Morgunblaðið - 26.09.1989, Qupperneq 8
ÍÞ/émR
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Fyrsta þrenna
Francis í níu ár
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
Trevor Francis
setti sjáifan
sig í lið QPR og
réttiætti
ákvörðunina
með því að
gera öll mörk
liðsins gegn
Aston Villa í
3:1 sigri.
„VIÐ höfum leikið vel það sem af
er tímabilinu og ávallt betur en
mótherjarnir hverju sinni,“ sagði
Kenny Dalglish eftir 3:1 sigur Li-
verpool gegn Everton á laugardag-
inn í 1. deild ensku knattspyrnunn-
ar.
Mike Newell skoraði fyrir heima-
menn á 17. mínútu, en John Bar-
nes jafnaði fyrir Liverpool stundarfjórð-
ungi síðar með skalla. í seinni hálfleik
kom að þætti Ians Rush,
sem skoraði tvisvar.
Hann stóð sig vel, en féll
í skuggann fyrir Peter
Beardsley, sem átti þátt
í öllum mörkum Liverpool og var hreint
óstöðvandi. Liverpool tók þar með foryst-
una í deildinni, en Everton fór niður í
fimmta sæti.
Nýliðar Chelsea hafa komið á óvart
og eru í öðru sæti eftir 1:0 sigur gegn
Coventry. Kevin Wilson gerði eina mark
leiksins.
Millwall átti ekki í erfiðleikum með
botnlið Sheffield Wednesday og vann
2:0. Jimmy Carter og Tony Cascarino
skoruðu eftir hlé.
„Þetta er einn af þessum leikjum, sem
við unnum, en best er að gleyma honum;
sem fyrst,“ sagði George Graham hjá
Arsenal eftir 1:0 sigur gegn Charlton.
Brian Marwood gerði eina mark leiksins
úr vítaspymu, en heimamenn voru
heppnir að fá ekki dæmda á sig víta-
spymu skömmu síðar. Þetta var fjórði
sigur Arsenal í röð.
„Við fengum kjörið tækifæri til að
bæta fyrir mistökin í síðustu viku, en
engu að síður gáfum við frá okkur stig,“
sagði Terry Venables hjá Tottenham
eftir 2:2 jafntefli gegn Norwich. Gary
Lineker og Paul Gascoigne skoruðu fyrir
Spurs í fyrri hálfleik, en Dave Phillips
og Mark Bowen svöruðu fyrir heima-
menn eftir hlé.
„Leikmenn Forest sýndu snilldartakta
en hvað kom út úr spilinu," spurði Steve
Coppell, stjóri Crystal Palace, eftir 1:0
sigur sinna manna. „Sigurinn veitir okk-
ur sjálfstraust og ljóst er að leikaðferð
Wimbledon, langar sendingar og háar
og ekki tomma gefin eftir, hentar okkur
ágætlega,“ bætti hann við.
Manchester City tók hið stjörnum
prýdda og dýra iið Manchester United í
kennslustund og vann 5:1 — stærsti sig-
ur City gegn nágrönnunum í 19 ár.
Ahorfendur hrópuðu „Bless, bless,
Fergie", „burtu með Fergie“, en formað-
ur United sagði að stjórnin stæði eins-
hugar á bak við stjórann. „Alex stjórnar
og hann veit hvað hann þarf að gera,“
sagði hann.
„Ég myndi hafa hann í byijunarliðinu
í hverri viku,“ sagði Don Howe, aðstoðar-
þjálfari Trevors Francis. Francis setti
sjálfan sig í lið QPR og réttlætti ákvörð-
unina með því að gera öll mörk liðsins
gegn Aston Villa í 3:1 sigri. „Mínir menn
léku hörmulega," var það eina sem Gra-
ham Taylor hjá Villa sagði.
■ Úrslit / B6
■ Staðan / B6
L
FRAKKLAND
Hart
mætir
hörðu
Sovéski landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Vagiz Khidiat-
ulin sem leikur með franska lið-
inu Toulouse missti þijár tenn-
ur, er Spánveijinn Francisco
Carrasco hjá Sochaux gaf hon-
um olnbogaskot á síðustu
mínútu í leik liðanna, sem Soc-
haux vann 1:0.
Sovétmaðurinn svaraði fyrir
sig, dró Spánveijann niður á
hárinu og fengu báðir að sjá
rauða spjaldið.
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
■ JENS Kunig, 24 ára flóttamað-
ur frá A-Þýskalandi, átti leið fram
hjá Stuttgart. Hann mætti á æf-
ingu og var Arie Haan, þjálfari
Stuttgart, mjög
hrifinn af Kunig,
sem er miðvallar-
spilari. Stuttgart
ákvað að borga
uppihald og hótel fyrir Kunig.
■ KÖLN hefur ákveðið að bjóða
öllum þeim flóttamönnum frá A-
Þýskalandi, sem eru búsettir í
Köln og nágreni, ókeypis í stúku á
heimaleiki liðsins.
■ MJCHAEL Schuls hj á Kaisers-
Iautern á nú yfir höfði' sér sex
mánaða keppnisbann fyrir að hafa
stigið viljandi á fót línuvarðar og
óskað eftir að hann hefði augun
opin.
■ WOLFRAM Wuttke hjá Kais-
erslauern var settur í leibann um
helgina. Hann tilkynnti veikindi í
sl. viku, en sama dag og hann sagð-
ist vera veikur sást hann á vínhátíð.
■ ALLT er nú komið í háaloft
hjá Dortinund og var fram-
kvæmdastjóri félagsins rekinn um
helgina. Sá er einnig framkvæmda-
stjóri landsliðsmannsins Andreas
Miiller. Talið er nær öruggt að
hann fari frá Dortmund - líklega
aftur til Frankfurt, eða þá jafnvel
Juventus.
KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND
Leikmenn Stuttgarl
stóðu í ströngu
Ovænt uppákoma á heimavelli utandeildarliðsins Gútersloh, varð
til þess að leikur liðsins gegn Stuttgart tafðist um sex mínútur.
Rétt þegar leikurinn átti að hefjast kom maður nokkur á bifreið sinni
inn á völlinn og ók inn á vallarhelming Stuttgarts. Þar stöðvaði hann
bifreiðina og yfirgaf staðinn í loftbelg. Leikmenn Stuttg-
art ýtti bifreiðinni af ieikvelli.
Þeir áttu svo í erfiðleikum með að ryðja Gútersloh
úr vegi. Það var ekki fyrr en i framiengingu að þeim
tókst að tryggja sér sigur, 0:2. Buchwald og Hotic
skoruðu mörkin. Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með Stuttgart, sem
mætir Bayern Múnchen í 16-liða úrslitunum.
FráJóni
Halldóri
Garðarssym
ÍV-Þýskalandi
ÍÞRÚntR
FOLX
LEIKUR Everton og
Liverpool á laugardag var 141.,,-
derby-leikur“ liðanna. Ian Rush
hefur leikið í 24 þessara leikja og
gert 23 mörk fyrir
Liverpool.
■ GARY Lineker,
sem léttist mikið í
veikindum, gerði sitt
fyrsta deildarmark fyrir Totten-
ham um helgina. „Ég -þarf að
styrkjast meira,“ sagði hann, „og á
þó nokkuð í land.“
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
Brian Robson Gary Lineker
■ LENNIE Lawrence, stjóri
Charlton sendi dómurum tóninn
eftir tapið gegn Arsenal og sagði
að þeir stæðu alltaf með „stóru“
liðunum, er þau léku gegn þeim
„litlu“. „Þeir verða að muna að
framtíð okkar er í veði. Á síðustu
tveimur árum hefur Charlton
tvisvar fengið vítaspyrnu á heima-
velli og aldrei á útivelli. Sjáið til.
Við höfum fengið eina vítaspyrnu
í síðustu 80 leikjum. Það eru 7.200
mínútur. Ætlið þið að halda því
fram að það hafi aldrei verið brotið
á okkur innan vítateigs í allan þenn-
an tíma?“
■ KEN Bates, formaður
Chelsea, gekk út á völlinn fyrir
leikinn gegn Coventry, kallaði á
David Speedie, fyrrum leikmann
Chelsea en nú hjá Coventry og
færði honum ávísun upp á 750 pund
og gaf honum einnig stuttbuxur.
Ástæðan? Speddie dró niður bux-
urnar í ágóðaleik með Chelsea í
fyrra og var sektaður um 750 pund.
■ MANCHESTER City og
Manchester United léku 111.
„derby-leikinn“ á laugardag. 2.000
stuðningsmenn United voi-u með
miða í stæði, sem var fyrir stuðn-
ingsmenn City og brutust út ólæti.
Leikurinn tafðist í átta mínútur
fyrir vikið og leikmenn gengu af
. velli á meðan lögregla færði stuðn-
ingsmenn United á sinn rétta stað.
■ BRIAN Robson lék ekki með
United. 10 ára gömul meiðsli tóku
sig upp og gert ráð fyrir að lands-
liðsfyrirliðinn verði frá í mánuð.
■ TREVOR Francis, sem er 35
ára og hefur átt'við þrálát meiðsli
að stríða, lék sinn fyrsta heila leik
með QPR síðan 2. janúar og gerði
þijú mörk á hálftíma. Þetta var
fyrsta þrenna stjórans í níu ár.
■ GUÐMUNDUR Torfason
fékk fimm í einkunn fyrir leik sinn
með St. Mirren gegn Aberdeen.
Honum var skipt út af.
BELGIA
Arnór Guðiohnsen er að
ná sér vel á i ik.
Arnór lagði upp tvö
Arnór Guðjohnsen átti góðan leik
með liði sínu Anderlecht á laug-
ardaginn er liðið vann Cerlle Brúgge,
4:0. Arnór lagði upp tvö marka And-
erlecht. Van Den
Linden skoraði fyrsta
markið á 29. mínútu
og Degryse bætti öðru
markinu við skömmu
síðar eftir góðan undirbúning Arnórs.
Grún kom Anderlecht í 3:0 í upphafi
síðari hálfleiks. Linden skoraði síðan
sitt annað mark á 64. mín. eftir að
Arnór hafi leikið upp hægri vænginn
og gefíð fyrir.
Frá
Bjarna
Markússyni
iBelgiu
Arnór var tekinn af leikvelli á 68.
mínútu og gaf þjálfarinn þá skýringu
að mikið álag hafi verið á Arnóri
síðustu vikumar og vildi því hvíla
hann fyrir Evrópuleikinn gegn írska
liðinu á miðvikudaginn. Arnór lék nú
við hlið Van Den Linden í fremstu
víglínu.
Anderlceht er nú komið í efsta
sæti deildarinnar með 10 stig eins
og Mechelen.
Urslit / B6
Staðan / B6
GETRAUNIR: 121 122 X 1 X 2X1
LOTTO: 4 17 30 31 34 + 14