Morgunblaðið - 16.04.1989, Síða 10

Morgunblaðið - 16.04.1989, Síða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1989 Opið kl. 1-4 VALHÚS FASTEIGNASALA Reykjavíkurvegi 62 S:6511SS HÁABARÐ - EINB. Nýtt 6 herb. 156 fm einb. 4 rúmg. svefn- herb. Bílskúrsréttur. Verð 9,5 millj. Skipti æskil. á ódýrari eign. ÁSBÚÐ - GB. Glæsil. og vel hannaö 180 fm einb. 30 fm bílsk. Vel gróin lóð. Verð 11,5 millj. HRAUNBRÚN - RAÐH. Glæsil. 173 fm endaraöh. á tveimur hæðum þ.m.t. bílsk. Fullb. og vönduö eign. Verð 11,2 millj. ÖLDUGATA HF. - EINB. 148 fm einb. kj., hæö og ris. 4 rúmg. svefnh. Verð 7,0 millj. TÚNGATA - ÁLFTAN. Gott 6 herb. 140 fm einb. Tvöf. bílsk. Verð 9,5 millj. BJARNASTAÐIR - EINB. 160 fm einb. (timbur). 50 fm bilsk. Frág. að utan, einangr. aö innan. VALLARBARÐ - í BYGG. 160 fm einb. auk bílsk. Afh. á fokh. stigi. SVIÐHOLTSVÖR 175 fm einb. Tvöf. bílsk. Verð 10,8 millj. LYNGBERG - PARH. Nýtt 110 fm parh. Bílsk. Verð 8,1 millj. STUÐLABERG - RAÐH. 141 fm endaraðh. á tveimur hæöum. KLETTAGATA EIIMB. - Á efri hæð er 160 fm íb. ekki fullfrág. Á neðri hæð er 40 fm bflsk. og 3ja herb. 80 fm íb. Skipti æskil. á raðh. eða sérh. LANGEYRARV. - EINB. Mikið uppgert eldra einb. á tveimur hæðum. Gróðurhús. Verð 4,5-4,7 millj. GARÐAVEGUR - EINB. Töluv. uppg. eldra einb. Verð 6,5 millj. KVlHOLT - SÉRH. Góð 5 herb. 145 fm neöri hæð í tvíb. Góð staösetn. Verð 8,7 millj. MELÁS - GARÐABÆ Góð 5-6 herb, 138,9 fm sérh. Innb. bflsk. Áhv. ný húsnmálalán. Verö 8,2 m. ÁLFASKEIÐ - SÉRH. Mjög góð 6 herb. 170 fm íb. á tveimur haeðum. Tvennar svalir. Rúmg. bílsk. Góð staðsetning. Verð 10,8 millj. HÓLABR. - SÉRH. 5 herb. 125 fm neöri hæð í tvib. auk 50 fm í risi. Bflskr. Verð 6,9 m. ÁLFASKEIÐ - SÉRH. Góð 5 herb. 121 fm miðhæð í þríb. Mjög góö staðsetn. Verö 6,5 millj. LANGEYRARV. - SÉRH. Góö 5 herb. 120 fm neöri hæð í tvíb. Allt sér. Verð 6,5 millj. KELDUHV. - SÉRH. Falleg 6 herb. 170 fm efri hæð. Bílsk. Verö 8,5 millj. BREIÐVANGUR Falleg 5-6 herb. íb. á 3. hæð. Góður útsýnisstaður. Innb. bílsk. Verð 7,5 m. SUÐURVANGUR - HF. 4ra-5 herb. 118 fm endaib. á 1. hæð. Suðursv. Verð 6 millj. BREIÐVANGUR Mjög góð og vel staðs. 4ra-5 herb. 117 fm íb. á 1. hæð. Verð 6,0-6,1 millj. BREIÐVANGUR Falleg 5-6 herb. 135 fm endaíb. á 3. hæð. Verð 7 millj. HJALLABRAUT Falleg 5 herb. 130 fm íb. á 1. hæð. Suðursv. Verð 6,5 millj. SLÉTTAHR. - M/BÍLSK. Gullfalleg 3ja herb. 96 fm íb. á 3. hæð. Nýjar innr. Parket. Bílsk. Verð 5,7 millj. SUÐURVANGUR - 3JA 3ja herb. 96 fm íb. Verð 5,0 millj. GRÆNAKINN 4ra herb. 100 fm íb. Verð 5,0 millj. FURUGRUND - KÓP. Vorum að fá í einkasölu góða 3ja herb. 80 fm íb. á 2. hæð. Stórar suðursv. Verð 4950 þús. REYKJAVÍKURVEGUR Falleg 2ja herb. 50 fm ib. á 2. hæð. Verð 3,5 millj. BRATTAKINN Góð 4ra herb. 80 fm efri hæö í tvíb. 50 fm bílsk. Verð 5,6 millj. HOLTSGATA - HF. Falleg 2ja herb. 55 fm íb. á jarðh. Verð 3,5 míllj. Laus fljótl. AUSTURGATA - HF. Góð 2ja herb. 70 fm íb. Verð 3,5 millj. ÁLFASKEIÐ Góð 45 einstklíb. Bílskréttur. Verð 3,0 millj. MIÐVANGUR Góð 2ja herb. 60 fm íb. Verð 3,9 millj. ÖLDUTÚN Gullfalleg 40 fm einstaklíb. öll sem ný. Verð 3,0 millj. SELVOGSGATA - LAUS Góö 2ja herb. 45 fm íb. Verö 2,5 millj. Gjörið svo vel að líta innl jm Sveinn Sigurjónsson sölustj. ||™ Valgeir Krlstinsson hrl. Sklpulag tll ársins 2005 ■ Þörf fyrir 1300 nýjar íbúöir ■ ■ I\ý störf handa 3000 manns ■ Garóabær liorflr tll framtíóarínnar FÓLKSFJÖLGUN hefur verið mikil í Garðabæ á undanfornum ára- tugum. íbúar þar eru nú um 6.800, en árið 1950 voru þeir aðeins rúmlega 500. Byggðin heftir því þanizt út og bærinn breyzt að sama skapi. Nú hefiir verið gefið út sérstakt kynningarkort af aðalskipu- lagi Garðabæjar 1985-2005 og verður því dreift á hvert heimili í bænum á næstunni. Bærinn tók við umsjón eigin skipulagmála árið 1973, en fram að þeim tima hafði það verið í höndum Skipulagsstjóra rikisins. Aðal- skipulagið var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar í marz 1987, en það byggir á eldri skipulagstillögum, sem lagðar höfðu verið fram áður. Aðalskipulagið er til 20 ára, en gert er ráð fyrir því, að það verði endurskoðað á fímm ára fresti. eftir Magnús Sig- urösson Samkvæmt íbúaspá eftir Jón Erling Þorláksson trygginga- fræðing, sem lögð er til grundvallar aðalskipulaginu, er gert ráð fyrir því, að íbúar í Garðabæ verði um tmmmmmm^m 8.600 árið 2005 eða um 5,9% af ibúm höfuðborg- arsvæðisins. Áætl- uð heildarþörf á nýjum íbúðum er talin verða um 1300 íbúðir eða að jafnaði um 65 íbúðir á ári, en á undanfömum 5 árum hafa um 100 íbúðir verið byggðar árlega í Garðabæ. Stefnt er að því að halda sömu einkennum á nýrri byggð og þeirri, sem fyrir er, þannig að mest- ur hluti fyrirhugðra íbúða verði í einbýlis- og raðhúsum, þótt einnig sé gert ráð fyrir nokkurri fjölbýlis- húsabyggð. Athygli vekur, að langmest fjölg- un er talin verða í aldurshópnum 65 ára og eldri eða um fjórföldun á skipulagstímabilinu. Aðrir aldurs- hópar munu breytast minna og í sumum mun fækka samkvæmt spánni t. d. í aldurshópnum 6-20 ára, en þó verða tiltölulega mörg böm á skólaaldri. Byggð allt frá landnámstíð Byggð hefur verið í landi Garða- bæjar allt frá landnámstíð, og er saga hennar rakin í skipulagskynn- ingunni. Landnáma getur tveggja landnámsjarða. Á Vífilsstöðum bjó Vífill, leysingi Ingólfs Amarsonar og á Skúlastöðum bjó Ásbjöm Özur- arson, en talið er, að bær hans hafí verið, þar sem nú em Garðar. Við upphaflega skiptingu lands- ins í hreppa var núverandi land Garðabæjar í Álftaneshreppi. Árið 1878 var hreppnum skipt í Garða- hrepp og Bessastaðahrepp og hafa mörk Bessastaðahrepps haldizt nær óbreytt síðan. Garðahreppur hefur nokkmm sinnum látið af hendi landssvæði, mest árið 1908, er Hafnarfjörður var gerður að sjálf- stæðu sveitarfélagi og fékk kaup- staðarréttindi. Nú er land Garða- bæjar um 40 ferkm. Fyrsta tiilaga að skipulagi þétt- býlis í Garðahreppi var gerð árið 1955. Náði hún yfír svæði beggja vegna H afnarfj arðarvegar, frá Arn- ameslæk að Engidal og risu þá íbúðahverfi í Hraunsholti og Silfurt- úni. Árið 1960 var Garðakauptún löggilt sem verzlunarstaður, en þá bjuggu þar í þéttbýli um 690 íbúar. Úpp úr 1960 hófst svo byggð á Flötum og í Amamesi, en eftir það hefur hún að mestu verið norðan Vífílstaðavegar í landi Hofsstaða. Þann 1. janúar 1976 fékk Garða- hreppur kaupstaðarréttindi, en hann hafði þá í allmörg ár verið fjölmennasti hreppur landsins. Sl. 20 ár hefur hlutfall Garðabæj- ar af íbúaflölda höfuðborgarsvæðis- ins stöðugt vaxið og hefur sú aiikn- ing verið rúmlega 0,1% á ári. í lok ársins 1987 vom íbúar í bænum 6.549, en verða samkvæmt spám um 8.600 í lok skipulagstímabils- ins. Sterkur miðbæjarkjarni — Markmið okkar er að skapa sterkan miðbæjarkjama í Garðabæ, sagði Pálmar Ólason í viðtali við Morgunblaðið, þar sem hann gerði grein fyrir skipulaginu.. — Með þetta í huga höfum við leitazt við að þétta íbúðabyggðina í mið- bænum og næsta nágrenni hans. Þar em nú t.d. að hefjast fram- kvæmdir við 45 sjálfseignaríbúðir fyrir aldraða. Þegar komið er í að- eins meiri fjarlægð frá miðbænum, verður raðhúsa- og einbýlishúsa- byggðin hins vegar meira áberandi. Markmið aðalskipulagsins er að ljúka uppbyggingu íbúðarhverfa að mörkum Kópavogs á skipu- lagstímabilinu. Pálmar Ólason er fæddur í Reykjavík, en á ættir sínar að rekja til Rangárvallasýslu. Að loknu stúd- entsprófí frá Menntaskólanum í Reykjavík 1958 hóf hann nám í arkitektúr við háskólann í Róm, en fluttist síðan til Svíþjóðar og lauk prófí í arkitektúr frá tækniháskó- lanum í Gautaborg með skipulag sem aðalnámsgrein. Að námi loknu var hann ráðinn byggingarfulltrúi í Garðabæ. í því starfí var hann í tvö ár, en hefur síðan rekið eigin teiknistofu og verið m. a. skipu- lagsráðgjafi Garðbæjar. Auk þess „Aherzla veröur lögð á lágreista byggð í vinalegu umhverfí," segir Pálmar Ólason skipulagsarkitekt. Mynd þessi er takin við Hrauns- holtslækinn í Garðabæ. hefur hann verið kennari í fagteikn- ingu á tæknisviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og um skeið var hann þar aðstoðarskólameistari. — Þéttbýli í Garðabæ varð til vegna framsýni einstakra athafna- manna og stjómenda hreppsins. Þeir buðu upp á lóðir fyrir einbýlis- hús, sem erfítt var að fá á þeim tíma í öðrum sveitarfélögum á höf- uðborgarsvæðinu, enda varð upp- byggingin mjög hröð. Garðahrepp- ur, sem þá var, var á meðal þeirra sveitarfélaga, sem fyrst urðu til að taka upp gatnagerðargjöld til þess að götur þar kæmust í sómasam- legt horf strax frá byijun. Á því leikur ekki vafí, að þetta átti mikinn þátt í þvi að gera sveit- arfélagið eftirsóttan í vitund fólks. Þar var mjög snyrtilegt umhverfi og búið að ganga frá götunum því sem næst jafnóðum og húsin voru byggð. Við höfum reynt að viðhalda þessu yfírbragði lágreistrar byggð- ar með myndarlegum lóðum. Það var sú ímynd, sem bærinn fékk í upphafi og það er ekki ætlunin að hvika frá henni í framtíðinni. Samtímis þessum stefnum við að því að byggja upp öflugan miðbæ með því að þétta byggðina þar og fá þannig fram sjálfstæðara bæjar- félag. Vaxandi atvinnustarfsemi Miklar breytingar hafa átt sér stað í atvinnumálum í Garðabæ á undanförnum árum, eins og fram kemur í skipulagskynningunni. Ymis atvinnurekstur hefur farið ört vaxandi t. d. málm- og skipasmíða- iðnaður. Atvinnusvæði verða alls Kort af aöalskipulagi Gröabæjar fram til ársins 2005. Pálmar Ólason arkitekt hefur unnið að gerð skipu- lagsins fyrst í samstarfi við Gest Olafsson arkitekt og síðar Einar Ingimarsson arkitekt. Stjómvöld bæjarins tóku mikinn þátt í skipulagsvinnunni, enda náðist það góð samstaða, að skipulagið var samþykkt einróma í bæjarstjórn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.