Morgunblaðið - 16.04.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.04.1989, Blaðsíða 1
fltaQgtiiiMbtfrifr SUNNUDAGUR 16. APRIL 1989 BLAÐ Nú stendur fyrir dyrum um- fangsmikil kynning á aðal- skipulagi Garðabæjar og verð- ur uppdráttur með því borinn inn á hvert heimili þar í bæ. Þar kemur f ram stefnumörkun bæjarstjórnar um þróun byggðar og landnotkun innan bæjarfélagsins fram til ársins 2005. í viðtali hér í blaðinu í dag gerir Pálmar Ólason skipulags- arkitekt grein fyrir skipulaginu, en hannereinnaf höfundum ' þess. Þar kemur glöggt fram sú mikla uppbygging, sem átt hefur sér stað í Garðabæ á undanförnum áratugum og að sízt muni draga úr henni í framtíðinni. íbúar þar eru nú um 6.800, en 1950 voru þeir aðeins rúm- lega 500. Gert er ráð fyrir, •>ð þeir verði 8.600 í lok tímabilsins og að byggja þurfi 1300 íbúðirþangaðtil eða að jafnaði 65 áári. Danir elea elsta húsnæóió Það sem einkennir íbúðar- húsnæði á íslandi f saman- burði við hin Norðurlöndin er hversu ungt það er, en 83,2% húsnæðis hér er byggt eftir 1940. Það er helst Finnland sem stenst samjöfnuð hvað þetta snertir. Þar eru 83,5% húsnæðis yngra en 1940, en uppbyggingin hefur verið enn hraðari en hér og er enn í vexti, þó heldur hafi hægt á byggingarhraðanum. Við hér á íslandi virðumst vera komin yfir byggingartopp- inn þar sem íbúðarhúsnæði byggt á árunum 1961-75 nemur 31,7% en íbúðir byggðar eftir 1975 eru aðeins 26,5% (tímabi- lið eftir 1975 er að verða jaf n- langt og tímabilið 1961-75). Stöðugleikinn í byggingu íbúðarhúsnæðis hefur verið mestur í Noregi og Danmörku. Athyglisverð er sú áhersla sem lögð hefur verið á byggingu íbúðarhúsnæðis í Svíþjóð á árunum 1941 -75 og 1961 -75 í Danmörku. Loks eiga Danir elsta íbúðarhúsnæðið á Norð- urlöndum en 24,2% húsnæðis þeirra er byggt fyrir 1920. ÍSLAND Noregur Danmörk Svíþjóð Aldur íbúðarhúsnæðis á Norðurlöndum fyrir 1920 1921-40 1941-60 1961-75 eftir 1975 Ríkisjarð- ir undir orlofslins ÞAÐ hefur áður komið til tals, að jarðir íeigu ríkisins yrðu seldar verka- lýðshreyfingunni undiror- lofshús. í þættinum Mark- aðurinn hér t blaðinu í dag ber Gestur Ólafsson arki- tekt fram þá hugmynd, að komið verði upp keðju or- lofshúsa á nokkrum rfkis- jörðum hringinn íkringum landið. Ferðamenn gætu þá farið á milli þeirra og dvalizt nokkra daga á hverj- um stað. Þessi orlofshús megi leigja ferðamannahópum eða „selja" bæði innlend- um og erlendum aðilum ákveðnar „vikur" á þessum stöðum. Þetta form á eign- arhaldi geti hentað þeim vel, sem einungis vilja nota viðkomandi orlofshús hluta úr ári. Það er fólgið í því, að seljandi fasteignar deilir eignarhaldi hennar niður á vikur ársins. Hér er um svo- nefnda tímabundna sam- eign að ræða, sem rutt hefur sér rúm erlendis að undanförnu, en ekki tíðkazt hérálandi. g Skipulag Garóabæjar HEIMILI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.