Morgunblaðið - 14.03.1989, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐBD IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR
14. MARZ 1989
HANDKNATTLEIKUR IHF-KEPPNIN
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI ME
Gunnar Baintalnsson gefur tóninn — 1:0 — en rétta lagið fylgdi ekki á eftir. Morgunbiaðið/Bjarni
Lánleysi og uppgjöf
FH - Krasnodar 14 : 24
íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði, fyrri leikur f átta liða úrslitum Evrópukeppni
félagsliða í h'andknattleik, sunnudaginn 12. mars 1989.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 2:2, 3:3, 4:4, 6:4, 6:8, 7:8, 7:10, 8:10, 10:10, 10:16, 13:17,
13:19, 14:19, 14:24.
FH: Guðjón Árnason 5/3, Gunnar Beinteinsson 3, Héðinn Gilsson 2, Óskar Ármannsson
2/2, Þorgils Óttar Mathiesen 1, Ólafur Magnússon 1, Hálfdán Þórðarson, Óskar Helga-
son, Knútur Sigurðsson, Stefán Ólafsson.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 6/3, Magnús Árnason 1.
Utan vallar: 10 mínútur og eitt rautt spjald.
Krasnodar: Sergej Ladygin 6, Oleg Titow 4, Wladim Zhycharew 4/1, Ivan Levin 3,
Serget Pokurkin 3/1, Alex Stepanenko 3/1, Dimtrij Káljasin 1, Jewg Gonatschenko,
Wlad Tscherkaschin, Igor Domaschenko.
Varin skot: Andrej Lavrov 17/2, Igor Tschumak.
Utan vallar: 12 mfnútur.
Áhorfendur: Um 900.
Dómarar: Haak og Koppe frá Hollandi.
DRAUMUR FH-inga um að
komast í undanúrslit Evrópu-
keppni félagsliða varð að mar-
tröð í Hafnarfirði á sunnudag,
er þeir töpuðu með 10 marka
mun fyrir Skif Krasnodar frá
Sovétríkjunum. FH-liðið hefur
ekki leikið svo illa, sem raun
bar vitni, í langan tíma, lánleys-
ið var algjört og strákarnir gáf-
ust hreinlega upp. Eftir að hafa
náð tveggja marka forystu
fyrsta stundarfjórðunginn, var
sem allur kraftur væri úr
heimamönnum og á síðustu
átta mínútunum fengu þeir á
sig fimm mörk án þess að
svara fyrir sig.
Hraðaupphlaup hafa oft verið
sterkasta vopn FH. Að þessu
sinni voru þau teljandi á fingrum
annarrar handar, eitt heppnaðist
og öðru lauk með
Steinþór vítaskoti, sem rataði
Guöbjartsson rétta leið. í öðru lagi
skrifar hafa Héðinn og
Guðjón verið iðnir
við að skora með langskotum, en
nú var annað uppi á teningnum,
þrátt fyrir flömargar tilraunir.
Línusendingar sáust varla, hornin
Leikmenn SKA Minsk, sovéska
meistaraliðsins, sýndu að þeir
verða erfiðir viðureignir í Evrópu-
keppni meistaraliða. Þeir tóku
tékkneska liðið Dukla Prag í
kennslustund á heimavelli sínum
í fyrri leiknum um helgina. Minsk
sigraði 32:19 (15:8).
Önnur úrslit í keppni meistara-
liða urðu þau að Steaua Búkarest
frá Rúmeníu sigraði ítalska liðið
Ortigia Siracusa á Ítalíu 26:22
(16:12), HK Drott Halmstad frá
Svíþjóð sigraði Barcelona á
heimavelli 22:20 (14:8) og síðan
vann Valur lið Magdeburg
Keppnl blkarhafa
Braman Veszprem frá Ung-
verjalandi vann TUSEM Essen,
Vestur-Þýskalandi, 23:20 (10:12).
Leikurinn fór fram í Ungverjaí-
andi. Júgóslavneska liðið Crvenka
bar sigurorð af US Créteil frá
Frakklandi, 22:18 (10:8), í Júgó-
voru nær óvirk. í stuttu máli gekk
allt á afturfótunum í sóknarleiknum
og vamarleikurinn bar þess greini-
leg merki.
Það.verður að segjast eins og er
að FH-ingar léku illa. Þeir geta
samt huggað sig við það að þeir
geta mun betur og á góðum degi
ættu þeir að sigra þetta sovéska
lið. Aðall þess var markvarslan og
sterk 6-0 vöm, en sóknarleikurinn
var ómarkviss. Sovétmennimir
nýttu sér hins vegar vel sóknar-
mistök FH-inga og gerðu 10 mörk
eftir hraðaupphlaup.
slavíu, Dinamo Búkarest frá Rúm-
eníu sigraði Empor Rostock,
Austur-Þýskalandi, 28:23
(13:12), á heimavelli sínum í Búk-
arest og loks sigraði norska liðið
Stavanger IF spænska liðið Elg-
orriaga Bidasoa 24:20 (10:11).
Leikurinn fór fram í Noregi.
IHF-keppnin
Vestur-þýska liðið Turu Dus-
seldorf burstaði Politehnica Tim-
isoara frá Rúmeníu, 22:12 (11:6),
á heimavelli. Vorwárts Frankfurt
frá Austur-Þýskalandi vann einn-
ig stóran sigur, 22:13 (9:6), á
Pelister frá Bitola í Júgóslavíu.
Þá léku danska liðið Hellerup IK
og Cajamadrid frá Spáni. Leikur-
inn fór fram í Danmörku en Spán-
veijamir sigruðu engu að síður,
29:27 (17:12). Þá er eins leiks
ógetið í IHF-keppninni. Frásögn
af honum er hér að ofan — af
stórsigri SKIF Krasnodar á FH.
Valentin Schijan
þjálfari Skif:
„FH-ingar
kraftlaus-
ir í seinni
hálfleik“
Valentin Schijan, þjálfari Skif
Krasnodar, var ánægður með
sigur sinna manna á sunnudag, en
óánægður með leikinn. „Við gerðum
of mörg mistök í sókninni og fómm
illa með góð færi, en vörnin var
góð. Wlad Tscherkaschin handar-
brotnaði á æfingu í vikunni og sat
því á bekknum, en hann stjómar
venjulega sókninni. Tæknin er í lagi
hjá FH-ingum, en þeir eru ekki
nógu sterkir líkamlega og í því lá
munurinn. Þeir ætluðu sér of mikið
í byijun og voru kraftlausir í seinni
hálfleik," sagði Schijan.
„Vanmátum þá“
„Við vanmátum þá, sem reyndar
má aldrei gera. Sterkur vamarleik-
ur þeirra kom okkur á óvart,
skytturnar áttu ekki góðan dag,
mótheijarnir voru snöggir að nýta
sér mistökin og markverðirnir komu
engum vörnum við. Við gáfumst
upp,“ sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari FH.
„Sterkasta liðið“
„Þetta er sterkasta lið, sem ég
hef leikið gegn. Varla er glufu að
finna í vörninni og markvörðurinn
öruggur fyrir aftan. Þetta er ekkert
sérstakt sóknarlið, en vamarleikur-
inn er þeim mun betri og _gerir
gæfumuninn," sagði Guðjón Arna-
son, leikstjórnandi FH.
faémR
FOLK
■ SIGURÐUR Sveinsson mis-
steig sig á vinstra fæti þegar fyrri
hálfleikur var ríflega hálfnaður.
Hann var var einmitt meiddur á
sama stað fyrir, og
hafði verið vafinn
fyrir leik. Sigurði
var keppt útaf, fót-
urinn kældur og vaf-
inn á ný, og svo kom hann inn á
aftur eins og ekkert hefði í skorist.
■ SIGURÐUR lék frábæriega í
fyrri hálfleik: þegar staðan var 7:6,
12 mínútur eftir og hálfri betur,
hafði Sigurður skorað þijú mörk
með þrumuskotum og átt þijár frá-
bærar línusendingar á Geir Sveins-
son sem skoraði í öll skiptin.
H VALSMENN fengu fímm
vítaköst í leiknum en nýttu ekkert
þeirra! Aldeilis saga til næsta bæj-
ar, og jafnvel þar næsta, þegar
þetta sterkasta lið landsins á í hlut.
Markvörðurinn Schimrock varði 3
víti, tvö frá Sigurði Sveinssyni og
eitt frá Valdimar — öll í fyrri hálf-
leik. I þeim seinni skutu svo Theó-
dór og Valdimar báðir í stöng úr
vítakasti.
■ LITLU munaði að Magde-
burg skoraði beint úr aukakasti
eftir að leiktímanum lauk. Örvhenta
skyttan Heiko Triepel náði að
koma knettinum framhjá þéttum
varnarmúr leikmanna Vals, knött-
urinn small í stönginni innanverðri
og út!
■ INGOLF Wiegert, línumað-
urinn snjalli sem um árabil hefur
leikið með Magdeburg og austur-
þýska landsliðinu leikur ekki hand-
knattleik framar. Markvörðurinn
Wieland Schmidt sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn á
sunnudaginn að Wiegert hefði ekki
enn náð sér eftir að hann sleit há-
sin á World Cup í Svíþjóð í árs-
byijun 1988 — og væri búinn að
leggja skóna á hilluna.
■ WIELAND Schmidt sjálfur
kom inn á í síðari hálfleiknum gegn
Val. Hann hefur aðeins æft í eina
viku síðan á Ólympíuleikunum —
síðustu viku. Schmidt hefur átt við
veikindi að stríða. Jafnvægisskyn
hans hefur ekki verið í lagi, og er
talið að það stafi af því hve oft
hann hefur fengið knöttinn í höfuð-
ið á sínum langa og glæsilega ferli.
■ SCHMIDT sagðist, í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn,
myndu leggja skóna á hilluna í vor.
En hann segir ekki skilið við hand-
boltann; hann tekur þá að sér þjálf-
un 1. deildarliðsins Leipzig. „Ég
er frá Magdeburg, en konan mín
er frá Leipzig. Þannig stendur á
því að við flytjumst þangað" sagði
Schmidt.
Morgunblaðiö/Júlíus
Wlaland Schmidt, aðstoðar Valdi-
mar Grímsson á fætur í leiknum. Þessi
heimsfrægi markvörður leggur skóna
á hilluna í vor, og tekur þá að sér
þjálfun 1. deiidarliðsins Leipzig.
EVROPUMOTIN
Stórsigur SKA
Minsk á Dukla
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
„Eigi
- sagði Sigurður
„ÉG er sæmilega ánægður með
þetta, þrátt fyrir að við nýttum fær-
in ekki eins og við áttum að geta.
En með eðlilegum leik úti á þetta
að nægja okkur. Við eigum að kom-
ast áfram — þurfum að leika mjög
illa í Magdeburg til að ná því ekki,“
sagði Sigurður Sveinsspn, sem átti
frábæran leik, þegar Valsmenn
sigruðu austur-þýsku meistarana
frá Magdeburg, 22:16, í fyrri leik
liðanna í átta liða úrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða í Höllinni á
sunnudaginn.
Valsmenn fara með gott veganesti í
síðari leikinn sem fram fer ytra á
laugardaginn. En þó undarlegt megi
virðast voru þeir klaufar að sigra ekki
tRMKRMRM meðmeiri mun. Valurvar
Skapti níu mörkum yfir, 21:12,
Hallgrímsson þegar átta og hálf mín.
sknfar var eftir og skoruðu þá
ekki mark í hvorki meira
né minna en sex og hálfa mínútu. Júlíus
skoraði loks síðasta mark leiksins, 22:16,
eftir að Magdeburg hafði gert fjögur í
röð.
Kraftur
Leikurinn var stórskemmtilegur á að
horfa. Valsmenn komu grimmir til leiks,
greinilega ákveðnir að gefa alit sem
þeir áttu í leikinn strax frá fyrstu mínútu.
Vörnin var öflug — gaf reyndar tóninn
strax í fyrstu sókn þegar hún varði frá
Peter Pysall, þekktasta leikmanni
Magdeburg. Fyrri hálfleikur einkenndst
annars af stórkostlegum leik Sigurðar
Sveinssonar. Hann skoraði fjögur glæsi-
leg mörk og átti hvetja frábæru línusend-
inguna á fætur annarri. Valsmenn juku
forskotið í síðari hálfleiknum — voru
rn