Morgunblaðið - 26.09.1989, Side 2
I * I
2 B
MÖRGUN^BIAbá) 1ÞROTTIR ÞRIÐJUDAGURyj.'sEPTEMBEE 1989
FRJALSAR IÞROTTIR / SPJOTKAST
„Verðum að beijast
með kjafti og klóm
gegn ólög-
legum
spjótum"
- segirEinarVilhjálmsson. „Þriggja
ára æfingar og vinna mín er í hættu“
Morgunblaðið/Einar Falur
Einar Vilhjálmsson er ekki yfir sig ánægður með framleiðsluna á spjót-
um frá Ungveijalandi.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ ÓMAR Jóhannsson úr golf-
klúbbi Suðurnesja fór holu í höggi
á móti í Leirunni um síðustu helgi.
■ ARNAR Guðlaugsson, sem var
aðstoðarþjálfari Ivans Varlanov
hjá Völsungi í knattspyrnunni í
sumar, verður þjálfari Völsungs í
handboltanum í vetur. Húsvíking-
ar leika í 3. deild.
■ ÓLAFUR Gottskálksson,
markvörður ÍA sem var kjörinn
efnilegasti leikmaður 1. deildar,
mun að öllum líkindum leika körfu-
knattleik með Keflvíkingum í vet-
ur. ÍBK verður án tveggja leik-
manna frá því í fyrra. Jón Kr.
Gíslason fór til Danmerkur og
Axel Nikulásson gekk til liðs við
KR-inga.
■ HAFSTEINN Bragason,
hornamaður úr Stjörnunni, mun
líklega missa af fyrstu leikjum vetr-
arins í handknattleik. Hann meidd-
ist á fingri í hraðmóti um helgina
og er í gifsi.
■ í FYRSTA sinn í sögu ís-
lenskra getrauna kom fram röð
með 12 rétta en engin með 11
rétta. Fyrsti vinningur kom á ein-
faldan seðil og því var greiddur út
vinningur fyrir 10 rétta.
■ MIKIL réttarhöld standa nú
yfir í T'ékkóslóvakíu vegna mútu-
máls sem upp kom fyrir skömmu.
Fimmtán leikmenn, fjórir dómarar
og þrír aðstoðarmenn eru meðal
sakbominga. Leikmennirnir koma
frá Frydek Mistek en liðið tapaði
nokkuð óvænt fyrir Spartak Usti
sem var í bullandi fallhættu. Nú
hefur semsagt komið í ljós að pen-
ingar drógu úr getu varnarmanna
Frydek og allir leikmenn liðsins
hafa verið dæmdir í leikbann. Þetta
er þriðja mútumálið í Tékkósló-
vakíu á þessum áratug en kunnug-
ir segja að í knattspyrnunni séu
alltaf peningar í spilinu.
■ UEFA, knattspyrnusamband
Evrópu og EBU, samtök evrópskra
sjónvarpsstöðva, hafa skrifað undir
fimm ára samning vegna Evrópu-
keppni félags- og landsliða í knatt-
spyrnu frá 1991-96. EBU greiðir
samtals 50 milljónir dollara (um
þrjá milljarða íslenskra króna) fyrir
sýningarréttinn. Þar af eru 18 millj-
ónir fyrir Evrópukeppni landsliða
1992 og 1996.
■ FLORENCE Griffith-Joyner,
sem vann til þrennra gullverðlauna
á Ólympíuleikunum í Seoul, er í
vondum málum. Bandaríski hlaup-
arinn Darrel Robinson hefur
nefnilega sakað hana um lyfjatöku
og jafnvel sagt að hann hafi sjálfur
selt henni lyfin. Þetta kom frá í
viðtali við Robinson í vestur-þýska
blaðinu Stern. Hann sagðist hafa
selt henni lyf fyrir 2.000 dollara í
mars 1988 og það hafi sko ekki
verið neinar vítamínpillur. Robin-
son endurtók svo þessar ásakanir
í þætti í vestur-þýska sjónvarpinu.
Joyner, sem var í þessum sama
þætti, sagði hinsvegar að Robinson
væri ekki með öllu mjalla og hrað-
lyginn í þokkabót. Bandaríska
fijálsíþróttasambandið hefur þó
ákveðið að rannsaka hvort eitthvað
sé til í þessum ásökunum. Þess má
geta að brasilski hlauparinn Joaqu-
in Cruz og gulldrengurinn Carl
Lewis hafa áður sakað Griflíth
um lyQ'atöku. En nú er hún búin
að fá nóg og undirbýr málshöfðun
á hendur Robinson.
■ SOVÉSKI landsliðsmaðurinn
Belanov kemur til Mönchenglad-
bach nú í vikunni og mun vænta-
lega leika með liðinu gegn Köln
um næstu helgi.
■ TURU Diisseldorf hefur orðið
fyrir áfaili. Tékkneski landsliðs-
markvörðurinn í handknattleik,
Barda, er meiddur á baki og verður
frá keppni í fjóra mánuði.
M SOVÉSKA meistaraliðið Minsk
vann Essen stórt, 32:22, í keppn-
inni um Super Cup í handknattíeik.
„ÞETTA er sorgarsaga,"
sagði Einar Viihjálmsson,
spjótkastarinn snjalli, þegar
hann sagði frá komu spjóta
frá Ungverjalandi inn á mark-
aðinn í sumar. „Ekki veit ég
hvort þetta hafi verið viljaverk
hjá framleiðanda í markaðs-
skyni, eða hvort hér sé um
að ræða galla eða
ónákvæmni íframleiðslu
spjóta. Eitt er víst að hér eru
á ferðinni stórlega gölluð
spjót. Það er búið að misnota
og vanvirða spjótkastsgrein-
ina stórlega," sagði Einar.
Isumar urðu margir spjótkast-
arar gramir vegna smíði á nýj-
um spjótum frá Ungveijalandi.
„Við getum ekki annað en verið
•■■■■i áhyggjufullir.
SigmundurÓ. Þessi spjót eru
Steinarsson ólögleg,“ sagði
skrifar Steve Backley,
spjótkastarinn
sterki frá Englandi, „Þetta spjót
nálgast að vera eins og það spjót
sem var bannað fyrir þremur
árum,“ sagði Einar Vilhjálmsson.
„Við vorum meðvitaðir um
vandræðin sem sköpuðust í sam-
bandi við Nemeth-spjótin, áður
en spjótkastaramir fóru að deila
á spjótin. Við skoðuðum sumar
gerðir spjótanna. Vandamálið er
að sum þeirra uppfylla kröfur, en
önnur aftur á móti ekki. Það er
augljóst að við verðum að kanna
þetta mál betur,“ sagði Mick Gee,
tækninefndarmaður alþjóða
fijálsíþróttasambandsins.
Vandræðin í sambandi við
spjótkast hófust fyrir fjórum
árum, eða þegar A-Þjóðveijinn
Uwe Hohn náði risakasti - 104,80
metra. Þá varð það ljóst að gömlu
spjótin voru orðin hættuleg inni á
fijálsíþróttavöllum og stutt væri
í stórslys. I framhaldi af því var
ákveðið að breyta spjótunum
þannig að spjótkastarar urðu að
kasta þeim hærra í loft upp. Ný
spjót með öðrum þyngdarpunkti
komu á markaðinn. Það var ekki
hægt að kasta þeim eins langt
og þeim gömlu.
í sumar komu spjót frá Ung-
veijalandi fram á sjónarsviðið.
Þau voru byggð þannig upp að
hægt var að kasta þeim lægra og
jafnframt náðu spjótkastarar
lengri köstum. Margir snjöllustu
spjótkastarar heims voru ekki
ánægðir rneð spjótin og sögðu að
þau væru svipuð og gömlu spjót-
in. Hættunni yrði aftur boðið
heim.
„Sorgarsaga"
„Það var í Búdapest áttunda
ágúst sem sorgarsagan hófst.
Spjótkösturum var boðið þangað
til keppni. Þá var ný framleiðsla
á spjótum kynnt og spjótin sýnd.
Þeim var skotið á loft út úr þrýsti-
hólkum.
Mönnum varð þá strax ijóst að
það varð að kasta þessum spjótum
á ákveðin hátt til að ná árangri
með þeim. Þrengja varð útkasts-
hornið.
Það sem menn báru mikla virð-
ingu fyrir framleiðandanum Mik-
los Nemeth, sem varð Ólympíu-
meistari í spjótkasti í Montreal
1976, fóru nokkrir spjótkastarar
að nota spjótin,“ sagði Einar.
„Ég fann strax að spjótið var
mjög óeðlilegt. Það flaug vel ef
því var kastað lágt. Svifeiginleiki
þess var svipaður og gamla spjóts-
ins, sem var bannað fyrir þremur
árum. Þegar spjótinu var aftur á
móti kastað hátt varð það óstöð-
ugt í loftinu og veitist óeðlilega
um.
Á þijátíu til fjörtíu sentimetra
kafla fyrir aftan handfangið var
sandhúð á yfirborðinu. Sandurinn
var greinilega settur á til að auka
svifeiginleika spjótsins. Þegar því
var kastað lágt féll það seinna.
Mér var strax ljóst að hér var um
að ræða vægast sagt vafasamt
spjót.
Sumir spjótkastarar tóku strax
ótrúlegum framförum á stuttum
tíma með spjótið. Þjóðveijinn
Sneider kastaði því fljótkega
84,56 metra, en þess má geta að
hann hafði aðeins einu sinni áður
kastað yfir 80 metra. Vkr yfirleitt
að kasta þetta 76 til 78 metra."
Svíar og Finnar mótmæla
Einar sagði að fljótlega hafi
Finnar og Svíar farið að mótmæla
spjótinu, töldu það ólöglegt. „Ég
notaði ungverska spjótið í keppni
í Malmö 10. ágúst og setti þá
vallarmet. Kastaði 82,68 metra.
Eftir það kast komu menn til mín
og sögðu að vallarmetið yrði ekki
dæmt gilt þar sem spjótið væri
ólöglegt. Ég kastaði sænsku spjóti
í tveimur síðustu köstunum og
náði þá að kasta 84,50 metra, sem
er vallarmet.
Mikla umræður urðu um spjótið
á meðal spjótkastara. Þegar sam-
þykkt var að leyft yrði að keppa
með spjótinu á alþjóðu stigamóti,
Grand Prix, í Zúrich 16. ágúst
og síðan í Berlín og Köln, hristu
margir höfuðið yfír því að spjótið
hafi verið samþykkt á þessum
mótum.
Ég fór þá að hugsa um þessi
mál. Var sannfærður um að spjó-
tið væri ólöglegt, eða þá að nýtt
tímabil í spjótkasti væri að hefj-
ast. Ný heimsmet myndu líta
dagsins ljós fljótlega."
Rautt Ijós var sett á
spjótið í Mónakó
Áður en lokakeppni alþjóða
fijálsíþróttasambandsins hófst í
Mónakó, kom það fram á tækni-
fundi að spjótin frá Ungveijalandi
væru ólögleg og ekki mætti nota
þau í Mónakó. Bent var á að regl-
um um þvermálsákvæði á belg
spjótsins væri ekki fullnægt.
Einnig var sagt að það stæðist
ekki reglur um slétt yfirborð.
Ólöglegt væri að setja sand á
spjótið til að bæta svifeiginleika
þess. Framleiðanda spjótsins var
tilkynnt um þetta.
Framleiðandinn kom með ný
áhöld kvöldið fyrir keppnina. Þau
spjót voru með löglegt þvermál á
belg og oddi, en sandur var enn
til staðar. Sandhúðin var þó þykk-
ari. Þessi spjót voru skoðuð og
fyrri ákvörðun stóð óhögguð. All-
ir spjótkastararnir sem kepptu
vissu að þessi spjót voru ólögleg.
Á mótinu í Mónakó var síðast
keppt með ungverska spjótinu á
alþjóðlegu stórmóti og ég er nokk-
uð sannfærður um að þessi gerð
af spjótum verður ekki notuð aft-
ur,“ sagði Einar.
Hótaði að hætta í Tókýó
Einar sagði að þegar hann
keppti í Tókýó á dögunum, hefði
einn Þjóðveiji mætt til leiks með
ungverskt spjót. „Ég var ekki yfir
mig hrifinn. Ég tilkynnti móts-
höldurum að ef þetta spjót yrði
notað myndi ég ekki taka þátt í
keppninni. Ég sagði að ég myndi
ekki taka þátt í öðru móti sem
ungverskt spjót yrði notað, eftir
að því var hafnað á tækninefndar-
fundi í Mónakó.
Þar var okkur tjáð að spjótið
yrði tekið fyrir á tækninefndar-
fundi í Barcelona. Mönnum er
óljóst hver niðurstaðan var þar.
Ég hef frétt að Ungveijarnir hafi
þar fengið tveggja ára tilrauna-
leyfi á framleiðslu spjótanna.
Annars hefur verið farið mjög
leynt með þetta mál. Það er eins
og menn innan alþjóða fijálsí-
þróttasambandsins þori ekki að
hafa hátt um málið í kjölfar lyija-
málanna.
Ef ekki verður tekið á ólögleg-
um spjótum með kjafti og klóm
þá er spjótkast sem keppnisgrein
í hættu. Það á ekki að vera hægt
að bjóða upp á ólögleg spjót með
alþjóðlegum gæðastimpli, eins og
gert hefur verið.
„Þá er eins gott að hætta“
Ef haídið verður áfram á þess-
ari villigötu á það eftir að skaða
greinina. Þá mun ég ekki hugsa
mig tvisvar um og eins gott að
hætta.
Ég bíð nú eftir því hvað muni
gerast í þessu máli. Ég á kannski
ekki að þurfa að kvarta. Ég á
þriðja og fjórða lengsta kastið í
heiminum með ungverska spjót-
inu. Það er þó ekki það sem ég
er að hugsa um - heldur er það
framhaldið.. Ef ég á að fara að
keppa með breyttum spjótum þarf
ég að breyta allri tækni sem ég
hef verið að æfa upp í þrjú ár og
byija upp á nýtt í þriðja skipti á
ferlinum. Ég hef lagt mikið á mig
vegna ánægjunnar, en maður
yngist ekki upp með árunum,“
sagði Einar, sem sagðist vera
ánægður með árið. „Ég hef aldrei
náð eins jöfnum og góðum köstum
og á þessu ári“.