Morgunblaðið - 16.04.1989, Síða 16

Morgunblaðið - 16.04.1989, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGMtR SÚNNUDÁGUR 16. APRÍL 1989 FASTEIGNAMIDLUN SÍMI 25722_ (4linur) ‘r Langholtsvegur Tvær glæsilegar 4ra herb. íb. um 110 fm á 1. og 2. hæð í nýju húsi á baklóð. Bílskúrsréttur. íb. afh. tilb. u. trév. og fullfrág. að utan ásamt tyrfðri lóð. Byggjandi Húsa- smíði sf. Teikn. á skrifst. Verð 6,4 millj. PÓSTHÚSSTRÆTI 17 I Skeifunni - verslun, lager, skrifstofur Til sölu eignarhluti í nýbyggingu sem afhendist nú þeg- ar tilb. u. trév. og máln.: Verslunarhæð 270 fm. 2. hæð 250 fm. 3. hæð 250 fm. Kjallari (m. innkeyrslu) 580 fm. Teikn. og nánari upplýsingar á skrifstofunni. EICNAMIÐUJNIN 2 77 11 ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 Svcrrir Kristinsson, sölustjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum. Þórólfur Halldórsson, lógfr.—Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320 Atvinnuhúsnæði/atvinnurekstur Bújörð í N-ísafjarðarsýslu Höfum fengið til sölu eina af stærstu bújörðum á landinu 30 ha ræktaðs lands. Fullvirðisréttur. Laxveiðiróttindi. Góður húsakost- ur. Allar nánari uppl. á skrifstofu. Glæsileg skrifstofubygg. í Austurbæ. Hór er um að ræða þrjár hæðir og kj. samtals að grfl. 2100 fm. Fjöldi útibílastæða auk 20 bílastæða í bílhýsi. Allar nánari uppl. á skrifstofu. Myndbandaleiga Ein stærsta og glæsilegasta myndbandaleiga á Rvíkursvæðinu sem hefur verið rekin í 6 ár er til sölu. Ca 4500 titlar. Tæki til útleigu. Mjög góð velta. Leigutími er ótakmarkaður. Allar nánari upplýsing- ar veita sölumenn. Síðumúli Mjög gott 450 fm skrifsthúsn. á 2. hæð í lyftuh. Laust nú þegar. Góð greiðslukjör. Laugavegur - heil húseign Um er að ræða 500fm versl.- og skrifsthúsn. Nánari uppl. á skrifst. Skútuvogur Mjög gott 380 fm atvhúsn. sem skiptist í 260 fm lagerhúsn. með góðri innkeyrslu og 120 fm skrifstofuhúsn. Hentar afar vel fyrir heildverslun o.þ.h. Ármúli 84 fm gott skrifsthúsn. á 3. hæð. Laust 1. júnf. Góð greiðslukj. Iðnaðarhúsnæðitil leigu Mjög gott iðnhúsn. við Höfðatún í Rvík. Hér er um að ræða 2 hæðir og kj. 330 fm að grunnfl. Vörulyfta. Laust 1. maí nk. Nánari uppl. á skrifstofu. FASTEIGNA lf MARKAÐURINN ÓMmgStu 4, *ímar 11640 - 21700. Jðn Guðmundsson sðlustj., Laó E Lðv* lögfr., Óiaftir Stafánsson viðskiptafr. Opið kl. 13-15 HÍBÝLI/GARÐUR - k', • Ber er hver aó bakl . . . SBð --- „Stóllinn með vendibakinu", 1929. „AÐ BAKI sérhveijum snillingi stendur kona“ var einhvem tíma sagt. Húsgögnin hér á síðunni koma e.t.v. flestum kunnuglega fyrir sjónir og em oft notuð með nútíma arkitektúr. Stundum heyr- ir maður fólk álíta þau vera nútíma hönnun og telur þau jafn- vel til þeirra hræringa í hönnun sem átt hafa sér stað á undan- föraum ámm. Flestir sem eitthvað örlítið em kunnugir hönnun kenna þessi húsgögn við svissn- eska arkitektinn Le Corbusier (1887—1965). Eitt af því sem at- hyglisvert er við þessi húsgögn, samt mörgu öðm, er hversu vel þau falla að því nýjasta í arkitekt- úr hvers tíma þó þau hafi verið hönnuð fyrir meira en 60 ámm á ámnum kringum 1920—’30. Þessi húsgögn teljast klassísk. Annað atriði e.t.v. mun athyglisverðara er að flest þeirra em talin hönnuð af konu nokkurri, Charlotte Perr- iand, og þróuð í samvinnu við Le Corbusier og Pierre Jeanneret en þau þijú störfúðu saman á þessum árum á teiknistofú Le Corbusier. A einstaka stað hafa þau þijú sam- an verið nefiid sem höfúndar hús- gagnanna en þó oftast Le Corbusi- er einn. að vakti mig til umhugsunar og furðu í senn að í ekki ómerkara riti en „History of Modem art, paint- ing sculpture and architecture" eftir H.H. Amason er þessa konu hvergi að finna í nafna- skrá, né í nokkru slíku riti sem ég fletti, þó svo að minnst væri á bæði Le Corbusier og Pierre Jeanneret og þeirra samstarf. Þegar Charlotte Perriand leitaði eft- ir samstarfi við Le Corbusier var svar hans ekki mjög hvetjandi: „Við saumum ekki út á vinnustofu minni.“ En viðhorf hans til kvenna og Perr- iand breyttust þegar hann sá nýstár- legan bar úr krómuðu stáli og áli á sýningu í París árið 1927. Hönnuður þessa bars var húsgagnahönnuður- inn Charlotte Perriand og stuttu seinna hóf hún störf á vinnustofu Le Corbusier. Þegar Le Corbusier kynnti verk Charlotte Perriand á vegum teikni- stofunnar, voru þau kynnt einungis sem verk færs hönnuðar án þess að skírskotað væri til kynferðis hennar, enda áttu sér þá stað byltingakennd- ar breytingar á kvenímyndinni og viðhorfi til kvenna, með sjarleston og Josephine Baker. í fyrirlestri sem Le Corbusier hélt í Buenos Aires árið 1929 lýsir hann nýju viðhorfi sínu til kvenna undir áhrifum frá Josephine Baker, sem hann kynntist á ferðalagi í Suður- „Stóra hægindið", 1928. Ameríku, og samstarfsmanni sínum Charlotte Perriand. — „Konan er allt- af feti framar. Konan skildi að hún var komin í klípu. Ef hún átti að uppfylla þær kröfur sem tíska og eldri viðhorf gerðu til hennar en samt fylgja því sem nútíma tækni og þró- un höfðu upp á að bjóða; vinnu, frama,... án þess að fórna nokkru, hefði hún að lokum þurft að hætta að sofa. Svo konan stytti hárið, pils- in og ermamar. Hún gengur nú um berhöfðuð með leggina fría og tekst að klæða sig uppá á fimm mínútum. Samt sem áður er hún falleg og töfr- andi. Hvað með okkur karlana? Dap- urleg staðreynd. Fullkæddir líkjumst við hershöfðingjuin, þvingaðir með stífaða flibba og getur ekki verið að nokkrum okkar þyki það þægilegt. Og hvað gerum við? — Þetta hug- rekki, framtakssemi og þessi nýi andi sem brýst fram í byltingar- kenndum breytingum á klæðaburði kvenna eru undur og stórmerki nút- ímans! Þakka ykkur fyrir konur.“ (Úr fyrirlestri L.C. í Buenos Aires.) Sjálfsagt hefur Charlotte Perriand af aðdáun og djúpri virðingu fyrir hönnun og hugmyndafræði Le Cor- busier setið í hljóðu þakklæti að allri hönnunarvinnunni. En var henni nokkurn tíma full- þakkað? (Byggt á grein í „The architec- tural Review“ jan. 1987 og „Le Corbusier“ eftirRenato de Fusao.) „Snúningsstóllinn", 1929. Charlotte Perriand á legubekknum sem hún hannaði ásamt Le Corbusier og Pierre Jeanneret 1928. eftir Elísabetu V. Ingvarsdóttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.