Morgunblaðið - 20.09.1989, Qupperneq 1
-I-
Gesturinn er
dálkur fyrir ykk-
ur sem lesið
Myndasögur
Moggans. Sendu
okkur passamynd
af þér. Skrifaðu
með hvað þú heit-
ir, aldur og hvar
þú býrð. Það væri
gaman efþú segð-
ir okkur stuttlega
frá sjálfum þér.
Þetta gæti verið
skemmtilegt
tækifæri til að
komast í blöðin!
Gesturinn
Ég heiti Júlía Sif Guðjónsdóttir, en er kölluð
Júlla. Ég er fædd 1973 og á afmæli þann 27/9.
Ég er að fara í 9. bekk í Hagaskóla. Eg á heima
í Hvassaleiti 153 á 2. hæð til vinstri.
Áh&gamái mín eru að ferðast og fara í bíó með
vinkonum mínum. Skemmtilegasta námsgreinin
mín er enska og leiðinlegustu námsgreinarnar eru
stærðfræði og heimilisfræði.
Bestu dagar vikunnar eru föstudagur og laugar-
dagur. Leiðinlegustu dagar vikunnar eru mánudag-
ur pg sunnudagur.
Ég hef átt heima í Svíþjóð í sjö og hálft ár, en
ég hef ferðast mjög lítið. Ég hef annars farið til
Danmerkur og Bandaríkjanna. Það land sem mig
langar að ferðast til er Þýskaland.
P.s. Ég þakka gott blað.
Bless, bless,
Júlía
Fríða Þórisdóttir, 5 ára, teiknaði þessa mynd.
Pennavinir
Margrét Ragna Bjarnadóttir,
Grund I,
Hrafhagilshreppi,
Eyjafírði,
601 AKUREYRI
Margrét vill eignast pennavini sem eru 10 ára og eldri.
Áhugmál hennar eru margvísleg.
Elísabet Árný Þorkelsdóttir,
Búhamri 29,
900 VESTMANNAEYJUM
Elísabet er 10 ára og vill eignast pennavini á aldrinum 8-11
ára, bæði stelpur og stráka. Áhugamál: Skíði, hesta-
mennska, börn og margt fleira.
Sandra Sif Jónsdóttir,
Hrísarlundi 6A,
600 AKUREYRI
Sandra Sif er 9 ára og óskar eftir pennavinum á öllum aldri
bæði strákum og stelpum. Áhugamál: Pennavinir, sund og
margt fleira. Sandra svarar öllum bréfum.
Bryndís Steinunn Brynjarsdóttir,
Sólvallagötu 30,
230 KEFLAVÍK
Bryndjs er 13 ára og vill eignast pennavini á aldrinum 12-16
ára. Áhugamál: Plötur, skíði, pennavinir og fleira. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
9258
Hringspilið
Þátttakendur setjast á gólfið með stóra pappírsörk fyrir framan sig.
Á blaðið eru teiknaðir margir hringir sem hafa hver sitt mynstur eða
sinn lit. Það mega ekki vera tveir eins hringir. Einn stjórnar og sá
hinn sami segir: „Allir setja fingurinn í hring með . . .“ Þá eiga allir
að setja vísifingur inní hringinn sem nefndur var. Sá sem setur fingur-
inn í vitlausan hring fær lítinn pappírsmiða sem refsingu. Sá sem feng-
ið hefur þrjá refsimiða verður að hætta i leiknum.
Úr ýmsum áttum
Kúlufískur
Við strendur landa í
titabeltinu lifir lítill fiskur
sem er kallaður kúlufiskur
vegna þess að þegar hætta
steðjár að getur hann blás-
ið sig upp í eins konar
kúlu, þannig að hann verð-
ur of stór munnfylli fyrir
ránfiska sem vilja gjarna
gæða sér á honum. En
þetta er ekki það eina
skemmtilega við kúlufisk-
inn, vegna þess að þegar
hann er dreginn upp úr
vatninu getur hann urrað
og hrinið aðvarnadi.
Kúluelding
Mörg ykkar hafið séð
eldingar í þrumuveðri.
Flestar eldingar eru eins
og sikk sakk í laginu og
geta verið marggreindar.
En einnig er til mjög sjald-
gæft form af eldingum sem
eru kúlulaga. Þær líta ú :
eins og glóandi boltar á
stærð við appelsínur. Kúlu-
eldingarnar geta farið
mjög hægt um og verið
alveg hljóðlausar eða þær
springa með miklum háv-
aða.