafí sýnt slíka getu. Öminn er eyðilagð- ur maður vegna þessa og segist hafa sett niður eftir að hafa orðið fyrir meiðslum fyrir mánuði síðan. Sannarlega taki hann íþrótt sína alvarlega, ævi sig meira að segja inni á hótelherbergjum! Talsmaður breska skíðasambandsins sagði að hann hefði þá trú að Öminn gæti gert betur ef hann væri ekki alltaf með auglýsingaskrum. Einbeitti sér meira að íþrótt sinni. ■ EKKI voru 60.000 Líbíu- menn alls kostar glaðir um helgina eftir að þeir höfðu borgað sig inn á landsleik Líbíu og Alsír, en svo var allt í einu tilkynnt um hátalara- kerfí vallarins, að Líbía hefði gefíð Alsír leikinn vegna þess að þeir væm „bræður" Líbíumanna og á milli þjóðanna gæti aldrei verið nein keppni. Auk þess styddi Alsír málstað Líbíu gegn Bandaríkjun- um. Eftir þetta flugust þúsundir manna á við lögreglu á götum Trip- olí langt fram á kvöld. Síðan sendi knattspymusamband Líbíu skeyti til FIFA þar sem beðist var velvirð- ingar á atburðinum, en það hefði ekki verið forsvaranlegt að láta leik- inn fara fram þar sem keppnisvöll- urinn væri býsna nærri efnaverk- smiðju einni umtalaðri og þar setji reikna mætti með bandarískri loft- árás á hverri stundu hefði verið tekin sú ákvörðun aðgefa leikinn. ■ MARTIN Kree, vamarleik- maður hjá Bochum og skotfastasti leikmaðurinn í V-Þýskalandi, mun ganga til liðs við Leverkusen næsta keppnistímabil. ■ FRANK MiII, sóknarleikmað- ur Dortmund, hefur hætt við að Sanga til liðs við Köln. I STEFAN Engel, leikmaður hjá Köln, hefur hug á að ganga til liðs við Schalke. HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI KVENNA Fram gerði ekki markí 23 mín- útur FRAMSTÚLKUR fengu skell í síðari leik sínum gegn sovéska liðinu Spartak Kiev í Evrópu- keppni meistaraliða kvenna í handknattleik. Spartak sigraði örugglega, 35:14, samtals 30:57 og heldur því áfram en Framerúrleik. Það hefði þurft dágóðan skammt af bjartsýni til að ætla Fram að vinna upp sex marka forskot Spartak úr fyrri leiknum. Sovéska liðið er eitt sterkasta fé- lagslið heims og möguleikar Fram því ekki miklir. Útkoman úr síðari leiknum var þó heldur slakari en í þeim fyrri. Það sem réð úrslitum var hræðileg- ur kafli um miðbik leiksins er Fram gerði ekki mark í 23 mínútur. Byijunin lofaði þó góðu og Fram var yfír 4:3. Sovésku stúlkumar tóku þá við sér og gerðu næstu fímm mörk. Þegar staðan var 6:10 hrökk allt í baklás hjá Fram. Ekk- ert gekk í sókninni og næsta mark Morgunblaðifi/Logi B. Eiðsson Ósk Víðsdóttlr sleppur hér inn úr hominu þrátt fyrir ákafar vamartil- raunir Spartak. kom ekki fyrr en um miðjan síðari hálfleik. Þá var staðan 6:24 og ör- uggur sigur Spartak í höfn. Framstúlkur léku vel framan af en virtust gefast upp þegar líða tók á leikin. Guðríður Guðjónsdóttir var allt í öllu og gerði rúmlega helming marka liðsins. Aðrar áttu ekki mikla möguleika gegn sterkri vöm sov- éska liðsins. Spartak mun án efa ná langt í Evrópukeppninni. Liðið er mjög sterkt og það er engin skömm að falla úr leik fyrir slíku liði. araliða í handknattleik kvenna, 2. umferð, síðari leikur. Sunnudaginn 22. janúar 1989. Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 2:2, 4:3, 4:9, 6:10, 6:16, 6:24, 7:27, 9:30, 10:31, 12:31, 13:31, 13:33, 14:36. Mörk Fram: Guðríöur Guðjónsdóttir 8/2, Ingunn Bemódusdóttir 2, Jóhanna Halldórsdóttir 1, Margrét Blöndal 1, Ósk Víðiödóttir 1 og Hafdís Guðjóns- dóttir 1. Varin akot: Kolbrún Jóhannsdóttir 3. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Spartak: Inna Shevchenko 10, Vitoria Gamusova 7, Tatiana Gorb 7, Olga Semenova 6, Anzhela Shvaj- koskaja 2, Tamila Oleksjuk 2, Natalia Turchina 1 og Larisa Polaikh 1. Varin skot: Natalia Rusnachenko 4, Natalia Mitriuk 4. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Olsen og Valstadt frá Nor- egi. Dæmdu þokkalega. Ahorfendur: 100. MATS Olsson, landsliðsmark- vörður Svía, lokaði nær marki Teka í fyrri hálfleik gegn Gran- ollers um helgina. Gestirnir voru með átta marka forystu í hálfleik, 16:8, en eftir hlé sner- ist dæmíð við og Granollers sigraði með éinu marki, 26:25. Granollers lagði Teka SPANN KORFUKNATTLEIKUR Létt hjá Haukum EINI leikurinn sem fram fór í úrvalsdeildinni íkörfu um helg- ina var leikur ÍS og Hauka. Öðrum var frestað vegna ófærðar. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, munurinn á liðunum var alltof mikill til að nokkur gæti haft gaman af honum. Haukar léku án Hennings Henn- ingssonar sem var í leikbanni en það kom ekki að sök gegn ÍS. Það sem einna helst gladdi augað var að Pálmar hitti nú eins og hann á að sér úr þriggja stiga skotum en hann skoraði alls 15 stig úr slíkum skotum. Jón Amar, Hörður og Tryggvi Jónsson léku einnig vel og sýndu oft skemmtileg tilþrif. Hjá Stúdent- um var Valdimar einna bestur en hann hefði að ósekju mátt skjóta meira í fyrri hálfleik. Pálmar Sigurðsson, Jón Arnar Ingvarsson og Tryggvi Jóns- son, Haukum. ÍS-Haukar 56 : 94 íþróttahús Kennaraháskólans, íslandsmótifi f körfuknattleik, sunnudaginn 22. janúar 1989. Gangur leiksins: 0:6, 4:13, 7:25, 20:40, 24:49, 31:60, 42:72, 52:88, 56:94. Stig fS: Valdimar Guðlaugsson 14, Jón Júllusson 12, Guðmundur Jóhannsson 10, Þor- steinn Guðmundsson 8, Auðunn Ellasson 6, Kristján Oddsson 4, Gfsli Pálsson 2. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 19, Tryggvi Jónsson 18, Hörður Pétursson 14, Jón Amar Ingvarsson 14, Reynir Kristjánsson 9,fvar Ásgrimsson 8, Eyþór Ámason 6, Har- aldur Sæmundsson 4, Tryggvi Ásgrímsson 2. Áhorfendur: 16. Dómarar: Wiliiam Jones og Bergur Steingrfmsson og dæmdu þeir auðveidan leik vel. SkúliUnnar Sveinsson skrilar Frá Atta Hilmarssyni á Spáni Leikmenn Teka nýttu hraðaupp- hlaupin vel í fyrri hálfleik eftir frábæra markvörslu Svíans, en sóknir Granollers gengu mun betur eftir hlé. Kristján Arason var með ágæta nýtingu, skoraði sex mörk og þar af fjögur úr vítum, en engu að síður hefur hann oft verið betri. Vialdea var marka- hæstur með sjö mörk, en Melo skor- aði fímm. Prank skoraði sjö mörk fyrir Granollers, en Per Carlén fímm. Granollers hafði sætaskipti við Teka og er í fyrsta sæti riðilsins með 20 stig. Teka er með 19, Caja Madrid, sem vann Alicante 31:17, er með 18 stig eins og Valencia, sem vann Valladolid 24:22. For- keppninni lýkur um næstu helgi og fara Granollers, Teka, Caja Madrid og Valencia í keppni um efstu sæti, en hin fjögur liðin keppa við fjögur neðstu liðin í a-riðli um áfram- haldandi veru í deildinni. í a-riðli urðu úrslit þessi: Atletico Madrid- Uniexpress 21:21, Barcelona- Avilles 32:20, Malaga-Tres de Mayo 30:15, Lagisa-Bid- asoa 26:25. Atletico, Barcelona, Lagisa og Bidasoa eru f fjórum efstu sætunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.