Morgunblaðið - 14.02.1989, Side 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ SÞROTTIR ÞRŒUUDAGUR 14. FEBRÚAR 1989
“T
MORGUNBLAЌ)
ÍÞRÓTTIR
ÞRŒUUDAGUR 14. FEBRUAR 1989
B 5
HANDKWATTLEIKUR / B KEPPNIN I FRAKKLANDI
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
frá Frakklandi
■ ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik æfði á keppnisstað í gær.
íþróttahöllin, Chantereyne, tekur
2.700 áhorfendur, en liðin, sem
keppa í Cherbourg,
munu einnig æfa í
annarri minni höll,
Jean Jaurés.
■ ENGINN
blaðamaður kom með landsliði
Kúvait í gærkvöldi. Hins vegar er
væntanlegur blaðamaður með
landsliði Rúmeníu í dag og annar
með landsliði Búlgariu. Tveir
íslenskir blaðamenn fylgjast með
riðlakeppninni í Cherbourg og einn
útvarpsmaður.
■ UPPSELT er á leikina í C-
riðli hér í Cherbourg á fimmtudag
og laugardag, að sögn mótshaldara,
en ekki er uppselt fyrsta leikdag-
inn, á morgun. Á morgun mætast
ísland og Búlgaría annarsvegar
og Rúmenía og Kúvait hinsvegar.
Á fimmtudag eru svo eftirtaldir
leikir: Kúvait — ísland og Búlg-
aría — Rúmenía. Fyrri leikurinn á
laugardaginn er viðureign Búlgara
og Kúvaitbúa og síðasti leikurinn
hér í Cherbourg verður viðureign
íslendinga og Rúmena, sem menn
telja greinilega að verði úrslitaleik-
ur riðilsins. Allir leikirnir fara fram
í sömu íþróttahöll, Complexe
Sportif Chantereyne. Þar komast
um 2.700 manns fyrir á áhorf-
endapöllum.
JÓN Hjoltalín Magnússon,
SSI, hitti ]
formaður HSÍ, hitti prófessor Her-
mann, formann handknattleiks-
samban<js Austur-Þýskalands á
formannafundi handknattleikssam-
banda í Frankfurt. Hermann
sagði að það væri 99% öruggt að
Paul Tiedemann yrði næsti þjálf-
ari íslenska landsliðsins — aðeins
væri beðið eftir formlegu svari
íþróttamálaráðherra Austur-
Þýskalands.
■ Á ÞESSUM fundi kom fram
stuðningur við tillögu íslands þess
efnis að breyta fyrirkomulagi
heimsmeistarakeppninnar á þann
veg að sleppa B-keppninni, en leika
PARlSI
8 |™j
FRAKKLAND 1989
þess í stað með 24 lið í A-keppn-
inni. Þá ættu tvö lið frá hverri
heimsálfu fast sæti og miðað við
óbreytt styrkleikahlutfall ætti Evr-
ópa ávallt möguleika á að eiga 15
til 18 líð í keppninni.
■ BORGARSTJÓRINN í
Frankfurt bauð fundarmönnum í
veislu og lýsti því þar yfir að Frank-
fiirt myndi sækja um að halda
Ólympíuleikana árið 2004. Undir-
búningur væri þegar hafínn og m.
a. ætti að stækka knattspymuvöll-
inn og fjölga sætum úr 60.000 í
80.000. Þá yrði byggð íþróttahöll,
sem tæki 25.000 áhorfendur.
Paul Tiedemann
Hitað upp í Luxemborg:
Ömggur sigur
Kristján Arason skoraði sjö
mörk þegar íslendingar sigr-
uðu landslið Lúxemborgar 28:23
(15:13) á sunnudaginn á leið sinni
til Frakklands.
Alfreð Gíslason,
Bjarki Sigurðsson
og Einar Þorvarð-
arson hvíldu allir
að þessu sinni. Sigurinn var ör-
uggur, en að sögn íslendinganna
hér i gær voru heimamenn án-
ægðir með að tapa ekki með meiri
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
mun. Það eina sem Bogdan, lands-
liðsþjálfari, sagði var: „Þú hefðir
átt að sjá dómarana!" Og brosti
síðan út í bæði!
Mörk íslands skoruðu Kristján
Arason 7, Jakob Sigurðsson og
Júlíus Jónasson 4 hvor, Þorgils
Óttar Mathiesen og Valdimar
Grímsson 3 hvor, Geir Svéinsson
og Héðinn Gilsson 2 hvor. Eitt
mark skoruðu Sigurður Gunnars-
son, Birgir Sigurðsson og Sigurð-
ur Sveinsson.
B-KEPPNiN í HANDKNATTLEIK
í Frakkiandi, 15.-26. febrúar 1989
Leikstaðir
í Frakklandi
Islenska landsliðið leikur í C-riðli
og er leikið í Cherbourg, sem er
á Normandískaganum. Borgin er
332 km frá París. íbúafjöldi er
28.442. Leikimir fara fram í
Chantereyne-höllinni, sem tekur
2.700 áhorfendur.
■A-riðill er leikinn í Nantes, sem
er 394 km frá París. íbúafjöldi er
247.300. Þar er keppt í íþróttahöll
sem tekur 7.000 áhorfendur.
■B-riðill er leikinn í Grenoble, sem
er 557 km frá París. íbúafjöldi er
169.503. Keppt er þar í afar glæsi-
legri íþróttahöll, sem tekur 12.000
áhorfendur.
■D-riðill er leikinn í Belfort, sem
er 423 km frá París. íbúafjöldi
52.739. Keppt er í höll sem tekur
3000 áhorfendur.
■Milliriðill 2 fer fram í Stras-
bourg, sem er 457 km frá París.
íbúafjöldi 500.000. Keppt er í höll
sem tekur 7.000 áhorfendur. ís-
lenska liðið leikur í Strasbourg, ef
það kemst í milliriðil.
■Milliriðill 1 fer fram í Marseille,
sem er 797 km frá París. íbúafjöldi
878.689. Keppt er í höll sem tekur
7.000 áhorfendur.
■Keppni þeirra þjóða, sem leika
um þrettánda til sextánda sæti, fer
fram í Dijon, sem er 309 km frá
París. Keppt er þar í höll sem tekur
3.500 áhorfendur.
■Úrslitaleikir fara fram í Palais
Omnisport de París Barcy, sem tek-
ur 15.000 áhorfendur.
Öll liðin
á sama
hóteli
Landsliðin fjögur sem keppa
í C-riðlinum í Cherbourg
búa öll á sama hótelinu meðan
þau dveljast hér fram á sunnu-
dag. Hótelið
stendur við höfn-
ina og þegar
leikmenn líta út
um gluggann
blasa við þeim smábátar og
snekkjur sem eru margar hér.
Það er aðeins um fímm mínútna
akstur frá hótelinu í keppnis-
höllina. Þess má geta að við
hlið hallarinnar er einnig gott
hótel. Þar búa dómarar og full-
trúar IHF, alþjóðasambandsins.
Skapti
Hellgrímsson
skrífarfrá
Frakklandi
Nýbúið að setja dúk
á gólf hallarínnar
HÖLLIN, þar sem leikirnir í D-riðli
fara fram, er 12 ára. Vegna B-
keppninnar hefur verið unnið við
lagfæringar á keppnissalnum og er
m.a. nýbúið að setja nýjan dúk á
gólfið í salnum. Hann er grænn eins
og víða í íþróttahúsum á Islandi en
í húsinu hér er eingöngu merktur
handknattleiksvöllur. Menn ættu
því ekki að ruglast á línum.
Þegar blaðamaður Morgunblaðsins
leit inn í höllina í gær var þar múg-
ur og margmenni að leggja síðustu hönd
á undirbúning fyrir keppnina. Verið var
að mála innandyra og þrífa bæði að utan
og innan. Net var komið í annað markið
og verið var að setja upp áhorfendapall-
ana, sem eru við báðar langhliðar vallar-
ins, svo og fyrir aftan mörkin.
Höllin stendur á hafnarbakkanum, við
hliðina á klúbbhúsi siglingaklúbbs bæjar-
ins.
Islendingar sigur-
stranglegastir
- segir bæjarblaðið í Cherbourg - La Presse de la Manche
BÆJARBLAÐIÐ f Cherbourg
segir að íslendingar séu lang
sigurstranglegastir í B-
keppninni í handknattleik
sem hefst hér á morgun.
Iblaðinu, La Presse de la Manc-
he, sem kallað mætti Ermar-
sundstíðindi upp á íslensku, segir
að það sé mikið gleðiefni fyrir
handknattleik-
Frá Skapta sunnendur að fá
Hallgrímssyni þetta sterka lið til
íFrakkiandi bæjarins. Blaðið
hælir einnig Rúm-
enum, en telur að íslenska liðið
sé of sterkt fyrir þá, og „að sjálf-
sögðu of sterkt fyrir lið Búlgaríu
Kúvait.“
Blaðið talar einnig um þann
mikla handknattleiksáhuga sem
er á íslandi, segir að forsetinn sé
fyrrverandi handknattleiksmark-
vörður og að fyrirliði landsliðsins
sé sonur eins af ráðherrum lands-
ins — sem sýni að allir hafí gam-
an af handknattleik á íslandi.
Ermarsundstíðindi tala um að
„ótrúleg óheppni“ hafi komið í veg
fyrir það að ísland næði að
tryggja sér sæti í heimsmeistara-
keppninni í Tékkóslóvakíu næsta
ár, er liðið keppti á Ólympíuleik-
unum en þar hafi það m.a. gert
jafntefii við Júgóslava. „Víking-
amir úr norðri“ séu því örugglega
staðráðnir í því að tryggja sér
sæti í keppninni næsta ár og það
sé það sigurstranglegasta í keppn-
inni. Blaðið segir ennfremur að
samkvæmt öllu eigi íslenska liðið
að vera of sterkur andstæðingur
fyrir landslið Spánar, Vestur-
Þýskalands og Póllands þegar
lengra líður á keppnina. Og þá
er bara að vona að íþróttafrétta-
maður Ermasundstíðidna reynist
sannspár . . .
Rumenar
lögðu
Spánverja
Rúmenar unnu Spánveija,
28:27, í seinni leik liðanna hér
á Spáni um helgina, eftir að fyrri
leiknum lauk með jafntefli, 19:19.
Dumitru Berbece,
hægri homamaður
Rúmena, skoraði
sigurmarkið úr víta-
spyrnu á síðustu
sek. leiksins.
FráAtla
Hilmarssyni
á Spáni
Rúmenar tefldu fram gömlu
köppunum. Eins og áður lék Vasile
Stinga stórt hlutverk - fyrir utan
vinstra megin og Marian Dumitm
hægra megin. Þá var kappinn
Maricel Voinea á ferðinni. í mark-
inu stóð hinn gamalkunni Mund-
inao, 38 ára, og honum til aðstoðar
var kappinn Alexandm Buligan.
Ricardo Martin, leikstjórnandi
Spánveija, er meiddur á hendi - það
flísaðist upp úr beini á fingri.
FRAKKLAND 1989
■ IBÚAR Cherbourg em tæp-
lega 30.000, en í byggðarkjarnan-
um hér við Ermasundið, þar sem
Cherbourg er miðpunkturinn, búa
um 100.000 manns.
■ Cherbourg er mikil feijuborg
þar sem boðið er upp á bílafeijur
til fjögurra borga í Englandi —
Portsmouth, Poole, Weymouth
og Plymouth. Að sögn heima-
manna era Englendingar hér dag-
legir gestir.
■ HÓTELIÐ, sem íslenska
landsliðið býr á er steinsnar frá
feijuhöfninni. Landsliðið keppir
ekki á föstudag og er þá ráðgerð
sigling til eyjunnarJersey.
■ HEIMAMENN dásama ekki
eigin handknattieik, segja lið
Cherbourg þokkalega sterkt, en
það leikur í 3. deild í Frakklandi.
Einar, Sigurður S. og Guðmundur
léku með í Frakklandi 1981
ÞRÍR leikmenn íslenska lands-
liðsins í handknattleik taka nú
þátt í B-keppni í þriðja sinn.
Það eru þeir Einar Þorvarðar-
son, Sigurður Sveinsson og
Guðmundur Guðmundsson.
Þeir félagar tóku þátt í
B-keppninni í Frakklandi 1981
og þá voru þeir einnig með í
Hollandi 1983. Þar kepptu
einnig þeir Alfreð Gíslason,
Þorgils Óttar Mathiesen og
Kristján Arason.
Íslenska landsliðið tekur nú þátt
í B-keppni í fímmta sinn. Fyrst
keppti liðið í Austurríki 1977, síðan
á Spáni 1979, í Frakklandi 1981
og Hollandi 1983. Liðið hefur leikið
tuttugu og þijá leiki, unnið ellefu,
gert þrisvar jafntefli og tapað níu.
Guðmundur Guimundsson
Pólverjinn Janus Czwerwinsky
stjórnaði liðinu í Austurríki, þar sem
landsliðið tryggði sér farseðilinn á
HM í Danmörku 1978. Jóhann Ingi
Gunnarsson stjómaði liðinu á Spáni
og Hilmar Bjömsson í Frakklandi
og Hollandi.
Keppnin í Frakklandi 1981 var
geysilega ströngw- landsliðið lék
þá í sex borgum og ferðaðist með
langferðabifreið í yfir 1300 km.
Bifreiðin var ekki í háum gæða-
flokki og bifreiðastjórinn var smá-
vaxinn. Guðmundur Guðmundsson,
leikmaðurinn knái úr Víkingi, þótti
vel hávaxinn þegar hann stóð við
hliðina á bifreiðarstjóranum.
Jón H. Karlsson úr Val var
markahæsti leikmaður íslenska liðs-
ins í Austurríki. Hann skoraði 22
mörk í fímm leikjum. Axel Axels-
son, sem lék þá með Dankersen,
skoraði 20 mörk.
Viggó Sigurðsson skoraði mest á
Spáni, eða 28 mörk í fimm leikjum.
Eftir mótið gekk Viggó til liðs við
Barcelona.
Þorbergur Aðalsteinsson úr
Víkingi skoraði mest í Frakklandi,
eða 31 mark í sex leikjum og Kristj-
án Arason skoraði flest mörk í
Hollandi 1983 - 34 mörk í sjö leikj-
um. Alfreð Gíslason kom næstur á
blaði með 24 mörk.
Bjarni Guðmundsson og Þor-
bergur Aðalsteinsson tóku þátt í
keppnunum fjóram. Bjami hefur
leikið flesta leiki í B-keppni, eða
átján. Þorbergur Aðalsteinsson hef-
ur skorað flest mörk í B-keppni,
eða 46. Bjami og Axel Axelsson
koma næstir - með 39 mörk.
Morgunblaðið/Vincent Mouchel
„Stuðningsmannahópur íslands" beið á hótelinu og veifaði íslenska fánanum, er íslenska landsliðið birtist. Krakk-
arnir 18 klöppuðu fyrir „sínum“ mönnum áður en myndin var tekin.
Heimatilbúnir
stuðningsmenn
LIÐIN sem keppa í Cherbourg
þurfa væntanlega ekki að
kvarta yfir því að áhorfendur
styðji ekki við bakið á þeim,
því hér hefur verið safnað sam-
an hópum til að hvetja öll liðin.
Það era barnaskólanemar héðan
úr borginni sem hafa verið
fengnir í klappliðið. Átján krakkar
era í stuðningshópi hvers landsliðs
og klæðist hver hóp-
ur íþróttabolum í
viðeigandi litum í
leikjunum — lands-
liðslitum „sinnar“
þjóðar. „Krakkarnirþurftu að borga
50 franka hver [um 400 ísl. kr.]
fyrir að fá að vera með. Fyrir það
fá þeir aðgang á alla leikina og
Skapti
Hallgrímsson
skrifarfrá
Frakklandi
Morgunblaðiö/Sigmundur Ó. Steinarsson
Hér sjást fóstbræðurnir frá Hafnarfirði, Þorgils Óttar Mathiesen og Kristján Arason í kúluspili í Hollandi 1983, þar sem
þeir tóku þátt í sínu fyrsta stórmóti með landsliðinu.
| Sigurvegarar í B-keppni
1977 í Austurríki: 1. Svíþjóð 2. A-Þýskaland 3. Tékkóslóvakía 4. ísland
1979 á Spáni: 1. Spánn 2. Sviss 1981 í Frakklandi: 3. Ungveijaland 4. ísland
1. Pólland 2. Tékkóslóvakía 1983 í Hollandi 3. Svíþjóð 8. ísland
1. Ungveijaland 2. Tékkóslóvakía 1985 í Noregi 3. V-Þýskaland 7. ísland
1. A-Þýskaland 2. Sovétríkin 1987 á Ítalíu 3. Pólland
-1. Sovétríkin 2. Tékkóslóvakía 3. Pólland
eignast bolinn sem þeir klæðast á
Jeikjunum," sagði einn mótshaldara
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Það er öruggt að krakkarnir
munu leggja sig fram við að styðja
„sína“ menn því 50 „bestu“ stuðn-
ingsmennirnir verða valdir úr hópn-
um eftir riðlakeppnina í Cherbourg
og í viðurkenningaskyni fyrir góða
frammistöðu á áhorfendapöllunum
hér verður þeim hópi boðið til París-
ar á úrslitaleiki keppninnar, laugar-
daginn 25. og sunnudaginn 26. þ.m.
Því má svo ekki gleyma að lands-
lið íslands á vísan stuðning fleiri
en þessara átjánmenninga því hing-
að til Cherbourg er í dag væntan-
legur hópur á vegum Samvinnu-
ferða/Landsýnar, sem mun fylgja
liðinu alla keppnina. Hópurinn á
reyndar eftir að stækka því þegar
milliriðillinn hefst í Strassbourg í
næstu viku koma fleiri handknatt-
leiksáhugamenn á vegum SL að
heiman.