Morgunblaðið - 08.10.1989, Síða 1

Morgunblaðið - 08.10.1989, Síða 1
HEIMILI SUNNUDAGUR 8. OKTOBER BLAÐ íbúðarhúsnæði: Verómætió tæpir 250 milljaróar Verðmæti íbúðarhúsnæðis hér á landi var nálægt 250 milljörðum króna í árslok 1988 á núgildandi verðlagi sam- kvæmt yfirliti sem birtist í Hag- tölum mánaðarins. Þar kemur ennfremur í Ijós að verðmæti íbúðarhúsnæðis var rúmlega 30% af áætluðum þjóðarauði íslendinga sem var samtals rúmir 800 milijarðar í árslok 1988 á sama verðlagi. Á myndinni hér til hliðar sést þróun á verðmæti íbúðarhús- næðis á föstu verðlagi frá árinu 1945 auk þess sem fram kemur hvernig verðmætið á hvern íbúa hefur þróast á sama tíma- bili. Frá stríðslokum hefur verðmæti íbúðarhúsnæðis tæplega fimmfaldast en miðað við verðmæti á hvern íbúa er aukningin 2,5 föld. Hins vegar minnkar verðmæti á hvern íbúa lítilsháttar milli áranna 1985 og 1988. Vi litlar íbúöir Þegar litlar íbúðir, opin rými eða svokallaðar einstaklingsíbúðir eru inn- réttaðar, þarf að huga að ýmsu öðru en ef um er að ræða einbýli eða stóra íbúð með mörgum herbergjum, segir Elísabet V. Ingvars- dóttir innanhúshönnuður í þætti sínum Híbýli/Garður í dag. Hún telur, að fólki hætti oft til að yfirhlaða og reyna að fá fram lítið ein- býlishús úr lítilli íbúð eða einu herbergi. Mergur málsins sé sá, að í litlu rými sýnist minna meira og meira minna. Ef lítið rými er hlaðið öll- um þeim nauðsynjum, sem venjulegur búskapur og stórt heimili krefst, fellur hugmyndin um litla íbúð eða opið rými um sjálfa sig. Of mörg húsgögn minnka rýmið og hefta það frelsi, sem opið rými býður upp á. 2 81dpu- lagsgeró Miklar breytingar eru að verða á allri vinnu við skipulagsgerð. Fram að þessu hefur hún mikið farið fram hjá ríkinu, en nú eru verkefnin óð- um að færast út til sveitarfé- laganna sjálfra. Annað hvort ráða þau til sín sérmenntað fólk eða þau leita til sjálfstætt starfandi ráðgjafa. Þetta kemur m. a. fram í við- tali við Stefán Thors, skipu- lagsstjóra ríkisins, hér í blaðinu í dag. Hann telur, að bæði ábyrgð og vald með tilliti til skipulags eigi að vera í höndum sveitarfélagnna sjálfra.— Hlut- verk ríkisins á að vera fólgið í því að hafa með höndum ráð- gjöf við undirbúning undir skipulagsgerð og eftirlit. Þessi ráðgjafarstarfsemi á að snúa ^að sveitarstjórnum en einnig I ekki síður að hinum al- menna borgara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.