Morgunblaðið - 14.03.1989, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HANDKNATTLEIKUR
hér þungt hugsi á fyrn Evrópuleik FH og Krasnodar.
ÍSÍ heiðrar
Bogdan
Bogdan Kowalczyk kom til landsins um helgina og
í gær fóru fram formlegar könnunarviðræður hans
og HSÍ um framhald landsliðsmála og verður þeim
haldið áfram næstu daga. f dag mun íþróttasam-
band íslands sæma Bogdan æðstu viðurkenningu
ÍSÍ og auk þess mun HSÍ verðlauna hann.
KNATTSPYRNA
KSÍ vinnur að
þvíaðfá
landsleiki
íaprfl
Að undanfömu hefur stjóm Knattspymusambands
ísiands unnið að því að fá vináttulandsleiki i apríl
og leiki við erlend félagsiið. Kannaðir hafa verið
möguleikar á ferð til Saudi-Arabíu og Kúvait og
eins hefur verið skrifað til knattspymusambanda í
Evrópu og spurt hvort hægt væri að koma á leikjum
við landslið eða félagslið.
Næsti leikur íslands í undankeppni HM verður
gegn Sovétríkjunum í Moskvu 31. maí og verður
allt gert sem hægt er til að landsliðið fái æfinga-
leiki fyrir þá viðureign.
1989
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ
BLAD
Morgunblaöiö/Július
KR-ingar I úrslit
KR-ingar tryggðu sér rétt til að leika til úrslita í íslandsmótinu í körfuknattleik með sigri á Njarðvíkingum í gær, 72:59. Þetta var annar
leikur liðanna en KR-ingar sigruðu einnig í fyrri leiknum sem fram fór í Njarðvík. Á myndinni fagna KR-ingar verðskulduðum sigri. í kvöld
leika Valur og ÍBK í Valsheimilinu en annað ljðið mætir KR-ingum í úrslitum.
Sjá nánar B / 8
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Spurs gefur Pétri leyfi til
að leika með landsliðinu
Verður líklega með í Evrópukeppninni
FORRÁÐAMENN San Antonio
Spurs hafa sent Körfuknattleiks-
sambandi íslands bréf þar sem
segir að Pétur Guðmundsson megi
leika með íslenska landsliðinu ef
hann verði búinn að ná sér af
meiðslum. Pétur er meiddur og
hefur ekki leikið með liðinu en hafi
hann náð sér í apríl munu forráða-
menn San Antonio leyfa honum að
leika með landsliðinu í Evrópu-
keppninni.
Aþingi FIBA verður ákveðið hvort
leikmönnum NBA-deildarinnar
verði leyft að leika með landsliðum og
talið er nokkuð öruggt að þingið sam-
þykki tillöguna. Ef svo fer er Pétur lög-
legur með íslenska landsliðinu. Það hefur
hinsvegar staðið á svari frá liði Péturs,
San Antonio Spurs, en svarið er nú kom-
ið.
í bréfí San Antonio er þó tekið fram
að Pétur verði að hafa náð sér af meiðsl-
um sínum og að hann geti leikið körfu-
knattleik af fullum krafti. Líklegt er að
Pétur verði orðin góður í lok keppn-
istímabilsins og yrði því með í Evrópu-
keppninni í Portúgal í maí. Þá er einnig
vonast til að hann geti leikið með í Norð-
urlandamótinu sem hefst í lok apríl en
það er þó ólíklegt.
San Ántonio hefur gengið mjög illa í
vetur og staða liðsins sjaldan verið svo
slæm. Liðið kernst ekki í úrslitakeppnina
og lýkur því þátttöku sinni í NBA-deild-
inni í apríl. Pétur hefur lítið leikið með
liðinu í vetur vegna meiðsla. Hann lék
þó með um áramótin en þá tóku meiðsl-
in sig upp að nýju og ólíklegt er að
Pétur leiki meira með liðinu það sem
eftir er vetrar.
Með Pétur í liðinu eiga íslendingar
ágæta möguleika í Evrópukeppninni sem
fram fer í Portúgal í maí. Islendingar
leika í riðli með ísrael, Belgíu, Ungverja-
landi og Portúgal en tvö lið komaet áfram
í 16-liða úrslit. Þaðan verður svo farið
á Smáþjóðaleikana í Kýpur. í september
tekur íslenska landsliðið þátt í undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar í Eng-
, jandi.
Pétur Guðmundsson hefur fengið leyfi til að leika með
íslenska landsliðinu.