Morgunblaðið - 04.07.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐLÐ IÞROl IIR ÞRIÐJIJDAGUR 4: JÚLÍ 1989
B 5
KNATTSPYRNA / TOMMAMOTIÐ 1989
Botta líka
sparkað inni
Þrátt fyrir að utanhússknatt-
spyrna sé í hávegum höfð á
Tommamótinu þá var einnig keppt
um Tommameistaratitilinn innan-
húss. Keppnin fór fram á föstudag
og var keppt bæði í A og B flokki.
Reynir frá Sandgerði kom á óvart
og sigraði FH 4:1 í úrslitaleik A-
liða, en þeim Reynismönnum hefur
ekki gengið sem best á Tommamót-
um hingað til. FH kom fram hefnd-
um í flokki B-liða — komst einnig
í úrslit þar og sigraði Leikni 3:1 í
úrslitaleiknum.
■ Úrslit B/10
Gróttudrengirnir Kristinn, Sigurður, Sölvi og Valgarð voru allir búnir að
eiga góða daga á knattspymuhátíðinni í Eyjum.
Maðurinn lék á
flautu fyrir tröllin
Seltjarnarnes átti að sjálfsögðu
sína fulltrúa á Tommamótinu
í Eyjum og voru Gróttustrákarnir
Kristinn Magnússon, Sigurður Fr.
Guðlaugsson, Sölvi Þórðarson og
Valgarð Briem þeirra á meðal.
Gróttustrákamir vom greinilega
ánægðir með lífið og tilveruna þessa
dýrðardaga í Eyjym. „Við erum
búnir að gera margt skemmtilegt
héma. Það er mest gaman að spila
fótbolta, en svo var alveg frábært
í bátsferðinni. Við sáum svona hell-
isdraug." Þegar blaðamaður hváði
kom í ljós að umræddur hellis-
draugur var andlit á steini í einum
hellinum sem skoðaður var í báts-
ferðinni. Strákamir vom ekki allir
sammála hvort um alvöm draug
væri að ræða en viðurkenndu þó
að svo gæti vel verið. „Svo spilaði
maðurinn, sem stýrði bátnum, á
þverflautu fyrir tröllin sem búa í
hellinum og passa drauginn," sögðu
strákamir og fannst greinilega mik-
ið til koma.
Fótboltahátíð!
TOMMAMÓTIÐ1989 varsett
með viðhöfn á miðvikudags-
kvöldið. 24 félög voru mætt á
staðinn með 48 lið þannig að
alls voru um 600 knattspyrnu-
snillingar sem léku listir sínar
á mótinu í blíðskaparveðri.
Mótinu var slitið með giæsi-
brag á sunnudagskvöldið og
þar fengu ýmsir útvaldir verð-
laun fyrir afrek sín. Þá voru
allir keppendur leystir út með
viðurkenningarskjali fyrir
þátttökuna. Það var ekki
ómerkari maður en sjálfur
Ásgeir Sigurvinsson sem af-
henti krökkunum verðlaunin
og hafði hann nóg að gera
þess á milli við að gefa ung-
um aðdáendum eiginhand-
aráritun.
að var mikið líf í Eyjum
mótsdagana og hinir fjöl-
mörgu keppendur og fylginautar
þeirra settu svip á bæjarlífið.
Hvert sem farið var gaf á að líta
fríða flokka keppenda í skrautleg-
um liðsbúningum. Það er ekki nóg
með að Tommamótið dragi að sér
knattspymumenn á aldrinum
6-10 ára, foreldrar eru í æ ríkara
mæli farnir að fýlgja krökkunum
eftir og mátti ekki á milli sjá hvor
hópurinn skemmti sér betur.
Þrátt fyrir að Tommamótið sé
fyrst og fremst knattspymuhátíð
þá hafa krakkarnir nóg að gera
milli þess sem þeir sparka bolta.
Liðin fara í skoðunarferð um eyj-
una, skoða skrýtna hella og íbúa
þeirra í bátsferð, keppa í ýmsum
þrautum og á laugardagskvöldið
var haldin veigamikil grillveisla.
Þá vom krakkamir önnum kafnir
við að kynnast hver öðmm og
víst er að margir hafa stækkað
vinahóp sinn til muna á þessum
dýrðardögum í Vestmannaeyjum.
Það þarf geysilega mikla vinnu
af hendi umsjónarmanna til þess
að svona mót geti farið jafn vel
fram og raun bar vitni. Starfs-
menn á mótinu, sem flestir vom
Týrarar, vora rúmlega 200 og á
þönum frá morgni til kvölds. Þessi
mikla vinna sem mótið kostaði,
bæði í undirbúningi og fram-
kvæmd, skilaði góðum árangri og
hvergi bar skugga á framvindu
þessa 6. Tommamóts sem er orð-
inn svo stór þáttur í lífi yngsta
knattspyrnufólks okkar.
Tommamótinu er að sjálfsögðu ekkert gefíð eftir. Hér er það ungur Völsungur sem á í höggi við tvo Grindvíkinga.
Völsungurinn hefur betur þrátt fyrir frumleg varnartilþrif Grindvíkinganna.
„Soldið“ gaman að fá alla
krakkana í heimsókn
Þegar úrslitaleik A-liða var lokið
á sunnudag, rakst blaðamaður
Morgunblaðsins á tvo Eyjapeyja
sem fylgdust stóreygir með mynda-
töku liðanna sem léku til úrslita.
Þeir félagar, Sigurður Einarsson
og Gunnar Þór Guðbjörnsson eru
báðir í Tý, en léku ekki með að
þessu sinni. Þeir tóku samt af lífi
og sál þátt í öllu umstanginu kring-
um Tommamótið. Heimastrákar
sem leika á mótinu missa að vísu
af því ævintýri að gista með öðmm
félögum í skólunum, og sögðu Sig-
urður og Gunnar að það væri eflaust
gaman að vera með þar. „Þetta er
búið að vera mjög skemmtilegt og
næsta ár ætlum við að reyna að
spila með sjálfir, “ sögðu strákarnir.
„Okkur finnst samt ekkert leiðin-
legt að mótið skuli vera búið núna,
því þegar allir strákarnir fara heim
til sín þá fáum við pláss til að vera
í fótbolta á grasinu þegar við vilj-
um.“
Týrararnir Sigurður Einarsson og Gunnar Þór Guðbjörnsson voru voru ánægð-
ir með gestina, en hlökkuðu samt svolítið til að fá grasið sitt aftur til einkanota.
Gerði mér vonir eftir landsleikinn
Besti markmaður mótsins var
KA-drengurinn Þórir Sigm-
arsson og kom það engum á óvart
því drengurinn sýndi fádæma ör-
yggi milli stanganna. Mark-
mannshæfileikarnir virðast liggja
í ættinni því Þórir er bróðir dren-
gjalandsliðsmarkmanns íslands,
Eggerts Sigmarssonar.
„Mér fannst helsti keppinautur
minn vera Stjörnumarkmaðurinn.
Við vorum báðir valdir í landslið-
ið, en þegar ég frétti að ég ætti
að byija inná fór ég fyrst að gera
mér vonir. Þetta er mikill heiður
og ég stefni að því að gera betur
og komast í landsliðið þegar þar
að kemur,“ sagði Þórir. Hann vildi
taka fram að Eggert bróðir hans
og þjálfarinn Jóhannes Bjarnason
ættu miklar þakkir skildar.
Bjarnl Guðjónsson, ÍA tekur hér á móti verðlaunum úr hendi Ásgeirs Sigur-
vinssonar. Bjarni var útnefndur besti leikmaður Tommamótsins.
Þetta kom mér
mjög á óvart
- sagði bestileikmaðurTommamótsins
Skagadrengurinn Bjarni Guð-
jónsson var valinn besti leik-
maður Tommamótsins 1989. Hann
er sterkur leikmaður, hefur gott
auga fyrir samleik og vinnur geysi-
lega vel fyrir liðið. Bjarni hefur
ekki langt að sækja hæfileikana,
en hann er sonur Guðjóns Þórðar-
sonar knattspyrnumanns af Skag-
anum.
Bjarni var að vonum stoltur af
verðlaununum, en sagði að útnefn-
ingin hefði komið sér á óvart.
„Þetta er búið að ganga vel hjá
mér, en ég átti samt von á að Búi
Bendtsen KR-ingur hlyti verðlaun-
in. Við Skagamenn getum vel við
unað. Við lentum í 2. sæti í okkar
riðli eftir tap gegn KR sem vom
erfiðustu andstæðingarnir. Ég leik
á miðjunni og tek þvi ekki svo mik-
inn þátt í sókninni, en mér tókst
samt að skora 5 mörk sem er ág-
ætt — held ég.“
Keflvíkingar heiðraðir
Verðlaun fyrir besta varnarleikinn
og flest mörk skoruð féllu bæði í
skaut Kelfvikinga. Guðmundur
Steinarsson var markahæstur á
Tommamótinu með 14 mörk og
félagi hans Hjörtur Fjeldsted var
kjörinn besti varnarleikmaðurinn.