Morgunblaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA HANDKNATTLEIKUR Pokrajac þjálf- ar Spánverja - fær 650 þús. kr. í mánaðarfaun Branisliv Pokrajac hefur verið ráðinn þjáifari spænska landsliðsins í handknattleik. Hann er Júgóslavi og hefúr fengist við þjálfun í mörg ár, tók við bandaríska landsliðinu fyrir Ólympíu- leikana í Seool í fyrra. Pokrajac er kunnur þjálfari og var m.a. með Júgóslava er þeir urðu Ólympfumeistarar f Los Angdes 1984. Eins og komið hefur fram í fréttum var Bogdan Kowalczyk orðaðurvið spænska iiðið. Pokrajac verður með 13.000 dollara eða um 650 þúsund íslenskar krónur í mánaðarlaun auk þess að fa íbúð og bíl tfl afnota án endurgjalds. Spánveijar taka þátt f A-heimsmeistarakeppn- inní í Tékkóslóvakíu eins og Íslendíngar. HANDKNATTLEIKUR Hans til Sví- þjóðar? SÆNSKA1. deildarfélagið Malmberget hefur áhuga á að fá Hans Guðmundsson, markakóng úr Breiðabliki, fyrir næsta vetur. Maður frá félagmu hafði samband við mig fyrir helgi og spurði hvort ég hefði áhuga á að leika erlendis,“ sagði Hans f samtali við Morgunblaðið í gær. „Maður er opinn fyrir öllu. Það er allt í lagi að skoða þetta. Ég á von á að heyra aftur frá félaginu fljótlega," sagði Hans. Þess má geta að þrír Islendingar hafa leikið með þessu sænska félagi: Ingólfur Óskarsson, Agúst Svavarsson og Guðmundur Sveinsson. Morgunblaöið/Einar Falur Guðmundsson, markakóngur 1. deildar. KORFUKNATTLEIKUR / EM UNGLINGA Jón Amar sló í gegn „ÍSLENSKT unglingalið í körfu- knattleik hefur ekki fynr náð slíkum árangri. Liðið var aðeins hársbreidd frá að komast í hóp 12 bestu f heiminum, sem sýn- ir að uppbyggingin hefur skilað sér og að við erum á réttri leið — framtíðin hjá þessum strák- um er björt,“ sagði Jón Sig- urðsson, þjálfari, f samtali víð Morgunblaðið. I síðasta ieik sínum á Evrópumót- inu í Belgíu og hafnaði í 3. sæti. Þetta var fyrsti sigur íslands gegn Hollandi í þessum aldursflokki, en áður hafa leikimir yfirleitt tapast með 35 til 40 stiga mun. Jón Arnar Ingvarsson var stigahæsti leikmað- ur mótsins með 89 stig og fékk sérstök verðlaun fyrir. Jón sagði að leikurinn gegn Hollandi hefði verið mjög góður. Jón Amar og Nökkvi Már Jóns- son gerðu 25 stig hvor, Eggert Garðarsson 16, Marel Guðlaugsson 11, Óskar Kristjánsson 9, Hermann Hauksson 6 og Hjörtur Harðarson 5 stig. „Nökkvi Iék best í þessum leik, en Jón Amar var einn af þremur bestu mönnum mótsins. Hann hefur alla burði til að ná langt og atvinnu- mennska í Evrópu ætti ekki að vera fjarlægur draumur, ef heldur sem horfir," sagði Jón. JUDO „Afrakstur erfiðra æfinga - sagði Sigurður Bergmann, silfurhaf- inn á opna breska meistaramótinu „MÉR hefur ekki gengið svona íí vel áður. Reyndar hef ég tvívegis fengið silfur á Norður- landamóti, en það er ekki sam- bærilegt. Þetta er afrakstur erfiðra æfinga fyrir Ólympfu- leikana í haust,“ sagði Sigurður Bergmann við Morgunblaðið í gær skömmu eftir að hann kom frá London, þar sem hann hafnaði í öðru sæti í +95 kg flokki á opna breska meistara- mótinu í júdó. Sigurður glímdi fyrst við Bretann Dorse, sem féll á refsistigum. Næst lagði Sigurður franskan glímukappa, Morizot, á ippon og í undanúrslitum kastaði hann Bretanum Webb tvívegis á yuko og var þar með kominn í úr- slit gegn breska Evrópumeistaran- um EIvis Gordon. »Rugl“ „Glíman var stutt. Hann fór í bragð, við duttum báðir í gólfið, ég rúllaði um sjálfan mig og dómaram- ir dæmdu honum fullnaðarsigur, sem var rugl,“ sagði Sigurður. Gor- don er yfir 130 kg á þyngd og hef- ur verið í efstu sætum undanfarin ár. Hann er snöggur þrátt fyrir SKIÐI Austum'ska landsliðid í æfingabúðir til íslands? SVO gæti farið að landslið Austurríkis á skfðum komt hingað tii lands í haust í æf- ingabúðir. Hór á landi er staddur fulltrúi skfðasam- bands Austurríkis að kynna sér aðstæður. Herwig Demsehar, þjálfarí og fararstjóri austurrísku kepp- endanna á alþjóðlega mótinu á Frá Reyni Eirikssyni áAkuœyri sagði í samtaii víð Morgunblaðið í Hlíðarfjalli um helgina að hann hefði ekki einungis komið vegna þessa móts, heldur einnig til að kanna aðstæður til æfinga fyrir aust- urríska landsliðið. JÉg hef haft spumir af Kerlingafjöllum og reikna með, ef af því verður að við komum með liðið hingað, að það verði í september — og að við æfum þá í Ker!inga§öllum,“ sagði Ðemschar, sem er einnig að kynna sér hótel og aðrar að- stæður hér á tandi vegna hugsan- Iegrar heimsóknar. Hann sagði skíðamenn t mið- Evrópu hafa verið í miklum vand- ræðum í vetur vegna snjóleysis. „Snjóleysið hefur háð okkur gríðariega mikið í vetur, bæði við æfingar og keppni. Aðstæður hafa ekki einu sinni verið nógu góðar uppi á jöklum — ogþá er nú mik- ið sagt.“ Demscher er nú í fyrsta skipti á íslandi og sagði hann aðstæður hafa komið sér á óvart „Hér era allar aðstæður mun betri en ég bjóst við, og snjórinn er meiri en ég reiknaði með.“ Hann var ánægður með keppnina í Hlíðar- fyallí. Sagði skipulagningu góða. Sigurður Bergmann frá Grindavik þyngdina og skellir oft mótherjun- um á mótbragði. Sigurður var við æfingar í Tékk- óslóvakíu fyrir skömmu. Jlinn tékkneski þjálfari okkar, Michal Vachun, er mjög góður og í æfinga- búðunum, þar sem ég glímdi við toppkarla fann ég að ég gat staðið mig. Takmarkið var að glíma um bronsið, þannig að ég get ekki ann- að en verið ánægður,“ sagði Sigurð- ur. „Nú er bara að fylgja þessu eftir og ég vona að ég verði valinn til að taka þátt í Evrópumótinu, sem fer fram í Finnlandi í næsta mán- uði,“ bætti hann við. rjoimenm moi Fjórir íslenskir glímumenn, Sig- urður, Bjami Friðriksson, Freyr Gauti Sigmundsson og Halldór Hafsteinsson, tóku þátt í mótinu, sem er eitt flölmennasta opna mótið í Evrópu. Freyr Gauti keppti í -78 kg flokki. Hann sigraði Bretann Scott Brown á stigum og vann síðan fullnaðarsigur gegn Vestur-Þjóð- veijanum Noone, en tapaði á ippon gegn Cols frá Bretlandi í 3. umferð. Bjarni keppti í -95 kg flokki. Hann vann Bretann Lockwood á ippon, en tapaði fyrir Kokotaylo á dómaraúrskurði. Sá varð sigurveg- ari í flokknum og fékk Bjami því uppreisnarglímu, þar sem hann vann Kebba á ippon, en tapaði síðan fyrir Tasque frá Frakklandi. Halldór keppti í -86 kg flokki og tapaði tveimur glímum. Fyrst á ipp- on fyrir White, sem varð meistari, og síðan uppreisnarglímunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.