Morgunblaðið - 18.03.1989, Blaðsíða 3
)
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989
B 3
Sál mín er hirðfífl
EGG leikhúsið hleypir af
stokkunum nýstárlegri leik-
sýningu á sunnudagskvöldið í
kjallara Hlaðvarpans við
Vesturgötu og... já og ...
í Gallerí Nýhöfn við Haöiar-
stræti. Sýningin samanstend-
ur af tveimur einþáttungum,
einum belgískum er neftiist
ESCURIAL
eftir Michel
de Gheld-
erode og öðr-
um nýjum
íslenskum AF-
SAKIÐ, HLÉ
(grafalvarlegur gjaldþrots-
farsi) eftir Árna Ibsen. Sýn-
ingin er nýstárleg fyrir fleira
en tvo sýningarstaði því
belgíski einþáttungurinn er
sýndur tvisvar; á hefðbundinn
hátt og síðan mjög stílfærður
svo margbrotið efiii hans fær
að njóta sín með tilbrigðum.
í kvöld
EGG leikhúsið f rumsýnir
tvo einþúttunga
Ingrid Jónsdóttir leikur einkarit-
arann og segir hana „öðruvísi fífl“
en fíflið í ESCURIAL. „Tengingin
er áugljós því einkaritarinn spilar
sig fífl fyrir framkvæmdastjórann
þó hún sé bæði greind og skemmti-
leg. AFSAKIÐ, HLÉ er skemmti-
legt verk, flækjan er mikil og snjöll
en það er ekki rétt að segja of
mikið fyrirfram,“ sagði Ingrid.
Hvort það væri ekki of mikið á
áhorfendur lagt að þurfa að ganga
frá Hlaðvarpanum yfir í Hafnar-
stræti og síðan aftur til baka í hlé-
unum á milli þátta sagði Ingrid það
alls ekki. „Það er svo voðalega gott
að fara á sýningar og fá tækifæri
til að rétta úr sér og labba svolítið.
Ég tala nú ekki um ef veðrið er
gott.“
Leikstjóri sýningarinnar er
Sveinn Einarsson, leikmynd og bún-
ingar eru í höndum Steinunnar
Þórarinsdóttur og lýsingu annast
Árni Baldvinsson. Frumsýning
verður sem áður sagði sunnudags-
kvöldið 19. mars.
Texti/Hávar Sigurjónsson
Viðar Eggertsson er stofn-
andi og til skamms tíma
eini leikari EGG leikhússins
en nú eru leikendur fjórir svo
kvíamar hafa heldur færst út. Við-
ar var spurður hvers vegna sýnt
væri á tveimur stöðum, hvort það
væri vegna aðstöðuleysis eða hrein-
lega tilraun til að gera eitthvað
nýtt?
„Það er hvorutveggja. Bæði hús-
in em leikmynd eins og þau koma
fyrir. Kjallarinn í Hlaðvarpanum
hentar mjög vel fýrir ESCURIAL
en hann passar hins vegar alls ekki
fyrir leikþátt Áma Ibsen. Þar hent-
ar Gallerí Nýhöfn hins vegar prýði-
lega,“ sagði Viðar. „Með því að
fara úr einum stað í annan nást
fram andstæðumar í leikþáttunum
en þeir em mjög ólíkir að formi þó
þeir tengist að vissu leyti efnislega."
ESCURIAL gerist á miðöldum
og segir frá kóngi nokkmm og hirð-
fífli hans, valdabaráttu og þeirri
grimmd sem oft fylgir því að hafa
vald. Einþáttungurinn AFSAKIÐ,
HLÉ er skrifaður í beinum tengslum
við ESCURIAL, nema hvað hann
gerist í Reykjavík á okkar dögum
og segir frá því sem gerist þegar
vel heppnaður „Uppi“ fer á hausinn
og og hvemig „kvenfíflið“ greiðir
úr flækjum með þeim afleiðingum
að allt fer í hnút. Leikendur em
flórir, þau Viðar Eggertsson, Ingrid
Jónsdóttir, Kristján Franklín Magn-
ús og Þór -Tuliníus. Þeir Viðar og
Þór leika aðalhlutverk í ESCURLAL
og víxla hlutverkunum frá fyrri
gerð til þeirrar seinni, auk þess sem
Þór leikur eitt hlutverkanna í AF-
SAKIÐ, HLÉ. Hvort það væri ekki
erfitt að undirbúa þijú hlutverk
samtímis, Þór Tulinius?
Jú, það er það. Hlutverk er alltaf
að geijast inní manni og þessi þijú
beijast um innra með manni. Maður
verður svona léttur geðklofi af
þessu. Það bjargar kannski hvað
hlutverkin em ólík og hver þáttur
ólíkur hinum í stíl. Eg leik fíflið í
fyrri gerðinni af ESCURLAL, þar
reynum við að nálgast ímynd
fíflsins á miðöldum og stíllinn er
hefðbundinn. Konungurinn krefst
þess að fíflið skemmti sér þó allt
sé að hmni komið og drottningin
liggi á banabeði. Fíflinu finnst það
ekki viðeigandi og eijur þeirra verða
sífellt persónulegri. I seinni gerðinni
leik ég kónginn og Viðar fíflið, þar
er áherslan lögð á baráttuna um
valdið og hversu hættulegt vald
getur orðið ef það stígur manninum
til höfuðs,“ sagði Þór Tuliníus.
Kristján Franklín Magnús leikur
aðalhlutverk í AFSAKIÐ.HLÉ,
framkvæmdastjóra í tilteknu fyrir-
tæki í Reykjavík nútímans. „í byq-
un er hann illa á sig kominn eftir
skemmtun næturinnar og leiðist.
Það er lykilorðið yfir þennan kar-
akter — honum leiðist. Hann segist
vera búinn að reyna allt sem hægt
er að reyna í lífínu, enda orðinn
38 ára,“ sagði Kristján Franklín.
„Svo gengur þetta útá að hann,
ÁSvar Eiður, þarf á einhvers konar
örvun að halda sem hann lætur
einkaritarann sinn um að sjá sér
fyrir. í lok verksins taka málin svo
óvænta stefnu.“
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Leikarar EGG leikhússins að þessu sinni eru: F.v. Þór Tuliníus, Viðar Eggertsson,
Kristján Franklín Magnús og Ingrid Jónsdóttir.
Fíflið
hvíslar í
eyra herra
síns. Þór
Tuliníus og
Viðar Eg-
gertsson.
Grétar Reynisson myndlist-
armaður opnar sýningu á
olíumálverkum og teikning-
um í Listasalnum Nýhöfin í
dag klukkan 14. Þetta er
sjötta einkasýning Grétars en
hann hefúr einnig tekið þátt
í mörgum samsýningum hér
heima og erlendis. Grétar er
einnig þekktur fyrir gerð
leikmynda og má þar nefiia
leikmyndir við STÓR OG
SMÁR og BÍLAVERKSTÆÐI
BADDA í Þjóðleikhúsinu og
HAMLET hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Grétar er fæddur árið 1957.
Hann stundaði nám við
Myndlista-og handíðaskóla
íslands á árunum 74-78 og veturinn
þar á eftir dvaldi hann í Amsterd-
am. „Ég var í MHÍ þegar nýlista-
deildin var stofnuð og á þeim tíma
var ýmislegt að gerast; hugmynda-
fræðin réð ferðinni í myndlistinni.
Ég byijaði að fást við skúlptúr í
skólanum en fyrsta einkasýningin
er m
og annad
sýning
segir Grétar Reynisson
sem opnar sýningu
í Gallerí Nýhöfn
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Grétar Reynisson myndlistarmaður sýnir í Nýhöfii.
í leikhúsinu og utan þess. Grétar
leggur áherslu á að hann sé mynd-
listarmaður, þannig skynji hann
sjálfan sig og þannig nálgist hann
viðfangsefnin hvort sem er við léref-
tið eða í leikhúsinu. „Ég hef alveg
SJÁ NÆSTU SÍÐU
mín í Nýlistasafninu 1981 var
skúlptúrsýning og ég fékkst alfarið
við skúlptúr til 1985 er ég sneri
mér að málverkinu,“ segir Grétar í
upphafi spjalls um sýninguna í
Nýhöfn, leikmyndagerð og myndlist